02.12.1952
Neðri deild: 33. fundur, 72. löggjafarþing.
Sjá dálk 291 í B-deild Alþingistíðinda. (513)
13. mál, dýrtíðarráðstafanir vegna atvinnuveganna
Fjmrh. (Eysteinn Jónsson):
Ég ætla ekki að svara í löngu máli þessari löngu ræðu hv. 2. þm. Reykv., vildi þó segja örfá orð í sambandi við framlengingu á söluskattinum, sem hér er til umr.
Hv. 2. þm. Reykv. segir: Þessi skattur var lagður á til þess að borga útflutningsuppbætur og til þess að greiða niður dýrtíðina, — hann átti að falla niður, og því var jafnvel lofað, að hann yrði felldur niður, þegar gengislækkunin var samþ. — Það er ástæða til þess að benda þessum hv. þm. á það, sem hann þó vel veit, að útflutningsuppbæturnar voru ekki raunverulega greiddar af þessum skatti á sinni tíð, þær voru greiddar með yfirdráttarlánum í Landsbankanum. Það var stórkostlegur greiðsluhalli á ríkissjóði ár eftir ár, á meðan útflutningsuppbæturnar voru greiddar. Áður en gengislækkunin var samþ., þá var lagt hér fram fjárlagafrv. á Alþ., sem sýndi mjög glöggt, hvernig ástandið var. Á því fjárlagafrv. var söluskatturinn reiknaður teknamegin, en engar útflutningsuppbætur gjaldamegin. Þær komust ekki fyrir á frv. Þannig var þessum málum háttað, áður en gengislækkunin var gerð. Hv. 2. þm. Reykv. veit það líka vel, að það er algerlega rangt, að því hafi nokkurn tíma verið lofað í sambandi við gengislækkunina að afnema söluskattinn. Ég benti þvert á móti mjög greinilega á það strax þá, að eins og afkomu ríkissjóðs væri háttað, þá mundi ekki vera hægt að afnema söluskattinn, því að hallinn var svo stórfelldur á rekstri ríkisins, 35–40 millj. kr. á ári, og ætlunin væri að halda áfram að greiða niður verðlag á mörgum vörum innanlands og hefur það verið gert.
Þá vil ég í sambandi við þann áróður, sem hv. stjórnarandstæðingar halda hér uppi um tollana og skattana og hvað þeir hafi átt gífurlegan þátt í að auka dýrtíðina, segja aðeins fáein orð um það.
Ef við lítum á söluskattinn og verðtollinn saman í einu lagi, þá gefa þessir skattstofnar ríkissjóði allt að því eða um 200 millj. kr., eða nærri því helminginn af öllum ríkistekjunum. Og um þessa skattstofna tvo, söluskattinn sérstaklega og nokkuð um verðtollinn, gengur áróður stjórnarandstæðinga. Þeir vilja telja, að dýrtíðin eigi að verulegu leyti rót sína að rekja til þess, að þessir skattar séu yfirleitt teknir, og það mundi verða mikil bót að því, ef þeir væru annaðhvort afnumdir eða lækkaðir. Það er nú náttúrlega slík fjarstæða, að hægt sé að afnema þessa skatta, að það er ekki umræðuvert. En við skulum bara taka dæmi til þess að sýna samhengið í þessum málum. Við skulum athuga, hvaða áhrif þessir skattar hafa á verðlagið í landinu, söluskatturinn og verðtollurinn. Það er þá þannig, að allur söluskatturinn, eftir því sem hagstofan gefur mér upp, hefur áhrif til hækkunar á vísitölunni um 4 stig og allur verðtollurinn hefur áhrif til hækkunar á vísitölunni um 61/2 stig. Nú skulum við hugsa okkur, að t.d. 10% af þessum sköttum yrði fellt niður, eða um 20 milljónir. Það mundi hafa áhrif til lækkunar á vísitölunni um rúml. 1 stig. En fyrir ríkissjóð snýr dæmið þannig, eins og allir hv. þm. vita, þeir sem annars á annað borð vilja nokkuð vita, að yrði þetta gert, yrði geta hans til framlaga til nauðsynjamála, svo sem til atvinnuaukningar, stórlega lömuð.
Ég ætla ekki að fara að ræða hér um brtt. hv. 2. þm. Reykv. Hún er aðallega um innheimtuna á skattinum. Eins og þetta er núna, þá verða menn að skila þessum skatti í ríkissjóð jafnóðum og þeir innheimta hann frá fólkinu. En hv. 2. þm. Reykv. vill hafa innheimtumátann þannig, að þeir, sem reka fyrirtækin, geti innheimt skattinn hjá fólkinu, en haldið honum eftir fyrir sjálfa sig og ekki skilað honum í ríkissjóð. Þá mundi niðurstaðan verða sú, að þeir skilvísu, sem innheimta skattinn frá fólkinu, skila honum í ríkissjóð, en hinir, sem ekki eru jafnskilvísir, halda honum til afnota fyrir sjálfa sig. Þetta er hugsunin í brtt. hv. 2. þm. Reykv.