08.12.1952
Sameinað þing: 22. fundur, 72. löggjafarþing.
Sjá dálk 515 í B-deild Alþingistíðinda. (676)
1. mál, fjárlög 1953
Hannibal Valdimarsson:
Herra forseti. Íslenzkir hlustendur, nær og fjær. „Af ávöxtunum skuluð þér þekkja þá.“ Og nú er bezt að líta upp og lesa ávextina af stjórnartrénu, svo fagrir og girnilegir sem þeir annars eru á að líta og svo góðir, sem þeir hafa reynzt íslenzku þjóðinni. Það vantar ekki, að stjórnartréð ber mikla ávexti, greinar þess svigna undan þunganum og nema næstum við jörð. Og ekki er annað að sjá, en að greinunum liggi sumum við broti. Ef þetta væru nú góðir ávextir, girnilegir til fróðleiks og góðir að éta, eins og þar stendur, þá byggði Ísland ekki í dag, hnipin þjóð í vanda. En því miður er það svo. Íslenzk málefni, þau sem mestu varða, eru nú flest í fullkomið óefni komin. Það er í einni setningu ávextirnir af stjórnarstarfinu. Við vitum, hverju sáð var, og við sjáum ávextina, hvar þeir hanga á svignandi greinunum. Við nefnum sem dæmi gengislækkun, bátagjaldeyrisbrask, verzlunarokur, dýrtíðarflóð, atvinnuleysi með skort og neyð. Þetta er, hlustendur góðir, fremur ófagur ávaxtaklasi, og má fullyrða, að þessir ávextir standast á engan hátt það gæðamat, sem íslenzkri iðnframleiðslu er ætlað að standast. Þessi gróður tryggir engan veginn lifið í landinu.
Það málið, sem um þessar mundir upptekur allra hugi, er verkfallsmálið, enda mun ég verja meginhluta ræðutíma míns í kvöld til þess að skýra frá gangi þess.
Vegna þess ástands, sem stjórnarstefna núverandi ríkisstj. hefur skapað, sáu verkalýðsfélögin fram á það á s.l. sumri, að svo búið mátti ekki lengur standa. Tóku þau þá að segja upp samningum og bera saman ráð sín. Varð niðurstaðan sú, að til urðu á skömmum tíma órjúfandi samtök verkalýðsins í öllum landshlutum um samræmdar kröfur til kauphækkana og kjarabóta, því að alls staðar kreppti skórinn að á sama hátt með tilfinnanlegum afleiðingum dýrtíðar og atvinnuleysis. Kröfurnar voru fullmótaðar fyrir miðjan nóvember og þá þegar sendar atvinnurekendum og gerðar heyrinkunnar. Boðuðu mörg félög til verkfalls frá 1. desember, ef ekki næðust samningar fyrir þann tíma, en önnur hefja verkfallið smám saman á tímabilinu fram í miðjan desember. Er sýnt, að verkfall það, sem nú er hafið, verður þannig hið viðtækasta, sem nokkurn tíma hefur verið háð hér á landi.
Nokkru áður, en verkalýðsfélögin fóru af stað með kröfur sínar, gerðu opinberir starfsmenn undir forustu Ólafs Björnssonar prófessors kröfur um miklar launahækkanir, þar sem svo væri komið, að laun hinna föstu starfsmanna hrykkju ekki lengur fyrir daglegum nauðsynjum. Um líkt leyti hófst mikil og almenn hreyfing meðal launamanna í Verzlunarmannafélagi Reykjavíkur undir handarjaðri heildsalanna og þó í ónáð þeirra fyrir kauphækkunum og kjarabótum, og er það fyrst nú fyrir fáum dögum, að Morgunblaðið skýrði frá því fagnandi, að verzlunarmenn mundu þó ekki hefja verkfall fyrir kröfum sínum.
Það þarf ekki að taka það fram, að enginn flokkslegur ágreiningur hefur verið um það innan verkalýðsfélaganna að bera þessar kröfur fram. Menn úr stjórnarflokkunum hafa verið jafnákveðnir og aðrir, því að neyðin brennur jafnt á þeirra bökum, sem annarra. Það er því vonlaust verk hjá íhaldinu að reyna að koma því inn hjá fólki, að nú sé verið að misnota verkalýðshreyfinguna í flokkspólitískum tilgangi. Hér er um svo hreina stéttarlega kjarabaráttu að ræða sem verið getur, og einmitt það gerir samtökin svo sterk, að algert óvit er að reyna að brjóta þau á bak aftur. Það verður einungis þeim til ófarnaðar, sem það reynir. Það sýnir líka vel, hversu almenn sú nauðsyn er, sem knúið hefur verkalýðsfélögin út í sitt nauðvarnarstríð, að hver beiðnin á fætur annarri hefur borizt alþýðusamtökunum frá launasamtökum utan þeirra um, að þau fái að vera með í þessari baráttu. Á þennan hátt hafa t.d. iðnsveinar og trésmiðir í Reykjavík slegizt í för með verkalýðsfélögunum og gengið út í baráttuna undir merkjum þeirra. Vil ég nú stuttlega sýna og minna á, hverjar kröfurnar eru, sem alþýðusamtökin hafa borið fram á hendur atvinnurekendum.
Fyrsta krafan er sú, að allt grunnkaup í samningum hækki um 15%, þó þannig, að grunnkaup karla við almenna vinnu verði hvergi á landinu lægra en kr. 10.63 á klst. og að grunnkaup kvenna verði samræmt og hækki þannig, að bilið milli þess og grunnkaups karla minnki verulega frá því, sem nú er. Þetta þýðir, að verkalýðssamtökin beita sér nú fyrir því, að vinnan sé goldin sama verði hvar sem er á landinu, og jafnframt hitt, að kaup kvenna hækki hlutfallslega miklu meira, en karlmannskaup. Í því efni er takmarkið skýrt, nefnilega það, að greidd verði sömu laun fyrir sömu vinnu án alls tillits til þess, hvort vinnan sé framkvæmd af karli eða konu.
Önnur meginkrafan er sú, að á allt grunnkaup verði greidd verðlagsuppbót mánaðarlega samkv. framfærsluvísitölu næsta mánaðar á undan þeim mánuði, sem kaup er greitt fyrir. Nú standa sakirnar þannig, að framfærsluvísitalan er komin upp í 163 stig, en kaupgreiðsluvísitölunni er haldið niðri í 153 stigum. Það er 10 stiga munur verkamönnum í óhag. Leiðrétting á þessu er því meira réttlætismál, þegar þess er gætt, að vísitalan sýnir hvergi nærri rétta mynd af aukningu dýrtíðarinnar. Til þess er nefnilega hyllzt af stjórnarvöldum að láta verðhækkanir, sem að mestu eru til komnar vegna stjórnarráðstafana, svo sem vegna tolla, söluskatts, bátagjaldeyris o.fl., koma á þær vörur, sem annaðhvort alls ekki eða að mjög litlu leyti eru teknar með í vísitölugrundvöllinn. Þetta sýnir berlega, að kjararýrnun sú, sem orðin er, er í rauninni miklu meiri en framfærsluvísitalan gefur til kynna. Og að því þarf ekki að eyða orðum, að stórfelldust er kjaraskerðing þess launafólks, sem að undanförnu hefur ekki fengið fulla kaupgjaldsvísitölu á kaup sitt, enda er þess nú krafizt, að allir innan samtakanna verði látnir sitja við sama borð í því efni. Svo órækar sannanir hafa samtökin lagt á borðið fyrir þeirri kjararýrnun, sem þau hafa orðið að þola, að atvinnurekendur hafa ekki treyst sér til að hnekkja þeim. Þeir viðurkenna flestir, að ekki sé lengur hægt að lifa af launum verkamannsins. Það er nálega sama, hvaða nauðsynjavara er nefnd, það kostar verkamanninn nú fleiri mínútur að vinna fyrir henni en fyrir nokkrum árum. Þetta er kjararýrnun, svo að ekki verður um deilt. Sé borið saman hækkun kaups og hækkun vöruverðs síðan í októbermánuði 1947, verður þetta upp á teningnum: Hækkun kaupsins á þessum tíma er 58.6%, en hækkun hinna algengustu nauðsynjavara til fæðis og klæðis er þetta frá 60% allra lægst og allt upp í 533%. — Ég hef ekki heldur trú á því, að staðið verði gegn kröfunni um fulla mánaðarlega framfærsluvísitölu, enda er hún strax í rauninni annars eðlis, ef unnt yrði að gera ráðstafanir til verðlagsstöðvunar eða jafnvel verðlækkunar í sambandi við þessa kaupgjaldssamninga. En von mín er, að slíkt megi takast.
Þriðja krafan er sú, að atvinnurekendur greiði 4% á greidd vinnulaun í atvinnuleysistryggingasjóð, sem ætlunin er að stofna til. Atvinnuleysistryggingar eru nú orðnar lögfestar í mörgum nágrannalöndum og hafa fengið mikla og góða reynslu. Er það flestra manna mál, að þær séu einna sjálfsagðastar allra trygginga. Atvinnuleysið er í senn þjóðfélagsmeinsemd og slíkt þjóðfélagsböl, að einskis má láta ófreistað til að afstýra lamandi og tærandi áhrifum þess.
Þá er komið að fjórðu kröfunni, lengingu orlofsins úr 12 dögum í 18 daga. Þetta þýðir hækkun orlofsfjár um 2% eftir reglum orlofslaga. Nú má í þessu sambandi minna á, að ríkisstj. íhalds og vinstri manna í Danmörku lögfesti einmitt á s.l. ári að kröfu verkalýðssamtakanna 61/2 % orlof verkamanna þar í landi, og má af því marka, að ekki verður þetta með nokkru móti heimfært undir kommúnisma, þótt gengið yrði að kröfunni um 6% orlof hér.
Fimmta krafan er þess efnis, að athugaðir verði möguleikar á framkvæmd 40 stunda vinnuviku, og sú sjötta og síðasta, að bætt verði kjör iðnnemanna til mikilla muna frá því, sem nú er. Er þjóðinni þess brýn þörf, að ungir menn séu hvattir, en ekki lattir til verklegs náms, því að við Íslendingar erum því miður eftirbátar margra annarra menningarþjóða í verklegri kunnáttu og þurfum á því sviði allt of margt til annarra að sækja.
Þetta eru þá kröfurnar, sem verkalýðssamtökin hafa borið fram og eru ákveðin í að knýja fram til sigurs í einni eða annarri mynd. Á fyrsta samningafundi með atvinnurekendum neituðu þeir að ganga að kröfunum og báru við getuleysi sínu. Var málinu þá þegar vísað til aðgerða ríkissáttasemjara. Á fyrsta fundi, sem ríkissáttasemjari hafði málið til meðferðar, vék hann ræðu sinni að svofelldum niðurlagsorðum í grg. samninganefndar verkalýðsfélaganna fyrir kröfum sínum. Í grg. sagði svo:
„Að lokum viljum við taka það fram, að þótt verkalýðshreyfingin sé nú eins og oft áður til þess neydd að bera fram kröfur sínar um kauphækkanir og getur raunar ekki gert það í öðru formi við samningsaðila sína, atvinnurekendur, þá er okkur það ljóst, að æskilegra væri að öllu leyti, ef unnt væri að koma því til leiðar, að auka kaupmátt launanna með öðrum ráðstöfunum og bæta afkomuskilyrði hins vinnandi fólks með aukinni atvinnu. En hvorugt þetta er á valdi verkalýðssamtakanna. Það er á valdi Alþ. og ríkisstj. að gera þær ráðstafanir vinnandi fólki til hagsbóta að löggjafarleiðum, sem jafngilt gætu þeim kjarabótum, sem í framangreindum kröfum felast.“
Samninganefnd verkalýðsfélaganna féllst þegar á uppástungu sáttasemjara um að ræða þessa leið við fulltrúa atvinnurekenda. Kváðu þeir sig ekki eygja neina aðra leið í bili til að leysa sinn vanda, en að biðja ríkisvaldið um aðstoð. Er þar skemmst af að segja, að sáttasemjari fékk heimild beggja málsaðila til að ræða það við ríkisstj., hvort hún vildi vinna að lausn deilunnar að löggjafarleiðum. Þetta mun sáttasemjari strax hafa gert, því að næsta dag var samninganefnd verkalýðsfélaganna boðuð á fund ríkisstj. til viðræðu um málið. Gerðum við þar grein fyrir skoðunum okkar á því, að ýmsar löggjafaraðgerðir mundu, ef til vill geta minnkað bilið milli deiluaðila, og nefndum við sem dæmi meðal annars þetta: lækkun farmgjalda, lækkun verðtolls, niðurfellingu eða lækkun söluskatts, t.d. í því formi, að hann legðist aldrei nema einu sinni á sömu vöru, lækkun heildsöluálagningar, lækkun smásöluálagningar, lækkun húsaleigu, t.d. í endurgreiðsluformi eftir fjölskyldustærð. Vaxtalækkun nefndum við einnig til léttis atvinnulífinu, og fleira kunnum við að hafa tekið í mál. — Ef eitthvað í þessa átt kæmi frá ríkisstj. í ákveðnu formi, kváðumst við mundu með aðstoð sérfræðinga meta, að hve miklu leyti það jafngilti kröfum okkar til atvinnurekendanna.
Næsta dag barst svo fyrsta bréf ríkisstj., þar sem boðið var, að hafin skyldi sérfræðirannsókn á fjárhag ríkissjóðs og fjárhagshorfum hans, greiðslugetu atvinnuveganna og mörgu fleiru, að því tilskildu, að verkfallinu yrði frestað á meðan. Þetta heitir raunar að svara út í hött og setja óaðgengileg skilyrði. Þetta bréf var lagt fyrir fulltrúafund flestra þeirra verkalýðsfélaga, sem að deilunni standa, og var þar synjað um frestun verkfallsins.
Eftir nokkra daga leitaði ríkisstj. enn eftir frestun verkfallsins, og þótti þá enn síður vera tiltækilegt að slá framkvæmd verkfallsins á frest, þegar það var komið í algleyming. En þetta virðist hæstv. ríkisstj. hafa gengið erfiðlega að skilja, og mun hún hafa lagt það út sem fjandskap verkalýðsfélaganna við sig, en slíkt er á misskilningi byggt.
Þegar svo samninganefndin harmaði það í bréfi, að ríkisstj. hefði sýnt það fyrirhyggjuleysi að hafa engan viðbúnað í nóvembermánuði til að afstýra þeirri alvarlegu deilu, sem allir sáu þá fyrir að byrja mundi í desembermánuði, þá vitnaði ríkisstj. í bréf Alþýðusambands Íslands til verkalýðsfélaganna, dags. 25. ágúst í sumar. Telur hún sig löglega afsakaða um aðgerðaleysið í nóvembermánuði, fyrst ekkert finnist í ágústbréfi sambandsins um verkfall. Þetta er meiri fáfræði í verkfallsmálum, en ríkisstj. Íslands má gera sig seka um. Í því efni þarf hún líka eitthvað að kunna. Alþýðusamband Íslands tekur aldrei ákvarðanir um verkföll. Það eru verkalýðsfélögin sjálf. Og það vissu allir í nóvembermánuði, nema þá ríkisstj. ein, að félögin ætluðu mörg að fylgja kröfum sínum eftir með verkfalli frá og með 1. des.
Ríkisstj. hefur því ekki fylgzt með aðdraganda málsins sem skyldi, og af þeim sökum hefur hún reynzt svo óviðbúin sem raun ber vitni. Um þetta er ekki til nokkurs hlutar að reyna að slá ryki í augu almennings. En viðbúin hefði hún vissulega mátt vera frá því í ágústmánuði, er henni var kunnugt um uppsagnir samninga við atvinnurekendur. Það var teiknið, sem boðaði storm.
Að ósk sáttasemjarans voru þann 29. nóv. kosnar undirnefndir, bæði af hendi verkalýðsfélaganna og atvinnurekenda, til þess að vinna áfram að lausn deilunnar. Þessar nefndir báðu sáttasemjara að koma á framfæri við Hagstofu Íslands og ýmsar aðrar tilteknar stofnanir ýmsum spurningum, sem m.a. hnigu í þessa átt:
1) Hvaða þýðingu mundi það hafa fyrir vöruverð í landinu, ef ekkert væri lagt á bátagjaldeyrisálagið nema útlagður kostnaður?
2) Hvaða áhrif hefði það á vöruverð, ef heildsöluálagning væri aldrei hærri en 10% og smásöluálagning aldrei hærri en 30%?
Þessum spurningum var síðan víkið þannig við, að beðið var um athugun á, hvaða áhrif það hefði á vöruverð til lækkunar, ef ákveðin yrði nú sama álagning í heildsölu og smásölu og gilti, þegar verðið var seinast háð verðlagsákvæðum.
Í þriðja lagi var spurt um söluskattinn og beðið að athuga, hvað hann mundi lækka mikið, ef hann yrði aðeins lagður á vörur í heildsölu og smásölu, þ.e.a.s. tvisvar sinnum. Einnig skyldi athuga, hvaða lækkun fengist á honum, ef hann yrði aldrei lagður á vöru eða þjónustu nema einu sinni.
Þá var í fjórða lagi spurt um það, hvaða áhrif það mundi hafa, ef útlánsvextir yrðu lækkaðir um 1–2%.
Tvær spurningar voru bornar fram um verðlag landbúnaðarafurða. Fyrri spurningin var þessi: Hvaða áhrif mundi það hafa á verðlagið, ef meðalbúið væri áætlað ca. 15% stærra, en nú er gert, — og í öðru lagi, ef dreifingarkostnaður landbúnaðarvara færi ekki fram úr 25% af verðinu til framleiðenda?
Um margt fleira var spurt, er allt hné í þá átt að geta myndað sér skoðun um, að hve miklu leyti kynni að reynast fært að minnka bilið milli deiluaðila með löggjafaraðgerðum til verðlækkunar. Að þessu hefur sem sé verið starfað undanfarna daga, og er ég sannfærður um, að þetta er leiðin, sem þjóðin vill að farin sé og reynd til þrautar.
Það er uppörvandi og ánægjulegt að heyra það í útvarpi og blöðum þessa dagana, að einmitt þann 1. des. létti norska stjórnin öllum tolli af kaffi og sykri í Noregi. Og seinustu dagana hafa verið gerðar þar ráðstafanir til verðlækkunar á 20–30 helztu lífsnauðsynjum norskrar alþýðu. Hefur norska útvarpið einmitt skýrt frá því, að þessar ráðstafanir hafi verið gerðar til að lækka dýrtíðina og auka kaupgetu almennings, svo að honum endist betur tekjurnar til kaupa á nauðsynjum og komizt verði hjá kauphækkunum.
Hér hefur nú verið frá því skýrt, hvað gerzt hefur í verkfallsmálunum síðan 1. des. Og í dag standa málin þannig, að engin svör hafa
fengizt frá ríkisstj. um það, hvort hún vilji hjálpa atvinnurekendum, sem hún hefur þó mergsogið svo með stjórnaraðgerðum, að þeir þykjast nú einskis megnugir til þess að koma til móts við kröfur verkalýðssamtakanna. Þeir þykjast í raun og veru vera þess ómegnugir að greiða það kaup, sem geri verkafólki mögulegt að draga fram lífið.
Vera má, að það komi í ljós á næstu dögum, að ríkisstj. viðurkenni nauðsyn verkafólksins á kjarabótum, og er þá vel. En það er líka hugsanlegt, að því verði haldið fram í þessum umræðum, að ríkissjóður sé þess ekki megnugur að leggja fram fé til lausnar deilunni. En ef slík fullyrðing yrði borin hér fram, þá vil ég mótmæla henni, þegar í stað. Tekjuáætlun fjárlaga er enn sem fyrr fullum 20 millj. kr. of lág, þrátt fyrir ca. 9 millj. kr. hækkun meiri hl. fjvn. Fella má og niður risnu allra nema forseta Íslands, forsætisráðherra og utanríkisráðherra. Bifreiðakostnað allan hjá starfsmönnum ríkis og ríkisstofnana má og á að fella niður, og aukavinnu alla hjá ríki og ríkisstofnunum á að fella niður og taka alveg fyrir, en það segir meiri hl. fjvn. að nemi um 8 millj. Hygg ég, að með þessu öllu samanlögðu mætti spara um það bil 10 millj. kr. útgjöld. Með auknu aðhaldi og fastari stjórn mætti fækka starfsfólki hjá ríki og ríkisstofnunum, svo að við það spöruðust, eftir því sem ég hef komizt næst, að minnsta kosti 2 millj. króna. Það er aðeins um 50 manns, sem þyrfti að fækka um, með um 40 þús. kr. árslaun, og er þar vægt og varlega í sakirnar farið. Nægilegt er að hafa eitt sendiráð á Norðurlöndum í stað þriggja og eitt sendiráð á meginlandi Evrópu í stað tveggja, sem ákveðið er að hafa þar á næsta ári og framvegis. Við þetta sparast veruleg upphæð. Þá má og skera burt fjölda gjaldaliða, smárra og stórra, um allt fjárlagafrv., sem enginn mundi sakna, og spara með því a.m.k. um 5 millj. kr. upphæð. — Kostnaður við sauðfjársjúkdómavarnir er nú orðinn 17 millj. kr. á ári. Þetta eru ekki í eðli sínu rekstrargjöld eins árs, og mætti vel dreifa því á 10–15 ár með lántöku eða með greiðslu í ríkisskuldabréfum að einhverju verulegu leyti. Þannig mætti fá 16–17 millj. kr. — Á frv. er liður, sem heitir kostnaður við ráðstafanir vegna ófriðarhættu, að upphæð 1 millj. kr. Þá milljón má nú spara, sem hefur fer. Þetta gerir samtals 56 millj. kr., og er ég þó þeirrar skoðunar, og hef látið það í ljós áður, að 18. gr. fjárl. megi alveg hverfa úr fjárlögum í þeirri mynd, sem hún er, en hún er nú komin upp í 12 millj. kr. Væru þá þarna til umráða um það bil 68 millj. kr., fengnar með réttri tekjuáætlun fjárl. og með niðurskurði á gjaldabálki. Þeirri upphæð, eða hluta hennar eftir þörfum, mætti verja til lausnar vinnudeilunni með hverri þeirri aðferð, sem hagfelldust þætti.
Vinnudeilan og lausn hennar er óefað stærsta mál þjóðarinnar í dag. Hún er engin tilbúin og tilfundin stjórnmálaherferð á hendur ríkisvaldinu. Hún er ómótstæðileg þjóðhreyfing fólksins, sem framleiðslustörfin vinnur. Hún er undirbúin, hafin og háð af fólkinu sjálfu, sem ber nú fram lágmarkskröfur sínar um kaup og kjör, af því einu, að fólkið sér sér ekki fært að draga fram lífið og vill ekki una því að búa við óbreytt kjör, þegar aðrir hafa tækifæri til óheftrar auðsöfnunar. Og ég segi: Vei þeirri ríkisstj., sem synjar vinnandi stéttum um réttinn til sómasamlegs lífs eða lætur sem þau mál séu sér óviðkomandi.
Dráttur á lausn deilunnar kostar þjóðina offjár í glötuðum verðmætum. En fátt er þó svo með öllu illt, að ekki fylgi nokkuð gott, því að drátturinn gerir annað. Hann þrýstir sundruðum kröftum alþýðunnar saman í einn farveg, sem rífur allar hindranir úr vegi, þegar mótspyrnu er mætt. Sigurinn er öruggur að mínu áliti í þessu réttlætisstríði öreigans gegn okrinu, hvað svo sem ríkisstj. gerir eða lætur vera að gera. Enn þá hefur hæstv. ríkisstj. ekkert gert í þessu máli annað, en það að veita samningamönnum verkalýðsfélaganna og atvinnurekenda eitt viðtal og láta vera að banna Hagstofu Íslands og nokkrum öðrum stofnunum að vinna að athugunum og útreikningum fyrir samninganefndirnar. Þetta er sannleikurinn í máli nú. En þetta þykir mér og mörgum öðrum fulllítið á sig lagt af ríkisstj., þegar atvinnulífið á í hlut og hefur verið stöðvað í 6 daga.
Kröfum verkalýðsfélaganna varð að stefna til atvinnurekendanna. En sé það rétt, að þeir séu þess ekki megnugir að greiða það kaup við framleiðslustörfin, sem lífvænlegt geti talizt, þá hlýtur það að vera stjórnarfarið í landinu, sem veldur því getuleysi fyrst og fremst. Þess vegna liggur málið ljóst fyrir. Ríkisstj. verður þegar í stað að koma atvinnurekendum til hjálpar, að svo miklu leyti sem þá kann að skorta getu til þess að fullnægja lágmarkskröfum verkalýðssamtakanna. Og þessa hjálp á ríkisstj. að leggja fram fljótt, því að nú er dýr hver dagurinn. En að því er verkalýðssamtökin snertir, þá er sú hjálpin bezt þegin, sem virkust reynist til stöðvunar eða lækkunar á dýrtíðinni eða kemur að mestu gagni til aukinnar atvinnu.
Ef það hefur hvarflað að hæstv. ríkisstj. að afgr. fjárl. nú, áður en deilan er leyst, þá tel ég það mjög miður farið. Og ef hún skyldi hafa látið sér detta það í hug að senda þingið heim að verkfallinu óleystu, þá teldi ég það hið mesta glapræði og jafnvel ábyrgðarleysi. Ég segi nú, eins og ég sagði við 2. umr. fjárl., að það verður að endurskoða alla afgreiðslu fjárlfrv. með það fyrir augum að nema burt úr því öll þau útgjöld, sem ekki geta talizt lífsnauðsyn fyrir fátækt þjóðfélag. Jafnframt þessu á að lækka tolla og skatta. Með löggjafarvaldi verður að lækka vexti og farmgjöld, svo og — og ekki sízt — álagningu bæði heildsala og smásala og hafa með því strangt eftirlit, að þeim lagaákvæðum sé framfylgt. Þetta tel ég vera leiðina til bættrar afkomu atvinnuveganna og til aukinnar atvinnu. Þetta tel ég leiðina til aukinnar kaupgetu og örari viðskipta. Þetta er leiðin til lækkaðrar dýrtíðar og þar með lækkaðs rekstrarkostnaðar ríkisbáknsins og allrar starfrækslu í landinu. Þetta er vissulega leiðin til betra lífs á Íslandi. Og það verður ekki talin sök verkalýðsfélaganna, ef við berum ekki gæfu til að fara þessa leið í þetta sinn.
Ég kemst ekki hjá því að víkja nokkrum orðum að þeim vandamálum, sem skapazt hafa við veru hins erlenda setuliðs, sem nú dvelur hér í landinu. Ég var andvigur því á sínum tíma, að Íslendingar gengju í Atlantshafsbandalagið, og taldi, að Ísland ætti í lengstu lög að halda sér utan við öll hernaðarsamtök stórvelda. Meiri hl. Alþ. var, sem kunnugt er, á annarri skoðun og taldi, að öryggi landsins væri í hættu, ef við gengjum ekki í bandalagið.
Þegar setuliðið settist hér að fyrir hálfu öðru ári, var það auðvitað bein afleiðing af þátttöku okkar í Atlantshafsbandalaginu. Um þær mundir var útlitið í alþjóðamálum mjög uggvænlegt. Kóreustríðið hafði brotizt út, og enginn vissi nema sá neisti gæti orðið til þess að kveikja alheimsbál, þegar minnst varði. Af þessum sökum féllst ég á það sem illa nauðsyn, að fámennt erlent setulið settist hér að um stuttan tíma, meðan séð væri, hvað yrði úr þeim átökum milli voldugra aðila, sem þá voru hafin.
Síðan er mikið vatn runnið til sjávar. Kóreustyrjöldin hefur, sem betur fer, ekki breiðzt út til annarra landa, svo að okkur geti stafað hætta af. Það standa því nú vonir til þess, að ástandið í heimsmálunum geti breytzt svo innan ekki langs tíma, að Íslendingar geti endurskoðað afstöðu sína til erlends setuliðs í landinu. En í því efni verðum við óefað að taka ákvarðanir okkar með fullri hliðsjón af aðgerðum nánustu nágranna- og vinaþjóða okkar. Við erum í þessu efni hlekkur í keðju, sem hvergi má bresta. Hlýtur það að vera ósk allra góðra Íslendinga, að erlent herlið hverfi héðan svo fljótt sem mögulegt er. Sama er og afstaða allra þjóða, sem orðið hafa að veita erlendu herliði móttöku, og allar slíkar þjóðir hljóta að lita á veru erlends herliðs í löndum sínum sem neyðarástand og byrði, sem aðeins verði þoluð sem öryggisráðstöfun á hættutímum. Við eigum í þessu efni samleið með öðrum þjóðum og munum haga aðgerðum okkar með tilliti til þess, sem þær telja sér fært að gera. Því miður hefur ríkisstj. ekki reynzt röggsöm í þessum málum fremur en öðrum, og verður að krefjast þess, að skýrar reglur séu settar og þeim haldið í heiðri, á meðan við verðum að sætta okkur við þetta leiða tvibýli í landinu. Stjórnarvöldin verða að sjá svo um, að hvor búi að sínu, herinn og Íslendingar, og að þess sé vel gætt, að þjóðerni okkar og menning eru í hættu, jafnvel í voða stödd, ef við gætum þessa ekki vel.
Íslendingar vilja áreiðanlega eiga góða og friðsamlega sambúð við allar þjóðir, og það er þeirra æðsta ósk að fá að vera óáreittir í landi sínu. En það mun enginn lá Íslendingum, að þeir vilji ekki fórna menningu sinni og sjálfstæði og þannig ekki þola, að Ísland verði hernaðarstöð um aldur og ævi. En með menningu vorri og sjálfstæði yrði það vissulega goldið, ef svo færi. Þetta tel ég ástæðu til að segja hér, svo að enginn þurfi að vera í vafa um afstöðu mína í þessu máli.
Ríkisstj. byrjaði feril sinn með gengislækkuninni fyrir hálfu þriðja ári. Menn muna eftir hinum fögru loforðum um hliðarráðstafanir, sem áttu að gera þessa ráðstöfun léttari öllum almenningi. Loforðin voru gefin, en algerlega svikin. Menn muna eftir því, að sérfræðingar stjórnarinnar fullvissuðu þjóðina um, að framfærsluvísitalan mundi hækka um ein 11 — ég endurtek 11 — stig. En nú er hún komin upp í sex sinnum 11 stig, eða því sem næst. Menn muna fullyrðingarnar um það, að gengislækkunin mundi verða allra meina bót fyrir þjóðina, koma atvinnuvegunum á réttan kjöl og gera hana efnahagslega sjálfstæða. Gengislækkunin á sinn hlut í því, að viðskiptajöfnuðurinn er nú óhagstæðari, en nokkru sinni. Menn muna einnig þau aðvörunarorð Alþfl.-manna, að þessi gengislækkun mundi aðeins leiða til annarrar gengislækkunar og svo koll af kolli. Og nú er svo komið, að sumir þeir menn, sem ákafastir voru á sínum tíma í að verja gengislækkunina, eru farnir að tala mjög um yfirvofandi lækkun krónunnar enn á ný.
Og þá kem ég að því hneykslinu, sem er enn verra undir stjórn hæstv. ríkisstj., en það er bátagjaldeyririnn svo kallaði. Nú er það að vísu ekki nýtt og ekki óeðlilegt í sjálfu sér, að innflutningsgjöld á ónauðsynlegum vörutegundum séu stundum notuð til þess að styrkja aðalatvinnuveg þjóðar. En með bátagjaldeyrinum hefur ríkisstj. tekizt að koma þessum málum svo fyrir, að fyrir hverja krónu, sem bátarnir fá, rennur önnur króna í vasa heildsalanna, sem vörurnar flytja inn. Það er eitt út af fyrir sig að taka fé af landsfólkinu til þess að halda atvinnutækjum þess gangandi, en hitt er annað og verra að leyfa heildsölum að tvöfalda þennan skatt og taka helminginn í sinn vasa. Slíka verzlunarhætti geta landsmenn með engu móti sætt sig við.
Þm. Alþfl. hafa nú lagt fram frv. á Alþ. um endurskipulagningu þessara mála, þar sem bent er á ráð til þess að skera meinsemdina úr bátagjaldeyrisskipulaginu og fyrirbyggja með öllu það brask, sem því hefur verið samfara. Í þessu frv. er ákvæði um nýja skipun markaðsleitar fyrir afurðir bátaflotans, og þar er það fyrirbyggt, að frystihúsin fái bróðurpart hugsanlegrar aðstoðar, en sjálfir bátarnir lítið sem ekkert. Hefur Alþfl. með þessu frv. sínu á fyllilega ábyrgan og framkvæmanlegan hátt sýnt fram á leiðir til úrbóta í þessum efnum, sem jafnframt mundu fyrirbyggja hið hneykslanlega brask með bátagjaldeyrisvörurnar. Ég þarf ekki að taka það fram, að kommúnistar hafa ekki, frekar en fyrri daginn, sýnt ábyrga umhugsun eða andstöðu í þessum efnum og hafa þar ekkert nema lýðskrum fram að færa, enda ekki þess að vænta úr þeirri áttinni.
Ég hef nú rætt um nokkur einstök atriði í syndaregistri hæstv. ríkisstj., en hvergi nærri tæmt þann bikar.
Ég vil þá snúa mér næst að iðnverkafólkinu, sennilega fjölmennustu stétt þessa lands. Og ég vil leyfa mér að láta það leggja nokkrar spurningar fyrir hæstv. ríkisstj. Það spyr: Af hverju hafa verksmiðjurnar verið neyddar til þess að draga saman seglin eða loka dyrum sínum? Af hverju standa dýrmætar vélar í landinu ónotaðar? Af hverju er þjálfað iðnverkafólk látið sitja auðum höndum, meðan þjóðinni er á engu meiri þörf heldur en aukinni framleiðslu? Ég geri einmitt ráð fyrir því, að hæstv. ríkisstj. muni svara þessu með hagfræðikenningum sinna hirðspekinga eitthvað á þá lund, að geti íslenzkur iðnaður ekki keppt við erlendan, þá eigi hann ekki rétt á sér, því að hver eigi að vinna það, sem hann geti bezt gert. Ef til vill segja spekingar ríkisstj.: Íslendingar eiga að veiða fisk, en flytja inn iðnaðarvörur. — Þessi hagfræðikenning hefur nú verið reynd hér á landi, og hún hefur ekki reynzt rétt að því er okkur snertir. Sjávarútvegurinn hefur ekki getað tekið við fleira fólki, og árangurinn hefur aðeins orðið atvinnuleysi og stórvandræði iðnfyrirtækjanna. Þessi kenning er hér á landi álíka skynsamleg og það væri af bónda í sveit að segja konu sinni að kaupa allt utan heimilis, sem kynni að fást tiltölulega ódýrt aðkeypt, t.d. að hætta að prjóna sokka á heimilinu, af því að það væri hægt að fá þá í verksmiðjum, sem gætu jafnvel framleitt jafngóða vöru. Hagur bónda þessa væri sízt betri, þótt konan fylgdi slíku ráði. Þannig er það augljóst mál, að Íslendingar verða að hlúa að iðnaði sínum, gefa honum tíma og tækifæri til að þroskast, bæta sig, því að um það verður ekki villzt, að framtíðarafkoma íslenzku þjóðarinnar er að miklu leyti undir því komin, að hér rísi upp stórfelldur iðnaður og þá fyrst og fremst stóriðnaður.
Við Alþfl.- menn höfum lagt fyrir Alþ. till. okkar í þessum efnum, og þær eru á þá lund, að tollar verði litlir sem engir á hráefni til iðnaðar, en fari stighækkandi eftir því, sem varan er meira unnin. Þetta er hin eina rétta leið í þessum efnum, því að það gengur vitfirringu næst að flytja erlent vinnuafl inn í landið í formi fullunninnar vöru, meðan atvinnuleysi er í landinu sjálfu. Við verðum að láta íslenzkar hendur ganga fyrir öllum störfum fyrir íslenzku þjóðina. Það er leiðin til útrýmingar atvinnuleysi.
Að lokum vil ég svo segja þetta: Lausn vinnudeilunnar, lækkun dýrtíðar og bætt kjör hinna vinnandi stétta eru kjörorð dagsins og meginviðfangsefni þings og stjórnar, ef þau skilja sitt hlutverk.