05.12.1952
Neðri deild: 35. fundur, 72. löggjafarþing.
Sjá dálk 308 í B-deild Alþingistíðinda. (529)

13. mál, dýrtíðarráðstafanir vegna atvinnuveganna

Einar Olgeirsson:

Herra forseti. Ég flutti við 2. umr. þessa máls nokkrar brtt., og það voru þá fluttar fleiri brtt. um að reyna að fá einhverja rýmkun á söluskattinum. Ég hafði þá flutt brtt. um að undanþiggja íslenzkar iðnaðarvörur söluskattinum, og sú brtt. var felld. Ég mun nú ekki reyna við þessa umr. að fá frekari tilslakanir viðvíkjandi söluskattinum, af því að mér þykir alveg sýnt, hvernig vilji meiri hl. í Nd. er í því efni. En ég vildi gera hins vegar síðustu tilraun til þess að fá rýmkun á innheimtuaðferðinni. Ég flutti mjög ýtarlega brtt. um það siðast og vil nú leyfa mér að flytja aðra brtt. að gefnu tilefni. Ég verð að biðja hæstv. forseta um að leita afbrigða fyrir henni, með því að hún er skrifleg og of seint fram komin. Ég hef sent hana í prentun, en hún nær líklega ekki inn á þennan fund. Hún hljóðar á þessa leið, með leyfi hæstv. forseta:

„Við 3. gr. Á eftir greininni komi ný gr., svo hljóðandi: Í 24. gr. laganna, 4. málsgr., falli niður síðasti málsliður málsgr.“

24. gr. laganna, eins og hún er nú, er um innheimtuaðferðina. Í 4. málsgr. þeirrar gr. er síðasti málsliðurinn svo hljóðandi: „Þá má og innheimtumaður láta lögregluna stöðva atvinnurekstur hans, þar til full skil eru gerð, með því m.a. að setja verkstofur, útsölur, tæki og vörur undir innsigli.“ Eins og ég skýrði frá við 2. umr. málsins, þá hafa verið ákaflega miklar kvartanir meðal almennings út af hinni harkalegu framkvæmd þessara laga, og einhverjir kunna nú að hafa álitið af þeim hv. þm., sem þá hlýddu á mína ræðu, að ég hefði verið að kveða svo sterkt að orði eins og ég gerði með tilliti til þess, að ég vildi mjög gjarnan sem stjórnarandstæðingur lýsa svona frekar óvingjarnlegum aðferðum hæstv. ríkisstj. Þó var það ekki svo frá minni hálfu, enda notaði ég ekki sterkari orð um það heldur en ég býst við, að almennt séu notuð. Í gær, þegar fundur hófst, þá hitti mig hér niðri maður frá nokkrum samtökum, sem hafa verið óánægð með þetta, og fór með bréf frá þeim til fjhn. þessarar hv. d., sem hins vegar hefur ekki haldið neinn fund í millibilinu, en bréfinu hefur verið útbýtt til hv. þm. sem fjölritaðri grg. við frv. til laga, sem hins vegar ekkert bréf fylgir, en mér er kunnugt um, að hugsað var að senda fjhn. bréf. Ég hef talað við fjhn.- menn um þetta, hvort nokkur von væri um, að n. mundi sem slík flytja þetta, og það var engin von um það hjá fulltrúum stjórnarflokkanna. En ég hef hins vegar leyft mér að flytja núna þessa till. hér og vil, með leyfi hæstv. forseta, lesa þá grg., sem þessi samtök gera fyrir henni. Samtökin, sem að þessari ósk standa, sem ég nú ber fram, eru eftirfarandi: Það er Samband smásöluverzlana hér í Reykjavík, það er Félag íslenzkra iðnrekenda, það er Landssamband iðnaðarmanna, það er Samband veitinga- og gistihúsaeigenda, og það er Verzlunarráð Íslands. Ég veit þess vegna, að hv. þm. skilja, að þessi grg., sem hér er flutt fram, er flutt fram af mönnum, sem eru almennt mjög fylgjandi ríkisstj., og grg. hljóðar á þessa leið:

„Þeir, sem kaupa erlendis frá efni og verzlunarvörur, verða að greiða við tollafgreiðslu þeirra 7,7% söluskatt. Þetta fé verða þeir að festa í vörunum, þar til þeir geta selt þær aftur til neytenda og hafa fengið þær greiddar. En það hlýtur mjög oft að verða verulegur dráttur á því, að menn fái þennan útlagða söluskatt endurgreiddan, einkum hjá iðnfyrirtækjum, sem þurfa að framleiða úr efnivörunum og koma vörunum fullunnum á markað, og eins hjá öllum verzlunarfyrirtækjum, sem hafa einhvern vörulager. Allan þann tíma verða þessir aðilar að greiða vexti af því fé, sem ríkisvaldið leggur þeim á herðar að binda í vörum vegna söluskattsins. Þeir, sem selja hvers konar vöru í smásölu eða reka þjónustu, svo og iðnframleiðendur og iðnaðarmenn, verða að innheimta fyrir ríkissjóð sérstakan söluskatt af þessari sölu eða þjónustu. Ríkisvaldið skyldar menn til þess að innheimta þann skatt, án þess að þeir fái nokkra þóknun fyrir, og verða þar að auki að taka fulla ábyrgð á greiðslu hans. Mjög oft hefur hin söluskattskylda vara eða þjónusta ekki fengizt greidd, og fæst jafnvel aldrei greidd, þegar skatturinn er fallinn í gjalddaga, en það hreytir engu um greiðsluskylduna. Verða menn því oft og tíðum fyrir miklu tjóni og óþægindum, sem þeir mega þola bótalaust.

Nú um nær 2 ára skeið hefur verið til þess heimild í lögum að stöðva með lögregluvaldi atvinnurekstur þeirra manna, sem eigi hafa staðið í skilum með greiðslu þessa skatts á réttum gjalddögum, og skiptir engu máli þótt ekki vanti nema örfáar krónur til þess, að full skil hafi verið gerð. Telja verður, að réttur ríkissjóðs sé fulltryggður, þótt söluskatturinn væri ekki innheimtur með frekari valdbeitingu, en aðrir skattar, enda er hann samkv. lögum lögtakskræfur, og standa allar eignir viðkomandi aðila sem trygging fyrir greiðslu. Auk þess fellur skatturinn í gjalddaga ársfjórðungslega, svo að verulegar skuldir ættu ekki að þurfa að safnast hjá mönnum vegna vangoldins söluskatts. Svona harðneskjuleg innheimtuaðferð hlýtur einnig að gera alla aðra skattheimtu erfiðari, enda hefur það komið í ljós, að innheimta útsvara til bæjarfélaga hefur aldrei gengið verr, en þau 2 ár, sem nefnt ákvæði hefur verið í gildi. Og ekki gerir það mönnum auðveldara að inna af höndum skattgreiðslur, ef lögreglan setur atvinnutæki þeirra undir innsigli.

Aðalsmerki hvers lýðræðisþjóðfélags hlýtur að vera, að ríkisvaldinu sé beitt til hagsbóta fyrir þegnana í heild. Það er því hið mesta harðræði af ríkisvaldinu, er það launar þeim, sem innheimta fyrir það skatta endurgjaldslaust, með því að beita þá fremur lögregluaðgerðum en aðra þegna þjóðfélagsins.

Undirrituð samtök, en innan vébanda þeirra eru flestir aðilar, sem þetta ákvæði snertir, hafa bundizt samtökum um að vinna að því að fá fellda niður heimildina til þess að stöðva atvinnurekstur manna vegna vangoldins söluskatts. Tel ég, með tilvísun til framanritaðs, að það sé í senn rangt og óþarft að halda við þessari stöðvunarheimild og skora á hið háa Alþ. að fella hana niður. Virðingarfyllst,“ — og er þetta undirskrifað af Sambandi smásöluverzlana, Félagi íslenzkra iðnrekenda, Landssambandi iðnaðarmanna, Sambandi veitinga- og gistíhúsaeigenda og Verzlunarráði Íslands.“

Ég vil svo enn fremur minna á þá röksemd, sem ég kom fram með í gær í þessu sambandi, hvernig háttaði með lánsféð, sem gerir þetta enn þá brýnna. Þar sem atvinnurekendur fá ekki eðlilegt lánsfé til sins rekstrar, þá gerir það enn þá brýnna, að ríkissjóður, sem bannar bönkunum að lána atvinnurekstrinum fé, gangi ekki svona harðvituglega að viðvíkjandi söluskattinum. Og ég vil þar að auki benda á þau rök mín í gær, að þetta, hve hart er gengið að atvinnurekendum, hefur beinlínis valdið því, að allmikið af t.d. iðnrekendum hefur ekki getað staðið í skilum með vikulegar greiðslur á kaupgjaldi til verkafólks og brotið þar með lög, þannig að lánsfjárerfiðleikarnir, sem fyrirskipaðir eru af hæstv. ríkisstj., og hin harðneskjulega innheimta söluskattsins verða beinlínis til þess að valda alþýðu manna stórkostlegum óþægindum og valda beinum lögbrotum.

Ég vil svo leyfa mér að æskja þess, að hæstv. forseti biðji um afbrigði fyrir þessum till., en mun ekki frekar ítreka þau rök, sem ég flutti fyrir þeim í gær.