18.12.1952
Efri deild: 42. fundur, 72. löggjafarþing.
Sjá dálk 316 í B-deild Alþingistíðinda. (538)
13. mál, dýrtíðarráðstafanir vegna atvinnuveganna
Fjmrh. (Eysteinn Jónsson):
Það eru aðeins örfá orð út af því, að það liggja hér fyrir till. um það að lækka söluskattinn á iðnaðarvörum og hv. síðasti ræðumaður gerði það nokkuð að umtalsefni. Hv. síðasti ræðumaður, og það gera fleiri, talaði um þessi mál eins og söluskatturinn væri skattur á iðnaðarfyrirtækin og að það mundi létta af iðnaðarfyrirtækjunum þungri byrði, ef söluskatturinn væri afnuminn. Þetta er algerlega úr lausu lofti gripið. Söluskatturinn er ekki skattur á þessi fyrirtæki, heldur leggst hann inn í vöruverðið, svo að vöruverðið hækkar sem skattinum nemur. Þetta er bara innheimtufé, sem fyrirtækin taka til sín og taka vitanlega af þeim, sem vörurnar kaupa, og skila fénu síðan í ríkissjóð. Það mundi því hvorki gera fyrirtækin sjálf færari né ófærari um að greiða kaup, þótt söluskatturinn yrði afnuminn. Hann er ekki skattur á þau, heldur er hann skattur á þá, sem vöruna kaupa, alveg eins og söluskatturinn í smásölunni er vitanlega ekki skattur á þau fyrirtæki, sem selja vöruna, heldur er hann lagður inn í vöruverðið. Spursmálið um það, hvort leggja skuli söluskattinn á iðnaðarvörur, nær aðelns til þess, hvort iðnaðurinn hefur nægilega tollvernd eða ekki. Það er að vísu mikið og flókið mál, hvort iðnaðurinn hafi það. Hann hefur mikla tollvernd, og hefur nýlega farið fram á því nokkur athugun. Það hefur komið í ljós, að yfirleitt hefur iðnaðurinn mikla tollvernd, en elnstaka lagfæringar þarf að gera í þeim málum iðnaðinum til hagsbóta, og verður lagt fram sérstakt frv. um breytingar á tollskránni nú alveg á næstunni á hv. Alþ. til þess að bæta úr þeim agnúum, sem komið hafa í ljós að því leyti til. — Ég vil aðeins benda mönnum á það, að það er ekki hægt að lækka ríkistekjurnar eins og nú horfir um afgreiðslu fjárlaganna, það ætla ég, að öllum sé ljóst. Þess vegna vil ég leyfa mér að mælast til þess, að allar brtt., sem ganga í þá átt að lækka tekjur ríkissjóðs, verði felldar.