27.01.1953
Sameinað þing: 33. fundur, 72. löggjafarþing.
Sjá dálk 718 í B-deild Alþingistíðinda. (750)
1. mál, fjárlög 1953
atvmrh. (Ólafur Thors):
Ég leyfi mér að gefnu tilefni að benda á, að sú tillaga, sem áðan var samþ. um ábyrgðarheimild fyrir Slippfélagið í Reykjavík, er studd þeim rökum, að félagið er mjög vel stætt og áhætta ríkissjóðs því væntanlega engin. Hvort hið sama má segja um þá tillögu, sem búið er að fella, er að minnsta kosti algerlega óupplýst mál.