18.12.1952
Efri deild: 42. fundur, 72. löggjafarþing.
Sjá dálk 316 í B-deild Alþingistíðinda. (539)
13. mál, dýrtíðarráðstafanir vegna atvinnuveganna
Frsm. meiri hl. (Bernharð Stefánsson):
Herra forseti. Hæstv. fjmrh. hefur nú tekið af mér ómakið að svara því, sem í raun og veru er aðalatriði þessa máls, að minnsta kosti í sambandi við það, sem flm. þeirra brtt., sem hér liggja fyrir, hafa talað um, og þá sérstaklega hv. 1. landsk. þm. Ég sé mjög litla ástæðu til þess að fara að ræða við hann um söluskattinn yfirleitt. Þessi lög um söluskattinn hafa nú verið hér á undanförnum þingum, hann hefur talið fram ókosti hans á hverju þingi, og hefur ekkert nýtt komið fram hjá honum nú. Hann tók það m.a. fram, sem og jafnan áður, að þessi skattur kæmi þyngst niður á þeim fátækustu. Réttara hefði verið fyrir hann að orða það þannig, að hann kæmi að ýmsu leyti jafnt niður á fátækum og ríkum, því að ekki sé ég, að fátækir menn eigi að borga meira af söluskattinum, heldur en efnaðir. En má ekki segja þetta um flesta tolla? Það vantar alveg í hjá hv. 1. landsk. þm. og hefur alltaf vantað, síðan þetta mál kom hér fyrst, og vantar alltaf, þegar rætt er um tekjuöflun fyrir ríkissjóð, sem hann er yfirleitt á móti, hvað eigi að koma í staðinn eða hvaða gjöld ríkisins eigi að lækka, svo að ríkissjóður þoli að missa þessar tekjur. Trúir t.d. hv. 1. landsk. þm. því, að hægt væri að hækka tekjuskattinn svo mikið, að það næmi þeirri upphæð, sem söluskatturinn gerir nú? En það væri í raun og veru eina leiðin til þess að leggja byrðarnar á þá tekjuháu og ríku og létta henni af fátæklingunum, því að jafnvel þó að hann vitni til þess, sem ég get nú búizt við, að leggja mætti töluvert á ýmsan óþarfa, sem kallaður er, þá er sem betur fer efnahagur landsmanna ekki misjafnari en það, að ég veit ekki, hvaða stétt landsins það er nú til dags, sem neitar sér með öllu um að kaupa ýmsar þær vörur, sem kallaðar eru óþarfi. Ég held því, að þetta væri eina leiðin, að leggja þetta á með tekju- og eignarskatti. En þeir, sem vilja þó ganga töluvert langt í því að innheimta tekju- og eignarskatt, líta flestir svo á, að þeir skattar séu komnir í hámark. Og það er ekki nóg með það, að fólk er á móti söluskattinum, — ég veit, að margt fólk er á móti honum að sjálfsögðu, — en það er líka margt fólk á móti tekju- og eignarskatti, og hér er einn hv. alþm., sem hefur lagt það til, að tekjuskatturinn væri með öllu afnuminn.
Um brtt. hv. þm. Barð. á þskj. 474 og hv. 1. landsk. þm. á þskj. 478 hef ég fátt að segja, enda vék hæstv. ráðh. að þeim. Þær eru mjög svipaðs efnis og að sumu leyti, að því er mér virðist, um það sama, aðaltill, hv. þm. Barð. og till. hv. 1. landsk., og mun ég víkja að þeim í einu lagi og sé ekki ástæðu til að tala sérstaklega um hvora fyrir sig. Þær eru báðar um það að lækka tekjur ríkissjóðs af söluskattinum, og samkvæmt því, sem ég sagði í minni fyrri ræðu, þá get ég ekki þegar af þeirri ástæðu fylgt þeim. Hvað þessi lækkun er mikil, hefur ekki verið reiknað út, en talað hefur verið um 14 millj. kr. í því sambandi. Ég legg ekki nokkurn dóm á það, hvort sú tala hefur við full rök að styðjast. En hitt sjá allir í hendi sér, sem till. lesa, að þar er um lækkun að ræða. Ég skal alveg játa það, að það er viss sanngirni í varatill. hv. þm. Barð., en ég lít bara þannig á, að ef á að fara að lækka tekjur ríkissjóðs með breytingu á þessum lögum á annað borð, þá yrði það ekki gert eitt út af fyrir sig, heldur verði að gera slíkt í sambandi við annað, en það er svo margt, sem mætti segja, að sé sanngirni í. Það væri vitanlega sanngirni að hafa lægri kaffi- og sykurtolla o.s.frv., ef ríkissjóður bara þyldi það og ef fólkið vildi þá gera minni kröfur til ríkissjóðsins, en það nú gerir. En ég hygg, þegar allt kemur til alls, að það borgi sig einmitt fyrir þá fátæku í landinu, fyrir almenning í landinu, að ríkissjóður innheimti töluvert há gjöld, en í staðinn kemur það, að slík þjónusta er veitt af íslenzka ríkinu, að ég hygg, að þess séu fá dæmi í heiminum. Hv. þm. Barð. sagði að vísu, að ríkissjóður fengi eitthvað á móti, þó að hans till. væri samþykkt. Það er rétt, hann fengi eitthvað á móti. En hvað? Hv. þm. sagði sjálfur, að það væri óvíst hvað mikið. Ég get ekki fallizt á það að fara að samþ. neitt í þessu efni í fullkominni óvissu. Hv. þm. Barð. samþ. nú, ef ég man rétt, þessi lög í fyrra og hittiðfyrra. Og ég sé ekki, að þessi lög séu neitt verri nú, heldur en þau voru þá. Öðru máll gegnir auðvitað um hv. 1. landsk. þm., sem alltaf hefur verið á móti þessum lögum og alltaf er á móti öllum tekjum ríkissjóðs, en með öllum útgjöldum ríkissjóðs. En hvernig hann, ef hann ætti að taka við stjórn landsins, ætlaði að reka þá pólitík, það skal ég játa, að er mér alveg hulin ráðgáta, og ég veit ekki til, að hann hafi nokkurn tíma útskýrt það.