15.01.1953
Neðri deild: 50. fundur, 72. löggjafarþing.
Sjá dálk 726 í B-deild Alþingistíðinda. (791)

198. mál, gengisskráning

Frsm. (Skúli Guðmundsson):

Herra forseti. Með stjfrv. þessu er lagt til, að breyt. verði gerðar á lagafyrirmælum um greiðslu verðlagsuppbótar á laun opinherra starfsmanna. Eins og frá er skýrt í aths. á þskj., er stefnt að því með frv. að breyta ákvæðunum um verðlagsuppbætur á starfsmannalaunin til samræmis við þau ákvæði um greiðslu verðlagsuppbótar, sem samið var um milli verkamanna og vinnuveitenda í næstliðnum mánuði. Fjhn. hefur athugað frv., og eins og segir í nál. á þskj. 527, mælir hún með því, að frv. verði samþ.