28.11.1952
Sameinað þing: 19. fundur, 72. löggjafarþing.
Sjá dálk 501 í B-deild Alþingistíðinda. (670)
1. mál, fjárlög 1953
Viðskmrh. (Björn Ólafsson):
Herra forseti. Ég vildi gefa þær upplýsingar, sem ef til vill gætu valdið því, að þessi till. þyrfti ekki að koma til atkv. Það hefur orðið að samkomulagi milli mín og fjmrh., að þetta lán, sem hefur verið veitt Iðnaðarbankanum og greiðist smám saman á móts við annað innborgað hlutafé, verði vaxtalaust. Þess vegna er þessi till. ekki nauðsynleg.