13.01.1953
Efri deild: 48. fundur, 72. löggjafarþing.
Sjá dálk 354 í B-deild Alþingistíðinda. (600)

88. mál, hitaveitur utan Reykjavíkur

Frsm. Páll Zóphóníasson):

Herra forseti. N. hefur nú ekki athugað þessar till., og vafalaust væri réttast, að umr. væri frestað núna og n. gefinn tími til að athuga þær. Ég get þó sagt það viðvíkjandi fyrri brtt. á þskj. 485, að hún barst í tal við verkfræðinginn, sem samdi frv. f.h. ríkisstj., hvort þessi stærð á þessum stöðvum sem væri látin óátalin, þó að væri í þorpum, þar sem hitaveitu annars yrði komið á, væri hæfileg, og hann upplýsti, að hann teldi það, og nefndi dæmi héðan úr Rvík um smástöðvar, sem væru nálægt þessari stærð og hann taldi eiga fullan tilverurétt, þó að hitaveita væri annars alls staðar. Annars minntist ég nú á þetta atriði dálítið í minni framsögu, ef ég man rétt, og að ég var dálítið hikandi við að hafa þessa undanþágu nokkra. En eftir að hafa athugað málið nánar og sannfærzt um, að eftir 6. gr. er hægt að þvinga þá með,ef á þarf að halda og nauðsynlegt telst, þá hverf ég að því ráði að láta hana vera kyrra.

Um hitt, að veita með l. allsherjarheimild til lántöku upp í 85% fyrir þá, sem vilja koma á hjá sér hitaveitu, hefur n. ekkert rætt, en frá mínum bæjardyrum vil ég segja það, að ég lít þannig á, að það sé ekki rétt. Ég tel, að það sé ekki rétt, eins og öll mál liggja fyrir í landinu, að veita með lögum nú slíka allsherjarábyrgð. Þeir menn, sem ætla að framkvæma þetta og eru komnir það áleiðis, að þeir eru staðráðnir í að leggja út í slíkt fyrirtæki, munu væntanlega fá ábyrgð þingsins fyrir láni, ef á þarf að halda. En ég tel dálítið hæpið að veita það almennt séð, eins og hér er gert ráð fyrir og reyndar gert í ýmsum fleiri l., sem hefur nú reynzt svona og svona, alveg eins og ríkissjóður á að veita visst framlag í læknisbústaði o.s.frv., sem hann getur ekki staðið við, nema þá stundum. Þetta er mín skoðun. — Ég vil sem sagt óska eftir því, að n. fái að athuga till., og vænti þess, þess vegna, þar sem mér heyrðist heldur ekkert á móti því hjá flm. brtt., að forseti fresti þessum umr. núna og gefi n. tóm til að athuga þessar till.