26.01.1953
Sameinað þing: 32. fundur, 72. löggjafarþing.
Sjá dálk 706 í B-deild Alþingistíðinda. (739)

1. mál, fjárlög 1953

Frsm. 2. minni hl. (Hannibal Valdimarsson):

Herra forseti. Þegar ég lauk máli mínu í kvöld, þá gafst mér ekki tími til að mæla með tveimur brtt. við 18. gr., sem ég flyt á þskj. 609.

Sú till. var borin fram í fjvn., að Jónasi tónskáldi Tómassyni á Ísafirði yrði veitt viðurkenning fyrir sitt mikla tónlistarstarf með svipaðri fjárveitingu og veitt er á 18. gr. fjárlaga til tveggja annarra tónskálda, sem eiga mjög svipaðan feril Jónasi Tómassyni.

Jónas Tómasson er maður nú yfir sjötugt. Hann er hættur sínum verzlunarrekstri, sem hann hafði um skeið. Hann var bóksali á Ísafirði og hefur nú aðallega s.l. ár fengizt við að búa tónsmíðar sínar undir prentun. Hann er orðinn þjóðkunnur sem tónskáld, og tónsmíðar hans hafa náð hug og hjarta þjóðarinnar, þ.e.a.s. þær af þeim, sem hafa komizt fyrir almennings sjónir. Auk þess hefur Jónas Tómasson unnið sérstaklega mikið, fórnfúst og óeigingjarnt starf í þjónustu tónmenntar á Ísafirði. Hann hefur haldið þar uppi tveim kórum, blönduðum kór og karlakór, og hann hefur verið organisti í Ísafjarðarkirkju milli 30 og 40 ár, og þetta allt hefur hann unnið fyrir mjög litla þóknun. Ég tel, að svo framarlega sem nokkrir menn eða konur eru þess verðug að fá viðurkenningu frá ríkinu fyrir gott og óeigingjarnt og verðmætt starf á sviði tónmenntar, þá eigi Jónas Tómasson tónskáld skilið að vera í þeirra hópi.

Ég trúi því ekki, að hv. Alþ. geri svo upp á milli manna, að það felli þessa fjárveitingu, sem hér er farið fram á, 10.350.00 kr., til þessa mæta manns, þegar stórfé er veitt til ýmissa annarra, sem ég tel sízt vera betur að því komna, en þennan einstaka sóma- og hæfileikamann.

Þá er það önnur till., sem ég flyt líka, brtt. við 18. gr., um það, að frú Önnu Björnsdóttur, fyrrverandi kennara, verði veittar 6.000.00 kr. uppbætur á 18. gr. Hún hóf kennslustörf austur á Seyðisfirði árið 1906, hefur lengstum stundað kennslustörf síðan, en varð á s.l. ári að hætta kennslustörfum sökum heyrnardepru. Hún er á sjötugsaldri og hefur oftast verið stundakennari við skólana á Ísafirði hin síðari ár, þó fastur kennari við gagnfræðaskólann þar, en lengstum voru gagnfræðaskólarnir bæjarstofnanir, og þar af leiðir, að þeir eldri kennarar, sem nú láta af störfum og voru lengi hjá skólunum sem bæjarstarfsmenn, fá ekki neinn lífeyri úr lífeyrissjóði embættismanna og eru þannig tekjulausir, þegar þeir láta af störfum. Anna Björnsdóttir er þannig sett og hefur nú ekkert fyrir sig að leggja, og það mega þó allir vita, að kennarar, sem lengi hafa verið stundakennarar og síðan starfsmenn bæjarfélaganna við framhaldsskólana, hafa ekki haft slík laun, að þeir hafi lagt fyrir fé. Ég hreyfði ekki þessari till. í fjvn., og er það eiginlega mín sök að gera það ekki, en athygli mín var vakin á þessu nú fyrir nokkrum dögum, og ég tel, að það væri mjög ranglátt, ef Alþ. synjaði frú Önnu Björnsdóttur um þennan smávægilega styrk, þar sem hún fær ekki nein eftirlaun sem kennari, af þeim ástæðum, sem ég hef nú greint.

Á þskj. 603 er brtt., sem þeir flytja Haraldur Guðmundsson og Stefán Jóh. Stefánsson, um, að Alþýðusambandi Íslands verði veittar 100 þús. kr. á fjárl. til fræðslustarfsemi. Á seinasta árs fjárl. voru 50 þús. kr. veittar í þessu skyni. Það er alveg áreiðanlegt, að þess er mikil þörf og það hefur mikla þjóðfélagslega þýðingu, að verkalýðssamtökin geti innt viðtækt fræðslustarf af hendi. Alls staðar þar, sem verkalýðssamtök eru búin að ná miklum þroska, verja þjóðfélögin — og telja sér hag í því — miklu fé til þess að standa undir fræðslustarfsemi í verkalýðshreyfingunni. Ég er alveg sannfærður um það, að það mundi oft sýna sig, þegar verkalýðurinn á að taka afstöðu til vandasamra mála, sem hefur mikla þýðingu fyrir þjóðfélagið hvernig leysast, að það yrði gert af meiri dómgreind og meiri þekkingu, eftir því sem betur væri séð um fræðslustarfið í þessari víðtæku alþýðuhreyfingu. Þetta hafa þjóðfélögin séð, þó að þau annars séu nokkuð íhaldssöm. T.d. í Bandaríkjunum er varið geysimiklu fé til fræðslustarfsemi meðal verkalýðsfélaganna og sú starfsemi er algerlega kostuð af ríkissjóði þar. Ég minnist þess, að um síðustu áramót ræddi einn af hæstv. ráðh. þetta mál og hvatti þar mjög til, að fræðslustarfsemi í verkalýðsfélögunum hér á landi yrði stóraukin, og virðist mér það benda til þess, að sá ráðh. hafi að minnsta kosti glöggan skilning á því, hvaða þýðingu þetta mál getur haft.

Ég vil treysta því, að hæstv. ríkisstj. og hv. stjórnarflokkar velti þessu máli stuðning. Það er ætlun Alþýðusambands Íslands, ef það fær þetta fé til umráða, að hafa námskeið víðs vegar um landið fyrir félagsbundið fólk, karla og konur, í verkalýðshreyfingunni, að gefa út sitt tímarit, Vinnuna, með nokkuð öðrum hætti, en áður hefur verið og gefa ritið út að staðaldri og gefa út ýmis smá fræðslurit, sem snerta praktísk viðfangsefni verkalýðsmálanna.

Ásamt hv. þm. N-Ísf., hv. 1. þm. Eyf. og hv. 2. þm. Eyf. flyt ég till. á þskj. 601 um það, að varið verði allt að 140 þús. kr. til þess að bæta tjón vegna slysfara á Bolungavíkurvegi sumarið 1951. Þetta var hörmulegt slys. Þar létu tveir ungir menn lífið, nokkrir ungir menn lemstruðust, og enn fremur varð þarna stórtjón ú ökutæki. Þessu máli var hreyft á síðasta þingi, og munaði þar mjóu, að þetta væri samþ. Menn töluðu á síðustu stundu um, að þetta gæfi hættulegt fordæmi, sem kynni að leiða til aukinna útgjalda fyrir ríkið, ef samþ. væri, en ég tel, að aðstandendur þeirra, sem létust fyrir þetta hörmulega slys, og þeir menn, sem misstu mikið af líkamsorku sinni við þetta átakanlega slys, og svo þeir sem þarna urðu fyrir fjárhagslegu tjóni, sem þeir hafa ekki fengið bætt, þurfi að fá þarna aðstoð frá hendi ríkisins, og ég er ekkert hræddur við það fordæmi, sem þetta er talíð munu gefa. Ég vil vona, að það verði ekki fellt í annað sinn að velta þarna nokkra aðstoð, og hér er farið fram á 140 þús. kr. til allra þessara aðila.

Ásamt hv. þm. N-Ísf., hv. þm. V-Ísf. og landsk. þm. Lúðvík Jósefssyni flyt ég till. um það, að varið verði allt að 600 þús. kr. til rekstrar dieselrafstöðva í kaupstöðum og kauptúnum, að fengnum till. raforkuráðs um það, hvernig fénu verði varið. Það er alkunnugt, að þar, sem ekki er búið að virkja vatnsafl til raforkuframleiðslu, reyna menn að bjarga sér á þann hátt að koma upp dieselrafstöðvum. Þær eru það dýrar í rekstri, að raforkuna verður í fyrsta lagi að selja að minnsta kosti tvöfalt dýrara heldur en þar, sem góð aðstaða hefur verið til raforkuframleiðslu með vatnsafli. Öryggið, sem atvinnulífið á við að búa á þessum stöðum, er miklu minna, og reynslan er sú, að flest sveitarfélögin á þessum stöðum eru að kikna undir rekstri þessara dieselrafstöðva, og endirinn er sá, elns og hæstv. fjmrh. tók hér fram um daginn, að í svo algerar nauðir hefur rekið með rekstur þessara stöðva, að ríkisábyrgðirnar hafa yfirleitt fallið á ríkissjóð, vegna þess að ekki er hægt að koma saman endum tekna og gjalda í sambandi við rekstur þeirra. Það liggur líka fyrir hv. fjvn. erindi frá rafmagnseftírliti ríkisins eða (Gripið fram í.) — já, raforkumálastjóranum, — erindi, sem fer í þessa átt, og telur hann einmitt, að það sé full þörf á því að gera ráðstafanir til þess, að sveitarfélögin kikni ekki undir rekstri þessara nauðsynlegu mannvirkja, sem dieselrafstöðvarnar verða að teljast, meðan ekki er bætt úr þessum málum á annan hátt.

Að síðustu flyt ég svo ásamt hv. þm. N-Ísf. till. um það, að ríkissjóður ábyrgist fyrir skipasmíðastöð Marzelíusar Bernharðssonar á Ísafirði allt að 2 millj. kr. lán vegna byggingar dráttarbrautar á Ísafirði. Marzelíus Bernharðsson er eigandi að skipasmíðastöð í Ísafjarðarkaupstað. Þar er lítil dráttarbraut, sem aðeins orkar því að taka upp á land 60–80 tonna vélbáta. En nú eru á Ísafirði tveir togarar og nokkur skip í kringum 100 tonn, og engin af þessum skipum er hægt að taka þar á land til viðgerðar. Vinnan við aðgerðir þeirra, og þótt ekki sé nema um botnhreinsun að ræða, verður öll að vinnast annars staðar. Þarna berst mikil vinna út úr bæjarfélaginu, sem full þörf væri þar fyrir. Skipasmiðastöð Marzelíusar Bernharðssonar veitti á stríðsárunum fulla atvinnu milli 30 og 40 manns. En þarna hefur allt dregizt saman, svo að þarna er nú ekki nema ígripavinna að kalla fyrir 10–12 menn. Ég tel því, að þetta væri mjög mikilsvert atriði fyrir Ísafjarðarkaupstað, ef hægt væri að koma þarna upp stærri dráttarbraut, en þar er nú, svo að unnt yrði að annast viðgerðir þeirra skipa, sem heima eiga á staðnum, og þeirra aðkomuskipa, sem leita hafnar á Ísafirði, en það gerist oft, að aðkomuskip leita hafnar í hinni ágætu Ísafjarðarhöfn, og þá eru það stundum skip, sem eru nauðulega stödd og þurfa þar einmitt að fá viðgerðir inntar af hendi.

Það er nú hér fyrir þinginu erindi, að því er snertir Reykjavík, um stórfelldari aðstoð einmitt til stækkunar dráttarbrautar, og teldi ég mjög erfitt fyrir hv. Alþ. að gera upp á milli Reykjavíkur og Ísafjarðar að þessu leyti. Það er ekki minni nauðsyn á því, að dráttarbrautin verði stækkuð á Ísafirði heldur en slippurinn hér í Reykjavík. Og svo mikið er víst, að ekki verður um það deilt, að með þessari aðstoð yrði á Ísafirði hægt að gera við miklu stærri skip, en nú er hægt að taka þar til viðgerðar. hins vegar er það upplýst hér, að því er snertir slippinn í Reykjavík, að það orkar mjög tvímælis, þó að honum yrði veitt 6 millj. kr. ríkisábyrgð, hvort þar skapaðist þá aðstaða til að gera við nokkuð að ráði stærri skip heldur en nú er hægt að gera þar við.

Þetta voru till., sem ég vildi mæla með sérstaklega, og þykist ég þó vita, að meðan ég var fjarverandi hafi meðflm. mínir mælt með öllum þessum till. Ég hef þá aðeins undirstrikað þeirra meðmæli og vil vænta þess, að þær fái allar góðar undirtektir.