26.01.1953
Sameinað þing: 32. fundur, 72. löggjafarþing.
Sjá dálk 688 í B-deild Alþingistíðinda. (728)
1. mál, fjárlög 1953
Forseti (JPálm):
Mér hefur borizt ein skrifleg brtt. til viðbótar. Það er við 15. gr. A. XV, nýr liður: „Til Magnúsar Guðnasonar til varðveizlu á tækjum, sem hann hefur fundið upp, 5 þús. kr.“ Flutningsmenn: Einar Olgeirsson, Lárus Jóhannesson, Ásgeir Bjarnason, Gylfi Þ. Gíslason. Þessi till. er of seint fram komin, og verður leitað afbrigða fyrir henni síðar.