13.01.1953
Efri deild: 48. fundur, 72. löggjafarþing.
Sjá dálk 720 í B-deild Alþingistíðinda. (754)

196. mál, tollskrá o. fl.

Fjmrh. (Eysteinn Jónsson):

Meðal þeirra ráðstafana, sem ríkisstj. beitti sér fyrir í sambandi við lausn vinnudeilunnar, var lækkun á sykur- og kaffiverði. En þessi verðlækkun var gerð á þeirri forsendu, að felld yrðu niður aðflutningsgjöld af þessum vörutegundum. Í þessu frv., sem hér liggur fyrir, er lagt til, að hv. Alþ. samþykki að fella niður þessi aðflutningsgjöld. Ég leyfi mér að leggja til, að þessu máli verði vísað til hv. fjhn. að aflokinni þessari umr.