21.01.1953
Neðri deild: 54. fundur, 72. löggjafarþing.
Sjá dálk 361 í B-deild Alþingistíðinda. (613)

88. mál, hitaveitur utan Reykjavíkur

Forsrh. (Steingrímur Steinþórsson):

Herra forseti. Þetta frv. er nú búið að vera alllengi hér til meðferðar fyrir Alþingi og er nú komið á hrakning á milli deildanna út af tiltölulegum smámunum, eins og nú er komið. Ég vil geta þess fyrst, að þegar þetta frv. var lagt fram í fyrstu og undirbúið af félmrn., þá var það allmikið tekið til meðferðar, hvort ætti að setja inn í frv. ábyrgðarheimild eða ekki. Og ég hygg, að ég hafi lýst því hér við 1. umr. málsins, að minnsta kosti .í annarri hvorri d., — man ekki, hvort ég hef gert það í báðum deildum, — af hverju það var, að ráðuneytið þá féll frá því að setja þetta inn í frv. Það var af því, að það virtist svo, að það væri ekki komin reynsla á það enn, hvað háa ábyrgð mundi þurfa á hverjum stað eða hvað væri hæfileg ábyrgð af hálfu ríkissjóðs, þegar um svona framkvæmdir væri að ræða. Virtist því ráðuneytinu að ýmsu leyti heppilegra, að Alþingi, — að minnsta kosti fyrst um sinn, af því að hér væri ekki um framkvæmdir að ræða, sem líkindi væru til að væru gerðar mjög víða, — tæki í hvert sinn ákvörðun um það, hvort ábyrgð skyldi veitt og hve mikil hún skyldi verða. Hins vegar tók ég það þá fram, að ég fyrir mitt leyti hefði ekkert á móti því, ef Alþingi sýndist svo að yfirveguðu ráði, að setja slíka ábyrgðarheimild inn í frv.

Nú hefur hv. Ed. hnigið að þessu ráði, og hún miðar við, að ábyrgðarheimildin mætti nema allt að 85% af heildarkostnaði hitaveitunnar á hverjum stað. Það má nú segja, að síðan í haust, er þetta frv. var fyrst lagt fram, hafi fengizt nokkur aukin reynsla um fyrirtæki, sem er verið með hér á landi, þ.e. Sauðárkrókshitaveituna. Nú má segja, að henni sé lokið, og er vitað, hvernig það hefur gengið að koma þeirri framkvæmd á. Það hefur fengizt 80% ábyrgð á lánum til þeirra framkvæmda. Og mér er vel kunnugt um það, og okkur þm. Skagfirðinga báðum, að það hefur gengið erfiðlega að útvega þau 20%, sem umfram ábyrgðarheimild ríkisins var að ræða, til þess að ljúka verkinu. Það hefur gengið erfiðlega, og eitthvað mun vera af lausaskuldum, sem erfitt er að kljást við eins og er og hvíla nú á þessu fyrirtæki, sem vonandi er að taki til starfa nú næstu daga eða svo til, kannske að einhverju leyti þegar komið í framkvæmd. Ég reikna því með því, að í raun og veru sé það ekki um of, ef á að setja slíka heimild inn í lögin eins og hér er, þótt sú ábyrgðarheimild megi nema allt að 85% hæst, þegar um þetta er að ræða. — Ég fyrir mitt leyti ætla ekki að gera það að neinu kappsmáli, hvað samþ. verður í þessu efni. Ég setti mig ekki á móti því, að þetta var sett inn í frv. í Ed., sagði, að ég léti þingið ráða því, ef því sýndist svo, og mun ekki heldur fara að hafa mikil afskipti af því, hvernig þessi deild afgr. málið.

En það er annað, sem mér er mjög mikið áhugamál, og það er það, að málið dagi ekki uppi hér á þinginu og að þessi hrakningur þess milli deilda verði ekki til þess. Það þarf einmitt samkv. ákvæðunum í þessum lögum að fara að setja reglugerðir vegna starfrækslu hitaveitna. Og ég tel ástæðulaust, að málið dagi uppi af þessum ástæðum. Ég vildi því leyfa mér að beina því til hv. frsm. allshn., hvort hann vildi nú ekki eða n. hafa samband við n. í hv. Ed. um það, að samkomulag næðist milli n. um afgreiðslu málsins, áður en það yrði afgr. hér í þessari hv. d., því að ef frv. hrekst á milli deilda og fer svo að lokum í sameinað þing, þá er ekki gott að vita, nema það dagi alveg uppi hér á Alþingi, og það þætti mér mjög miður og tel líka alveg ástæðulaust, þegar það er svo litið, sem nú ber á milli. — Ég vildi aðeins skjóta þessu fram hérna og vildi leyfa mér að spyrja hv. frsm. allshn. um það, hvort hann vildi ekki athuga þetta, og þá mundi ég um leið víkja því til hæstv. forseta að fresta umr. um sinn, meðan þetta væri athugað.