06.10.1952
Efri deild: 4. fundur, 72. löggjafarþing.
Sjá dálk 26 í B-deild Alþingistíðinda. (4)

19. mál, tekjuöflun til íþróttasjóðs

Viðskmrh. (Björn Ólafsson):

Herra forseti. Það er rétt, sem hv. 4. þm. Reykv. gat um í þessu sambandi, að á Norðurlöndum, þar sem þessi starfsemi hefur verið rekin um nokkurt skeið, rennur ákveðinn hluti teknanna til vísindastarfsemi, ef ég man rétt. Þetta var ákveðið, að mig minnir, eftir að þessi starfsemi hafði verið við líði um nokkurn tíma í þessum löndum og þegar séð varð, að tekjur þessar urðu æði miklar, sérstaklega í stærsta landinu, Svíþjóð, og það var talið réttmætt, að nokkur hluti þessara miklu tekna rynni til vísindastarfa eða annarra þjóðnytjastarfa. Þetta kom til tals, þegar reglur voru settar um þessa starfsemi hér, en vegna þeirrar óvissu, sem var um reksturinn í upphafi, og þar sem ómögulegt var að segja um, hversu miklar tekjur yrðu af rekstrinum, þá var ekki talið rétt að binda þetta að svo stöddu, fyrr en einhver reynsla fengist af starfseminni, er sýndi, hversu mikil tekjulind þetta mundi verða. Ég get sagt fyrir mitt leyti, ef það sýnir sig, að þessi starfsemi ætli að gefa af sér miklar tekjur í framtíðinni, og þó að íþróttastarfseminni sé mikil nauðsyn á talsverðum og auknum tekjum, þá mundi ég vera því fylgjandi, að tekjunum yrði skipt, ef það sýndi sig, að þær væru til skiptanna. En ég taldi rétt, að það fengist einhver reynsla á þessu, áður en sú ákvörðun væri tekin.