27.11.1952
Sameinað þing: 18. fundur, 72. löggjafarþing.
Sjá dálk 496 í B-deild Alþingistíðinda. (665)

1. mál, fjárlög 1953

Gylfi Þ. Gíslason:

Herra forseti. Það eru örfá orð varðandi þær athugasemdir, sem hv. form. fjvn. gerði við þær 2 brtt., sem ég er 1. flm. að og mælti hér fyrir. Ég er honum alveg sammála um, að mjög æskilegt væri, að Guðmundur Kjartansson jarðfræðingur fengi þann styrk, sem honum er ætlaður, hækkaðan nokkuð. Sá vísindamaður er alls góðs maklegur, og ég er því mjög hlynntur og þætti vænt um, ef ég og við flm. gætum átt einhverja samvinnu við hv. form. fjvn. um að koma því fram. Það er ekki meining okkar með flutningi till. um vísindastyrkinn til Jóhannesar Áskelssonar að ívilna honum á neinn hátt fram yfir það, sem Guðmundur Kjartansson á réttilega skilíð. Til þess að betra tóm gefist til þess að athuga þetta, þá munum við taka þessa till. aftur til 3. umr.

Varðandi það, sem hv. þm. sagði um till. um 15 þús. kr. styrk til Styrktarfélags lamaðra og fatlaðra, — ég skal geta þess, að það er prentvilla á þskj., þar sem það er kallað Styrktarsjóður lamaðra og fatlaðra, og hef ég þegar gert ráðstafanir til þess, að þskj. verði endurprentað, varðandi það, sem hann sagði, að það væri í verkahring Tryggingastofnunarinnar að safna skýrslum um lamaða menn og fatlaða um land allt, vildi ég aðeins geta þess, að Tryggingastofnunin mun aðeins telja í verkahring sínum að safna skýrslum um öryrkja. En það, sem hér er um að ræða, er, að sérfræðingur geri nána rannsókn á því, hvar sé um að ræða þau sérstöku sjúkdómstilfelli, sem falla undir lömun og fötlun. En reynsla hefur sýnt það, að nauðsyn er á sérfræðilegri athugun til þess að komast að raun um þau sjúkdómstilfelli, sem um kann að vera að ræða. En við munum jafnframt, til þess að athuga þetta mál enn nánar og ræða það við forstjóra Tryggingastofnunarinnar og þá einnig við hv. form. fjvn. og fjárveitinganefnd, taka þessa till. aftur til 3. umr.