09.12.1952
Sameinað þing: 23. fundur, 72. löggjafarþing.
Sjá dálk 598 í B-deild Alþingistíðinda. (702)

1. mál, fjárlög 1953

Hannibal Valdimarsson:

Herra forseti. Góðir hlustendur. Eins og þið heyrðuð í gærkvöld, komu fjórir ráðh. í halarófu hérna fram fyrir hljóðnemann. Ég gat ekki að því gert, að þá datt mér í hug þjóðsagan um Einbjörn, Tvíbjörn, Þríbjörn og Fjórbjörn, og þetta datt mér í hug vegna þess, að allir tilburðir hæstv. ráðh. voru á þá lund, að það var auðséð, að þeir töldu sig vera í reiptogi, — reiptogi við alþýðu landsins, í reiptogi við verkalýðssamtökin, og þeir hugðust að draga verkalýðssamtökin upp, en þó að knáir menn séu í þessari röð ráðh. í hópi ríkisstj., þá er það alveg víst, að það verða ekki þeir, sem ganga með sigur af hólmi úr því reiptogi. Spottinn, sem þeir halda i, er sama eðlis eins og í þjóðsögunni; það er rófa, — það er íhaldsrófan, sem þeir toguðu í, og það fer á sama hátt eins og í þjóðsögunni: íhaldsrófan slitnar og öll ráðherrahersingin, svo virðuleg sem hún er, dettur á rassinn. Það er alveg áreiðanlegt, svona fer þetta.

Ég er alveg undrandi á ásökunum hæstv. forsrh. í garð Alþýðusambands Íslands, sem hann þó sagði að hann hefði oft haft góða samvinnu við. Nú sagði þessi virðulegi forsrh., að Alþýðusamband Íslands hefði núna, þegar deilan fór í hönd, siglt undir fölsku flaggi. Þetta er mjög ómaklega sagt í garð Alþýðusambands Íslands.

Þá sagði þessi virðulegi forsrh., að samninganefndin hefði stefnt beint til verkfalls og hefði ekkert viljað annað. Þetta sýnir algert þekkingarleysi hæstv. ráðh. á verkfallsmálum, eins og ég vék einmitt að í gær í öðru sambandi. Það eru verkalýðsfélögin, sem ákveða verkföll með 7 daga fyrirvara samkvæmt landslögum, og það gera engir aðrir. N. gerði það ekki og A.S.Í. gerði það ekki. Við höfum að engu öðru stefnt í samningan. heldur en að ná samningum fyrir hönd verkalýðsfélaganna, ef þess er kostur, og að því verður stefnt, þar til yfir lýkur. Og það er engin ástæða fyrir forsrh. landsins að hneykslast á því starfi. Það er starf í þjónustu þjóðarinnar.

Hæstv. forsrh. lét sér þau orð um munn fara, að glæfralegri og ábyrgðarlausari verkalýðspólitík hefði aldrei verið rekin heldur en sú, sem verkalýðsfélögin á Íslandi rækju nú. Þetta eru gífuryrði í reiði sögð. Og ég er alveg sannfærður um það, að hæstv. forsrh. iðrast þessara orða, kannske nú þegar. Hér á landi hefur verkalýðshreyfingin óneitanlega sýnt mikla þolinmæði og mikið umburðarlyndi, þangað til svo var komið, að fólkið, sem að framleiðslustörfunum vinnur, gat ekki lengur dregið fram lífið, og þá greip það til þess réttar síns að ákveða verðlag vinnunnar við samningaborð við gagnaðila sinn, vinnukaupendurna, en setti jafnframt sinn Ófeigshnefa í borðið og lýsti yfir verkfalli, og það er lögleg athöfn í þessu landi. Þetta, sem verkalýðsfélögin hafa gert, er svar við því, þegar verðlag á vörum og varningi hefur verið ákveðið einhliða út yfir öll hófleg takmörk, enda viðurkennt af öllum sanngjörnum mönnum, að þá ættu verkalýðssamtökin að ákveða verðið á vinnunni sem samningsaðili við gagnaðilann. Það er ekki ósanngjarnlega að farið.

Árum saman hefur það verið sagt við verkalýðssamtökin í blöðum íhaldsins: Þið eigið ekki að vera að hugsa sífellt um hækkandi kaup í krónutölu. Þið eigið að hugsa um það að tryggja kaupmátt launanna. — Og hvað verður svarið nú, þegar verkalýðsfélögin fara inn á þessa braut? Þá stendur ráðh. á bak við ráðh. og rembist við að eyðileggja þessa leið, líkir henni við kommúnisma og hvað annað, sem þeir hafa verst til þess að líkja henni við. Þá stendur m.a. Eysteinn Jónsson, hæstv. fjmrh., fyrir svörum ríkisstj. og segir: Það er ekki hægt að lækka verðlag í landinu. Það er ekki hægt að lækka tolla og skatta, og okkur þótti það bölvað tiltæki af norsku ríkisstj. að hafa fellt niður sykurtoll og kaffitoll og hafa lækkað verð á ýmsum nauðsynjavörum. Sú leið var ekki heldur fær á Íslandi. Ekki hægt að draga úr aukavinnu opinberra starfsmanna. Ekki hægt að lækka verðtoll eða söluskatt. Ekki hægt að hafa lægri fjárlög. Það var nú alveg ómögulegt. Ekki hægt, — ekki hægt, í svona 20–30 varíasjónum. Í mesta lagi hægt að spara svona 5 millj. kr. á fjárl., sagði hæstv. ráðh. — En þar er hann í stríði við meiri hl. fjvn., skipaðan flokksmönnum hans og íhaldsmönnunum. Þeir sögðu, að það væri hægt að fella niður 7–8 millj. kr. póst í aukavinnu hjá starfsfólki ríkis og ríkisstofnana. Þeir bentu á, að það væri losaralegt aðhald, sem ríkisstofnanirnar hefðu af hæstv. ríkisstj., og að það væri hægðarleikur að spara þar mannahald og laun. Þeir bentu á, að það væri hægt að fella niður ýmislegt í fjárl., sem hæstv. ráðh. hefur ekki getað komið auga á. Og ég fullyrði enn og ég get sannað það, að það er hægt að hækka tekjubálk fjárl. um 20 millj. a.m.k., án þess að sú áætlun verði sér til skammar, og það skal ég standa á að verði hér að ári liðnu, þegar reynslan hefur sannað mína fullyrðingu. Og það er hægt að skera niður, ef nokkur vilji er til þess, um 40–50 millj. af gjaldabálkinum, og þannig getur hæstv. ríkisstj. haft um 60–70 millj. kr. til ráðstöfunar til þess að ráða niðurlögum dýrtíðar og hjálpa til þess að leysa þessa alvarlegu deilu.

En hæstv. fjmrh. fór síðan, eftir að hann var búinn að segja: Ekki hægt, — ekki hægt, — að berja lóminn yfir því, að stjórnarandstaðan væri afleit, hún væri svo ofan á allt annað að heimta sjúkrahús, heimta skóla, heimta aukin fjárframlög til atvinnuveganna, og þetta fannst honum allt saman ljóta tiltækið. En sannleikurinn er bara sá, að það er ekki gert meira að þessu af stjórnarandstöðunni á þessu þingi a.m.k. heldur en af stjórnarflokkunum, og sérstaklega af íhaldsfl., sem vill nú skreyta sig með frjálslyndisfjöðrum og framfara fyrir kosningar, eins og íhaldið hefur alltaf gert í sinni dæmalausu hræsni.

Ólafur Thors tók líka þátt í reiptoginu og gaf kost á gengislækkun og víðtækari bátagjaldeyri, ef verkalýðurinn vogaði sér að knýja fram hærra kaup, og svo gaf hann auðvitað verkalýðnum heilræði, elns og hann hefur oft gert áður. Verkamenn eiga ekki að vera að gera kröfur um kaup, meðan Bretar sækja á og brjóta niður landhelgina hjá okkur, sagði hann m.a. Og vel á minnzt: landhelgina. Hver er afstaða íslenzkrar alþýðu til landhelgismálsins? Ég veit ekki annað, en að það hafi verið fyrsta samþykkt, sem Alþýðusambandsþingið síðasta gerði, að lýsa yfir fullum stuðningi sínum við ríkisstj. Íslands í landhelgismálinu. Og þegar verkfallið var hafið, komu hér 2–3 varðskip til hafnar með bilanir og þurftu að fá viðgerðir. Það voru verkfallsmennirnir, sem voru þá látnir víkja frá meginreglu verkfallsins, framkvæma viðgerðir á skipunum og gerðu það að verkum, að það var hægt að halda uppi landhelgisgæzlu við íslenzkar strendur. Svo er Morgunblaðið, þetta fina málgagn stjórnarinnar, látið ljúga því upp á verkfallsmenn, að þeir ætli að brjóta niður landhelgina, svo að Bretar geti stolið úr henni eftir vild. Þetta er að snúa málinu algerlega við. Ég vona, að það verði haldið fast á málstað Íslands í landhelgismálinu af hæstv. ríkisstj. og að hæstv. ríkisstj. túlki málið þannig, að þetta sé eingöngu skref í áttina í landhelgismáli okkar. Og ég vil vona, að hæstv. atvmrh. í siglingu sinni geri nú engan langvarandi samning um það við Breta, að 4 mílna landhelgin sé endanlegt mark hjá okkur.

Bjarni Benediktsson, hæstv. dómsmrh., sagði, að menn yrðu að vinna í sveita síns andlitis. Það er engin hætta á því, að vinnandi stéttir landsins hafi gleymt því, og ég vil bara vona, að hæstv. ráðh. svitni ekki minna undir þeirri byrði, sem þeir ættu að bera, eins illa og þeir hafa stjórnað málefnum þessa lands og þessarar þjóðar. Það væri fyllilega ástæða til þess, að þeir fyrir það starf sitt, eins illa og það hefur tekizt, væru reglulega sveittir.

Ég hirði að jafnaði ekki mikið um það að verja sjálfan mig fyrir aðkasti og skömmum, en í þessu verkfallsmáli verð ég þó að víkja út af þessari reglu og svara hér tveimur eða þremur atriðum.

Það hefur verið sagt Reykvíkingum núna að undanförnu, að verkfallsmennirnir ætli sér að stöðva mjólkurflutninga til barna og sjúklinga. Þetta mál er þannig vaxið, að á fyrsta degi verkfallsins leitaði borgarlæknirinn til samninganefndar verkalýðsfélaganna og óskaði eftir því, að hún féllist á till. lækna í bænum um, að nálægt 12 þús. lítrar mjólkur fengjust í bæinn daglega handa börnum, sjúku fólki, gamalmennum og barnshafandi konum. Við þessari ósk varð samninganefndin algerlega, heimilaði allt að 12 þús. litra mjólkur á dag í borgina í þessu skyni. En hví fæst ekki þessi mjólk? Nú er mjólkurskammturinn kominn ofan í 5 þús. lítra. Af hverju? Af því að ýmsir framleiðendur mjólkurinnar hafa fallið fyrir þeirri freistni, að fólk héðan úr Rvík hefur hópazt til þeirra og boðið of fjár fyrir hvern mjólkurlítra og er þannig að ná í þessa mjólk handa sér og sínum, sem mjólkin var alls ekki ætluð, og þannig fæst hún ekki handa sjúku fólki og öldruðu. Það er ekki á valdi verkfallsstjórnarinnar að sjá um framkvæmd þessa verks. Það er stjórnarvaldanna í Reykjavík, og þau verða að sjá um, að þessi mjólk fari til sjúkra og gamalmenna og barna.

Þá var sagt eftir mér, að ég hefði hótað því, að Reykjavík skyldi verða myrkvuð. Þetta eru alger ósannindi. Ég sagði það, að verkfallsstj. hefði hingað til séð um, að haldið væri uppi landhelgi við Ísland. Við höfum og séð um það, að ekki væru lögð niður störf af verkfallsmönnum austur við Sog. Þar átti ég við eitt ákveðið tilfelli. Við sáum um það, að dælumenn við virkjunina við Sog legðu ekki niður starf, til þess að jarðgöngin fylltust ekki af vatni. Það á því ekkert skylt við að halda uppi störfum í Ljósafossstöðinni. Það eru þess vegna bein ósannindi bæði hjá Vísi og Morgunblaðinu, sem hafa viljað hræða Reykvíkinga til þess að trúa því, að þeir ættu nú að verða sviptir rafmagni og þannig möguleikum til þess að matreiða ofan í sig. Þessi ósannindi rek ég því hér með heim aftur til föðurhúsanna og vil nú vænta þess, að andstæðingar verkalýðsins og verkalýðssamtakanna reyni ekki að beita svona vopnaburði framvegis.

Málsvarar ríkisstj. hafa hvað eftir annað verið að reyna að andmæla hinum stórathyglisverðu upplýsingum hv. 3. landsk. þm., Gylfa Þ. Gíslasonar, hér í gærkvöld. Hann sýndi fram á það, að lægst launuðu stéttirnar hefðu dregizt aftur úr. Kaupmáttur tímakaups Dagsbrúnarmanns þyrfti að hækka um 19–20%, til þess að verkamaðurinn fengi fulla hlutdeild í þeirri aukningu, sem orðið hefur á þjóðartekjunum síðan 1939. Málsvarar ríkisstj. hafa sagt, að þetta sé villandi, vegna þess að ekki sé tekið tillit til þess, að atvinnuleysi hafi verið meira 1939 heldur en það sé nú. Í fyrsta lagi er þetta fráleitur hugsunarháttur, en aðalatriðið er þó það, að verkamaður, sem hefur fulla atvinnu nú, fær tiltölulega minna í sinn hlut af þjóðartekjunum heldur en verkamaður, sem hafði fulla atvinnu 1939. Ég spyr: Er það kannske skoðun ríkisstj., að minnkun atvinnuleysis eigi að þýða það, að verkamaðurinn eigi ekki rétt á, að kaupmáttur tímakaups hans vaxi í hlutfalli við aukningu þjóðarteknanna? Ef það er svo, að ríkisstj. meini þetta, þá er gott, að það komi í ljós. Í öðru lagi hefur atvinnuleysi nú aftur haldið innreið sína í landið. Það var horfið, en það kom aftur með núverandi ríkisstj. Athugun sýnir, að enginn munur er á þeirri breytingu, sem orðið hefur á raunverulegu tímakaupi og raunverulegum árstekjum síðan 1939. Árið 1939 voru verkamannstekjur yfir árið um 4.100 krónur. Árið 1951 munu verkamannstekjur hafa numið 33.800 krónum. Ef tekjurnar 1951 eru leiðréttar með tilliti til verðlagsbreytingarinnar, þá kemur í ljós, að þær eru raunverulega 31% hærri en 1939. En Gylfi sýndi fram á það í gær, að hækkun kaupmáttar tímakaupsins væri 30% til 1950. Hækkun þjóðarteknanna á íbúa er hins vegar 63%, en hækkun þess hluta þeirra, sem notaður er til neyzlu, er 48%, ekki 43% eins og hv. þm. V-Húnv. fullyrti hér áðan, og það er þess vegna ómótmælanlegt, að hlutur hinna lægst launuðu, er nú stórum lægri, en vera ætti, hvort sem heldur er miðað við tímakaup eða árstekjur. Nú skal ég játa það, að hv. þm. V-Húnv., Skúli Guðmundsson, er reikningsglöggur maður, og honum er full vorkunn, þegar hann komst hér að annarri niðurstöðu áðan heldur en hv. 3. landsk. þm., Gylfi Þ. Gíslason. En svoleiðis er málið vaxið, að prófessor Ólafur Björnsson, sem er höfundur þeirrar bókar, sem hér er byggt á, gaf verkfallsstj. á dögunum skjal í hendur, sem var útreikningar á þessum sömu atriðum. Þar hafði prófessorinn leiðrétt eina tölu, sem ekki hafði verið nákvæm í þessari bók hans, og þetta plagg liggur nú fyrir og er í margra manna höndum. Þetta veldur því, að Skúli Guðmundsson, sem reiknar eftir tölum bókarinnar og byggir sína útreikninga á því, kemst að annarri niðurstöðu, sem er röng, en Gylfi Þ. Gíslason hafði aðgang að þessum tölum og reiknaði með þessari grundvallartölu og komst að réttri niðurstöðu, og í því er hvorki reikningsskekkja né farið rangt með tölur. Niðurstaða Gylfa Þ. Gíslasonar er því rétt. Það er sannað á vísindalegan hátt, að hlutur verkamanna í þjóðartekjunum er nú 19–20% lægri, en hann var 1939. Og það er ekkert þýðingarlitið atriði fyrir hlustendur í landinu að leggja sér þetta á minni. Þetta er hin rétta niðurstaða.

Og svo vil ég aðeins biðja hv. hlustendur að leggja annað á minnið. Um leið og kaupmáttur launanna hefur rýrnað um 20% hjá verkamönnunum á tímabili þessarar stj., hefur átt sér stað þreföldun á álagningu heildsalanna í landinu. Þetta er jafnréttisþjóðfélagið, sem hæstv. dómsmrh. var að guma hér af í gærkvöld og ætlar verkalýðnum að una við það, að það er gengið á hans hlut. Það er slátrað lambi fátæka mannsins enn þá einu sinni, þegar aðrir geta fitað sig á fátækt fjölmennustu stéttar þjóðarinnar.

Ég vil ljúka máli mínu með því að segja í kvöld: Íslenzk alþýða, stattu einhuga og sterk um frumburðarrétt þinn til lífsins, — réttinn til vinnunnar og til að fá þau laun fyrir vinnuna, sem lífvænleg séu, til þess að menn fáist til að vinna framleiðslustörf á Íslandi. Það er undirstaðan undir allri þjóðarvelmegun, og ríkisstj. Íslands tekst aldrei að stjórna þessu landi, ef hún virðir ekki þennan frumburðarrétt hins vinnandi fólks. — Þökk fyrir.