19.12.1952
Efri deild: 44. fundur, 72. löggjafarþing.
Sjá dálk 334 í B-deild Alþingistíðinda. (555)
13. mál, dýrtíðarráðstafanir vegna atvinnuveganna
Fjmrh. (Eysteinn Jónsson):
Herra forseti. Það er út af brtt., sem liggur fyrir frá hv. þm. Barð. og er raunar í tveimur liðum, önnur aðaltill. og hitt varatill., að ég vildi segja örfá orð. Það kom fram í ræðu hv. þm., að hann ber kvíðboga fyrir því, að iðnaðarvara geti orðið skattlögð oftar en einu sinni með 3% söluskattinum, sem iðnaðurinn greiðir, vegna þess að vara gangi frá einu iðnfyrirtæki til annars. Ég vil upplýsa það í þessu sambandi, að það er heimild í 27. gr. söluskattslaganna fyrir ráðh. til þess að undanþiggja vöru söluskatti, ef sérstaklega stendur á. Það hefur komið fyrir, að fyrirtæki hafa sent til ráðuneytisins kvartanir um tvísköttun af því tagi, sem hv. þm. minntist á, og hefur þá það mál verið þannig leyst, að söluskatturinn hefur verið felldur niður á öðru stiginu.
Út af þessu öllu saman vil ég taka það hér fram, að fjmrn. mun nota framvegis heimildina í 27. gr. söluskattslaganna, þá sem ég gat um, til þess að koma í veg fyrir, að 3% söluskatturinn verði greiddur oftar, en einn sinni af sömu innlendu iðnaðarvörunni. En að sjálfsögðu verða þá að liggja fyrir í hvert skipti umsóknir og skýrslur um það, hvernig ástatt er í þessu tilliti.