08.12.1952
Sameinað þing: 22. fundur, 72. löggjafarþing.
Sjá dálk 501 í B-deild Alþingistíðinda. (672)
1. mál, fjárlög 1953
Ásmundur Sigurðsson:
Herra forseti. Góðir hlustendur. Hinn 30. nóv. s.l. birtist feitletruð þrídálka fyrirsögn á 12. síðu Morgunbl., svo hljóðandi: „Alvarlegar söluhorfur íslenzkra afurða. Ísfiskmarkaðurinn að lokast og 2/3 hlutar hraðfrysta fisksins óseldir.“ — Nokkrum dögum áður hafði sama blað sagt það lygi, þegar sósíalistar höfðu bent á þessa staðreynd sem dæmi þess, hvernig markaðsmálum okkar er komið vegna stjórnar undanfarinna ára. Nú þótti enn þá meiri nauðsyn til að viðurkenna sannleikann, því að þá þurfti að sannfæra þjóðina um, að atvinnuvegirnir gætu ekki borið kauphækkanir. Viðtæk verkföll höfðu verið boðuð næsta dag.
Fjárlfrv. var til 1. umr. snemma í október. Fjmrh. flutti framsöguræðu. Tíminn birti hana undir fimm dálka fyrirsögn, svo hljóðandi: „Greiðsluhallalaus ríkisbúskapur í 3 ár án skatta- og tollahækkana.“ Niðurlag ræðunnar var á þessa leið: „Aðalúrræðin til þess að fyrirbyggja atvinnuleysi verða að vera meiri afköst, meiri vinna, meiri framleiðsla og þar með meiri þjóðartekjur.“ — Fögur er kenningin, ekki vantar það. En til er stofnun ein í þjóðfélaginu, sem á að gegna því hlutverki að tryggja hverjum manni möguleika til að beita orku sinni að meiri afköstum, meiri framleiðslu og sköpun meiri þjóðartekna. Þessi stofnun heitir ríkisstj. og hefur sér til stuðnings meiri hl. Alþ. Undir aðgerðum þessara aðila er það fyrst og fremst komið, hvort framleiðslugeta einstaklinga er notuð til þessa eða liggur ónotuð sem dæmi þeirrar mestu eyðslusóunar, sem átt getur sér stað í nokkru þjóðfélagi.
Eitt er það, sem veruleg áhrif hefur á möguleika hverrar ríkisstj. til að reka þjóðarbúið vel, þ.e., hve mikið fjármagn hún hefur til umráða í erlendum gjaldeyri. Sé hann mjög lítill, verða allar aðstæður hennar erfiðari. Í hagtíðindahefti s.l. októbermánaðar birti Hagstofa Íslands yfirlit um gjaldeyristekjur og gjaldeyrisnotkun þjóðarinnar s.l. 2 ár. Er þar upplýst, að s.l. ár, 1951, höfum við haft til ráðstöfunar — auk þeirra erlendu lána, sem tekin voru — 1.032 millj. kr. Þar við bætast svo erlend lán, sem tekin voru á árinu, að upphæð 89 millj. kr. Þessi lán voru tekin vegna Sogs- og Laxárvirkjunar og landbúnaðarframkvæmda. Þessar upphæðir báðar til samans nema því samtals 1.121 millj. — og er þó raunar heldur meira. Þetta er langsamlega mesta eyðsla á erlendum gjaldeyri, sem nokkurn tíma hefur átt sér stað á Íslandi á einu ári, þrátt fyrir það þó að fullt tillit sé tekið til þeirra breytinga, sem orðið hafa á verðgildi krónunnar. Gjaldeyrisskortur hefur ekki háð rekstri þjóðarbúsins í höndum hæstv. ríkisstj. Þetta sama ár, 1951, voru hinar beinu gjaldeyristekjur, þar með talið gjafafé, en auk erlendra lána, 376 millj. hærri, en næsta ár á undan, 1950. Það skortir að vísu fullt tillit til þess, að tekjur janúar- og febrúarmánaðar 1950 eru metnar á hærra gengi, en munurinn er áreiðanlega ekki minni en 300 millj., þó að tillit sé tekið til þess líka. Það hefði sannarlega ekki átt að síga á ógæfuhlið, hvorki hvað afkomu atvinnulífsins né almennings snerti, ef allt hefði verið með felldu.
Á 9 fyrstu mánuðum þessa árs höfum við flutt út vörur fyrir nærri 425 millj. Þá var óseldur mestur hlutinn af hraðfrysta fiskinum, sem er ein aðalframleiðsluvaran, eins og Morgunblaðið lýsti. Ísfisk verður að hætta að framleiða vegna lokunar brezka markaðarins. Búið að framleiða upp í mestalla samninga, sem gerðir hafa verið um saltfisksölu. Hvernig finnst ykkur þeir vera, möguleikarnir til að auka afköstin, auka framleiðsluna, auka þjóðartekjurnar? Þó veit hver maður, að framleiðslutækin og framleiðslugetan er hvergi nærri notað til fulls. Vegna síversnandi kjara almennings eru skollin yfir viðtækustu verkföll, sem enn hafa verið háð á Íslandi, en fjmrh. hælir sér af greiðsluhallalausum ríkisbúskap í 3 ár án skatta- og tollahækkana.
Hvers konar stjórn hefur verið á efnahagsmálum þjóðarinnar undanfarin ár? — Hinn 3. júlí 1948 var samningur um þátttöku Íslands í svo kallaðri efnahagssamvinnu vestrænna þjóða undirritaður af Bjarna Benediktssyni utanrrh. Samvinna þessi hefur einnig hlotið nafnið Marshallaðstoð, og munu flestir Íslendingar kannast bezt við það nafn. Okkur var sagt, að þar væri á ferðinni ein stórkostlegasta hjálparstarfsemi, sem mannkynssagan þekkir. Á 4 árum skyldi reist úr rústum atvinnu- og efnahagslíf hinna hrjáðu styrjaldarþjóða í Vestur-Evrópu og því verki lokið árið 1952. Auðvitað skyldu Íslendingar fá að vera með. Allur þingheimur borgaralegu flokkanna á Íslandi trúði þessu, og hann trúði því einnig, að í þessu væri göfugmennskan ein að verki. Bjarni Benediktsson sagði svo í þingræðu um þetta mál:
„Allir frjálshuga menn skilja, að þar (þ.e. í Bandaríkjunum) ræður skilningur á því, að atvinna og velsæld geti ekki ríkt í einu landi til lengdar, ef það er umkringt atvinnuleysi, fátækt og eymd. Þennan skilning á því, að ef manni sjálfum á að vegna vel, þá verði meðbræðrum hans einnig að gera það, hefur allt of lengi skort í viðskiptum þjóðanna. Þeim mun meiri ástæða er til að fagna því, þegar hann birtist á jafnáþreifanlegan hátt í framkvæmdum voldugustu þjóðar í heimi.“
Einn stjórnmálaflokka tók Sósfl. eindregna afstöðu móti þátttöku Íslands í samstarfi þessu og hélt fram gagnstæðri skoðun um eðli þess. Við héldum því fram, að hér væri um vægðarlausan „business“ að ræða. Allt væri kerfið við það miðað að troða amerískum vörum inn á heimamarkaði þátttökuríkjanna og hindra þróunina í þeirra eigin framleiðslu. Þannig mundu Bandaríkin gera hættu þá, sem yfir þeim vofði, að útflutningsvöru til þátttökuríkjanna, og Ísland mundi verr á vegi statt efnahagslega að áætluninni lokinni, en við upphaf hennar. Form. Sósfl., Einar Olgeirsson, komst svo að orði í þingræðu um málið:
„Hæstv. viðskmrh. lauk ræðu sinni um framtíðaráætlunina með því, að allt þetta væri miðað við það að geta staðið á eigin fótum 1952. Ég er hræddur um, að raunveruleikinn verði sá, ef haldið er áfram eins og nú er byrjað, að allt sé miðað við það, að Ísland eigi að krjúpa að knjám Bandaríkjanna árið 1952 og biðja um fleiri dollara, af því að markaðir séu eyðilagðir, og muni Íslendingar þá bjóða upp á meiri fríðindi í landinu til þess að mega verða áframhaldandi vináttu Ameríkumanna aðnjótandi.“
Hvað annað en þetta var að gerast í maí 1951, þegar 43 þm. var hóað saman á klíkufund í Reykjavík til að samþ. bandaríska hersetu, sem engum manni með heilbrigða skynsemi kemur til hugar að þörf sé eða þýðingu hafi Íslandi til varnar. Svo ör hefur þróunin orðið, að þessir atburðir gerast ári fyrr, en áætluninni lýkur.
Með þátttöku Íslands í þessari svo kölluðu efnahagssamvinnu var því slegið föstu, að íslenzka þjóðin skyldi að verulegu leyti hætta að vinna fyrir sér sjálf. Í samræmi við þá fyrirætlun hefur efnahagsmálum hennar verið stjórnað þessi ár, en enginn skyldi halda, að ætlazt væri til, að hún héldi lífskjörum sínum óskertum, a.m.k. ekki allur almenningur. Til dæmis er í skýrslu hins bandaríska Marshallsérfræðings um Ísland rætt um það, að meðan á viðreisninni standi muni Ísland þurfa að skerða kjör íbúa sinna allverulega.
Til þess að sýna fram á samhengið milli þessara hluta allra, verður að rekja stjórnaraðgerðir ríkisstj. og meiri hl. þings þessi ár. Rétt er einnig að bregða ljósi yfir samræmið milli þessara stjórnaraðgerða og hvatningar fjmrh. um meiri afköst, meiri framleiðslu, meiri vinnu og meiri þjóðartekjur, og enn fremur er rétt að bregða ljósi yfir fullyrðinguna um greiðsluhallalausan ríkisbúskap án skatta- og tollahækkana.
Ég vænti þess, að þeir, sem lásu Tímann á stríðsárunum og fram yfir stríð, minnist þess, hvert var aðalumræðuefni hans þá. Í hverju blaði var rætt um verðbólgu og aftur verðbólgu. Verðbólgan var talin undirrót allra meina. En eftir að Framsókn komst í ríkisstjórn aftur og einkum eftir að Marshallsamningurinn var gerður, hefur verðbólga tæplega verið nefnd á nafn í Tímanum, og bæði íhaldið og Framsókn virðast nú álíta, að verðbólga sé þjóðarinnar eina bjargráð, — að verðbólga sé undirrót allra gæða.
Atburðarásin hefur nánast verið þessi: Samkv. því ákvæði Marshallsamningsins, að Íslendingar skyldu koma á og viðhalda réttu gengi, var samþ. gengisbreyt. í marz 1950. Allur erlendur gjaldeyrir var hækkaður í verði um 75%. Þar með var þá ákveðið, að hver íslenzkur verkamaður, hver íslenzkur bóndi, hver íslenzkur iðnaðarmaður o.s.frv. skyldi þurfa þeim mun lengri tíma, en áður, til þess að vinna fyrir hverri einingu af erlendum nauðsynjum, sem hann þarf að kaupa. Það var ekki óeðlileg ráðstöfun, einmitt áður en mest var innflutt fyrir aðstoðarféð. Þetta var fyrsta viðreisnarráðstöfunin, og var fullyrt, að tilgangurinn væri sá einn að bjarga útflutningsframleiðslu þjóðarinnar frá hruni. Enn fremur hafði það verið stórt mál hjá báðum núverandi stjórnarfl. í kosningunum 1949, að létta þyrfti fiskábyrgðargreiðslunum af ríkissjóði. Til þess að mæta þeim hafði söluskatturinn verið lagður á og því sérstaklega yfirlýst af ríkisstj. í umr. um dýrtíðarsjóðinn 1948. Á árinu 1949 var söluskattur áætlaður 36 millj., en innheimtur 43 millj. En svo undarlega vildi til, að þótt fiskábyrgðargreiðslunum væri létt af ríkissjóði með gengisfellingunni, var söluskatturinn ekki afnuminn, heldur hækkaður um 11 millj., og árið 1950 var hann innheimtur samkv. ríkisreikningi með 54 millj.
Tæpu ári eftir gengislækkunina var bjargráð hennar á enda. Þá þurfti að taka upp nýja aðferð, og varð fyrir valinu bátagjaldeyriskerfið svo nefnda. Þá var lagður á vöruverðið nýr tollur, sem að vísu var ekki látinn koma inn á fjárl., því að ríkisstj. tók sér vald til að ákveða hann með reglugerð daginn eftir að Alþ. var sent heim. Sjálf bátagjaldeyrisupphæðin nam nærri því 60 millj. kr. á s.l. ári, þar við bætist verzlunarálagning og fleira, sem ofan á kemur, svo að áreiðanlega má fullyrða, að skatturinn, sem fólkið greiðir í hækkuðu vöruverði, nemur ekki minna en 100 millj. kr. Þessi skattlagning er gerð af ríkisstj. utan við öll lög. Og hvað gerist svo um söluskattinn, jafnframt því sem bátagjaldeyririnn er upp tekinn til þess að gegna því hlutverki, sem hann átti upphaflega að gegna, þ.e. að koma í stað fiskábyrgðargreiðslnanna, eftir að gengislækkunin hafði brugðizt öllum vonum? Var þá söluskatturinn afnuminn? Nei, hann var innheimtur með 90 millj. kr. s.l. ár, og svo öruggur er þingmeirihl. stjórnarfl. um þennan skatt, að á þessu fjárlagafrv. er hann hækkaður í áætluninni um 6 millj. frá því, sem hann var á fjárl. yfirstandandi árs.
Annálaritarar fyrri alda voru stuttorðir og gagnorðir. Þeir mundu hafa lýst þessari þróun í annálsformi eitthvað á þessa leið:
1948: Greitt vegna fiskábyrgðarl. 15 millj. kr. Innheimtur söluskattur kringum 19 millj. kr.
1949: Greitt vegna fiskábyrgðar 31 millj. kr.
Innheimtur söluskattur 43 millj. kr.
1950: Fiskábyrgðargreiðslum létt af ríkissjóði
með gengislækkun. Innheimtur söluskattur 54 millj. kr. Innheimtur verðtollur 58 millj. kr., 14 millj. kr. hærri en áður. Innheimtir tollar og skattar samtals 216 millj. kr.
1951: Tekið upp bátagjaldeyriskerfi, jafngildandi 100 millj. nýjum tolli. Innheimtur söluskattur 90 millj., 36 millj. hærri, en árið áður. Innheimtur verðtollur 118 millj., — 60 millj. hærri en árið 1950. Innheimtir tollar og skattar samtals 317 millj., þ.e. rúmum 100 millj. hærri, en árið 1950.
Svo er reynt að telja okkur trú um, að hér sé rekinn greiðsluhallalaus ríkisbúskapur án skatta- og tollahækkana.
Þetta er beinlínis hávísindaleg aðferð við sköpun verðbólgu og til þess að ná sem mestu af tekjum almennings í þessa hít, enda er það í fullu samræmi við áætlun hins bandaríska Marshallsérfræðings um, að íslenzka þjóðin yrði að fórna verulegum hluta af sínum félagslegu fríðindum á altari þessarar efnahagssamvinnu.
Hér er þó ekki nærri því öll sagan sögð. Jafnframt því sem bátagjaldeyriskerfið var upp tekið, var fengið á annað hundrað millj. kr. framlag frá Greiðslubandalagi Evrópu til að flytja inn fyrir vörubirgðir í landið og jafnframt gera verzlunina frjálsa, eins og það er kallað. Auðvitað er það öfugmæli, því að enginn má t.d. selja vöru út úr landinu, nema með sérstöku leyfi. En fyrir þetta fé hefur verið dyngt inn í landið hvers konar varningi, bæði nauðsynlegum og ónauðsynlegum, í svo ríkum mæli, að í mörgum tilfellum hefur hann bolað innlendri framleiðslu út af innlenda markaðinum og skapað stöðvun innlendra framleiðslufyrirtækja og þar með atvinnuleysi í stórum stíl.
Sem dæmi um þróunina á árinu 1951 má nefna 40 iðnaðarfyrirtæki í Reykjavík, sem höfðu 699 menn í vinnu í ársbyrjun þess árs, en 221 í lok þess. Fækkunin á þessu ári nam 478 eða meir en 2/3. Sum þessara fyrirtækja höfðu alveg hætt, önnur því sem næst. Það er þokkalegur þjóðarbúskapur, að fá erlent láns- og gjafafé til að flytja inn vörur, sem verið er að framleiða í landinu, og leggja innlendu framleiðsluna niður og gera fólkið jafnframt atvinnulaust. Og hvernig finnst ykkur þetta samrýmast hvatningarorðum fjmrh. um meiri vinnu, meiri afköst, meiri framleiðslu og meiri þjóðartekjur?
Þá er það hið svo kallaða verzlunarfrelsi og frjálsa álagningin, sem fylgdi þessum ráðstöfunum. Í því sambandi er vert að athuga dálítið sérstaklega þátt Framsfl. Hann hefur einmitt sérstaklega unníð sitt fylgi á því að þykjast vilja sem mestar umbætur á verzlunarkerfinu. Þegar Eysteinn Jónsson og Bjarni Ásgeirsson voru ráðherrar í Stefáns Jóhanns-stjórninni og Hermann Jónasson í fjárhagsráði, flutti hann þar till. um nýja tilhögun á verzlunarmálum, sem Framsókn taldi þá að einar væru allra meina bót. Svo langt gekk, að þetta var talin aðalástæðan til stjórnarslitanna 1949, sem Framsókn stóð fyrir. En svo kynlega brá við, að þegar til stjórnarsamninganna kom við íhaldið, virtist Framsókn hafa steingleymt þessum ágætu málum, enda kosningar þá nýafstaðnar. Í þess stað var gengið inn á það, sem kallað hefur verið frjáls verzlun, en í reyndinni er ekkert annað, en einokun voldugustu klíknanna með aðstoð ríkisvaldsins og bankanna. Yfirstjórn viðskiptamálanna öll var falin aðalforingja heildsalanna í Reykjavík, Birni Ólafssyni. Jafnframt því var gefin frjáls álagningarheimild á verulegum hluta innflutningsins, og nú eiga framsóknarráðherrar aldrei nógu sterk orð til að dásama ágæti þessa fyrirkomulags undir stjórn Björns Ólafssonar.
Rétt er að líta á, hvernig verðlagsmyndunin fer fram undir þessu fyrirkomulagi frjálsrar verzlunar, sem svo er kallað. Síðasta skýrsIa verðgæzlustjóra er góð heimild um þá hluti, og örfá dæmi úr henni tekin af handahófi nægja til að sýna ástandið í stórum dráttum.
4 vörusendingar af bómullarefni kosta samtals í innkaupi 64 þús. kr. Fragt, tollar og söluskattur á þetta magn nemur 38 þús. kr. Þá tekur verzlunarkerfið íslenzka við, og í meðferð þess bætast við 68 þús. kr. Þannig fæst 170 þús. kr. útsöluverð á vörumagni, sem kostar í innkaupi 64 þús. Þetta dæmi er tekið úr A-listavörum, þar sem bátagjaldeyrir kemur ekki til greina.
En þá er bezt að lita á dæmi úr B-lista. 4 vörusendingar, 2 af ullarefnum, ein af gaberdine og ein af gólfteppum, kosta samtals í innkaupi 230 þús. Í fragt, bátagjaldeyri og ríkisskatta bætast við 255 þús. Síðan bætir verzlunarkerfið ofan á 185 þús. kr. Þá verður 230 þús. kr. innkaupsverð að 665 þús. kr. útsöluverði.
3 sendingar af bifreiðavarahlutum kosta samtals að innkaupsverði 81 þús. Við bætast 78 þús. kr. í fragt, ríkissköttum og bátagjaldeyri. Þá tekur verzlunin við, og hún þarf 75 þús. á þetta magn, og 81 þús. kr. innkaupsverð verður 234 þús. kr. útsöluverð. Ég gæti talið tugi af slíkum dæmum sem þessum úr skýrslunni, en tíminn leyfir ekki meira.
Með þessum dæmum hef ég viljað sýna tvennt. Í fyrsta lagi, hvílík fjarstæða það er, þegar reynt er að afsaka verðbólguna hér með háu verði erlendis, og í öðru lagi hitt, hversu þungt þetta ástand hvílir bæði á afkomumöguleikum einstaklinganna og atvinnufyrirtækjunum. Í því sambandi skal ég enn fremur benda á þá kjaraskerðingu, sem aðgerðir þessar allar með afleiðingum sínum hafa skapað.
Reiknuð hefur verið út um alilangan tíma svo kölluð framfærsluvísitala. Á hún að vera mælikvarði á það, hve dýrt sé að lifa. Í janúar 1943 var þessi vísitala 310 stig. Síðan hefur hún vaxið svo samkv. upplýsingum hagstofunnar, að í október s.l. var hún 619 stig og hefur hækkað síðan. Hún hefur því fyllilega tvöfaldazt á þessum árum. Laun eru greidd eftir svo kallaðri kaupgjaldsvísitölu. Til þess að hindra það, að launagreiðslur fylgdu dýrtiðinni, hafa ýmiss konar breytingar verið gerðar á kaupgjaldsvísitölunni á þessum árum með l. frá Alþ. Fyrst var hún bundin í 300 stigum 1948, og hélzt það fram að gengislækkun. Þá var hún orðin 42 stigum á eftir framfærsluvísitölunni. Þá var hún skrifuð niður í 100, gerð að grunnkaupi. Síðan hefur hún hækkað og er nú 150 stig, og eftir því er kaup greitt. Ef aldrei hefði verið gerð tilraun til þess að falsa þessa kaupgjaldsvísitölu, hefði hún átt að vera núna 230 stig, miðað við þann útreikning, sem hún er reiknuð eftir núna, í staðinn fyrir 150. Þannig er kaupmáttur launanna fyllilega þriðjungi lægri, en hann var í ársbyrjun 1947. Svo mikið eru launahækkanirnar á eftir dýrtíðinni.
Þetta dreg ég fram til þess að sýna fjarstæður þeirra blekkinga, sem sífellt er haldið fram, að kauphækkanir séu orsök verðbólgunnar, því að það getur hver meðalgreindur maður skilið, að sá þátturinn, sem er langt á eftir, getur ekki verið frumorsök hinna þáttanna, sem eru langt á undan. Ég bendi enn fremur á það, að kröfur þær, sem verkalýðsfélögin gera núna um kjarabætur, eru aðeins brot af þeirri kjararýrnun, sem orðið hefur á þessum árum samkv. þessum útreikningum. Þó er ekki þar með fullsögð sagan. Atvinnurýrnun og atvinnuleysi eykur muninn enn þá meir og dregur enn þá meir úr kaupgetunni. Fyrir bændur landsins er hin rýrnandi kaupgeta búin að hafa svo alvarlegar afleiðingar, að í stað þess, að áður var hvert kjötkíló, hver smjörpakki, hver ostur og hver mjólkurlítri rifinn út um leið og hann kom á markaðinn, er nú komin svo alvarleg sölutregða, að sumar framleiðsluvörur landbúnaðarins hlaðast upp og verða skemmdum að bráð. Pólitískir leiðtogar bændastéttarinnar eru að reyna að fela þessar staðreyndir fyrir bændunum, en tekst það heldur óhöndulega. Það virðist nú vera eitt aðaláhugamál ýmissa þessara leiðtoga að hindra aukningu mjólkurframleiðslunnar, jafnvel draga úr henni. Af of mikilli kjötframleiðslu hafa þeir þó ekki þurft að hafa áhyggjur, því að þar hafa fjárpestirnar tekið af þeim ómakið, enn sem komið er. Það, sem nú er að gerast í þessum málum, er áþreifanlegasta sönnun þess, hve hagsmunir bóndans, verkamannsins, iðnaðarmannsins og sjómannsins eru samanslungnir og verða á engan hátt aðskildir.
Verkfallið, sem nú er háð, er í þágu bændanna líka sem annarra atvinnustétta, því að haldi áfram síversnandi kaupgeta þeirra vinnustétta annarra, þá er alveg útilokað, að bændastéttin geti staðið ein upp úr, og þá er þróun landbúnaðarins stöðvuð. En atvinnuvegirnir geta ekki borið kauphækkanir, veit ég að svarið verður. Og því til sönnunar er bent á markaðsástandið, sem Morgunblaðið lýsti. Það er rétt, að atvinnulífið á líka í erfiðleikum, og þar er einmitt komið að kjarna málsins. Atvinnuvegirnir eiga í erfiðleikum hjá þjóð, sem hefur undanfarin ár haft vaxandi gjaldeyrisfúlgur til ráðstöfunar með hverju ári og árlega lækkar lífskjör þess fólks, sem við atvinnuvegina starfar.
Kjarni þessa máls er sá, að í þjóðfélaginu er til annað ráð, fjármálalegt peningaráð, sem ræður ríkisvaldinu og með aðstoð þess dregur til sín arðinn af vinnu fólksins í atvinnulífinu. Oft hefur verið á það minnzt, að s.l. ár hafði Landsbankinn 28 millj. kr. í hreinan ágóða. Hver hefur greitt þann ágóða annar en atvinnuvegirnir? Eitt stærsta auðfélag Íslands, Eimskipafélagið, sem flytur mikið af vörum landsmanna, hefur grætt tugi milljóna sum árin. Þetta fyrirtæki nýtur skattfrelsis og rakar saman gróða á of háum farmgjöldum. Olíuhringarnir, sem við kaupum allar olíur og benzín af, eru voldugustu auðfélög veraldarinnar og arðræna íslenzkt atvinnulíf með aðstoð innlendra leppa sinna um marga milljónatugi árlega. Það er frægt dæmið um Olíufélagið h/f, leppfélag Standard Oil, sem nú liggur undir ákæru fyrir 2 millj. kr. fjárdrátt í sambandi við gengislækkunina. Slíkt var þó bara smáaukaþóknun. En hver greiðir slíkar aukaþóknanir og annan gróða nema atvinnulífið?
Ég sagði áðan, að þessar peningaklíkur réðu ríkisvaldinu, og ég vil nefna dæmi um áburðarverksmiðjumálið því til sönnunar, hvernig ríkisvaldið er notað til skefjalauss fjárdráttar í þeirra þágu. Upphaflega var tilgangurinn sá, að áburðarverksmiðjan yrði eign ríkisins og rekin af því. Þannig hafði málið verið samþ. við 5 umr. í Alþ. Við síðustu umr. málsins í Ed. kom núverandi viðskmrh., Björn Ólafsson, því inn í frv., að leita skyldi hlutafjárframlaga til stofnunar fyrirtækisins og er hlutafé einstaklinga næði 4 millj., skyldi ríkið bæta við 6 millj. kr. hlutafé og verksmiðjan þá rekin sem hlutafélag. Þetta var samþ. og hefur verið gert. Verksmiðjan er áætluð kosta 108 millj. kr. Þar af leggja hluthafar, aðrir en ríkið, fram 4 millj. 104 millj. leggur ríkið fram, þar af 6 millj. sem hlutafé og 98 millj. á annan hátt. Það er ekki stafur um það í lögunum, að þetta málamynda hlutafélag eigi að vera eigandi verksmiðjunnar, en ráðh. lýsa því yfir hver af öðrum á Alþingi, að svo eigi það að vera. Gert er ráð fyrir, að reksturinn greiði stofnkostnaðinn. Það þýðir, að einstaklingar, sem fram hafa lagt 4 millj. kr., verða að 2/5 hlutum eigendur að fyrirtæki, sem ríkið hefur lagt 104 millj. króna til að stofnsetja. Þetta er reksturinn látinn gefa þeim jafnótt og stofnkostnaðurinn er greiddur, því að hann á að greiðast af rekstrinum. Þetta er það, sem ég kalla yfirráð og beitingu ríkisvaldsins til skefjalauss fjárdráttar í þágu peningaklíkna þeirra, sem sjúga sig fastar á efnahagslífið, hvar sem færi gefst og nota til þess vald sitt yfir öllum hinum þremur borgaralegu stjórnmálaflokkum. Og bændafulltrúar utan af landi, sem í raun og veru eru heiðarlegustu menn, eru látnir rétta upp hendur til atkvgr. með þvílíku hneyksli. Svo eru það aðalröksemdir ríkisstj. og hennar flokka gegn því, að atvinnuvegirnir greiði verkafólki sínu viðunandi laun, að reksturinn geti ekki borið það.
Þá vil ég benda á samhengi þessarar þróunar; sem ég hér hef lýst, og lýsingar Morgunblaðsins á markaðsmálunum, sem fyrr er getið. Ef ein þjóð ætlar að lifa á vinnu sinni, en ekki bónbjörgum, þá verður hún að geta selt framleiðslu sína, en fyrsta skilyrði til þess, að hún geti selt framleiðsluna, er það, að hún kaupi í staðinn framleiðslu þeirra þjóða, sem hún selur til, þ.e. kaupi nauðsynjar sínar hjá þeim, en ekki öðrum. Og til þess að geta selt mikið og framleitt mikið, þá þarf hún að kaupa mikið í staðinn. En til þess að hún geti keypt mikið, er ekki nóg, að fámenn yfirstétt hafi næga kaupgetu. Þjóðin þarf að hafa næga kaupgetu öll. Næg kaupgeta alls almennings er undirstaða þess, að hægt sé að nota framleiðslutæki okkar til fulls. Hún er undirstaða þess, að við getum sýnt meiri afköst, meiri framleiðslu og skapað meiri þjóðartekjur. Annars losnum við ekki við framleiðsluna og efnahagslífið lendir í strand. Þegar við kaupum nauðsynjavörur okkar fyrir gjafafé, eyðileggjum við sjálfir möguleikann á að selja framleiðslu okkar, eyðileggjum möguleikann til að nota afkastagetuna og sköpum atvinnuleysi, kreppu og eymd. Þegar skattapíning sú, sem ég hef lýst, er í tilbót notuð til að rýra kaupgetuna, eru enn þá skertir möguleikar til þess að selja framleiðslu þjóðarinnar, vegna þess að mestan hluta þjóðarinnar skortir möguleika til að kaupa andvirði framleiðslunnar, þegar það er innflutt í landið. Allar búðarholur Íslands eru núna fullar af erlendum varningi, sem fluttur er inn fyrir gjafir og lánsfé og fólkið getur ekki keypt. En sjálfstæði Íslands hefur verið gert að útflutningsvöru til þess að greiða með því þetta gjafafé. Afleiðing þeirra ráðstafana er sú, að 2/3 hlutar einnar aðalframleiðsluvörunnar liggja óseldir. Hér eiga allir þrír borgaralegu flokkarnir sömu sök. Þetta er afleiðing þeirra örlagaríku ákvarðana að láta þjóðina fara að lifa á gjöfum í stað þess að vinna fyrir sér. Sú stjórn á atvinnumálum, fjármálum og efnahagsmálum þjóðarinnar, sem þá var upp tekin og fylgt hefur verið siðan, gat aldrei leitt til annars, en þess ástands, sem núna ríkir.
Þannig er lokað þeim vítahring, sem dreginn hefur verið um þjóðfélagið, lokað í sjálfheldu ráðleysis ríkisstj., sem heldur að sér höndum og treystir aðeins á bandarískan dollarastraum í sambandi við hernaðaraðgerðir á Íslandi.
Nú standa yfir ein hin víðtækustu verkföll, sem hér hafa verið háð. Farið er fram á, að bættur verði aðeins lítill hluti þeirrar kjaraskerðingar, sem orðið hefur á síðustu 6 árum. Þessar kröfur eru verk Alþingis og verk þeirra ríkisstjórna, sem með völd hafa farið þessi ár. Alþingi og ríkisstj. hafa lagt þessar kröfur upp í hendur þeirra aðila, sem verkfallið heyja. Þessi verkfallsbarátta er því í raun og veru barátta við beinar afleiðingar vísvitandi stjórnarstefnu, sem leitt hefur til ófarnaðar, barátta við afleiðingar dýrtíðar, atvinnuleysis og kreppu. En jafnframt því að vera barátta gegn þessari stjórnarstefnu og þróun þeirri, sem af henni leiðir, þá er verkfallsbaráttan einnig núna barátta fyrir meiri afköstum, meiri framleiðslu og meiri þjóðartekjum.
Ég beini þeirri áskorun til ykkar, sem í þessari baráttu standið, að standa fast saman í baráttu ykkar núna. Undir úrslitum hennar getur það verið komið, hvort áfram verður haldið þeirri helstefnu, sem undanfarið hefur verið fylgt, eða takast mætti að mynda samtök, sem knúið geta stjórnmálin inn á aðrar og heillavænlegri brautir. Þessi barátta, verkfallsbaráttan, sem núna er háð, er því aðeins fyrsta skref. Til þess að vernda það, sem kann að vinnast í henni, þarf þegar að stíga annað skref. Það skref er að mynda samtök allra þeirra stétta, sem halloka hafa farið fyrir þróun, sem hingað til hefur átt sér stað í þessum efnahagsmálum, mynda samtök til að fá nýja ríkisstjórn, ríkisstjórn, sem gerbreytir um stjórnarstefnu, bæði í innanlandsog utanríkismálum, ríkisstjórn, sem snýr við hjóli efnahagsþróunarinnar, ríkisstjórn, sem þorir að heimta erlent herlið burt af íslenzkri grund, og ríkisstj., sem þorir að berjast fyrir endurheimt þess sjálfstæðis, sem gert var að útflutningsvöru fyrir Marshalldollara. Tækifærið til að stíga þetta skref kemur á næsta ári.