09.12.1952
Sameinað þing: 23. fundur, 72. löggjafarþing.
Sjá dálk 583 í B-deild Alþingistíðinda. (696)

1. mál, fjárlög 1953

Viðskmrh. (Björn Ólafsson):

Herra forseti. Góðir hlustendur. Ég verð því miður að biðja menn að afsaka, að röddin er ekki í eins góðu lagi og skyldi, vegna þess að ég er mjög kvefaður.

Hv. 4. þm. Reykv., Haraldur Guðmundsson, las hér upp nokkrar tölur, sem áttu að sýna hina miklu hækkun milliliðagróðans, sem orðið hefur nú upp á síðkastið. Því miður virtist eitthvað hafa farið á milli mála hjá hv. þm., því að ég hef hér sömu útreikningana sem hann gerði að umræðuefni, og þeir sýna dálítið annað, þeir sýna til dæmis, að hluti álagningar í hveitiverði 1952 er 4.82% í staðinn fyrir 4.90% fyrir gengislækkunina og í stað 6.90% 1946, þegar allt var undir verðlagsákvæðum. — Sama er að segja um haframjöl. 1946 var heildsöluálagningin 6.90%. 1951 var hún 4.70%, en 1952 er hún 4.54%. — Svipað er með salernapappírinn, sem hv. þm. minntist á. Mér hefur ekki unnizt tími til að bera saman fleiri tölur, sem hv. þm. fór með úr þessum upplýsingum, en vafalaust eru þær með sama marki brenndar. Í þessum útreikningum er álagningin alls staðar hærri hlutfallslega 1946 en 1952, en 1946 voru allar vörur undir hámarksálagningu.

Ég ætla að byrja að svara hér einni fyrirspurn, sem gerð var í umr. í gær af hv. 3. þm. Reykv., Gylfa Þ. Gíslasyni. Var hann með ógeðfelldar dylgjur og mikla háreysti í umr. í gærkvöld út af skemmdum á fiski. Spurði hann, hvort satt væri, að sú óhæfa hafi verið framin að leyfa bátagjaldeyrisálag á fisk þennan. Hér er um að ræða fisk frá 1950, sem skemmdist af salti, en seldist ekki fyrr en á árunum 1951 og 1952. Bátaútvegsmenn urðu fyrir miklu tapi af þessu, og var þess vegna talið sanngjarnt, að þessi fiskur þeirra mætti koma að nokkru leyti undir bátagjaldeyrisskipulagið, þótt hann væri veiddur 1950. Hefði hann verið veiddur 1951, þurfti ekki um neitt leyfi að spyrja. Bátaálagið nam samtals 1.8 millj. kr. Fiskur, sem togararnir áttu og skemmdist af sömu orsökum, var ekki bættur með bátaálaginu. Hv. þm. hefur auðsjáanlega verið farinn að hlakka til að geta flett ofan af einhverju stórhneyksli, en það fæðist ekki alltaf stórt, þegar fjöllin taka jóðsótt.

Íslenzka þjóðin hefur um langt skeið drýgt tekjur sínar með því að hækka sífellt krónutal þeirra, jafnóðum og kaupmáttur krónunnar rýrnaði. Þessi búdrýgindi höfðu áhrif á allt fjárhagsog atvinnulíf í landinu frá 1942 til ársbyrjunar 1950 og breyttu stórlega öllu verðgildi nema einu. Það var verð erlends gjaldeyris. Þótt tekjurnar og verðmætið innanlands fimmfaldaðist í verði, gátu menn keypt með óbreyttu verði þann gjaldeyri, sem fékkst fyrir allar útflutningsafurðir landsins. Á þann hátt var útflutningsframleiðslan mergsogin, svo að hún gat ekki staðið á eigin fótum. Þjóðin, sem hafði fimmföld peningaráð, fékk að kaupa gjaldeyri hennar fyrir hálfvirði. Sú peningavelta, sem með þessu komst í gang, og það sálarástand, sem verðbólgan hleypti yfir þjóðina á þessum árum, færði allt efnahagskerfi hennar úr jafnvægi.

Í tíð þeirrar ríkisstj., sem sat að völdum frá 1947–49, var jafnvægisskorturinn svo áberandi og svo þjóðhættulegur, að leitazt var við um stund að láta allt fljóta með því að leggja 80–100 millj. kr. viðbótarskatta, beina og óbeina, á þjóðina. Þetta var í rauninni ekkert annað en það að taka aftur af þjóðinni það, sem verðbólgufreistarinn hafði fengið henni í hendur, eða réttara sagt, það, sem hún sjálf hafði skammtað sér í krónum umfram það, sem hennar eigin atvinnuvegir voru færir um að bera.

Þau 10 ár, sem þjóðin hefur verið að berjast við afleiðingar sívaxandi verðbólgu, má segja, að hvert einasta ár hafi fært henni stöðugt ný og vaxandi vandamál, sem öll voru sprottin af sömu rót, rót verðbólgunnar.

Í árslok 1949 var ástandið af þessum sökum orðið þannig, að hjól framleiðslunnar voru að stöðvast, þrátt fyrir allar mótvægisráðstafanir, sem gerðar höfðu verið á árinu 1947–49 með stöðvun kaupgjaldsvísitölunnar og með stórlega hækkuðum tollum og sköttum. Kvörn verðbólgunnar, sem þjóðin sjálf stritaðist við að snúa, malaði jafnóðum þær mótvægisráðstafanir, sem gegn henni voru gerðar. Þetta hættulega ástand framkallaði stjórnarskiptin 1949 og þær víðtæku ráðstafanir, sem gerðar voru af núverandi stjórnarflokkum fyrri hluta árs 1950. Stjórnarandstaðan, jafnaðarmenn og kommúnistar, lagðist af alefli gegn gengisbreyt. og öðrum ráðstöfunum, sem gerðar voru, þótt þeir hvorki fyrr né síðar kæmu með nokkrar till. um, hvernig reisa skyldi við fjárhags- og atvinnulífið, sem var að hrynja í rústir.

Aðeins róttækar aðgerðir gátu bjargað því sjúka efnahagsástandi, sem nú var orðið, en enginn gat gengið þess dulinn, að sú gengislækkun, sem talin var óhjákvæmileg til jafnvægis, hlaut að bera í skauti sér tímabundna aukningu dýrtíðarinnar. En færi allt eftir því, sem mannlegu viti var fært að spá fram í tímann, var sennilegt, að dýrtíðaraldan mundi stöðvast og verðbólguskrúfan hætta að hreyfast innan hæfilegs tíma.

Þetta fór þó nokkuð á annan veg og voru til þess tvær meginorsakir, sem ríkisvaldið réð ekki yfir. Önnur var sú, að stórkostleg verðhækkun varð erlendis á fjölmörgum nauðsynjavörum, sem stórhækkaði verðlagið hér innanlands. Hin orsökin var samtök verkafólks og launþega, sem knúðu fram nýjar grunnkaupshækkanir, sem aftur komu af stað kapphlaupinu milli verðlags og vinnulauna.

En þótt mörgum þætti gengislækkunin mikil og þungbær, kom bráðlega í ljós, að talsvert vantaði á, að hún væri nægileg til þess að gera rekstur bátaflotans arðberandi. Vegna bátanna hefði gengislækkunin líklega þurft að vera 20–25% meiri. En um frekari gengislækkun var þó ekki að ræða að sinni. Var þess vegna horfið að því ráði að koma á bátagjaldeyrisskipulaginu, eins og kunnugt er. Ég hef ætíð litið á þetta skipulag sem neyðarráðstöfun, en taldi það þó betra en annað, sem til mála gat komið að svo stöddu.

Sú mynd, sem hér blasir við, er þessi: Þjóðin sjálf gerir meiri kröfur til útflutningsframleiðslunnar, en þessir atvinnuvegir fá risið undir. Þjóðin er því látin endurgreiða það, sem ofgreitt er, í gegnum hærra verð á innfluttum vörum. Slík hringrás kemur ætíð fram fyrr eða síðar í einni eða annarri mynd, þegar gjaldþoli atvinnuveganna er misboðið. Annars mundi atvinnureksturinn stöðvast. Þegar hinir innlendu kostnaðarliðir, kaupgjald, þjónusta og annar kostnaður við framleiðslu útflutningsafurðanna, eru orðnir of háir, leitar það leiðréttingar, aðallega á tvennan hátt, með því að auka tekjur framleiðslunnar í krónum með gengislækkun eða með því að taka af þjóðinni samsvarandi fjárhæð í tollum eða sköttum, sem svo eru látnir renna til baka í rekstrarsjóð framleiðslunnar.

Það er mjög athyglisvert, eins og minnzt var á í umr. hér í gærkvöld, að síðan 1946 hafa verzlunarkjörin farið stöðugt versnandi, þ.e.a.s., að verðiag útflutningsins hefur farið lækkandi borið saman við verðiag innflutningsins. Þjóðin hefur því orðið að greiða tiltölulega meira fyrir keyptar vörur, en hún hefur fengið fyrir útflutninginn. Hefur þetta að líkindum kreppt meira að efnahag landsmanna, en nokkuð annað.

Athugað hefur verið, að kaupmáttur útflutningsins, samanborið við verðlag innflutningsins, eða m.ö.o. verzlunarkjörin eru óhagstæð um sem svarar 316 millj. kr. á síðasta ári. Veldur hér miklu hin gífurlega verðhækkun, sem ég gat um áðan og varð á mörgum erlendum vörum af völdum Kóreustyrjaldarinnar. Hefur verið gizkað á, að sú verðhækkun hafi kostað þjóðina um 100 millj. kr. 1950 og 150 millj. kr. 1951, og er næsta furðulegt, að ekki skyldi fara allt um þverbak í gjaldeyrismálunum á þessu tímabili. Í viðbót við þetta kemur síldarleysið. Gjaldeyristekjur af síldarafurðum urðu um 80 millj. kr. lægri á þessu ári, en þær voru í fyrra. Það segir sína sögu.

Ég verð því miður að viðurkenna, að það, sem ég hef nú gert að umtalsefni, er þurrt og jafnvel torskilið öllum almenningi, en þetta eru staðreyndirnar, eins og þær hafa komið fram í dagsljósið. Menn verða að gera sér grein fyrir þessu til þess að skilja þá miklu erfiðleika, sem nú er við að fást í efnalegu og félagslegu tilliti. Það er erfitt og sjaldan sársaukalaust að snúast gegn erfiðleikum. Hitt er auðveldara í svip, að loka fyrir þeim augum og eyrum og fljóta undan straumi, en það hefur íslenzka þjóðin nú gert um nokkurt skeið. Þess vegna var ljóst, að engin ríkisstj. mundi kafna í vinsældum, sem tók að sér það hlutverk að stöðva verðbólguþróunina og bægja frá því giftuleysi, sem henni fylgir.

Núverandi ríkisstj. hefur verið sökuð um það af andstæðingum, að hún hafi ráðizt á lífskjör fólksins og dregið úr þeim. Hið sanna er það, að hún hefur leitazt við að tryggja lífskjörin. Kjör fólksins eru órjúfanlega bundin afkomu þess eigin atvinnuvega. Ef þeir eru heilbrigðir og lifandi, eru kjör fólksins góð. Stjórnin hefur með ýmsum ráðstöfunum, sem ekki hafa verið vinsælar í sumra augum, tryggt, að aðalatvinnuvegir þjóðarinnar geti starfað. Hitt er svo landsmanna sjálfra að gera sér grein fyrir, að gera ekki meiri kröfur til atvinnuvega sinna, en þeir fá undir risið.

Auk hinna beinu ráðstafana til að ná jafnvægi í efnahagsástandinu var það eitt af stefnuskráratriðum stjórnarinnar að bæta úr þeim sára vöruskorti, sem ríkti í landinn í mörgum greinum og sérstaklega var áberandi á tímabilinu 1948–50. Vegna vöruskortsins þreifst hér baktjaldamarkaður í stórum stíl, og margar vörur voru raunverulega ófáanlegar nema bak við tjöldin fyrir margfalt verð. Verðlagsákvæði, sem áttu að tryggja rétt verð og lága álagningu, voru aðeins marklaus bókstafur, þegar vöruþurrðin var annars vegar. Undir slíkum kringumstæðum voru þau neytendunum engin trygging fyrir réttu verði.

Áhrifin af hinum aukna innflutningi fóru fljótt að koma í ljós. Baktjaldamarkaðurinn hvarf úr sögunni, biðraðirnar við búðirnar hurfu, og almenningur gat fengið nauðsynleg efni til þess að vinna úr heima hjá sér, sem áður höfðu verið ófáanleg.

Alþfl. hefur í ræðu og riti ráðizt hatrammlega á stjórnina og þá sérstaklega á mig fyrir þessa stjórnarstefnu. Menn geta notað ýmislegt fyrir árásarefni á andstæðinga sína, en furðulegt mætti það vera, ef þjóðin kysi heldur vöruþurrð og baktjaldamarkað, sem einkenndi stjórnartíð Alþfl., í stað vöruframboðs og vöruvals, sem skapar samkeppni í sölunni og gerir kaupandann óháðan um val sitt á vörunum. Með frílistunum, sem útgefnir voru 1950 og 1951, og með bátalistanum var með nokkrum skilyrðum raunverulega gefinn frjáls innflutningur á 3/5 af öllum innflutningi til landsins. Þótt vissir erfiðleikar hafi öðru hverju gert vart við sig vegna gjaldeyrisskorts, nú síðustu mánuðina vegna síldarbrestsins í sumar, hefur verzlunarástandið gerbreytzt til batnaðar undanfarin þrjú missiri.

Ég ætla þá að ræða nokkuð um verðlagið, sem sætt hefur harðri gagnrýni hjá talsmönnum Alþfl. innan þings og utan. Í frjálsu verðlagi hlýtur álagning og verð að vera nokkuð mismunandi, en almenningur hefur með nokkurri aðgætni tækifæri til að kaupa þar, sem álagningin er lægst eða verðið hagkvæmast. Í frjálsu verðiagi myndast óhjákvæmilega samkeppni og sterk viðleitni að ná hagstæðum innkaupum. Kaupmönnum ber saman um það nú, að miklu erfiðara sé að velja og selja vörur nú, en var á haftatímunum vegna þeirrar samkeppni, sem myndazt hefur. Þegar verðlagseftirlitið var í algleymingi og stöðugt var kreppt harðar að verzluninni með óeðlilegum niðurskurði á álagningunni, var það á allra manna vitorði, að það var orðið beinlínis hagsmunamál fyrir verzlunina að kaupa vörurnar á sem hæstu verði. Verzluninni var tryggð hámarksálagning, hversu dýrar sem vörurnar voru, og vegna vöruþurrðar seldust þær jafnóðum. Er nú hægt að hugsa sér öllu hlálegra ástand, en þetta, að hámarksákvæðin bókstaflega skapa verzlunarástand, sem er öfugt við það, sem heilbrigð verzlun á að vera, og hækka í stað þess að lækka vöruverð í fjölda greinum?

Engar skýrslur eru til um það, hversu mikið þetta öfugstreymi kostaði þjóðfélagið, þegar ríkisstj. Alþfl. ætlaði að sigrast á svarta markaðinum 1947–49 með því að skera álagningu verzlunarinnar inn í kviku, svo að hún stóð ekki undir dreifingarkostnaði. Þessar óviturlegu ráðstafanir leiddu aðeins til þess, að svarti markaðurinn blómstraði, því að vörurnar leituðu á þann markað, sem ekkert verðlagseftirlit náði yfir.

Þegar verðlagið var gefið frjálst, fór strax að bera á því, sem ekki hafði sézt hér í 10 ár, að auglýstar voru útsölur og sérstakar verðlækkanir á vörum. Þetta hafði ekki komið fyrir allan tímann, sem verðlag í landinu var bundið verðlagsákvæðum. Hvers vegna? Vegna þess, að kippt hafði verið burt skjólgarði hámarksákvæðanna, sem allir notuðu sér til fulls, en vöruþurrðinni, sem skapaði svarta markaðinn, hafði verið útrýmt. Nægilegt vöruframboð og frjálst verðiag tryggir betur hagsmuni neytenda en bönn og binding, sem valda öfugþróun, er sniðgengur boð og reglur.

Því er haldið fram af andstæðingum ríkisstj., sem reynt hafa að gera sér verðlagsmálin að pólitísku vopni, að verðlagið hafi hækkað óhóflega, síðan verðlagsákvæðin voru að miklu leyti numin í burtu. Þeir menn, sem slíkt mæla, hafa þó viðurkennt opinberlega, að álagningin, eins og hún hafði að síðustu verið skorin niður, var orðin allt of lág, svo lág, að ógerningur var að annast vörudreifingu með slíkri álagningu. Þetta er af öllum viðurkennt og því næsta óheiðarlegt að miða útreikninga við þessa álagningu, þegar um málið er rætt. Krafan um hærri álagningu kom ekki aðeins frá kaupmönnum eða kaupmannaverzlunum, heldur einnig frá flestum kaupfélögum landsins, þ. á m. frá tveimur þeim stærstu, sem vitanlegt er að hafa óvenjumikla veltu og selja vöruna yfirleitt með lágri álagningu og hóflegu verði.

Til marks um það, hversu gífurlega álagningin hefur verið skorin niður á árunum 1947–50 frá þeim ákvæðum, sem í gildi höfðu verið frá byrjun stríðsins og til 5. maí 1947, má geta þess, að álagning á matvörur hafði verið lækkuð í heildsölu um 47%, í smásölu um 38%, á vefnaðarvörur í heildsölu um 45% og í smásölu um 49% og á búsáhöld í heildsölu 50% og í smásölu 45%, svo að nokkuð sé nefnt.

Það er næsta lærdómsríkt í öllu því moldviðri, sem þyrlað er upp um álagningu á vörur, að fram til 5. maí 1947 voru í gildi eftirfarandi hámarksákvæði um álagningu: Matvörur í heildsölu 10%, í smásölu 30%; vefnaðarvörur í heildsölu 12%, í smásölu 45%, keypt beint; fatnaðarvörur í heildsölu 18%, í smásölu 50%, keypt beint frá útlöndum.

Svipuð hámarksákvæði voru í gildi allan tímann, sem viðskiptaráð starfaði, og var þá 3. þm. Reykv., Gylfi Þ. Gíslason, annar aðalmaðurinn við setningu þessara ákvæða. Sú álagning, sem hafði þótt sanngjörn í mörg ár, fram til vors 1947, var á þremur árum skorin niður um nærri helming, eins og ég skýrði frá áðan. Fyrir þá, sem dæma af sanngirni, er fortíðin oft óþægilegur förunautur.

Vegna árása AB-flokksins á verðlagsmálin og vegna misþyrmingar þeirra á staðreyndum, kemst ég ekki hjá að þreyta hlustendur litla stund með því að minnast á vöruverðið. Ég geri ráð fyrir því, að þeir, sem með mestum ofsa hafa látið í ljós vanþóknun sína á frjálsa verðlaginu og því, sem þeir kalla okur í verzluninni, muni viðurkenna nær undantekningarlaust, að verð á vörum hjá tveimur stærstu kaupfélögum landsins muni vera heilbrigt og sanngjarnt. Ég ætla því að gera litinn samanburð í Reykjavík og á Akureyri. Athugað var um síðustu mánaðamót verðlag á helztu nauðsynjum í 50 matvöruverzlunum í Rvík, þ. á m. hjá kaupfélaginu. Allar verzlanirnar höfðu sama verð á 15 tegundum nauðsynja, svo sem kaffi, kókó, palmin, osti, eggjum, blautsápu, þvottadufti, smjörlíki o.fl. Ég ætla að lesa hérna nokkurn samanburð á öðrum tegundum:

Molasykur seldi kaupfélagið fyrir kr. 4.90, allir kaupmenn fyrir sama verð. Hveiti seldi kaupfélagið fyrir kr. 3.20, nokkrir kaupmenn 3.20, flestir 3.25. Hrísmjöl seldi kaupfélagið á kr. 5.70, 28 kaupmenn seldu það á kr. 4.10–5.00, aðrir frá 5.25 upp í 5.95. Rúsínur seldi kaupfélagið á 11.80, 22 kaupmenn seldu þær á 10.40–11.50, aðrir frá 11.70–13.00. Sveskjur seldi kaupfélagið á 10.50, 11 kaupmenn á 9.50–9.80, aðrir á 10.00–11.00.

Ég skal ekki þreyta hlustendur með frekari upplestri, en á Akureyri seldi kaupfélagið rúgmjöl á 3.25, kaupmenn á 3.10–3.45. Strásykur seldi kaupfélagið á 4.35, kaupmenn á 4.20 og 4.50.

Af þessu verður séð, að kaupmannaverzlanir standa kaupfélögum hvergi að baki með lágt vöruverð, og ef verðið er sanngjarnt hjá kaupfélögunum í nefndum stöðum, þá er það ekki síður hjá kaupmannaverzlununum.

Til viðbótar þessum athugunum skal ég geta þess, að samkv. athugunum, sem gerðar voru um álagningu á mörgum sendingum af helztu matvörum innfluttum í febrúar til júní fyrir samtals 91/2 millj. kr. að kostnaðarverði, var meðalálagningin í heildsölu 5.3% og í smásölu 22.8%, en samkv. síðustu hámarksákvæðum var leyfð álagning 4.9-5.8% í heildsölu og 16.1–22.2% í smásölu. Staðfestir þetta, að álagning á matvörurnar er mjög lág og hafin yfir alla gagnrýni.

Eins og kunnugt er, voru gefin út brbl. í maímánuði um birtingu á nöfnum þeirra fyrirtækja, sem gera sig sek um óhóflega álagningu. Til þess að koma í veg fyrir misskilning vil ég taka fram, að viðskmrn. hefur fyrir nokkru gefið verðgæzlustjóra fyrirmæli um birtingu nafnanna og ákveður þar, hvar draga skuli línuna fyrir óhóflegri álagningu. Að öðru leyti hefur ráðuneytið ekkert með framkvæmd málsins að gera og annast verðgæzlan að öllu leyti birtinguna og ber ábyrgð á þeim útreikningum og athugunum, sem lagðar eru til grundvallar fyrir birtingu nafnanna.

Síðan innflutningurinn var gefinn frjáls að talsverðu leyti á árinu 1951, hefur verið rekinn harðdrægur áróður í því skyni að koma þeirri skoðun inn með þjóðinni, að ríkisstj. væri af ásettu ráði að leggja allan iðnaðinn í rúst. Þessum ógeðslega áróðri hefur sérstaklega verið haldið uppi af Alþfl., sem fordæmir frjálsa verzlun og hefur reynt að troða forustu sinni upp á iðnaðinn. Það er nú heldur fávisleg fullyrðing að halda því fram, að ríkisstj., hver sem hún er, sé vitandi vits að leggja einn aðalatvinnuveg landsins í rúst. Um það má hins vegar deila, hversu langt á að ganga í því að vernda allt, sem framleitt er í landinu, hversu frumstætt sem það er. Með því að vernda allt mætti ganga jafnvendilega í berhögg við hagsmuni almennings eins og að vernda ekkert.

Nokkur hluti iðnaðarins hefur átt í erfiðleikum, sérstaklega fyrst í stað eftir að innflutningurinn var gefinn frjáls. Fólki fækkaði nokkuð í ýmsum iðngreinum, einkum fatagerð og skógerð. Saumastofur, sem sprottið höfðu upp á svartamarkaðstímabilinu, hættu flestar að starfa, því að heimilin tóku við þeim iðnaði. Aftur á móti hefur nú á þessu ári verið bætt við fólki í flestum iðngreinum, og í sumum hefur aukningin verið mikil.

Viðfangsefnið í iðnaðinum er margþætt og vandasamt. Iðnaðarstarfsemin er á bernskuskeiði og varðar því mestu fyrir vöxt og viðgang, að iðnaðinum séu í byrjun veitt skynsamleg og heilbrigð skilyrði til þroska. Mun ríkisstj. í því efni ekki láta glepja sig glamur þeirra, sem ætla að gera sér pólitíska skó úr þeim stundarerfiðleikum, sem sumar greinar iðnaðarins hafa nú þurft að fást við. Ríkisstj. hefur skipað n. til að athuga þessi mál. Álit n. liggur nú fyrir, þótt ekki sé störfum hennar lokið að fullu. Athugun málsins mun nú leiða til þess, að gerðar verða ýmsar raunhæfar ráðstafanir til aðstoðar iðnaðinum. Ég hygg, að þær ráðstafanir muni reynast iðnaðinum raunhæfari aðstoð, en allur sá áróðursvaðall, sem stjórnarandstaðan hefur haft í frammi upp á síðkastið. Hinu má þó ekki gleyma, að ekki er hægt að uppfylla allar óskir þessa atvinnuvegar, frekar en annarra atvinnuvega, og verður að hafa fyrir leiðarstjörnu í því efni, hvað bezt þjónar alþjóðarheill.

Með því, sem ég nú hef sagt, hef ég reynt að skýra nokkur atriði í stjórnarframkvæmd síðustu þriggja ára, sem andstæðingarnir hafa deilt á, stundum hatrammlega, oftast af hlutdrægni, aldrei af sanngirni. Þess vegna á almenningur oft erfitt að skilja hismið frá kjarnanum, rétt frá röngu. Eins og ég gat um í upphafi máls míns, hefur mátt rekja erfiðleika þjóðarinnar síðari árin að einni og sömu rót, rót verðbólgunnar. Og nú stendur þjóðin frammi fyrir þessum erfiðleikum í ægilegri mynd, en nokkru sinni fyrr. Í átökunum til að halda þeim kjörum, sem verðbólgan hefur skert, hefur svo að segja allur atvinnurekstur í landinu stöðvazt. Ef til vill er þjóðin nú að komast á leiðarenda í þessu kapphlaupi, því að allir eru nú jafnráðþrota, hvernig halda megi því áfram á sömu braut án þess að fá steina fyrir brauð. í þessum átökum tapa allir, fátækir og ríkir, þjóðin og einstaklingar, enginn getur borið sigur af hólmi, meðan við eyðum stórkostlegum raunhæfum verðmætum vegna deilu um verðmæti, sem ekki eru raunhæf.