26.01.1953
Sameinað þing: 32. fundur, 72. löggjafarþing.
Sjá dálk 651 í B-deild Alþingistíðinda. (717)
1. mál, fjárlög 1953
Frsm. samvn. samgm. (Sigurður Bjarnason):
Herra forseti. Samgöngumálanefndir þingsins hafa eins og undanfarin ár gengið saman í eina n. og undirbúið till. um styrki til flóabáta og vöruflutninga. Hafa nefndirnar haft um það verk samráð við Skipaútgerð ríkisins.
Um rekstrarafkomu flóabátanna á s.l. ári er mjög svipað að segja og á árinu 1951. Afkoman hefur yfirleitt orðið mjög erfið. Það, sem fyrst og fremst veldur því, er mjög veruleg hækkun á kaupgjaldi og olíum. Má þannig geta þess, að meðalverð á gasolíu til fiskibáta í Reykjavík hækkaði úr 754 kr. smálestin, sem hún kostaði 1951, í 925 kr. í nóv. s.l. Þá er þess og að geta, að meðalkaupgjaldsvísitala ársins 1951 var 131 stig, en í nóvembermánuði s.l. var vísitalan komin upp í 153 stig. Það er af þessu auðsætt, að rekstrarkostnaður flóabátanna hefur hlotið að hækka mjög verulega, enda lágu fyrir n. upplýsingar um það, að mjög verulegur og vaxandi rekstrarhalli hefur orðið hjá mörgum bátunum. Af þeirri ástæðu hefur ekki þótt tækt annað en leggja til, að styrkur til einstakra báta yrði hækkaður nokkuð.
Ég vil í þessu sambandi geta þess, að fyrir tveimur árum lagði samvinnun. til við hæstv. ríkisstj., að hún léti fara fram rannsókn á flóabátasamgöngunum og fengi úr því skorið, hvort unnt væri að lækka verulega styrk til þessarar þjónustu, fella niður ferðir einstakra báta og spara að öðru leyti á þessum útgjaldalið fjárl. Þessi rannsókn fór fram, og niðurstaða hennar varð sú, að þeirri n., sem falið var að vinna þetta verk, sýndist ekki tiltækt að koma við neinum teljandi sparnaði í þessum efnum. Það kom einnig í ljós, sem n. var að vísu ljóst áður, að þegar rætt var um þessar till. við einstaka þingmenn, þá töldu þeir þær yfirleitt óframkvæmanlegar, það væri ekki mögulegt á þessu stigi málsins að fella niður þá þjónustu, sem einstakir flóabátar hafa innt af höndum í þágu samgangna einstakra landshluta eða héraða. Þó má geta þess, að þróunin gengur yfirleitt í þá átt, með bættum samgöngum á landi, að bátunum fækkar heldur, og má gera ráð fyrir, að á næstu árum muni t.d. á Austurlandi verða hægt að fækka nokkuð smábátunum, sem þar annast flóabátaferðir, vegna bættra samgangna á landi.
Um ferðir og rekstur einstakra flóabáta vil ég leyfa mér að taka þetta fram — og minnast þá fyrst á flóabátasamgöngur við Breiðafjörð: Þar er lagt til, að rekstrarstyrkur til Flateyjarbátsins hækki um 5 þús. kr. Það hefur orðið töluverður halli á rekstri þessa báts. Enn fremur er lagt til, að vegna kostnaðar við vélaviðgerðir á þessum sama bát fái hann 10 þús. kr. vélastyrk.
Um rekstur Stykkishólmsbátsins, sem annast ferðir um sunnanverðan Breiðafjörð, er það að segja, að hann hefur gengið allsæmilega, og er lagt til, að styrkur til hans verði óbreyttur. Þá er gert ráð fyrir, að hann fjölgi ferðum sínum nokkuð til Búðardals og hefji einnig ferðir til Salthólmavíkur, þegar sérstaka nauðsyn ber til. — Ég vil geta þess í sambandi við rekstur þessa báts, að frá honum hefur nú fyrir nokkrum dögum borizt erindi um það, frá hæstv. samgmrn., að n. mæli með því eða vinni að því á einhvern hátt, að honum verði útvegað 90 þús. kr. lán vegna stækkunar, sem fram fór á bátnum fyrir skömmu. Þetta erindi hefur borizt n. svo seint, eftir að hún hafði gengið frá endanlegum till. sínum um úthlutun flóabátastyrkjanna, að til þess hefur ekki unnizt tími að taka endanlega afstöðu til þessarar beiðni. N. hefur þó komið saman á skyndifund um þetta mál og aflað sér upplýsinga um fjárreiður bátsins. Heildarskuldir hans munu vera um 600 þús. kr., þ. á m. töluvert á annað hundrað þús. við ríkissjóð og einstök ráðuneyti. Í viðræðum við einstaka nm. hefur þeirri hugmynd skotið upp, hvort ekki væri unnt að létta undir með þessum flóabát með því að ríkissjóður lengdi t.d. lánstíma — þetta munu vera bráðabirgðalán — eða gæfi að einhverju leyti eftir þær upphæðir, sem báturinn skuldar. Ég hygg, að samvinnun. mundi vera því fylgjandi, að einhverjar slíkar ráðstafanir yrðu gerðar af hálfu hæstv. ríkisstj. En eins og ég sagði, þá barst erindi bátsins svo seint, að ekki hefur unnizt tími til þess að taka endanlega afstöðu til þess að þessu sinni. — Ég vil geta þess, að þessi bátur hefur verið sérstaklega vel rekinn á undanförnum árum og styrkur til hans hefur hækkað minna, en margra annarra flóabáta. Er hann því fyllilega alls góðs maklegur og fyrirgreiðslu í sambandi við þetta erindi, sem hann nú hefur sent.
Um Ísafjarðarsamgöngur er það að segja, að þær hafa verið reknar með svipuðum hætti og áður, en á þeim verður stöðugt vaxandi hallí, og valda því ýmsar ástæður, þ. á m. fólksfækkun á því svæði, sem hann fyrst og fremst siglir til, og minnkandi flutningar. Þrátt fyrir mjög háan rekstrarstyrk undanfarin ár hefur orðið mikill halli á rekstri bátsins. Enn fremur varð hann fyrir því óhappi á s.l. ári, að ljósavél hans eyðilagðist, og átti fyrirtækið, sem rekur hann, Djúpbáturinn h/f, þess ekki kost að útvega nýja vél af eigin rammleik. N. hefur þess vegna talið óhjákvæmilegt að leggja til, að þetta fyrirtæki fengi 40 þús. kr. vélastyrk, og enn fremur, að rekstrarstyrkurinn verði hækkaður um 50 þús. kr., þar sem rekstur fyrirtækisins er alveg að sligast undir verulegum skuldum, sem safnazt hafa upp á undanförnum árum. — Ég vil taka það fram, að sú þjónusta, sem þessi bátur veitir, nær ekki eingöngu til sveitanna við Ísafjarðardjúp, heldur er hann rekinn mjög í þágu Ísafjarðarkaupstaðar, og enn fremur að nokkru leyti í þágu Vestur-Ísafjarðarsýslu, þar sem hann annast mjólkurflutninga frá sveitunum við Djúp til Ísafjarðar og sér Ísafirði að mjög verulegu leyti fyrir mjólk og landbúnaðarafurðum, og enn fremur annast hann mjólkurflutninga að vetrinum frá þorpunum í Vestur-Ísafjarðarsýslu, fyrst og fremst frá Flateyri, og flytur þá mjólk bænda úr Önundarfirði til Ísafjarðar.
Um Norðurlandssamgöngur er það að segja, að þar er lagt til, að styrkur til Húnaflóa- og Strandabáts hækki um 30 þús. kr. Minni styrkhækkun taldi n. ekki nægja til þess, að unnt yrði að halda þessum ferðum uppi.
Þá er lagt til, að Norðurlandsbátur, sem á s.l. ári fékk samtals 290 þús. kr. styrk vegna rekstrar og viðgerðar, sem þá var á honum gerð, fái nú 20 þús. kr. hærri styrk. Enn fremur er samkv. óskum þm. Skagf. lagt til, að tekinn verði upp styrkur til nýs báts, Haganesvíkurbáts, 6 þús. kr. Slíkur bátur var rekinn hér fyrr á árum, en var lagður niður og talið heppilegra, að Norðurlandsbáturinn annaðist flutninga fyrir byggðina í Fljótum og umhverfis Haganesvík. En nú hefur það ekki verið talið henta, og þm. Skagf. lögðu fram óskir um það við n., að sérstakur smábátur yrði á ný fenginn til þess að annast þessar ferðir, og taldi n. ekki fært að ganga gegn þeim óskum, sérstaklega þegar á það er litið, að slíkur bátur hafði áður verið starfræktur. Það verður að treysta því, að fólkið í þessum byggðarlögum þekki það bezt sjálft, hvernig hagsmunir þess verði bezt tryggðir að þessu leyti. Persónulega hefði ég haldið, að skynsamlegra hefði verið, að einn bátur annaðist þessar ferðir, og vel má svo fara, að af þessum ástæðum þurfi að hækka síðar að einhverju leyti styrk til Norðurlandsbátsins, sem kann að missa einhverjar tekjur við það, að hann annast ekki lengur þá flutninga, sem þarna er um að ræða.
Þá er lagt til, að Hríseyjarbátur fái sama heildarstyrk eins og honum var veittur á s.l. ári vegna rekstrar og viðgerðar. — Enn fremur er lagt til, að Flateyjarbátur á Skjálfanda fái 2 þús. kr. styrkhækkun.
Austfjarðasamgöngur er gert ráð fyrir að verði með svipuðum hætti og áður, að smábátarnir, sem annast flutning á vörum og farþegum milli fjarða þar, hagi ferðum sínum svipað, en styrkir til þeirra flestra hafa verið hækkaðir lítillega. Þannig er lagt til, að styrkur til Loðmundarfjarðarbáts hækki um 2 þús. kr., enda fari hann þá 4 aukaferðir árlega til Húsavíkur sunnan Borgarfjarðar. Þá er líka lagt til, að styrkur til Mjóafjarðarbáts hækki um 2 þús. kr. og heildarstyrkur til Eskifjarðarbáts lækki um 4 þús. kr., en hann fékk á s.l. ári 5 þús. kr. styrk vegna vélarkaupa. Styrkur til Berufjarðarbáts hækkar um 1 þús. kr.
Er þá komið að hinu svo kallaða Suðurlandsskipi. Það er kunnugt, að um áratugi hefur verið veitt sérstök fjárveiting til þess að greiða niður flutningskostnað á leiðinni frá Reykjavík til Víkur í Mýrdal. Með þessum flutningastyrk á þessari leið er viðurkennd alger sérstaða þessara byggðarlaga, sem eru hafnlaus og njóta þess vegna ekki samgöngubóta af strandferðum, eins og vel flest önnur byggðarlög landsins. Flutningskostnaður á hvert tonn þeirra nauðsynja, sem njóta styrks, mun nú vera um 500 kr. á smálest austan Mýrdalssands, en nokkru lægri vestan hans. Þessi kostnaður hefur aukizt töluvert á s.l. ári. N. taldi ekki fært að daufheyrast algerlega við óskum þm. héraðsins og héraðsbúa um það, að þessi styrkur yrði hækkaður nokkuð. Það mun hafa verið farið fram á 40 þús. kr. hækkun, ef ég man rétt. N. kom nokkuð til móts við þessa ósk og lagði til, að styrkurinn hækki um 15 þús. kr. til Suðurlandsskips, þ.e.a.s. til þessara vöruflutninga, sem ég minntist á.
Þá er gert ráð fyrir, að styrkur til vöruflutninga til Öræfa í A.-Skaftafellssýslu verði óbreyttur. — Enn fremur er lagt til, að styrkur til Stokkseyrar- og Vestmannaeyjabáts verði óbreyttur.
Að lokum vil ég minnast á Faxaflóasamgöngur. Þær urðu í s.l. jan. fyrir því mikla óhappi, að skip h/f Skallagríms, Laxfoss, strandaði í óveðri og hefur gerónýtzt. Það hefur verið unnið að því allt s.l. ár að fá nýtt skip til þess að annast þessar þýðingarmiklu ferðir hér á milli Reykjavíkur, Akraness og Borgarness. Enn þá hefur það ekki tekizt, að því er n. er kunnugt. En á síðustu fjárl. var lagt til, að ríkissjóður veitti á 13. gr. 100 þús. kr. styrk til rekstrar h/f Skallagríms, og enn fremur var samkvæmt till. n. samþ. heimild til handa hæstv. ríkisstj. um að greiða 100 þús. kr. styrk vegna vélaviðgerðar á Laxfossi. En þessar fjárveitingar hafa engan veginn nægt til þess að halda ferðum uppi á s.l. ári, fyrst og fremst, eins og ég sagði, vegna þess óhapps, að h/f Skallagrímur missti skip sitt. Samkvæmt þeim upplýsingum, sem fyrir n. liggja, mun ríkissjóður samtals hafa veitt nokkuð á fjórða hundrað þús. kr. í styrk til þess að halda þessum ferðum uppi, eða töluvert miklu meira en n. lagði til í till. sínum á siðasta þingi, og þarf það raunar engri furðu að sæta, þar sem félagið hefur orðið að hafa mjög dýr leiguskip og óhentug í ferðum vegna missis Laxfoss. Skallagrímur h/f sótti til samvinnun. um 360 þús. kr. rekstrarstyrk á þessu ári. N. taldi sér ekki fært að verða við þeirri ósk nema að takmörkuðu leyti og leggur til, að félaginu verði veittur 200 þús. kr. rekstrarstyrkur. Hins vegar má gera ráð fyrir því, að það komist ekki af með þá styrkupphæð, eins sérstaklega og á stendur í þessum efnum, og kemur þá til kasta hæstv. ríkisstj. eins og á s.l. ári um að greiða á einhvern hátt úr fyrir félaginu, þannig að þessar samgöngur falli ekki niður.
Ég hef þá rakið í aðaldráttum till. n. Samkvæmt þeim áætlar hún heildarstyrkinn til flóabáta og vöruflutninga á þessu ári 1 millj. 604 þús. kr. Er það 281 þús. kr. hærra en á s.l. ári, eða raunverulega 181 þús. kr. hærra, vegna þess að 100 þús. kr. af styrknum til h/f Skallagríms voru í fyrra veittar á heimildagr., en nú eru 200 þús. kr. teknar upp í sjálfa till. n. á 13. gr. vegna rekstrar þessa báts.
Ég hygg, að það sé samhljóða álit samvinnun., að ekki verði unnt að reka flóabátana með lægri styrkjum en þeim, sem hér er lagt til. Bersýnilegt er enn þá, að rekstrarkostnaður þeirra muni fara hækkandi, m.a. vegna samninga um hækkað kaupgjald.
N. leggur að lokum til, að vegna þess, hversu heildarupphæð flóabátastyrkja er nú orðin há, þá hafi samgmrn. forustu um það, að ársfjórðungslega verði aflað yfirlits um rekstur allra þeirra flóabáta, sem styrks njóta. Það vakir fyrir n. með þessu að skapa þessum fyrirtækjum enn aukið aðhald um rekstur sinn og gefa ríkisvaldinu bætt tækifæri til þess að fylgjast með honum.
Ég sé svo ekki ástæðu til þess að fjölyrða frekar um þessar till. Þeim fylgir eins og venjulega ýtarleg grg. frá Skipaútgerð ríkisins, þar sem lýst er rekstri og þjónustu, sem hver einstakur flóabátur veitir á þeim stöðum og í þeim héruðum og landshlutum, sem þeir eru starfræktir í.