04.12.1952
Neðri deild: 34. fundur, 72. löggjafarþing.
Sjá dálk 336 í B-deild Alþingistíðinda. (562)
174. mál, jafnvirðiskaup og vöruskipti
Viðskmrh. (Björn Ólafsson):
Herra forseti. Talsvert af utanríkisverzlun landsins er við lönd, sem eingöngu verzla á jafnvirðis- eða vöruskiptagrundvelli. Vegna þess að útflutningur héðan er mjög árstíðabundinn, en innflutningurinn frá þessum löndum þarf að fara fram allt árið, myndast á víxl allmiklar inneignir og skuldir í þessum löndum. En Landsbankinn hefur ekki séð sér fært undir þessum kringumstæðum að kaupa gjaldeyrinn, sem til fellur, eða annars vegar að stofna til mikilla skulda í nefndum löndum, nema ábyrgð ríkissjóðs komi til. Var þannig tekin ábyrgð 1946 á viðskiptum við Tékkóslóvakíu og 1948 á viðskiptum við Pólland. Ég tel nauðsynlegt að veita þessa ábyrgð, ekki sízt vegna þess, að nú er verið að reyna að ná viðskiptum á vöruskiptagrundvelli við Austur-Þýzkaland, og ég álít, að þau geti ekki gengið eins eðlilega og æskilegt væri, nema umbeðin heimild sé veitt.
Ég vil leggja til að, að lokinni þessari umr. verði frv. vísað til 2. umr. og fjhn.