04.12.1952
Efri deild: 34. fundur, 72. löggjafarþing.
Sjá dálk 234 í B-deild Alþingistíðinda. (414)
17. mál, þingsköp Alþingis
Bernharð Stefánsson:
Herra forseti. Ég verð að láta undrun í ljós yfir því, sem hv. þm. Barð. hélt fram hér, að þar sem n. ber fram töluvert viðtækar breyt., sem ekki eru þó stórvægilegar efnisbreytingar á þingsköpunum, þá finnst honum ekki mega samþ. það hér, a.m.k. ekki við þessa umr., sökum þess að frv. í þeirri mynd fái ekki þá nema þrjár umr., sem eftir væru. Mér finnst þessi kenning vera bara kenning um það að, að minnsta kosti hv. Ed. megi ekki í verulegum atriðum breyta frv., sem koma frá hv. Nd. Ég vil algerlega fyrir hönd d. mótmæla þessu. Bæði samkv. stjórnarskrá og þingsköpum og öllum venjum hér er það algengt, að seinni deild, hvort sem það er Ed. eða Nd., breyti frv. mjög frá því, sem fyrri d. hefur gengið frá þeim, og þetta er ekkert annað en það, sem gert er ráð fyrir að geti komið fyrir, gert ráð fyrir því í þingsköpum og stjórnarskrá o.s.frv.
Ég held þess vegna, að það hljóti að vera eitthvað hulið, sem veldur þeirri andstöðu, sem þessar brtt. hv. n. hafa fengið hér, og skil ég varla, hvað það má vera, annað en það, ef það er einhver afbrýði hjá hæstv. dómsmrh. út af því, að ráðgert er að fella niður það ákvæði, að leyfi ráðh. þurfi að koma til, ef afbrigði á að veita. Ég var nú fyrstur til að hreyfa þessu atriði, annars vegar af þeirri ástæðu, eins og ég tók fram við 1. umr., að það kemur fyrir, að það er enginn ráðh. til staðar í d. eða í þinginu til að veita þetta leyfi. Ég skal fyllilega játa það, að það er ákaflega oft, að hæstv. dómsmrh. situr hér á fundum í hv. Ed., en flestir hinir ráðherrastólarnir eru venjulega auðir, - það vitum við öll, sem hér erum, að þetta er rétt, — og stundum vantar hæstv. dómsmrh. líka. Og þá er ákaflega óviðkunnanlegt og vafasamt, hvort það er með öllu löglegt að veita afbrigðin, ef enginn ráðh. er viðstaddur til að leyfa þau, þar sem stendur skýrum stöfum í þingsköpunum: „ef ráðh. leyfir“. Þess vegna finnst mér nauðsynlegt að afnema þetta atriði. En svo, eins og ég nefndi við 1. umr. málsins, þá er það ekki eingöngu af þeirri ástæðu, að ég tel það í sjálfu sér nauðsynlegt að fella þetta úr þingsköpunum, heldur álít ég, að þetta ákvæði sé bara úrelt, það sé eitt af leifum konungsvaldsins, þetta hafi verið sett í fyrstunni til þess að fulltrúi konungsvaldsins hér á Alþingi gæti haft hemil á því, að ekki væri hraðað málum. Ég hef nú ekki kynnt mér þetta atriði sögulega, þannig að ég geti fullyrt beinlínis um þetta, en mér finnst eftir öllu eðli málsins það vera þannig. Og ég sé ekki, hvað það á að þýða, að þetta leyfi ráðh. skuli þurfa að koma til. Ég hygg, að það verði venjulega svo, að ef ráðh. vill hafa einhver sérstök afskipti af máli og er ekki viðbúinn, þá nægi fyrir hann að snúa sér til forseta um það að taka málið af dagskrá eða ljúka ekki umr. fyrr en hann getur verið viðstaddur.
Þá verð ég að segja það, að mér finnst, að hv. 1. þm. N–M. hafi rétt að mæla, þar sem hann segir, að það sé ekkert stjórnarskrárbrot, þótt ekki sé beinlínis tekið upp í þingsköp ákvæði stjórnarskrárinnar. Ef það væri tekið upp ákvæði, sem kæmi í bága við stjórnarskrána, þá væri það stjórnarskrárbrot að sjálfsögðu og mundi ekki verða borið upp og mundi verða vísað frá atkvgr. En þó að falli niður úr þingsköpunum ákvæði um það, að hvor þd. geti sent forsetanum ávarp, þá sé ég ekki, að þar sé neinn voði á ferðum fyrir því. Nú, ef það er stjórnarskrárbrot að fella þetta niður, að hvor þd. geti sent konungi ávarp, þá erum við búnir að brjóta stjórnarskrána síðan 1944, því að það hefur ekkert verið um það í þingsköpunum, að hvor þd. geti sent forsetanum ávarp, heldur konungi. Hvaða konungi? — Úr því að vakin er nú athygli á þessu atriði, þá væri sjálfsagt réttara að fella ekki greinina með öllu niður, heldur þá samkv. stjórnarskránni segja bara, að í stað „konungs“ í 30. gr. komi: forseta Íslands. —Það er ákaflega einfalt. Ég hef hér tilbúna till. um það, þó að ég legði hana ekki fram að sinni, og þá er öllu réttlæti fullnægt í þessu atriði.
Þessar breyt., sem hv. n. leggur til að gera á þingsköpunum, ganga allar í þá átt að lögtaka það, sem hefur verið venja hér í Alþ. Það hefur yfirleitt verið venja með sárfáum undantekningum, að afbrigði frá þingsköpum hafa verið veitt, — að það hefur verið veitt leyfi til að taka mál fyrir, þó að ekki væri tilskilinn tími liðinn, og ég hygg, að í áratugi hafi ekki nema einu sinni komið fyrir, að ráðh. hafi neitað um afbrigði. Ég veit um eitt dæmi þess úr þingsögunni og ekki nema það eina. Og það skyldi nú vera, að það hafi ekki komið fyrir nema í þetta eina skipti. Það fullyrði ég ekki, en ég fullyrði hitt, að það eru áratugir síðan því ákvæði hefur verið beitt af ráðherra. Og hvers vegna má það þá ekki falla niður? Ég get verið því sammála, sem hæstv. ráðh. og fleiri hafa sagt hér, að þetta sé ekki ákaflega þýðingarmikið, þessi atriði, sem hv. n. hefur hér lagt til að breyta til þess að gera starf þingsins einfaldara og brotaminna, en þó að það sé ekki ákaflega þýðingarmikið, þá finnst mér, þegar þess er gætt, að það er eingöngu um það, að það skuli vera lögfest, sem við höfum haft hér fyrir venju, — þá finnst mér það undarlegt, þegar risið er svo hatrammlega upp á móti þessum smábreytingum eins og gert er.
Ég vil taka eitt fram, þó að það komi í sjálfu sér ekki þessum till. eða þessu frv. við, því að það er ekkert um það hvorki í frv. né till., að það er náttúrlega alveg hárrétt, sem hæstv. ráðh. sagði, að það er brot á þingsköpum, þegar menn eru að gera grein fyrir atkv. sínu, eftir að umr. er lokið. (Gripið fram í: Ég hef aldrei talað aðeins um það, ég átti við nafnaköll.) Já, við nafnaköll. (Gripið fram í.) Ja, það er náttúrlega ekki brot á þingsköpum. Forsetinn getur ákveðið nafnakall, og ef einn þm. óskar nafnakalls, þá er það á valdi forseta að ákveða það. Hitt er rétt, að það þarf tiltekna tölu þm. til þess að krefjast nafnakalls og sú krafa verður að koma skrifleg. — Ég þurfti nú að víkja mér frá og heyrði ekki vel það, sem hæstv. ráðh. sagði, en mér virtist hann vera að tala um það, þegar menn gera langa grein fyrir atkv. sínu við nafnakall. Það sé ég ekki að samræmist þingsköpum, því að þegar atkvgr. byrjar, er umr. lokið. Og greinargerð fyrir atkv. er auðvitað ræða og getur verið löng ræða. Fyrirrennarar mínir hafa alltaf síðan ég kom á þing leyft það að gera grein fyrir atkv. sínu. Ég hef leyft það líka. En það er mjög til athugunar nú, þegar hver maður þarf í ræðustól, sem talar í þinginu, hvort ætti ekki að taka þetta til nýrrar athugunar, hvort slíkt á að leyfa.