21.10.1952
Neðri deild: 12. fundur, 72. löggjafarþing.
Sjá dálk 45 í B-deild Alþingistíðinda. (73)
12. mál, gengisskráning o. fl.
Stefán Jóh. Stefánsson:
Herra forseti. Við tveir í minni hl. hv. fjhn. þessarar d. höfum leyft okkur að leggja fram brtt. hér á þskj. 109, sem hv. frsm. n. vék að. Brtt. er í því fólgin, að frá 1. nóv. n.k. og allt árið 1953 verði greidd verðlagsuppbót á laun mánaðarlega, í stað þess, sem lagt er til í frv., að það verði greitt árs- fjórðungslega. Þau rök, sem ég tel fyrir mitt leyti að styðji þessa brtt., eru í fyrsta lagi þau, að nú er svo komið hag launamanna, að hann er síversnandi með hverju árinu sem líður, og mismunurinn á milli verðvísitölunnar og kaupgjalds- vísitölunnar vex nú óðum, þannig að hann er nú orðinn 12 stig, því að kaupgjaldsvísitalan eða sú vísitala, sem reiknuð er á kaup, er nú 150, en verðlagsvísitalan 162 stig. Kjör allra launþega fara þannig síversnandi eftir því, sem þessi mismunur vex, og þar sem verðvísitalan hækkar eða hefur hækkað nokkuð jafnt og þétt, þó að minna hafi orðið hina allra síðustu mánuði, þá er það augsýnilegt, hversu mikil kjararýrnun felst í því fyrir launafólkið í landinu, ef það fær kaupgjaldsvísitöluna greidda þriðja hvern mánuð, í stað þess, sem við leggjum til að verði þó hvern mánuð. Það er í raun og veru það minnsta, sem hægt er að fara fram á fyrir launafólkið í þessum efnum.
En þá kunna menn að segja, að með því að greiða kaupgjaldsvísitöluna á kaupið mánaðarlega sé stefnt að vaxandi dýrtíð, sem komi launafólkinu sjálfu í koll. Ef það loks væri nú að rætast, sem forvígismenn gengislækkunarinnar héldu fram, að smám saman mundi skapast það jafnvægi í þjóðarbúskapnum, að ekki yrðu miklar sveiflur á verðlagi yfirleitt, — ég segi, ef það væri loks að rætast, þá ætti það ekki að vera hættulegt að greiða vísitöluna mánaðarlega á kaup launafólks í landinu. Ég vil ekki gera það að mínum orðum, að jafnvægi sé myndað í íslenzku þjóðfélagi, og átti það í raun og veru, eftir spásögnum fræðimanna og þeirra stjórnmálamanna, sem stóðu að gengisbreytingunni, að vera komið á fyrir langa löngu, en skyggn augu held ég að eigi nú örðugt með að festa augu á því jafnvægi, sem komið sé á í íslenzku þjóðfélagi. En hvað sem því líður, þá er það algert óréttlæti gagnvart launafólkinu í landinu að láta það viðgangast að greiða kaupgjaldsvísitöluna aðeins þriðja hvern mánuð, heldur er þó svolítið spor í rétta átt að gera það mánaðarlega. Menn tala oft um það, að hækkað kaup valdi verðbólgu, en ef að er gáð, þá er það verðhækkunin, eins og ég orðaði það einu sinni, sem fer með hraða lyftunnar upp á við, en kaupgjaldið lallar á eftir upp krókótta og þrönga stiga. Og þegar menn líka tala um það, að landbúnaðarvörurnar hafi hækkað vegna hækkaðs kaupgjalds, þá er það í raun og veru algerlega röng ályktun, kaupgjaldið í landinu hefur ekki hækkað, en dýrtíðin hefur stórvaxið. Það er dýrtíðin, hækkað vöruverð, sem veldur þá því, að bændurnir telja sér, í skjóli laga, sem um það gilda, rétt að hækka sínar afurðir. Það er ekki kaupgjaldið, ekki hækkun kaupsins, ef rökrétt er hugsað, sem veldur þessu, heldur vaxandi dýrtíð, því að kaupgeta fólksins minnkar eftir því, sem lengra líður, vegna hinnar stórhækkuðu dýrtíðar.
Það er nú komið svo, að gamla verðvísitalan, sem í gildi var, áður en gengislækkunin var ákveðin, hefur hækkað um hartnær 100% frá því, að sú stjórn lét af völdum, sem ég átti forsæti í. Á þessu tæpu þriggja ára tímabili hefur þessi verðvísitala hækkað um 100%, og það mun vera heimsmet, og þá þurfum við ekkert að miða við fólksfjölda á Íslandi, eins og við erum stund- um að státa okkur af út af einstaka íþróttaafrekum, að miðað við fólksfjölda séu þetta ágæt afrek. Það þarf ekki að miða við neinn fólksfjölda á Íslandi, til þess að íslenzka þjóðin eða íslenzka ríkisstjórnin hafi slegið heimsmet á seinustu 3 árum með hækkun á verðlagi í landinu. Og það verður ekki til þess ætlazt til lengdar, að það fólk í landinu, sem býr við kröppust kjör, verði eitt að sætta sig við það, að kaupgeta þess síminnki með hverju árinu sem líður, samtímis því sem fjöldi forréttindafólks í þjóðfélaginu ber ekki skarðan hlut frá borði. Það er örlítil leiðrétting, sanngjörn og örlítil leiðrétting, sem fólgin er í þeirri brtt., sem hér liggur fyrir, og ég vil ítreka það á ný, að þeir menn, sem trúa á það, að jafnvægi sé nú skapað í þjóðfélaginu, ættu ekki að vera hræddir við að láta l. ákveða, að verðvísitölu eða kaupgjaldsvísitölu væri nú bætt ofan á kaupið mánaðarlega, í staðinn fyrir það, sem áður hefur gilt, ársfjórðungslega. Með þessum rökum mæli ég fyrir mitt leyti eindregið með því, að brtt. á þskj. 109 verði samþ.