27.01.1953
Sameinað þing: 33. fundur, 72. löggjafarþing.
Sjá dálk 715 í B-deild Alþingistíðinda. (746)
1. mál, fjárlög 1953
Einar Olgeirsson:
Herra forseti. Ég verð að leyfa mér, ef á að fara að taka þessa till. aftur nú, að taka hana upp. Ég sé ekki, hvernig hægt sé að afgr. fjárl. án þess að hafa þar námsstyrk til námsmanna erlendis. (Gripið fram í.) Já, en hins vegar er héðan af ekki, ef þessi till. er tekin svona til baka, neinn möguleiki að koma fram með neinar breyt. við þetta lengur. En hins vegar felst í þessari till., eins og hún er, hækkun til útlendu námsmannanna. (Gripið fram í.) Jú, ég man, hvað stendur í þeirri gömlu. Þar er skipt á milli þeirra innlendu og þeirra útlendu, en hér er það allt saman til þeirra útlendu, og þá hlaut maður að ganga út frá, að það yrðu sérstök lög viðvíkjandi þeim innlendu, en hækkun til þeirra, sem stunda nám erlendis, með þessu móti. (Gripið fram í.) Þau eru ekki komin. (Gripið fram í.) Já, en ég mundi nú vilja leyfa mér að taka þessa till. samt upp. (Gripið fram í.) Jú, þeir geta fengið það fyrir það. Jæja, forsetinn verður að skera úr því.
Brtt. 567,9 tekin aftur af fjvn., en tekin upp aftur af 2. þm. Reykv. (EOl) og felld með 30:5 atkv.
— 567,10–12 samþ. með 29 shlj. atkv.
Brtt. 607,5 felld með 33:15 atkv.
— 567,13–14 samþ. með 27:1 atkv.
— 601,8 felld með 30:13 atkv.
— 600,3 samþ. með 35 shlj. atkv.
— 607,6 felld með 28:15 atkv.
— 607,6. varatill. felld með 29:14 atkv.
— 603,3 felld með 31:14 atkv.
— 600,4 samþ. með 32 shlj. atkv.
— 567,15 samþ. með 27:1 atkv.
— 601,9 samþ. með 28:2 atkv.
— 627,1 samþ. með 28:12 atkv.
— 567,16 samþ. með 35:1 atkv.
— 567,17 samþ. með 29 shlj. atkv.
— 624 felld með 28:14 atkv.
— 607,7 felld með 32:11 atkv.
— 625,2 felld með 31:14 atkv.
— 607,7. varatill. felld með 33:14 atkv.
Áður en brtt. 629,1 kom til atkv., mælti