27.01.1953
Sameinað þing: 33. fundur, 72. löggjafarþing.
Sjá dálk 718 í B-deild Alþingistíðinda. (749)
1. mál, fjárlög 1953
Sigurður Bjarnason:
Herra forseti. Þar sem felld hefur verið brtt., sem ég hef flutt hér ásamt hv. þm. Ísaf. (HV), um að heimila hæstv. ríkisstj. að ábyrgjast vegna skipasmíðastöðvar Marzelíusar Bernharðssonar á Ísafirði lán allt að 2 millj. kr., þá sé ég ekki ástæðu til þess að greiða atkv. með þessari till., þar sem ég tel, að það sé þörf á því að byggja slík mannvirki víðar, en í Reykjavík, og ég tel, að Alþ. sé hér á mjög óviðeigandi hátt að mismuna landshlutum. Ég segi þess vegna nei við þessari till. og mótmæli þeirri aðferð, sem hér er höfð á.