26.01.1953
Sameinað þing: 32. fundur, 72. löggjafarþing.
Sjá dálk 678 í B-deild Alþingistíðinda. (724)
1. mál, fjárlög 1953
Emil Jónsson:
Herra forseti. Á þskj. 603 hef ég borið fram nokkrar brtt., sem ég vildi leyfa mér að gera grein fyrir.
1. brtt. er við 15. gr. og er ekki stórvaxin. Hún fer í stuttu máli fram á það, að lúðrasveit Hafnarfjarðar verði veittur styrkur nokkur til starfsemi sinnar, svipað og nú er veitt til lúðrasveitar Akureyrar, eða 20 þús. kr. á ári. Á 15. gr. er styrkur til tveggja lúðrasveita, lúðrasveitar Reykjavíkur og lúðrasveitar Akureyrar. Þetta félag er tiltölulega ungt, en starfar með miklum áhuga og hefur eflzt og dafnað upp á síðkastið mjög vel, en það eina, sem háir því, til þess að það geti starfað með fullum krafti, er það, að það skortir mjög tilfinnanlega fé til starfseminnar eins og fleiri. Þetta félag hefur sent hv. fjvn. erindi, dags. 7. okt. s.l., og þar sem erindið skýrir málefnið eiginlega mjög vel, þá vildi ég leyfa mér, með leyfi hæstv. forseta, að lesa það — eða hluta af því að minnsta kosti:
„Lúðrasveit Hafnarfjarðar var stofnuð í jan. 1950, og eru starfandi meðlimir hennar um 25 að tölu. Stjórnandi sveitarinnar hefur verið frá upphafi hinn velmetni tónlistarmaður Albert Klahn. Lúðrasveitin hefur leikið opinberlega allvíða, þó að sjálfsögðu mest fyrir bæjarbúa í Hafnarfirði. Lúðrasveit Hafnarfjarðar hefur frá upphafi átt við mikla fjárhagsörðugleika að stríða, enda eru meðlimir hennar allir ungir menn, sem ekki hafa getað tekið á sig útgjöld vegna hljóðfærakaupa, en skortur á hljóðfærum háir sveitinni mjög mikið. Þær litlu tekjur, sem sveitin hefur haft af hljóðfæraleik sínum, hafa allar runnið til stjórnanda og leiðbeinanda hennar og annars rekstrarkostnaðar og þó aldrei hrokkið til. Okkur er kunnugt um, að lúðrasveit Akureyrar hlaut á yfirstandandi ári 20 þús. kr. úr ríkissjóði, og þar sem lúðrasveit Hafnarfjarðar og lúðrasveit Akureyrar eru að okkar dómi algerlega sambærilegar hvað starfsemi þeirra snertir, þá teljum við, að þessi málaleitun okkar geti hvorki skoðazt ósanngjörn né óeðlileg, og vonum við því, að hv. fjvn. Alþ, taki erindi okkar með velvilja og skilningi.“
Fjvn. hefur ekki séð sér fært að verða við þessu erindi og ekki borið fram till. um neina fjárveitingu í þessu skyni, en ég verð að taka undir það með stjórn félagsins, sem undir þetta erindi hefur skrifað, að mér finnst, að það væri að gera upp á milli sambærilegra aðila, ef ekki væri tekið eitthvert tillit til starfs þessa félags, eins og gert hefur verið við sambærilegt félag annars staðar á landinu.
Þessir ungu menn eru, eins og ég sagði, févana með öllu. Þeir hafa verið studdir lítils háttar af bæjarstjórn Hafnarfjarðar, og lítils háttar tekjur hafa þeir líka haft af því að koma fram opinberlega, sem þeir hafa gert með ágætum nokkrum sinnum, en þessar tekjur þeirra hafa ekki hrokkið, eins og í erindinu segir, elnu sinni til að greiða leiðbeinandanum og stjórnandanum, hvað þá til nauðsynlegra áhaldakaupa. Ég vildi þess vegna mjög vænta þess, að hv. alþm. sæju sér fært að verða við þessari málaleitun sveitarinnar eða félagsins.
Ég hef svo til vara borið fram till. um, að þeim verði veittar 10 þús. kr. heldur en ekki meitt, ef ekki næst samkomulag um 20 þús. kr., sem ég tel nú raunar ósennilegt að ekki verði samkomulag um. En það er þá alltaf a.m.k. tækifæri til þess að greiða atkv. með varatill., og fyrir lúðrasveitina er hálfur skaðinn betri en allur, og þess vegna er sú till. fram borin.
Þá hef ég leyft mér að bera hér fram till. við 16. gr., um það, að Landssambandi iðnaðarmanna verði veittur nokkur viðbótarstyrkur. Í 16. gr. C., tölul. 1, í fjárlagafrv. er gert ráð fyrir því, að Landssambandi iðnaðarmanna séu veittar 100 þús. kr., eins og það hefur nú haft að undanförnu. Það hefur sótt um hækkun með bréfi til hv. fjvn., sem dags. er 3. des., þar sem gerð er grein fyrir starfsemi sambandsins og fjárþörf þess. Þegar tekið er tillit til þess, að Landssamband iðnaðarmanna hefur með höndum ýtarlega skýrslusöfnun um alla handiðnaðarmenn í landinu og þeirra starf, þar sem það líka er ráðuneytinu til leiðbeiningar í öllum iðnaðarmálum og afgreiðir fyrir ríkisstj. tugi ef ekki hundruð erinda um iðnaðarmál á ári og verður m.a. þess vegna að halda uppi allstórri skrifstofu, og þegar enn fremur er tekið tillit til þess, að sambandið heldur úti blaði, því einasta, sem gefið er út á Íslandi fyrir handiðnaðarmenn, þá skyldi maður nú ætla, að hv. alþm. sæju, að þetta fé, sem því er ætlað hér í fjárlagafrv., muni ekki hrökkva fyrir þörfum sambandsins og til þess að greiða öll þau störf, sem landssambandið þarf að láta inna af hendi, enda er það svo, að það hefur verið rekið undanfarin ár með talsverðum halla. Það hefur, eins og ég sagði áðan, borið fram ósk um, að styrkurinn yrði hækkaður upp í 150 þús. kr., en einhverra hluta vegna hefur hv. fjvn. ekki séð sér fært að taka þessa till. iðnaðarmannanna til greina. Ég hef athugað till. n., og í till. n. er, að svo miklu leyti sem ég get séð, engin hækkun til Landssambands iðnaðarmanna. Hins vegar skal það viðurkennt, að í brtt. n. á þskj. 567, 24. lið, er framlag til eflingar upplýsingastarfsemi og skýrslusöfnunar fyrir iðju- og iðnrekstur í landinu samkv. ákvörðun ráðherra. En í öðrum tölul. þessa sama liðar hér, C-liðar, er sams konar liður, til eflingar upplýsingastarfsemi fyrir iðjurekstur í landinu, en mér er ekki kunnugt um, að einn eyrir af því, sem á liðnu ári var veitt í þessu skyni, hafi farið til Landssambands iðnaðarmanna. (Gripið fram í.) Nei. Nú skil ég ekki að vísu, ef það er meiningin, að eitthvað af þessu fé, sem lagt er hér til í 24. lið í brtt. n. á þskj. 567, eigi að ganga til Landssambands iðnaðarmanna, hvers vegna það má þá ekki færast beint undir liðinn. Ég vildi gjarnan óska þess, ef það er meining hv. fjvn., að eitthvað af þessu fé gangi til Landssambands iðnaðarmanna og til þess að standa undir störfum þess, að þá verði því lýst yfir hér á þingi, til þess að það geti þá að því gengið. En eins og þetta er orðað í till. n., er það svo meinóljóst og óákveðið; að það getur þýtt allt milli himins og jarðar og þarf ekki undir neinum kringumstæðum að þýða það, að Landssambandi iðnaðarmanna sé ætlaður nokkur peningur af þessari upphæð. En ég vil vænta þess, að hv. form. fjvn. láti þess þá getið alveg sérstaklega, ef landssambandinu er ætlað að fá eitthvað af þessu fé og þá hvað mikið, því að ef það er meiningin, þá get ég vel dregið mína till. til baka, en því aðeins að því verði yfir lýst, að þessari upphæð sé ætlað að ganga til Landssambands iðnaðarmanna, en ekki til einhverrar annarrar starfsemi, sem sé meira og minna óákveðið hver sé. Landssamband iðnaðarmanna hefur nú starfað yfir 20 ár — eða réttara sagt nokkuð á þriðja tug ára — og hefur innt af höndum ágæt störf, og ég hefði talið, að það væri ekki til of mikils mælzt, ef það væri meiningin að styrkja það með einhverju fjárframlagi umfram það, sem gert hefur verið, að þá væri það látið koma beint á þess nafn, svo að ekki þyrfti að fara í neinar grafgötur um það, hverjum féð væri ætlað.
Þá hef ég leyft mér að bera fram brtt. við 20. gr. Ég óskaði eftir því við hv. fjvn. alveg sérstaklega, að tveir liðir af þeim, sem ætlaðir eru til starfsemi vitamálaskrifstofunnar, yrðu teknir til athugunar sérstaklega.
Annar liðurinn var til áhaldakaupa, að hann yrði hækkaður nokkuð, en þar sem ég sé, að einn maður í fjvn., hv. 5. landsk. þm., hefur borið fram till. um þetta, þá sé ég ekki ástæðu til þess að fjölyrða um þann lið. Ég vil aðeins leyfa mér að mæla mjög eindregið með því, að hann verði samþ., því að vitamálaskrifstofunni riður mjög mikið á að fá aukið fjárframlag til sinna tækjakaupa og viðhalds sínu stóra áhaldasafni. Það er kallað víðs vegar að af landinu á áhöld frá henni, og hún þarf að geta sinnt því, eftir því sem fært er, en þegar einn krani kostar orðið kringum 300 þús. kr., þótt lítill sé — eða ekki mjög stór, þá er það augsýnilegt, að fjárveiting sú, sem þarna er veitt, hrekkur tiltölulega skammt, með því líka að leigur fyrir tæki vitamálaskrifstofunnar hafa alltaf verið það lágar, að þær eru langt fyrir neðan það, sem einstaklingar leigja, til þess að gera hafnargerðunum auðveldara að hafa þá starfsemi með höndum, sem tækin eiga að notast til.
En það er annar liður, sem ekki hefur verið tekinn upp af neinum og ég þess vegna hef leyft mér að flytja á þskj. 603, brtt. 7.b, þ.e. við 20. gr., út, að framlagið til vitabygginga og vitavarðabústaða verði hækkað úr 1 millj. kr. upp í 1.3 millj. kr. Það hagar þannig til, að í ár eru liðin 75 ár frá því, að fyrst var kveikt á vita á Íslandi, og vitabyggingum hér hefur þokað áfram á þessu 75 ára tímabili meira og minna hratt, stundum örara, stundum hægara, allt eftir því sem fjárveitingavaldið hér á Alþ. hefur álitið fært að veita fé til. En nú er þó svo komið, eftir þessi 75 ár, að það skortir tiltölulega lítið á, að hægt sé að sigla í samfelldu vitaljósi í kringum allt land, ef hreinviðri er, þó að dimmt sé af nóttu, þ.e.a.s., þetta gildir ekki. í þoku eða dimmviðri, en í hreinviðri er þetta hægt, vitaljósin ná orðið saman nema á þremur stöðum. Það vantar þrjá vita til þess, að landið sé lokað með ljósbaug allt um kring. Þessir þrír staðir, sem eftir er að byggja vita á, eru á milli Hornafjarðar og Ingólfshöfða, væntanlega í Hrollaugseyju, á milli Ingólfshöfða og Alviðruhamra, væntanlega á Meðallandsfjörum, og það vantar vita á milli Flateyjar og Bjargtanga, sem væntanlega verður byggður á Skorarklettum eða þar í grennd. Þegar þessir þrír vitar hafa verið reistir og eru komnir í gagnið, þá nær, eins og ég sagði áðan, í hreinviðri saman ljósið allt í kringum land, og þetta væri áfangi, sem skemmtilegt væri að geta lokið einmitt á þessu merkisafmæli vitanna — á 75 ára afmæli þeirra. En þessir þrír vitar eru allir stórir, og þeir kosta mikið fé, og það er ekki hægt að byggja þá alla ásamt með einum vitavarðabústað, sem nauðsynlega verður að byggja á næsta ári á Dalatanga, vegna þess að vítaverðir eru þar orðnir tveir og komast ekki fyrir í því húsi, sem þar er. Þetta allt verður ekki hægt að gera, ef fjárveitingin er ekki hækkuð eitthvað frá því, sem nú er. Ég er að vísu ekki viss um, að það verði hægt að ljúka þessum byggingum að fullu með ljóstækjum, þannig að það verði hægt að taka þá til nota á árinu, fyrir 1.3 millj. kr., en það verður áreiðanlega hægt að komast langt með þá. Það er ekki fullbúin áætlun fyrir einn þeirra, sem er sennilega sá dýrasti, en ég hygg, að ég geti sagt það, að langt væri hægt að komast, ef fjárveitingin fengist upp í 1.3 millj. kr. úr 1 millj. kr., eða m.ö.o. væri hækkuð um 300 þús. kr. Og ég verð að segja það, að ég gæti ekki óskað mér af hálfu hv. þm. betri afmælisgjafar til vitastarfseminnar á Íslandi á þessu 75 ára afmæli heldur en það, ef hv. alþm. vildu nú fallast á að gefa vitamálastjórninni tækifæri til að loka vitalýsingunni kringum land og veita það fé, sem til þess þarf, en þetta er hægt að gera, a.m.k. að langsamlega mestu leyti, ef fjárveitingin verður hækkuð eins og hér er farið fram á. — Ég tel ekki ástæðu til að hafa um þetta fleiri orð. Það vita allir, hverja þýðingu þetta hefur fyrir sjófarendur og aðra, og það vill nú enn fremur svo til, að Slysavarnafélag Íslands á aldarfjórðungsafmæli nú þessa dagana, — á morgun eða hinn daginn, — og vel færi líka á því, að þess væri minnzt á þann hátt, að framlagið til vitabygginganna væri aukið eins og hér er farið fram á.
Auk þessara till., sem ég nú hef lýst, hef ég og hv. 1. þm. Rang. borið fram till. á sama þskj., 603, 9. lið. En þar er farið fram á að greiða Guðmundi Thoroddsen prófessor viðbótareftirlaun, er nemi mismun á núverandi eftirlaunum hans og fullum prófessorslaunum. Ég tel víst, að um þessa till. þurfi ég ekki að hafa mörg orð. Það vita allir hv. þm., hver afreksmaður prófessor Guðmundur Thoroddsen hefur verið við sitt starf um langt árabil. Hann hefur nú hætt störfum og dregið sig til baka, en öllum, sem hafa komizt í snertingu við hann og hans starf á Iandsspítalanum, ber saman um, og þeir ljúka allir upp um það einum munni, að betri og meiri lækni, árvakari og samvizkusamari opinberan starfsmann geti tæpast. Nú er fyrir því fordæmi, að prófessor einum eða yfirlækni hér, þó að ekki hafi verið opinber starfsmaður, hafi fyrir nokkru verið veitt sams konar laun og hér er farið fram á. Og enn er í þessu frv., sem hér liggur fyrir, einn liður um það að veita öðrum prófessor sams konar fyrirgreiðslu og hér er farið fram á. Ég tel því vist, að allir hv. alþm. geti sameinazt um það að veita prófessor Guðmundi þessa uppbót á hans eftirlaun eftir langt og gagnmerkt starf.
Ég sé svo ekki ástæðu til þess að hafa um þessar till. mínar fleiri orð, en vænti, að hv. alþm. taki þeim með skilningi og velvilja. Það er reynt að stilla þeim öllum svo í hóf, að það mælir öll sanngirni með, að þær verði samþ.