17.10.1952
Efri deild: 10. fundur, 72. löggjafarþing.
Sjá dálk 40 í B-deild Alþingistíðinda. (53)
61. mál, manntal 16, okt. 1952
Frsm. (Páll Zóphóníasson):
Herra forseti. Það var nú eftir ósk minni, að þetta frv. fór til n., og þess vegna má nú kannske þykja undarlegt, þegar ég hef bæði framsögu í því og legg til, að það sé samþ. óbreytt. Til þess liggja þær orsakir, sem ég skal nú reyna að greina. Í fyrsta lagi var nú það, að mér þótti á skorta við þetta frv. að því leyti til, að með því voru menn ekki skyldaðir að telja menn, sem staddir voru á staðnum 16. okt., og þar með mátti telja alveg víst, að eftir þessu frv. færi eins og við venjuleg manntöl, að það yrðu nokkuð margir menn, sem hvergi kæmi fram, hvar væru og hvar ættu heima. Eftir að hafa talað um þetta atriði við hagstofustjórann, þá segir hann mér, að þetta verði haft þannig í framkvæmd, að þetta manntal, sem gert var þann 16., verði borið saman við manntalið, sem gert var 1. des. 1950. Hagstofan fær á hverjum tíma upplýsingar um alla dána menn, og þeir eru teknir út úr manntalinu, sömuleiðis um fædda menn, sem teknir eru inn í það, og þeir menn, sem ekki finnast eftir manntalinu núna, annaðhvort dánir eða þá einhvers staðar taldir, þeir verða leitaðir uppi með aðstoð presta og hreppstjóra. Og það er í raun og veru manntalið 1950, sem lagt er til grundvallar þessu manntali núna, þó að það sé talið, að það sé manntalið 16. okt. 1952. Það hefði líka verið of seint að gera breytingu á frv. í þessa átt, þar sem það kom ekki hér í þingið fyrr, en rétt áður, en manntalið átti fram að fara. Þessi breyting, sem ég minntist á við 1. umr. og taldi vöntun á frv., verður þess vegna í framkvæmdinni engin vöntun, því að það verður framkvæmt miðað við manntalið 1950 — allsherjarmanntalið, sem fór fram 1950.
Hitt var það, að ég hef haft áhuga fyrir því og raunar í sambandi við bæði þetta frv. og frv., sem hér liggur fyrir um vegabréf, að koma inn ákvæðum um það, að maður gæti út frá vottorði, sem hver maður bæri á sér, séð, hvar hann ætti heima, — það sýndi, hver maðurinn væri og hvar hann ætti heima. Að þessu er stefnt með þessu frv. Þetta er eiginlega fyrsti liður í mikilsverðum aðgerðum, sem er verið að byrja að gera til að koma manntali hér á landi í sams konar eða svipað form — eiginlega sams konar form og er í flestum eða öllum menningarlöndum. Við höfum lifað við það ófremdarástand fram að þessu, að við höfum ekki haft neitt reglulegt manntal eftir að fara nema á 10 ára millibili, þegar ártalið hefur staðið á núlli. Og þá hefur gangur málanna ekki verið fljótari en það, að úrvinnslu úr manntalinu 1940 var lokið 1948. Átta árum eftir að manntalið fór fram, fengum við að vita, hvort manneskjan hefði vinnu t.d. af iðnaði, landbúnaði, sjávarútvegi, verzlun o.s.frv., o.s.frv. í landinu. Það langt hefur það verið á eftir tímanum, og þessar upplýsingar höfum við ekki fengið nema tíunda hvert ár og þá alltaf þetta 7–9 ára gamlar, þegar þær hafa komið til okkar. Með þessum vélum, sem nú eru komnar til landsins og eru leigðar í sameiningu af ríkisstjórn, Reykjavíkurbæ og fleirum, sem nota þær, er möguleiki til þess að fá að vita, ja, einhvern tíma þegar kemur fram í marzmánuð og síðan hvaða dag sem er á árinu og hvenær sem er síðar, allar þær upplýsingar, sem við annars höfum fengið með 10 ára manntalinu. Þegar manntalið er búið núna, þá á að samræma það, þá verður það allt saman tekið upp í þessar vélar, og þá fær hver maður í landinu þar sitt kort, sem segir til, hvað hann heitir, hver hann sé, hvenær hann sé fæddur o.s.frv., allt, sem maður vill um manninn vita og láta liggja fyrir á spjaldskránni. Til þess svo seinna að geta fylgzt með þessum manni, þá eru nú í l. ákvæði um það, að prest- arnir eru skyldir til að senda vottorð bæði gagnvart mönnum, sem deyja, og gagnvart mönnum, sem fæðast, svoleiðis að það fær hagstofan alltaf, — núna fær hún það ekki nema einu sinni á ári, en það er hugsað í framtíðinni, að hún fái það miklu oftar, mánaðarlega, þannig að hún geti alltaf rétt manntalið af hvað þetta snertir. — Seinna á þessu þingi er gert ráð fyrir, að hér komi fram frv., sem skyldi hvern mann til að segja til, þegar hann hefur bústaðaskipti, a.m.k. ef það er til lengri tíma, — ég hef nú ekki séð frv., en líklega verður talað um 3 mánaða dvöl á sama stað annars staðar eða eitthvað svoleiðis, og þá verður það líka alltaf fært á manntalið. Þess vegna er hugsað með þessu frv., sem hér er, að koma grunninum undir það, og með frv., sem von er á í þingið og kemur fyrir þetta þing, eiga að fást upplýsingar, svo að alltaf megi samræma og laga manntalsspjaldskrána eftir því og þá sé ávallt hægt að hringja í hagstofuna og fá upplýsingar um hvern einstakan mann, hvað hann gerir, hvar hann sé o.s.frv. Þetta er það, sem er hægt alls staðar annars staðar, en það hefur ekki verið hægt hér. Nú tekur þetta tíma, og það verður ekki fyrr en einhvern tíma á árinu, sem þessi spjaldskrá er tilbúin og þetta komið allt í rétt gengi. Ef það heppnast að koma því í það gengi, sem það á að koma í og er ætlað að fara í með þessu, þá verður þetta árlega manntal, sem haldið er núna, óþarft, þá hefur hagstofan alltaf við hver áramót hjá sjálfri sér rétt manntal og getur svo bara sent þeim mönnum, sem þurfa með það að hafa að gera, bæjarstjórum og oddvitum o.s.frv., manntalið, eins og það er á hverju ári, rétt frá sér við hver áramót. Þá eru líka fleiri ákvæði, sem verða óþörf, og þess vegna er búizt við því, að með þessu frv., sem hér liggur fyrir annars vegar, sem er fyrsta byrjun á að koma þessu í rétt horf í framtíðinni, og öðru frv., sem kemur hér fram og hagstofan er víst mikið til búin að semja, — ég held búin að semja, — þá er meiningin, að þegar kemur fram á mitt næsta ár, þá verði komið lag á þetta. Og þá er hugmyndin, að fyrir næsta þing verði hægt að leggja frumvarp og fella úr gildi ýmis eldri ákvæði, sem verða óþörf, þegar þetta er komið á, — steypa saman þessu frv. og hinu frv., þegar það kemur, og ég hefði hugsað, að þá væri tímabært að setja inn þau ákvæði, sem ég talaði hér um við 1. umr., er ég vildi hafa vegabréf fyrir hvern einstakan mann, sem sannaði hans heimilisfang. Þó að það kostaði hagstofuna að vísu ekki neitt — ekkert nema pappírinn — að taka tvö spjöld fyrir hvern mann og láta þá hreppstjóra í hverjum hreppi fá öll spjöldin fyrir hreppinn, svo að menn gætu fengið þau, sem vildu, þá óskaði hún eftir því, á meðan hún stæði í þessum breytingum, að vera laus við að þurfa að gera það, þar til spjaldskráin fyrir alla væri komin í lag, og þess vegna féllst ég á að láta það bíða þangað til kemur að því, að það þarf að sameina þessi lög og nema úr gildi önnur lög, þegar búið er að koma þessu í kring. En þetta frv. er fyrsti grundvöllurinn til þess að gera mögulegt, að hér geti myndazt manntal líkt og er annars staðar í heiminum. Og það verður sem sagt manntalið 1950 í raun og veru, sem lagt verður til grundvallar. Þó að atvinna manna á manntalinn, sem núna fer fram, verði lögð til grundvallar, þá verða þeir menn, sem ekki koma fram á því manntali, leitaðir uppi eftir manntalinu, sem fór fram 1950.
Annars get ég sagt það svona sem sýnishorn og sönnun á því, sem ég var nú að finna að þessu hér við 1. umr., að það væru ekki teknir staddir menn, að heima hjá mér er núna staddur maður austan af Norðfirði. Hann býr einn í húsi. Það er enginn í húsinu núna, þegar hann er ekki heima, og ég spurði hann í gærkvöld, hvort hann hefði gert nokkrar ráðstafanir til þess, að hann yrði talinn fyrir austan á Norðfirði, og hann sagði nei. Auðvitað taldi ég hann sem staddan hjá mér, eftir viðtalið við Klemens Tryggvason, enda þótt skýrslan ætlaðist ekki til þess. Þá þarf ekki að leita að honum. Ég taldi hann hér og sagði, að hann væri frá Norðfirði. Svoleiðis koma þó nokkrir menn, sem geta fallið undan því að vera skráðir á manntalið, þegar því er hagað eins og í ár, af því að það eru ekki taldir staddir menn í því líka, eins og ævinlega var gert við 10 ára manntalið.
N. er sammála um að leggja til, að þetta frv. nái fram að ganga, og ég trúi því illa, ef þing- mönnum framtíðarinnar finnst oft ekki gott að geta leitað upplýsinga um eitt og annað viðvíkjandi manntalinu, þegar það er komið í það horf, sem það á að komast núna á næsta ári eftir þessu frv., því að oft hefur a.m.k. mig vantað tilfinnanlega að vita, hve margir menn í landinu vinna í hverri atvinnugrein fyrir sig o.s.frv., sem fyrst eftir þetta manntal verður örugglega hægt að vita. N. er sammála um að leggja til, að frv. verði samþ., og ég tel þessa byrjun ákaflega mikla réttarbót hvað okkar hagfræði, statistík og manntal snertir.