19.01.1953
Efri deild: 51. fundur, 72. löggjafarþing.
Sjá dálk 726 í B-deild Alþingistíðinda. (796)

198. mál, gengisskráning

Fjmrh. (Eysteinn Jónsson):

Þetta frv. gerir ráð fyrir því að breyta reglum þeim, sem gilt hafa fram að þessu um verðlagsuppbætur á laun til opinberra starfsmanna, færa verðlagsuppbæturnar til samræmis við það, sem um samdist varðandi kaupgjald almennt, nú þegar síðast voru fyrir áramótin gerðir samningar á milli vinnuveitenda og verkalýðssamtakanna. Ríkisstj. þykir sanngjarnt, að sömu reglu sé fylgt um greiðslu verðlagsuppbótar á laun opinberra starfsmanna og annað launafólk nýtur. Ég leyfi mér að óska þess, að málinu verði vísað til hv. fjhn. að lokinni þessari umr.