27.11.1952
Sameinað þing: 18. fundur, 72. löggjafarþing.
Sjá dálk 470 í B-deild Alþingistíðinda. (657)

1. mál, fjárlög 1953

Jörundur Brynjólfsson:

Herra forseti. Ég hef leyft mér að flytja hér ásamt hv. samþm. mínum tvær brtt. við fjárlögin að þessu sinni. Ég ætla mér ekki að gera að umtalsefni fjárlagafrv. og hinar einstöku brtt. aðrar, sem fyrir liggja. Ég tel, að það sé tilgangslítið, sé ekki nema til þess að lengja umr. Ég get reyndar lýst því yfir, að mér kom dálítið á óvart, hvernig tillögurnar um fjárveitingar til vegamála í okkar héraði líta út. Ég bjóst við, að þær mundu verða með dálítið öðrum hætti, eftir því sem þær voru í fyrra og þeirri reglu, sem mér var sagt að mundi gilda um þær. Það hefði einnig verið mjög æskilegt fyrir okkur í héruðunum austan fjalls, að unnt hefði verið að verja meira fé til Þorlákshafnar, en þarna er lagt til. En þá sögu hafa sjálfsagt margir að segja, að mönnum hefði þótt æskilegra, að fjárveitingar til hinna ýmsu mannvirkja væru ríflegri.

Í sambandi við þessi atriði, sem ég hef nú minnzt á, vil ég beina því til hv. frsm., hv. þm. Barð., hvort okkur muni ekki vera óhætt að ganga út frá því, Árnesingum, að eitthvað verði sinnt brúarsmiði á næsta ári hjá Iðu. Það er mál, sem Alþ. var á sínum tíma búið að ákvarða, að sú brúarbygging skyldi fara fram árið 1948. Þá kom annað, sem talið var að kallaði meira að. Og ég var samþykkur því fyrir mitt leyti, að það skyldi ganga fyrir, en það var smíði á brúnni yfir Þjórsá. En vitaskuld var til þess ætlazt af hálfu okkar þm. Árnesinga þá, Eiríks heitins Einarssonar og mín, að þegar því verki væri lokið, þá skyldi næst sinnt brúarsmíðinni hjá Iðu. Nú hefur það farið nokkuð á annan veg, en eigi að síður mundi maður ekki fjölyrða mjög um það, ef það drægist nú ekki úr hömlu lengur en orðið er. Ég vil mega vænta þess að heyra það frá hv. frsm. n., að það sé tilætlunin, að þessi brú verði byggð á næsta sumri, í það minnsta brúarsmiðinni verði haldið áfram, — það er aðeins lítillega byrjaður undirbúningur.

Við hv. samþm. minn og ég, flytjum till. á þskj. 320,V. Það er til húsmæðraskóla Árnýjar Filippusdóttur í Hveragerði. Hún hefur notið styrks um langt árabil til síns skóla, og hann hefur verið rekinn af mesta myndarskap. Þar hafa stúlkur haft skólavist, svona frá 15 til rúmlega 20 á hverjum vetri. En auk þess hefur hún haft námskeið við og við til að liðsinna ungum stúlkum og auka mennt þeirra. Nú mun ekki vera í þessu frv. neitt ætlað til hennar skóla, og teljum við það miður farið og vonum, að hv. Alþ. sjái til þess, að hún fái nokkurn styrk til síns skólahalds.

Þá flytjum við á sama þskj. aðra brtt., rómv. II. Það er, að Brynjólfi Gíslasyni gestgjafa í Tryggvaskála verði greiddar til gistihúshalds að vetrinum 30 þús. kr. Þessi gestgjafi er búinn að reka gistihús þarna með hinum mesta myndarskap. Ég ætla, að hann hafi byrjað að reka gistihúsið 1942, og hann heldur uppi því starfi enn, en nú seinni veturna hefur gistihúsið verið rekið með halla, og hefur hann farið vaxandi. Það er vitaskuld ómögulegt fyrir einstakling að halda uppi slíku starfi árum saman, þegar tjón er á því á hverju ári. Ég veit til þess, að hann hefur haft við orð að hætta rekstri gistihússins að vetrinum, en mundi þó miklu fremur hafa kosið að gera gistihúsið svo úr garði, að það gæti tekið á móti mörgum mönnum og veitt þeim næturgistingu, en það er mjög takmarkað eins og er. En til þess hefur hann engin ráð. Hann hefur sent Alþ. bréf, sem ég hef fengið að sjá, og ég ætla, að bezt yfirlit verði gefið um þetta starf hans með því að lesa bréfið. Það er ekki mjög langt og tekur ekki langan tíma: Það er dagsett 15. okt. þessa árs og hljóðar svo:

„Sumarið 1942 hóf ég rekstur gistihússins í Tryggvaskála. Húsnæði gistihússins var þá í ýmsu áfátt og ófullkomið. Ég endurbætti húsnæðið eftir föngum og stækkaði það nokkuð, aflaði nauðsynlegra heimilisvéla, kælitækja o.s.frv. Þessar umbætur var mér unnt að gera sakir þess, að rekstur gistihússins gekk sæmilega fyrstu árin, eða til ársins 1948. Síðan hefur rekstur gistihússins verið afar erfiður og einkum að vetrarlagi, sérstaklega tvo síðustu veturna.

Færð milli héraða og um héruðin hefur verið þung og vegfarendum oft gengið mjög erfiðlega að komast leiðar sinnar og stórtafizt á þessum ferðum. Það hefur þrásinnis komið fyrir, að ég hef orðið að fara í jeppanum mínum út á Hellisheiði til að hjálpa fólki, sem setið hefur í bilum, sem hvergi hafa komizt vegna ófærðar og stundum verið bilaðir. Í sumum þessum ferðum hef ég haft einn eða tvo menn með mér til hjálpar. Dæmi eru um það, að fólk var búið að vera 30 klukkustundir úti á heiði, þegar því var bjargað. Eitt sinn var ég alla nýársnótt að koma fólki í húsaskjól. Í annað sinn fór ég ásamt öðrum manni með fimm hesta út á Hellisheiði til að bjarga mönnum til byggða. Þá var gersamlega ófært öllum ökutækjum. Áreiðanlega hefði illviðrið orðið einum þessara manna að fjörlesti, ef hjálpin hefði ekki komið á þann hátt og nógu fljótt. Á jeppa mínum fór ég eitt sinn með manni, er fór með sjúkling í sjúkrabíl í ófærð um Þingvöll. Lagt var af stað kl. eitt um nótt. Lágum við úti á Mosfellsheiði um nótt í blindhríð í 18 stiga frosti. Eftir þriggja daga þrotlaust stríð var komið heim aftur. Í hittiðfyrra var um 80 manns veðurteppt hér. Þá var hér m.a. staddur póst- og símamálastjóri, og mundi hann geta um þetta borið. Um páskaleytið í fyrra voru hér um 80 manns, er ekkert komst vegna veðurs og ófærðar. Síðast liðinn vetur fór ég aldrei úr fötum í janúarmánuði.

Á þessi dæmi er drepið til að sýna, hvernig háttað er um ferðir hér að vetrarlagi, þegar vetrarríki er. Síðan minnkaði um fjárráð fólks, hefur margt af þessu fólki ekki auraráð til þess að borga fyrir sig. En hingað til hef ég ekki spurt um það, áður en beini var veittur hungruðu og köldu fólki, hvort það gæti borgað beina, sem því væri veittur, og fyrir ferðirnar, sem ég hef farið til að bjarga fólki, hef ég ekki hingað til tekið borgun.

Til að annast heimilisstörf á gistihúsinu hef ég að vetrinum haft tvær stúlkur í borðstofu og tvær í eldhúsi. Á svona gististað verða að vera vaktaskiptí. Launagreiðslan að vetrinum nemur milli 10–20 þús. kr. Eins og nú er háttað um ferðir hér, þyrftu húsakynnin að vera allmiklu stærri en þau eru, til þess að hægt væri að taka á móti því fólki, sem er að ferðast, sérstaklega að vetrinum, þegar veður eru ill og færð er þung. En til að stækka gistihúsið hef ég ekki fjárráð.

Vegna þessarar reynslu, sem ég hef af gistihúshaldi yfir veturinn hin síðari ár, sé ég mér ekki fært af eigin rammleik að halda þessu starfi áfram að vetrarlagi án fjárhagslegs stuðnings. Fyrir þessar sakir leyfi ég mér að fara þess á leit við hv. Alþ., að það veiti mér 30 þús. kr. rekstrarstyrk úr ríkissjóði til gistihússins. Ég ætla, að hér sé ekki síður nauðsyn á að greiða fyrir þessu starfi heldur en á öðrum stöðum á landinu, þar sem það er gert. Ef nauðsyn hefði ekki borið til, mundi ég ekki hafa hreyft þessu máli.

Virðingarfyllst.

Brynjólfur Gíslason.“

Ég ætla, að þetta stutta erindi tali skýru máli um, hvað þarna er um að ræða, og fleiri orð hafa í raun og veru ekkert að segja. Einu get ég þó bætt við frá síðasta vetri. Það var, að þangað komu í ófærð — ég ætla, að það hafi verið eitthvað um 30 nemendur frá einum skóla. Búnir voru þeir að hrekjast langdrægt upp í sólarhring, þegar þeir komu að Tryggvaskála. Gestgjafinn veitti þeim þá strax nokkurn beina, en svo var ráðgert að halda áfram. Þá var ófærð yfir Flóann og Holtin. Brynjólfur spurði þá þann, sem leiðsögn hafði með fólkinu, hvort það ætlaði ekki að fá sér einhverja næringu, áður en það legði í þessa ferð, því að ósýnt væri, hvort það næði áfangastað næstu nótt. Sá, er með unglingunum var, mun hafa látið á sér skilja, að líklega væri eitthvað lítið í buddunni. Gestgjafinn sagði þá, að þörf þeirra væri ekki minni fyrir því að fá hressingu. Lét hann bera mat á borð fyrir allan hópinn og bjó hann undir ferðalagið. Þessi velgerningur hans kom að góðu haldi, því að alla næstu nótt voru þessi ungmenni á ferð og komu ekki fyrr en daginn eftir á áfangastað. Nú á það sér stað, að greitt er fyrir ferðamönnum; sem eiga erfiðar ferðir. Það er að minnsta kosti á tveim stöðum, sem ég þekki til. Vera má, að það sé víðar, þar sem svipað er ástatt um. Eins og nú er komið samgöngum hér vestan yfir fjall og austan, get ég sagt, að þá er þetta eini greiðastaðurinn, sem getur liðsinnt svona fólki. Ef sú starfsemi leggst niður, kvíði ég fyrir því, hvernig fer um margan ferðamanninn á þessum ferðum, þegar færð er ill og illviðri eru. Ég vil þess vegna mega vænta þess, að hv. Alþ. sýni þessu máli fullan skilning og láti þennan gestgjafa njóta ósérplægni sinnar og þess, hvað hann er nokkuð öðruvísi gerður, en mjög margir menn, því miður, meðal okkar þjóðar nú.

Þá flyt ég eina till. enn ásamt tveimur öðrum hv. þingmönnum. Ég ætla, að hún muni vera á öðru hvoru þessu þskj., sem hæstv. forseti var að tilkynna að hefði verið útbýtt. Það er hv. þm. Hafnf. og hv. 11. landsk., sem flytja þessa brtt. með mér. Það er við 15. gr. IX, 12, til Ara Arnalds rithöfundar, að fyrir 7.500 kr. komi 9 þús. kr. Ari Arnalds er þjóðkunnur rithöfundur, eins og kunnugt er. Hann hefur haldið til haga á hinn prýðilegasta hátt ýmsum þjóðlegum fræðum og góðum minningum. Fyrir nokkrum árum var borin hér fram till. í því skyni að veita honum nokkurn ritstyrk. Hann var þá helzt til klipinn við nögl og gerður nokkru minni en við, sem fluttum það mál, ætluðumst til. Dálítið var þó úr því bætt síðar, en þó ekki til fulls, eins og við höfðum nú talið, að vera hefði átt. Nú leggjum við til, að bætt verði við þennan ritstyrk 1.500 kr. Í stærra er nú ekki farið. Og þá mun það vera orðin sú upphæð, sem var upphaflega flutt. Ég hygg, að þeir, sem lesið hafa ritgerðir Ara Arnalds, og þeir eru margir meðal þessarar þjóðar, telji ekki eftir þennan ritstyrk, heldur þvert á móti. Menn hafa lesið það, sem frá honum hefur komið, með mestu ánægju. Ekki ætti hann það sízt skilið að fá þessa viðbót fyrir síðustu bók sína, sem hann sendi frá sér og var á allan hátt hin prýðilegasta og mjög ánægjuleg og gaman að lesa, ekki sízt fyrir það, hvað honum er auðvelt að setja fram á fögru máli og skemmtilegu það, sem hann vill segja. Íslenzka þjóðin hefur jafnan — og ég vil vona, að svo sé enn – kunnað að meta það, sem gott er og vel sagt og hefur bókmenntalegt gildi. Og vafalaust eigum við því að þakka fyrst og fremst, að við höldum enn tungu okkar og menningu og sennilega tilveru okkar sem sjálfstæðrar og sérstakrar þjóðar. Það merki álit ég að við eigum aldrei að láta niður falla, heldur hafa í heiðri og meta og hlynna að hverjum þeim, sem gerir vel í því efni. Það mun gefa þjóðinni margfalda uppskeru.