19.12.1952
Efri deild: 44. fundur, 72. löggjafarþing.
Sjá dálk 335 í B-deild Alþingistíðinda. (556)
13. mál, dýrtíðarráðstafanir vegna atvinnuveganna
Gísli Jónsson:
Herra forseti. Hæstv. fjmrh. hefur nú lýst yfir því, að hann muni nota heimild í 27. gr. l. um söluskatt til þess að koma í veg fyrir, að 3% söluskatturinn verði greiddur oftar en einu sinni af sömu innlendu iðnaðarvörunum. Með því að till. mínar á þskj. 498 snerta aðeins þetta atriði, sem gerð var tilraun til að fá leiðrétt, eftir að till. mínar á þskj. 474 höfðu verið felldar, en þær snertu einnig söluskatt á fullunnum iðnaðarvörum, og með því að sýnilegt er, að framkvæmd laganna í samræmi við yfirlýsingu hæstv. ráðh. nær því takmarki, að skatturinn verði felldur niður í sambandi við sölu á hálfunnum iðnaðarvörum, og í trausti þess, að hæstv: ráðh. noti einnig helmild í 27. gr. fyrrnefndra laga til þess að gefa eftir 3% söluskatt af þeim íslenzku iðnaðarvörum, sem einn aðili selur í heildsölu, en annar aðili vegna aðstöðu sinnar selur beint til neytendanna í smásölu, þá tek ég aftur till. mína á þskj. 498.