08.12.1952
Sameinað þing: 22. fundur, 72. löggjafarþing.
Sjá dálk 546 í B-deild Alþingistíðinda. (684)
1. mál, fjárlög 1953
Atvmrh. (Ólafur Thors):
Herra forseti. Þá hafa menn nú heyrt, hvers konar stjórn það er, sem þjáir og þjakar vesalings íslenzku þjóðina á þessum síðustu og verstu tímum. Bölvaðir eru brezkir útgerðarmenn, segja menn sín á milli, en þó eru þeirra fantabrögð aðeins svipur hjá sjón, miðað við alla þá ógæfu, sem forustumenn stjórnarandstöðunnar segja, að við, sem í ráðherrastólunum sitjum þessa stundina, kaldrifjaðir og Illviljaðir, séum að leiða yfir þjóðina. Án efa trúa einhverjir úr stjórnarandstöðunni. Þó er sá smáhængur á, að ef menn hafa áður heyrt eldhúsdagsumræður, rámar kannske þá minnugustu í að hafa heyrt eitthvað svipað áður, jafnvel oft áður. Og þegar betur er að gáð, kemur í ljós, að þessi ægistjórn, sem nú fer með völdin, er ekkert einsdæmi, heldur rétt og slétt eins og allar ríkisstj. hér á landi hafa verið, ef treysta má lýsingum stjórnarandstæðinga á hverjum tíma á stjórn landsins og jafnvel lýsingu minna ágætu samstarfsmanna í ríkisstjórn á einni þeirri beztu stjórn, sem hér hefur verið, nýsköpunarstjórninni, og harma ég nú mjög þær fullyrðingar allar, ef menn skyldu þá síður taka mark á þeirra ágætu ræðum nú.
Ég mun verja mínum stutta ræðutíma hér í kvöld til þess að svara í stórum dráttum þeim ræðum, sem hv. stjórnarandstæðingar hafa flutt hér í kvöld.
Það er kunnara en frá þurfi að segja, að haustið 1949 var svo komið högum sjávarútvegsins, að við blasti alger rekstrarstöðvun, nema annað tveggja væri gert, að leggja geigvænlega nýja skatta, svo að hundruðum milljóna króna næmi, á þjóðina til styrktar útveginum eða að freista þess að hleypa nýju fjöri í framleiðslustarfsemi landsins með því að lögfesta hið mikla verðfall peninganna, sem þá var orðin staðreynd. Minnihlutastjórn Sjálfstfl., sem með völdin fór um áramótin 1949 og 1950, valdi síðari kostinn og lagði fyrir Alþ. till. sínar í þeim efnum, sem í aðalatriðum voru samþ. í marzmánuði 1950. Er þetta allt svo kunnugt, að ég leiði hjá mér að rekja þá sögu hér, en leyfi mér þó aðeins að minna á tvær staðreyndir. Önnur er, að alvöruleysi andmælenda gengisfellingarinnar skilst bezt á því, að ekki einn einasti þeirra hefur bent á tekjustofn, sem nægja mundi til þess að standa undir svo miklu sem 1/10 hluta þeirra útgjalda, sem á ríkissjóð hefðu verið lögð, ef hindra átti allsherjar atvinnuleysi eftir troðnum slóðum styrktar- og uppbótastefnunnar. Hin staðreyndin er, að ef öllu hefði undið fram með eðlilegum hætti, mundi gengisfellingin hafa nægt til að afstýra því böli allsherjar atvinnuleysis, sem við blasti í árslok 1949. Hitt er svo alkunna, að óhöppin, sem hafa steðjað að, eru mörg, ekki sízt að því er varðar sjávarútveginn. Varð þess vegna ekki hjá því komizt að gripa til hins svo nefnda bátagjaldeyris til þess að halda uppi atvinnu allra þeirra þúsunda sjómanna og iðnaðarfólks, sem við hraðfrystihúsin vinna, og allra annarra, sem starfa að verkun aflans. Það eru þessar ráðstafanir, sem þeir, sem kaldan hug bera til útvegsins, hafa gert sér svo tíðrætt um, m.a. í kvöld, og nota þær að yfirskini til síendurtekinna árása á stjórnina. Hefur þeim árásum raunar jafnóðum verið hrundið, en þó í rauninni bezt af stjórnarandstæðingum sjálfum, sem engin önnur úrræði hafa getað bent á. Og þeim úrræðum, sem Alþfl. nú til málamynda ber fram á þessu þingi, munu áður en langt um liður verða gerð þau skil, að það mun renna upp fyrir sjómönnum, útvegsmönnum og öllum, sem góðan hug bera til íslenzks sjávarútvegs, að það eru ekki annað en sýndarúrræði, einokun og einræði. Eru þessar árásir út af bjargráðum útveginum til handa því ámælisverðari sem óhöpp útvegsins hafa verið fleiri og stærri. Ég nefni þar til aðeins 8 síldarleysisár í röð og hið óhagstæða verzlunarárferði, sem Íslendingar hafa átt við að búa síðustu árin. Ég á hér við, að verðhækkun aðkeyptrar vöru hefur orðið miklu meiri, en verðhækkun útfluttrar vöru. Hversu örlagarík áhrif þetta hefur haft á afkomu þjóðarinnar, skilja menn bezt á því, að ef hlutfallið milli verðlags aðkeyptrar og útfluttrar vöru hefði verið hið sama árið 1951 eins og var árið 1946, þá mundu Íslendingar hafa fengið á fjórða hundrað millj. kr. meira fyrir útflutningsvöru sína á árinu 1951, en raun ber vitni um. Og það má sannarlega sjá minna grand í mat sínum.
En þrátt fyrir alla þá örðugleika, sem orðið hafa á vegi þjóðarinnar, þá verður að viðurkenna, að allt hefur gengið stórslysalaust. Vandræði iðnaðarins út af tilslökun á hinum illræmdu höftum og bönnum eru án efa að miklu leyti stundarfyrirbrigði. Munu allir þeir, sem bezt börðust fyrir hinu langþráða verzlunarfrelsi, sameinast um að ráða fram úr þeim vanda og ekki láta þá glepja sér sýn, sem meira hugsa um það að reyna að hagnýta vandamál iðnaðarins sjálfum sér til pólitísks framdráttar, en að leysa sjálfan vandann. Á ég þar ekki sízt við Alþfl., og raunar má ekki heldur gleyma garminum honum Katli, kommúnistunum. En þá hefur þjóðin að nýju öðlazt verulegan hluta þess verzlunarfrelsis, sem hún hafði orðið áður á bak að sjá fyrir tveimur áratugum. Hafa einokunarpostularnir að sjálfsögðu hamazt gegn verzlunarfrelsinu og mest haft verðlagsmálin að yfirskini.
Vafalaust má með réttu sýna fram á einhverja ágalla þeirrar skipunar, sem nú ríkir. En samanburðurinn á henni og því ástandi, sem áður ríkti, sýnir þó alveg ljóslega mikla breytingu til bóta. Áður var það meginatriðið að halda vísitölunni niðri með niðurgreiðslum úr ríkissjóði, vöruskömmtun og verðlagsákvæðum. Um hitt var litið hirt, hvort mikill eða lítill hluti af nauðsynjum þjóðarinnar var fáanlegur með þessu tiltekna verði. Þröng innflutningshöft og bönn voru einn liður þessa háskalega hagkerfis. Af því leiddi mikinn vöruskort. Margt af nauðsynjum almennings var ýmist ófáanlegt eða aðeins á svörtum markaði og þá við margföldu hinu lögheimilaða verði: Vísitalan og þar með kaupgjaldið, sem auðvitað var byggt á lögheimilaða verðinu, var þess vegna ekkert nema helber blekking og tvímælalaust skæðasta leynivopnið, sem beitt hefur verið gegn hagsmunum launþeganna í kjarabaráttu þeirra. Núverandi stjórn gerði þennan draug landrækan. Hún rauf þessa svikamyllu blekkinga og falsaðra talna. Hún sá borgið því, sem neytendur varðar mestu og bezt tryggir hagsmuni þeirra, þ.e.a.s., að innflutningur og framboð á nauðsynjum almennings fullnægi þörfinni. Með þeim hætti einum er til frambúðar hægt að tryggja hæfilegt vöruverð í landinu, því að þegar vörurnar eru nógar, þá skapar samkeppni seljendanna og dómgreind almennings hið rétta verðlag.
Ég læt þessum fáu orðum um störf stjórnarflokkanna lokið með því að benda á, að heildarmyndin af samstarfinu er sú, að með samfelldum ráðstöfunum, gengisfellingu, bátagjaldeyri, greiðsluhallalausum fjárlögum, án nýrra skatta, stórauknu verzlunarfrelsi og ýmsu öðru hefur stjórnarflokkunum þrátt fyrir óvænta og óvenjulega örðugleika, svo sem aflabrest, markaðstöp, illt tíðarfar til lands og sjávar og síðast en ekki sízt mjög óhagstætt verzlunarárferði, tekizt að halda framleiðslustarfsemi þjóðarinnar í horfinu. Jafnframt hafa þessar ráðstafanir aukið traust Íslands út á við og með því gert þjóðinni fram að þessu kleift að afla fjár til stórframkvæmda þeirra, sem nú eru á döfinni fyrir atbeina ríkisstj., virkjunar Sogsins, Laxár og byggingar áburðarverksmiðjunnar. Má stjórnin þess vegna vel una hag sínum og hlutskipti og getur ótrauð gengið undir dóm almennings og almennar kosningar hvenær sem er.
Vegna ummæla stjórnarandstæðinga hér í kvöld kemst ég ekki hjá því að beina nokkurri gagnrýni að óviturlegum aðdróttunum stjórnarandstöðunnar.
Íslendingar eiga nú sem oft áður við margt að stríða og kannske fremur nú, en oft fyrr. Okkur skortir mikið fé, a.m.k. 70 millj. kr., til að ljúka hinum miklu framkvæmdum, sem ríkisstj. hefur beitt sér fyrir. Til sementsverksmiðjunnar mun enn fremur þurfa um 80 millj. Þá er og nauðsynlegt, að takast megi að útvega a.m.k. 40 millj. kr., svo að auðið verði að ráðast í bráðnauðsynlegar byggingar smáíbúða og til landbúnaðarframkvæmda. Og þá eru ótalin mörg alveg nauðsynleg lán. Það standa vonir til, að sumt af þessu takist, en ekki allt, og þó ekkert nema unnið verði af alhug og fylgt á eftir svo sem auðið er. Þá er það líka áhyggjuefni, hversu ræðst fram úr afurðasölunni. Saltfisksalan hefur að vísu gengið vonum betur, en þó grúfir óvissa yfir framtíðinni. Þunglega horfir um sölu hraðfrysts fisks og beinlínis voveiflega um ísfiskinn. Við þetta bætist, að jafnvel þótt gert sé ráð fyrir, að úr sölutregðunni greiðist, er hagur útvegsins hallur, eins og allir vita. Er þess skemmst að minnast, að sumarið 1951 fóru fram skuldaskil bátaflotans. Þá kom í ljós, að nær enginn bátaútvegsmanna átti fyrir skuldum. Siðan hafa enn riðið yfir tvö síldarleysisár og rýr afli á þorskveiðum. Meiri hluti togaranna er einnig rekinn með halla og getur ekki staðið í skilum við lánardrottna sína. Það er þess vegna sannmæli, að þrátt fyrir gengisfellinguna og bátagjaldeyrisfríðindin berst sjávarútvegurinn í bökkum. Gegn þessum vanda ber þjóðinni einhuga að snúast.
En hver eru svo úrræðin, sem stjórnarandstaðan bendir á til þess að sigrast á vandanum? Þau eru tvö. Hið fyrra er, að ríkisvaldíð brjóti niður þá skjólgarða, sem útvegsmenn hafa reist sér í því skyni að tryggja sér sem hæst verðlag á framleiðsluvöru sinni. Alþfl. ber fram frv. um að svipta útvegsmenn því frelsi, sem sölusamtök þeirra eru reist á, og setja í þess stað allsherjar einræði og einokun. Kommúnistar vilja svipta útveginn frelsi undir yfirskini aukins frelsis. Þeir vilja veita sérhverjum þeim, sem sér, sér stundarhag í því að rjúfa samtök útvegsmanna, sem fyllst frelsi til þess. Skilja kommúnistar þó mætavel, að það frelsi leiðir beint í ánauð og ófrelsi versnandi afkomu og aukinna skulda útvegsins, en tryggir að vísu þeim erlendu þjóðum, sem af okkur kaupa, og þá ekki sízt þjóðunum austan járntjaldsins, lægra verðlag á íslenzkum afurðum og íslenzku kommúnistadeildinni gróða af þeim viðskiptum. Hitt bjargráðið, sem stjórnarandstæðingar benda útveginum á, er almenn grunnkaupshækkun um land allt, sem nemur svona 30–35%, eins og ég hef nú tekið fram í kvöld. Á það mál getur ríkisstj. lítil áhrif haft, þótt sjálfsagt sé að athuga öll skynsamleg úrræði, sem á kynni að verða bent til þess að bæta kjör almennings í landinu og þá ekki sízt þeirra, sem erfiðast eiga.
Ef stjórnarandstaðan ætlast til þess, að því sé trúað, að barizt sé fyrir bættum lífskjörum launþeganna, þá kemst hún ekki undan réttmætu ámæli fyrir að halda óvenjulega óskynsamlega á málum, enda mun almennt álitið í landinn, að málsmeðferð öll sanni, að hér sé fyrst og fremst um pólitíska atlögu á hendur ríkisstj. að ræða.
Umboðsmenn launþeganna virðast í orði og verki viðurkenna, að atvinnurekendur geti ekki bætt á sig nýjum útgjöldum. Til þess benda hin nýju vinnubrögð, sem nú eru tekin upp. Í stað venjulegra samninga við atvinnurekendur er nú kröfunum stefnt að ríkissjóði. Atvinnurekendur una að sjálfsögðu ágætlega þessari viðurkenningu fulltrúa launþeganna á getuleysi atvinnurekendanna og telja efalaust hyggilegt að athuga með þeim, hvað ríkissjóður geti lagt af mörkum. Síðan bera fulltrúar launþega fram við ríkisstj. margar og mismunandi óskir. Þetta gera þeir fjórum dögum áður, en allsherjarverkfall á að hefjast. Það kemur í ljós, að þeir hafa mjög óljósar hugmyndir um málið. Þeir virðast aðeins vita, að þeir ætla að gera kröfur á hendur ríkissjóði, þessum sjóði, sem þó að öllu leyti er varið í þágu almennings í landinu, en þeir gera sér mjög takmarkaða grein fyrir hinu, hvort það eru launþegar eða atvinnurekendur, sem hagnast á því, að kröfurnar nái fram að ganga. Ríkisstj. bregzt þó vel við og býður samstarf um rannsókn málsins, en mælist til þess, að böli verkfallsins sé bægt frá dyrum verkalýðsins og þjóðarinnar allrar meðan rannsókn fer fram. Handhafar verkfallsréttarins taka þetta ekki í mál, heldur er verkfall, sem þeir sjálfir segja að kosti þjóðarbúið 2–3 millj. kr. á dag, fært yfir þjóðina, en síðan er byrjað að rannsaka, hvort eitthvað sé nú hægt að veita úr ríkissjóðnum, og sé svo, hvort nokkuð sé þá á því að græða. Það bætir svo ekki málstaðinn að ætla að reyna að koma sökinni á ríkisstj. fyrir að samþ. ekki fyrir fram kröfur, sem enginn veit, hverjum eru til hagsbóta né heldur hversu mikið kosta þann sjóð, sem stendur undir þörfum almennings í landinu. Hyggileg vinnubrögð verða þetta tæplega talin. Ríkisstj. er nú að leitast við að láta afla ýmissa upplýsinga til leiðbeiningar fyrir þá, sem kröfurnar eru að gera, svo að þeir geti gert sjálfum sér grein fyrir, hvort þeir nú að athuguðu máli telja réttara að fylgja kröfunum fram eða falla gersamlega frá þeim.
Víkur nú aftur sögunni að atvinnurekendum. Enginn dregur í efa, að launafólk þurfi síns með og þótt meira væri. Það sjónarmið skiptir miklu máli, en getur því miður ekki skorið úr. Það, sem úr sker, er, að sé það óvefengjanleg staðreynd, að í rekstri aðalframleiðslutækja þjóðarinnar, báta- og togaraflotans, sé að minnsta kosti ekki um gróða að ræða, þá eykur það ekki hag launþeganna að leggja á framleiðsluna ný útgjöld. En blandist mönnum hugur um gjaldgetu útvegsins, er auðvelt að ganga úr skugga um það, hvað satt er í þeim efnum. Það er ekki hægt að víkja sér undan vandanum með því að benda á búmannshyggju og barlóm atvinnurekenda, sem aldrei þykjast neinu geta á sig bætt. Rekstur flestra togaranna er í höndum bæjarfélaga eða annarra opinberra aðila og reikningar þeirra eru opnir almenningi. Í rekstri bátanna er heldur ekkert hulið þeim, sem honum vilja kynnast. Um allt þetta hafa því handhafar verkfallsréttarins full gögn, sem þeim ber að leggja fyrir almenning, ef þau sanna eða jafnvei aðeins leiða líkur að því, að bætandi sé á útgjöld atvinnurekenda, án þess að böl hljótist af fyrir verkalýðinn.
Ef til vill skýrir það málið fyrir hv. hlustendum, að minnt sé á það, að með lagasetningu frá tímum utanþingsstjórnarinnar er svo um hnúta búið, að bændur og launþegar fylgist að með kauphækkun. Fái launþegar hækkun, hækka afurðir bænda að sama skapi í verði, þótt bóndinn að sönnu fái sína hækkun aðeins einu sinni á ári og eftir á. Þannig stafar hækkun landbúnaðarafurðanna núna í haust af þeim hækkunum, sem launþegar voru búnir að fá á undanförnum 12 mánuðum. Þessi dýrtíðarskrúfa verður ekki stöðvuð gegn vilja fjölmennustu stétta þjóðfélagsins. En varðandi útflutning framleiðslunnar, sem allar þessar hækkanir lenda á, er aðra sögu að segja, þá, að verðlag útflutningsvörunnar á erlendum markaði er að sjálfsögðu alveg hið sama, hvort sem kaupgjald á Íslandi er hærra eða lægra. Af þessu leiðir, að sé kaupgjald hærra, en afurðaverðið fær undir risið, þá hlýtur framleiðslan að dragast saman og atvinnuleysi að skapast. Þegar svo stendur á, eru kauphækkanir ekki kjarabætur, heldur tilræði við verkalýðinn.
Öllum þessum. staðreyndum er nauðsynlegt að menn geri sér glögga grein fyrir. Í ljósi þeirra liggur málið þannig fyrir: Það er almennt ætlað, að atvinnurekendur geti ekki bætt á sig útgjöldum. Samt sem áður eru bornar fram kröfur um stórfelldar kauphækkanir og kjarabætur. Af því leiðir, að sé til þess ætlazt, að atvinnurekendur verði við þeim óskum, er óhjákvæmilegt, að þeim verði veitt aðstoð til þess, og þá ris sú spurning, hvort það sé hægt og þá hvernig. Það er mögulegt að minnsta kosti að forminu til, að því er sjávarútveginn snertir, að veita þá aðstoð með nýrri gengislækkun. Vilja menn það? Það væri mögulegt með auknum bátagjaldeyri, einnig til handa togurunum. Vilja menn það? Það væri mögulegt með því að leggja stórfellda nýja skatta á þjóðina, sem ríkissjóður síðan notaði til þess að styrkja atvinnurekendur til að hækka kaupgjaldið. Vilja menn það? Vilji menn ekkert af þessu, þá verða menn að segja til um, hvaðan atvinnurekendum á að koma gjaldþol til að bæta á sig nýjum útgjöldum. Geri menn það ekki, og leggi menn nýjar kvaðir á atvinnurekstur, sem þegar er í kröggum, án þess að bæta hag hans á öðrum sviðum, er verið að leggja þann atvinnuveg í rúst og með því lífsafkomu fólksins. Sá, sem ekki getur svarað skýrt og afdráttarlaust, með hverjum hætti á að gera atvinnurekendum landsins kleift að rísa undir nýjum gjöldum, en treystir sér þó ekki til að halda því fram, að bæta megi útgjöldum á atvinnurekendur, hann viðurkennir, að enda þótt launþegar fengju öllum kröfum sínum framgengt, eru þeir ekki betur settir, heldur verr.
En hvar er þá komið málstað verkfallsins? Ég leiði hjá mér að spá um málalokin, en bið verkalýðinn að athuga þetta tvennt:
1) Ef atvinnurekendur þola ekki hærra kaupgjald, mun sérhver sýndarsigur snúast gegn verkalýðnum, og fær góður vilji ríkisstj. í þeim efnum engu áorkað.
2) Með yfirlýsingu, sem stjórnarandstæðingar hafa gefið hér í kvöld og þeir létu Alþýðusambandsþingið samþ. sem beinan lið í kaupgjaldsmálunum, þ.e.a.s. yfirlýsingu um það, að kauphækkanir og kjarabætur væru verkalýðnum gagnslausar, nema því aðeins að launþegar hétu því að kjósa engan stuðningsmann núverandi ríkisstj. á þing, hafa þeir viðurkennt, að kjarabætur séu aukaatriði, en pólitísk árás á ríkisstj. aðalatriðið.
Síðan hefur öll málsmeðferðin verið í samræmi við þetta. Fyrst á að heimta hærra kaup af þeim, sem enga útgjaldahækkun geta borið. Böl verkfallsins á svo að nota til þess að æsa verkalýðinn gegn ríkisstj. En reyni ríkisstj. að leysa deiluna og vinni það til sætta að brjóta vitandi vits lögmál efnahagslífsins, er ætlunin að telja verkalýðnum trú um, að þær afleiðingar, sem af þessu kunna að verða, stafi af illvilja ríkisstj. í garð launþega. Sjái menn ekki gegnum svo þunnan blekkingavef, þá eru þeir blindir og verður ekki bjargað. Sannleikurinn er sá, að kommúnistar eru ekki að vinna fyrir launþegana, heldur eru þeir með blekkingum að reyna að ginna launþega til fylgis við sig í baráttunni fyrir alheimskommúnisma.
Annars er það táknrænt fyrir þessa verkfallsbaráttu, að þeir, sem að verkfallinu standa, leggja megináherzlu á að telja þjóðinni trú um, að stjórnin hafi svíkið skyldu sína með því að taka ekki málið fyrir löngu í sínar hendur og tryggja lausn þess. Og þótt undarlegt megi virðast, þá sýnist svo sem ýmsir gíni við þessu, gíni við þessari fásinnu. En hvar í heiminum vita menn dæmi þess, þegar kaupdeila er í uppsiglingu, að ríkisstj. segi: Blessaðir verið þið ekki að rifast. Ríkissjóður borgar það, sem á milli ber? — Ef menn hugleiða, hvert slíkar aðgerðir ríkisvaldsins gagnvart kaupdeilum, sem á hverjum tíma eru í aðsigi, leiða, þá hljóta allir að skilja, að ríkisstj., sem þannig hegðar sér, gerir ekki skyldu sína, heldur þvert á móti hefur hún með því unnið sér til óhelgi með bjálfalegum og þjóðhættulegum aðgerðum. Löggjafinn — og þar með bæði Alþfl. og kommúnistar — hefur ákveðið, að ef aðilar geta ekki leyst kaupdeilur sínar, þá taki sáttasemjari ríkisins málið í sínar hendur. Hann hefur gert það nú eins og jafnan fyrr, en auk þess hefur ríkisstj. einmitt sérstaklega í þessu máli tekið vel á óskum verkfallsmanna strax og þeir sneru sér til hennar.
Það dettur auðvitað engum skynsömum manni í hug, að ríkisstj. óski ekki jafnvel öllum öðrum fremur, að deila þessi leysist fljótt og vel. En hér nær góður vilji skammt. Og hvaða ráð geta menn gefið ríkisstjórninni til lausnar á þessari þjóðhættulegu deilu, sem þá ekki fyrr en varir bitnar á verkalýðnum sjálfum? Vilja menn hugleiða þessa spurningu og svara henni, ef þeir geta? — Að auka kaupmátt launanna með því að lækka dýrtíðina, sagði hv. þm. Gylfi Þ. Gíslason. Það kemur í ljós sem fyrr, að menn tala meira um þetta mál en þeir hugsa, því að lækkun dýrtíðarinnar eykur sáralitið kaupmátt launanna, vegna þess að krónufjöldinn, sem menn fá í kaup, minnkar eða vex í hlutfalli við dýrtíðina og vísitöluna. Minnki dýrtíðin, fá menn færri krónur handa á milli, en að vísu stærri, og eitthvað hagnast þeir á því, þar sem kaupa þarf fleira en það, sem í vísitölunni felst. Þó fer mjög fjarri, að fólk með þessu fái einhverjar verulegar kjarabætur. En vilji menn þessa lausn deilunnar, þá er sjálfsagt, að hún sé athuguð tafarlaust og með velvilja. Verður þó enn að minna á, að ef sú leið er farin, er óumflýjanlegt að leggja á nýja skatta eða draga úr fríðindum, sem ríkissjóður miðlar almenningi, og mundi þá ekki margur heldur kjósa einhverja lækkun beinna skatta á þeim, sem erfiðast eiga með greiðslu þeirra? Eitthvað mætti ef til vill gera í þeim efnum, án þess að eftirköst hlytust af.
Sem dæmi þess, hversu erfitt er að lækka vísitöluna með greiðslum úr ríkissjóði, þá skal ég aðeins benda á, að krafa verkfallsmanna um að lækka söluskattinn og verðtollinn um 10% mundi kosta ríkissjóð 19 millj. kr., en aðeins lækka vísitöluna um eitt einasta stig, og yrði allur hinn óvinsæli söluskattur afnuminn, þá mundi ríkissjóður tapa 85 millj. kr., vísitalan ekki lækka nema um 4 stig, en launþegar nær ekkert hagnast, vegna þess að þeim krónum, sem þeir fá í kaup, fækkar með lækkaðri vísitölu. Allt er þetta því flóknara mál, en menn gera sér almennt grein fyrir. Og það er líklegra, að köld skynsemi og hugarró finni eitthvert viðhlítandi úrræði út úr þessum vanda, séu þau á annað borð til, en það hugarfar, sem grær í æsingu mikils verkfalls. En aðalatriðið er, að það er ekki hægt að skipta meiru en aflast, og velta því lífskjör þjóðarinnar alltaf langsamlega mest á aflamagni og verðiagi útflutningsvöru okkar. Hv. þm. Gylfi Þ. Gíslason sagði að vísu, að þetta væri fásinna. Aðalatriðið væri, að atvinnurekendur ættu að fá minna, en þeir fá nú. Þetta leyfir þessi hv. þm. sér að segja, þegar foringi hans, hv. þm. Hannibal Valdimarsson, var að enda við að lýsa yfir, að atvinnurekendur væru á heljarþröm, og Gylfi Þ. Gíslason verður að temja sér að virða orð síns foringja. Það er góð regla.
Ég hef nú gerzt nokkuð fjölorður um það, sem allir eiga að vita, þ.e.a.s., að nær allur atvinnurekstur landsmanna berst í bökkum og að sala útflutningsafurðanna er ýmist ótrygg, treg eða með öllu stöðvuð. Allt hvetur þetta til varfærni í málefnum framleiðslunnar, en auk þess hafa nú þeir atburðir gerzt, sem einstakir eru í sögu Íslendinga um langt árabil, þegar erlent vald reynir að svelta þjóðina til hlýðni. Eru hér að verki menn, sem um langt árabil hafa setið að matborði Íslendinga og satt sig vel. Við höfum margt gott gert þessum mönnum, en aldrei illt. Með því að hætta lífi okkar sjálfra höfum við oft bjargað lífi brezkra sjómanna, en nú, þegar við verjum lif okkar og afkomu og búum jafnframt í haginn fyrir brezku útgerðina með því að hagnýta okkur lögmætan og raunar tildæmdan rétt til að forða gereyðingu fiskimiðanna, gjalda brezkir útgerðarmenn og yfirmenn á skipum þeirra veittar velgerðir og velmegun með því að loka brezkum fiskimörkuðum fyrir okkur. Ég vil forðast öll stóryrði, en íslenzka þjóðin fordæmir og fyrirlítur þessar kúgunartilraunir brezkra þegna gegn íslenzkum hagsmunum og fellir sig því illa við afskipti eða afskiptaleysi brezkra stjórnarvalda af þeim ósóma. En fyrirlitlegastir erum við Íslendingar þó sjálfir, ef við svörum hverjum heiftúðugum árásum erlends valds með innbyrðis deilum eða jafnvel allsherjarverkfalli. Allir aðrir slíðra þó sverðin, þegar óvinurinn ræðst inn í land þeirra, en við ætlum að svara þessari erlendu ofsókn því einu, að við megum ekki vera að því að sinna henni, að okkur gefist ekki tími til að undirbúa sóknina á hendur árásarmönnunum, vegna þess að við megum ekki vera að því að hugsa um frumdrætti þeirrar myndar, sem við eigum að sýna heiminum af þessu gerræði, vegna þess að við séum önnum kafnir við að murka lifið hver úr öðrum.
Nú fremur, en nokkru sinni fyrr ber Íslendingum heilög skylda til að efla samhug og standa allir sem einn gegn erlendu valdi. Við erum að vísu fáir og veikburða, en ef við fellum niður hjaðningavígin og reynum í bróðerni að deila með sanngirni og skynsemi því, sem aflað er, þá eigum við þó styrk gáfaðrar menningarþjóðar, sem á grundvelli laga og réttar berst fyrir lífi sínu og tilveru. Allsherjarverkfall er að sönnu vopn í þeirri baráttu, en það er ekki vopn í okkar hendur, heldur vopn, sem við leggjum í hendur andstæðingum okkar, til þess að þeir fái betur unnið á okkur. Slíkt atferli er þjóðarsmán. Þess vegna ber okkur öllum að sýna skilning og velvilja og láta einskis ófreistað til að leysa þessa ógiftusamlegu deilu.
Ég á þess ekki kost að taka frekari þátt í þessum umr., þar eð ég er á förum til Parísar, þar sem ég mun sitja tvo fundi ýmissa ráðh. vestrænna landa, en þátttaka mín í þeim fundum var ákveðin og tilkynnt snemma í siðasta mánuði. Er aðalerindi mitt að vinna að málstað Íslands í landhelgismálinu. Veit ég ekki, hvort mér verður nokkuð ágengt, en ekki skortir mig viljann, og ég veit einnig, að einhuga góðhugur allrar íslenzku þjóðarinnar fylgir mér til leiðarenda.