02.12.1952
Neðri deild: 33. fundur, 72. löggjafarþing.
Sjá dálk 306 í B-deild Alþingistíðinda. (518)

13. mál, dýrtíðarráðstafanir vegna atvinnuveganna

Forseti (SB):

Ég vildi leyfa mér að beina þeirri fyrirspurn til hv. 2. landsk., hvort hann treysti sér ekki til þess að flytja þessa brtt. við 3. umr. Það er illt að þurfa að tefja umr. um málið vegna hennar, ef kostur væri á því, að hv. þm. flytti brtt. sína við 3. umr. (Gripið fram í.) Ég vil freista þess að koma til móts við ósk hv. 2. landsk. og fresta umr. um 7. dagskrármálið um skeið.