08.12.1952
Sameinað þing: 22. fundur, 72. löggjafarþing.
Sjá dálk 524 í B-deild Alþingistíðinda. (678)

1. mál, fjárlög 1953

Gylfi Þ. Gíslason:

Herra forseti. Þessar eldhúsumræður fara fram undir óvenjulegum kringumstæðum. Það er verkfall í landinu. Þetta verkfall er víðtækara, en nokkurt annað verkfall, sem háð hefur verið á Íslandi. Um hvað er barizt í þessari deilu? Verkalýðssamtökin hafa ekki lagt og eiga ekki að leggja höfuðáherzlu á, að kaup sé hækkað. Aðalkrafan hefur verið sú, er sú og á að vera sú, að kaupmáttur launanna sé aukinn með lækkun verðlags, einkum og sér í lagi á þeim vörum og þeirri þjónustu, sem láglaunafólk kaupir fyrir tekjur sínar. Slíkt er á valdi ríkisstj. einnar. Hitt er svo annað mál, að meðan þverneitað er að verða við slíkum kröfum, þá eiga verkalýðssamtökin einskis annars úrkosta, en að hækka kaupið. Þau eða umbjóðendur þeirra stjórna landinu ekki, því miður. Þau geta ekki gert ráðstafanir til niðurfærslu verðlags og tekjujöfnunar. Hið eina, sem þau geta gert, er að hækka kaup félaga sinna, og það gera þau, ef þau fá því ekki framgengt, sem þau vildu helzt, en þau gera það sem hreina neyðarráðstöfun, því að þau vita, að krónutala kaupsins hefur ekki úrslítaáhrif á lífskjör launþeganna. Ef ríkisstj. vill koma í veg fyrir slíka kauphækkun, er henni það innan handar með því að gera nokkrar róttækar ráðstafanir til verðlækkunar og tekjujöfnunar.

Það er blekking, þegar sagt er, að í þessum átökum sé verið að reyna að skipta meiru, en til sé, atvinnuvegirnir geti alls ekki skilað láglaunafólki meiru, en það fær nú. Þetta er hættulegasta blekkingin, sem ríkisstj. og atvinnurekendur hafa nú í frammi gagnvart launþegum. Kjarni þeirrar deilu, sem nú er háð, er ekki viðleitni til að skipta meiru, en til er eða koma atvinnuvegunum á kaldan klaka, heldur að skipta því, sem til er, af auknu réttlæti og láta atvinnuvegina skila meiru til þeirra, sem vinna við þá, en minnu til eigendanna og alls konar braskara og milliliða.

Mig langar til að spyrja einnar spurningar, ekki aðeins hæstv. ríkisstj. og hv. alþm., heldur ykkur öll, sem mál mitt heyrið, — spurningar, sem snertir kjarna þess máls, sem nú er deilt um. Við munum öll tímana fyrir heimsstyrjöldina. Þeir voru erfiðir. Hinir lægst launuðu bjuggu við kröpp kjör. Á undanförnum áratug hafa lífskjör þjóðarinnar batnað mjög mikið. Þetta vita allir. En nú kemur spurningin: Finnst ykkur, að lífskjör hinna lægst launuðu hafi átt að batna meira eða minna en hinna? Finnst ykkur, að framfarirnar undangenginn áratug hafi átt að verða til þess að minnka bilið milli hins fátæka og ríka eða til þess að breikka það? Þetta er spurning, sem hver einasti maður verður að svara með sjálfum sér, og þeir, sem taka þátt í opinberu lifi, ættu ekki að komast undan því að svara henni opinberlega. Mér segir svo hugur um, að fáir þeirra þyrðu að svara henni öðruvísi, en þannig, að auðvitað hefðu framfarir síðasta áratugs átt að verða til þess að jafna lífskjörin eða að minnsta kosti ekki til þess að gera þau ójafnari.

En nú skal ég sýna fram á, þannig að ekki verði með rökum á móti mælt, að frá 1939 og til 1950 minnkaði hlutur hinna lægst launuðu, þ.e.a.s. Dagsbrúnarmanna og annarra, er svipuð kjör hafa, í þjóðartekjunum. Ég kemst ekki hjá því að nefna fáeinar tölur í þessu sambandi, en ég mun flytja mál mitt þannig, að ríkisstj. og málsvörum hennar gefist sem beztur kostur á að andmæla rökum mínum, ef þeir treysta sér til.

1939 voru þjóðartekjurnar taldar 155 millj. kr. 1950 höfðu þær aukizt upp í 1.593 milljónir. Verðgildi peninganna minnkaði hins vegar sökum hækkandi verðlags, og fólkinu fjölgaði. Sé tekið tillit til verðlagsbreytingarinnar og fólksfjölgunarinnar, kemur í ljós, að raunverulegar þjóðartekjur á hvern íbúa, þ.e.a.s. þjóðartekjurnar mældar í raunverulegum verðmætum, hafa aukizt um 63%. Ef þeirri aukningu þjóðartekna, sem hér varð á þessu tímabili, hefði verið skipt hlutfallslega jafnt á milli allra borgara þjóðfélagsins, hefðu kjör allra átt að geta batnað um 63%. Kaupmáttur launanna hefði átt að aukast um 63%. En nú skulum við athuga afkomu hinna lægst launuðu í þjóðfélaginu og miða við Dagsbrúnarverkamann. Í desember 1950 var kaupmáttur tímakaups Dagsbrúnarverkamanns aðeins 30% meiri, en hann var 1939. Kaupmáttur tímakaupsins hefði því átt að vera 25% hærri, en hann var, til þess að vera jafn þeirri meðalhækkun, sem varð á þjóðartekjunum.

Hér er að vísu eins að geta. Við notum ekki allar þjóðartekjurnar til neyzlu. Við notum hluta af þeim til fjárfestingar, og fjárfestingin var tiltölulega miklu meiri 1950 en 1939. Einhverjir kynnu að segja, að ekki sé eðlilegt, að kaupmáttur tímakaupsins vaxi nema í hlutfalli við aukningu þess hluta þjóðarteknanna, sem notaður er til neyzlu. Ef tekið er fullt tillit til þessa og gert ráð fyrir því, að fjárfestingin 1950 hafi verið 18.3% af þjóðartekjunum, en 1939 10% af þjóðartekjunum, þá kemur í ljós, að aukning þess hluta af þjóðartekjunum, sem notaður hefur verið til neyzlu, hefur numið 48%, en kaupmáttur tímakaups Dagsbrúnarmannsins hefur ekki aukizt nema um 30%. Raunverulegt kaup hans þarf því að hækka um 14% til þess eins að ná meðaltali þess, sem allar stéttir hafa fengið til aukinnar neyzlu.

Verulegur hluti fjárfestingarinnar er í höndum hins opinbera. Hins vegar er engin sanngirni í því að hugsa sér, að hinir efnameiri eigi að eignast allt það, sem einstaklingar hafa fest fé í, því að þá raskaðist eignaskiptingin enn. Hinir ríku yrðu ríkari, en hinir fátæku fátækari.

Ef Dagsbrúnarmaður hefði því átt að vera hlutfallslega eins settur 1950 og hann var 1939, hefði kaupmáttur launa hans þurft að vera eitthvað milli 14 og 25% hærri, en hann var í raun og veru. Ef tekið er meðaltal, hefði hann átt að vera 19–20% hærri.

Árið 1950 er hið síðasta, sem tölur eru til um, en ekki er hægt að segja með vissu, hver breyting hefur orðið á hlutdeild láglaunamanna í þjóðartekjunum síðan 1950. Margt bendir þó til þess, að hún hafi enn farið minnkandi. Það er því óhætt að segja, að Dagsbrúnarmaður eigi nú siðferðislegan rétt á 19–20% aukningu á kaupmætti launa sinna til þess eins að vera ekki hlutfallslega verr settur, en hann var 1939. Í raun og veru á hann rétt á meiri aukningu.

Þessi niðurstaða er svo mikilvæg, að hver einasti maður verður að hugleiða hana. Með henni er sýnt fram á, að láglaunastéttirnar hafa dregizt aftur úr í baráttunni um lífsgæðin. Þær hafa fengið minna í sinn hlut, en hinar efnameiri, en hefðu þó vissulega átt að fá meira, því að ójöfnuðurinn var of mikill 1939, en ekki of lítill. Og ég vil ekki láta hjá líða í þessu sambandi að minna á, að Ísland mun vera eina landið í Norðvestur-Evrópu, þar sem slíkt gerðist á þessum tíma. Alls staðar annars staðar jöfnuðust lífskjörin.

Þessi staðreynd er í raun og veru undirrót og kjarni deilunnar, sem nú er háð milli verkalýðssamtakanna annars vegar og atvinnurekenda með ríkisstj. að bakhjarli hins vegar. Það er ekki um það að ræða að skipta meiru, en aflast. Það er um hitt að ræða, að skipta því, sem aflast, af meira réttlæti, að láta skiptinguna vera a.m.k. ekki óhagstæðari hinum lægst launuðu, en hún var 1939, en það er hún nú. Hverjum dettur í hug í alvöru, að atvinnuvegirnir geti ekki borið hlutfallslega jafnhátt kaupgjald nú og þeir gátu 1939? Til hvers hafa þá allar framfarirnar verið? Til hvers var þá öll nýsköpunin? Var það virkilega tilætlunin, að hún yrði til þess, að hinir lægst launuðu fengju hlutfallslega minna en áður, en hinir ríkari meira?

Í þessum staðreyndum, sem ég hef lýst, felst svo þungur dómur um afstöðu ríkisstj. í deilunni, að hún kemst ekki hjá því að taka afstöðu til þeirra. Ég ætla fyrir fram að vara hæstv. ríkisstj. við einu svari. Hún hefur átt það til, þegar henni hafa verið sagðar óþægilegar tölur, að láta sér nægja að segja, að þær væru rangar, án þess þó að færa þeim orðum sínum stað, og látið svo þar við sitja, í von um, að fylgismenn trúi sér betur, en andstæðingunum. Um allar þær tölur, sem ég hef nú nefnt, að einni undantekinni, er það að segja, að þær eru sóttar í fræðirit eftir hagfræðing, sem ég veit, að hæstv. ríkisstj. vantreystir ekki, próf. Ólaf Björnsson. Þetta fræðirit er Þjóðarbúskapur Íslendinga, rit, sem notað er við kennslu í háskólanum og ýmsir kunnir hagfræðingar hafa skrifað ritdóma um án þess að hafa nokkuð við að athuga hvað það snertir, sem ég hef hér gert að umtalsefni. Eina talan, sem er ekki úr þessu riti, er sú áætlun, að fjárfestingin 1939 hafi numið 10% af þjóðartekjunum, en um það efni eru engar skýrslur til. Hæstv. ríkisstj. verður því að andmæla þessum staðreyndum með öðru, en hrópum um, að þessar upplýsingar séu rangar, og ég skora á málsvara ríkisstj., þá sem tala hér í kvöld eða annað kvöld, að andmæla þeim. Ég skora jafnframt á þá að gera grein fyrir því, hvort þeir ætlast í raun og veru til þess, að hlutdeild hinna lægst launuðu í þjóðartekjunum sé nú minni, en hún var á erfiðleikaárunum fyrir stríð.

Allir hugsandi menn gera sér ljóst, að ekki er víst, að hækkuð krónutala kaups nægi til þess að leiðrétta þetta hlutfall. Meðan ríkisvaldið er í höndum óvina hinna lægst launuðu, er því innan handar að ræna þá aftur því, sem þeir kunna að fá í kauphækkun, og þá er enginn betur settur, heldur allir verr. Þess vegna verða allir launamenn að skilja, að það er ekki nóg að sigra í baráttunni um krónutölu kaupsins og raunar alls ekki aðalatriði, - en hver efast raunar um, að verkalýðssamtökin sigri í þessum átökum? Aðalatriðið fyrir launastéttirnar er, að ríkisvaldið sé í höndum fulltrúa þeirra sjálfra, en ekki andstæðinga þeirra. Þangað til svo verður, er enginn sigur í kaupdeilum öruggur. Þess vegna er mergurinn málsins nú eins og ávallt sá, að alþýða manna til sjávar og sveita geri sér ljóst, hverjir eru hagsmunir hennar, hvaða flokkar vinna gegn þeim og hvaða flokkar fyrir þá.

Þeir, sem veittu núverandi stjórnarflokkum brautargengi við síðustu kosningar, hljóta nú að hugleiða, hvort ríkisstj. hafi gert það, sem þeir ætluðust til. Og mig langar til þess að spyrja þá: Ætluðuzt þið til þess, að haldið yrði þannig á málum, að hér yrði stórkostlegt atvinnuleysi? Ætluðuzt þið til þess, að verulegur hluti innlends iðnaðar yrði beinlínis lagður í rúst með hóflausum innflutningi alls konar varnings, sem auðvelt er að framleiða í landinu? Gerðuð þið ráð fyrir því, að lagt yrði út í svo ábyrgðarlaust ævintýri í verzlunarmálunum; að hallinn á viðskiptunum við útlönd yrði um 600 millj. kr. á 21/2 ári? Bjugguzt þið við því, að haldið yrði áfram á verðbólgubrautinni? En útlán bankanna hafa aukizt á valdatíma stjórnarinnar um meira, en 500 millj. kr. Gerðuð þið ráð fyrir því, að öll skipun viðskiptamálanna yrði við það miðuð, að milliliðir ættu sem auðveldast með að maka krókinn? Áttuð þið von á, að ríkisstj. mundi láta það viðgangast, að heildsalar, sem vissulega voru þó ekki sú stétt, sem harðast hafði orðið úti, þrefölduðu meðalálagningu sína á helztu neyzluvöru, svo sem vefnaðarvöru, og margfölduðu hana á margar aðrar? Bjugguzt þið við því, að ríkisstj. teldi það viðeigandi og ágætt, að heildsalar hækkuðu álagningu sína á innflutta vefnaðarvöru samkvæmt frílista um 15 millj. kr. umfram það, sem verðlagsákvæðin höfðu heimilað, en það svarar til árslauna hvorki meira né minna en 500 Dagsbrúnarmanna? Það má spyrja: Kusuð þið stjórnarflokkana til þess að koma á bátagjaldeyrisbraskinu? Þið vitið, hverjum það hefur þjónað. Hlutarsjómenn vita, að þeir hafa haft af því takmarkaðan ávinning. Útvegsmenn vita líka, að þeir hafa ekki fengið bróðurpartinn. Allir vita, að það eru milliliðirnir í útgerðinni og verzluninni, sem mest hafa fengið í sinn hlut. Verzlunarálagningin á þær bátagjaldeyrisvörur, sem búið er að yfirfæra fyrir, nemur vafalaust ekki undir 100 millj. kr.

Hér langar mig til þess að skjóta inn þeirri fyrirspurn til hæstv. ríkisstj., hvort það sé rétt, að eigendum skemmds saltfisks, framleidds á árinu 1950, hafi verið leyft að innheimta bátagjaldeyrisálag á andvirðið og veita þannig tapi sínu yfir á almenning, og ef svo er, þá hversu miklu þetta nemi. Almenningur er að vísu ýmsu vanur af hálfu ríkisstj., en sé þetta rétt, er hér um að ræða furðulegt hneyksli, sem skýra verður til fullnustu.

Og enn má spyrja: Bjugguzt þið við því, að ekkert, bókstaflega ekkert yrði gert til þess að hefta vöxt dýrtíðarinnar? En hún hefur vaxið um 63%, síðan ríkisstj. tók við völdum, og er það að minnsta kosti Evrópumet. Gerðuð þið ráð fyrir því, að hjá þessari ríkisstj. mundi verða sukksamara, en hjá nokkurri annarri, sem hér hefur verið við völd? Áttuð þið von á því, að ríkisstj. sýndi enga viðleitni til nokkurs sparnaðar í ríkisrekstrinum, svo að reynt yrði að draga eitthvað úr skattabyrðinni? Kusuð þið hana til þess að halda áfram að leggja skatta og tolla á tekjur og neyzlu hins fátækasta, en horfa aðgerðalaus á, að auðurinn safnaðist á æ færri hendur? En ég hef öruggar heimildir fyrir því, að eignir 20 ríkustu einstaklinganna hér í Reykjavík muni nema um 190 millj. kr.

og 20 ríkustu félaganna um 366 millj., eða samtals 556 millj. kr. Ég veit, að þeir launþegar og alþýðumenn, sem kosið hafa stjórnarflokkana, hafa ekki ætlazt til þess, að stefna stjórnarinnar yrði eins og hún hefur orðið, og þess munu þeir vafalaust minnast við næstu kosningar. Hvað margir þeirra 15 þúsunda, sem nú eru í verkfalli, skyldu ætla sér að kjósa þá flokka, sem nú stjórna landinu?

Á næsta sumri verður kosið til Alþingis. Þá þurfa íslenzkir kjósendur að tryggja, að skipt verði algerlega um stjórnarstefnu. Afturhaldsöflin, sem ráðið hafa mestu um stjórn landsins á liðnum áratug, verða að missa ítök sín. Verkamenn, sjómenn, iðnaðarmenn og opinberir starfsmenn í bæjum eiga að taka höndum saman við bændur í sveltum undir merkjum lýðræðis og frelsis. Undir merkjum lýðræðis og frelsis á íslenzk alþýða að sameinast til voldugs átaks til þess að bæta kjör sín og auka menningu sína, til þess að gera þjóðfélagið betra og réttlátara, til þess að auka framleiðsluna, tryggja öllum stöðuga atvinnu og öllum réttmætan hlut af afrakstrinum, til þess að útrýma spillingu og fjárbraski, en tryggja ábyrga og heiðarlega stjórn.