18.12.1952
Efri deild: 42. fundur, 72. löggjafarþing.
Sjá dálk 272 í B-deild Alþingistíðinda. (497)

11. mál, tekjuskattsviðauki

Fjmrh. (Eysteinn Jónsson):

Herra forseti. Ég ætla aðeins að taka fram út af brtt. á þskj. 453, að þótt svo kynni að fara, að hún yrði ekki afgr. frá d., þá er hún þannig vaxin, að ég mundi beina því til mþn. í skattamálum að athuga það, sem a-liður till. fjallar um, og um b-liðinn hef ég það að segja, að það mun verða lögð áherzla á, að mþn. í skattamálum hraði störfum, með það fyrir augum, að niðurstöður hennar geti orðið lagðar fyrir næsta reglulegt Alþingi.