28.01.1953
Efri deild: 57. fundur, 72. löggjafarþing.
Sjá dálk 735 í B-deild Alþingistíðinda. (802)
198. mál, gengisskráning
Frsm. meiri hl. (Karl Kristjánsson):
Herra forseti. Ég vil segja nokkur orð, sérstaklega út af ræðu hv. minni hl. og grg. hans fyrir till. sinni.
Mér varð það eiginlega betur ljóst en áður, undir ræðu hans, hvað brtt. hans við frv. er skemmtileg og í raun og veru frumleg. Till. er, eins og ég gat um í fyrri ræðu minni, að efni til frekar dagskrártill. — frávísunartil. — en brtt. Hún er svo frek, að verði hún samþ., þá er frv. að öðru leyti ónýtt, aðeins ónýtar umbúðir utan um hana, vegna þess að það rekur þá ekki lengur það erindi, sem því var upphaflega ætlað, heldur aðeins erindi till. Það er eina erindið. Mér finnst — svona til gamans að segja — eins og flm. — í hliðstæðri og stækkandi líkingu talað — hefði hugsað sér að taka meiri hluta hins íslenzka flota og tengja hann aftan í sinn fræga bát, Frekjuna, og sigla svo sinnar leiðar með kláfana.
Hv. þm. var að tala um það, að hann undraðist yfir því, að ég skyldi hafa sagt, að ég mundi hafa stutt till., ef hún hefði komið fram sérstaklega frá honum um það, að gengið væri strax til hreins um það, hve há laun samtals ríkið og stofnanir þess greiða hverjum starfsmanni, svo að ljóst lægi fyrir, hvað hver af vinnumönnum ríkisins bæri úr býtum, þegar allt kæmi til alls. Hann sagði, að mér hefði skotizt yfir, að til væru lagaákvæði um, að þessum skýrslum skyldi safnað, og till. um það væri því algerlega óþörf. Auðvitað vissi ég um lagaákvæðið, því að bæði er nú, að það er tekið fram í till. hans, í það vitnað, og ég hefði líka mátt vera meira en lítið minnislítill, ef ég hefði ekki munað eftir því, eins oft og hv. þm. hefur vitnað í þetta lagaákvæði í fjvn. að gefnum tilefnum og mörg orð haft um það, hve illa því lagafyrirmæli væri hlýtt. En hvaða goðgá væri það þá, að fram kæmi ályktunartill., er ræki eftir því, að þessu lagaákvæði væri fullnægt svo rækilega, að tilgangurinn með setningu þess næðist? Þetta hefur líka hv. þm. séð ástæðu til að gera með sinni till. Honum væri því réttara að hneykslast á sjálfum sér heldur en mér um þetta atriði.
Annars sé ég sízt af öllu ástæðu til þess að deila við hv. þm. Barð. um kjarna þessa máls. Skoðanir okkar á launamálum eru mjög líkar, að mér virðist, í meginatriðum. Með starfi í fjvn. höfum við líka haft sömu útsýn yfir þessi mál. Ég tel, að þessi mál þurfi mikillar lagfæringar. Ósamræmið og öfgarnar, sem leiðir af margháttaðri aukavinnu; sem á sér stað hjá ríkinu og ríkisstofnunum, þarf að afnema. En ég tel ekki till. þá, sem hv. þm. Barð. hefur lagt fram við þetta frv., réttu tökin í því máli. Um hana greinir okkur á. Hún er till. um að fresta að færa verðlagsuppbætur á laun starfsmanna ríkisins til samræmis við uppbætur annarra launþega, er þeir öðluðust með hinum svo nefnda verkfallssamningi. Ég tel rétt, vegna hinna láglaunuðu hjá ríkinu, að fresta þeim ekki. Aðferðin, sem til þess á að hafa samkv. frv., er þannig, að hún nær að vísu til allra, hinna hærra launuðu líka, í smáum stíl, en hún eykur ekki á launamuninn; hún þvert á móti dregur úr launamuninum, eftir að kemur yfir 2.200 kr. í laun á mánuði. Þetta hlýtur hver maður í raun og veru að sjá, þó að hv. þm. Barð. lenti í dálitlum rökvillum í sambandi við þetta atriði í ræðu sinni. Hins vegar er það svo, að launamunur hlýtur alltaf að eiga sér stað, meðan verkamunur er á annað borð og mannamunur við verk. Það veit ég, að hv. þm. Barð. hlýtur að viðurkenna, þótt hann í gær teldi henta að tala í aðra átt.
Eitt aðalgildi till. sinnar vildi hv. þm. Barð. láta vera það, að þeir forstjórar fyrirtækja ríkisins, sem ekki hefðu látið af hendi skýrslur um það, hve mikið væri borgað til hvers manns, mundu nú gera það til þess að fá vísitöluuppbótina, úr því að það væri gert að grundvallarskilyrði fyrir því, að hún yrði greidd, að nefndar skýrslur lægju fyrir. Hann taldi, að þeir hefðu slegið hring um það — blátt áfram slegið hring um það að gefa ekki upp þessar skýrslur, svo að gagni kæmi. Ég hygg nú, að þessi dómur hans um þessa menn sé rangur. En setjum svo, að hann væri réttur, látum það liggja þannig fyrir. Mundi þá till. og forsenda hennar auka líkur fyrir því, að mennirnir gæfu þessar skýrslur, sem þeir vilja annars ekki gefa? Hv. þm. sagði, — það var hans meginforsenda, — að hann væri viss um, að við athugun skýrslnanna mundi vísitalan verða lækkuð úr 123 stigum, eða frá því, sem nú er. Skyldi sú yfirlýsing ýta undir skýrsluskilin? M.ö.o., hv. þm. ætlast til, að till. sé nokkurs konar agn, en setur um leið með ræðu sinni hættumerki hjá agninu. — Sagt var um Njál, að hann væri vitur maður, en þó misvitur einstaka sinnum.
Ég legg fyrir hönd meiri hl. fjhn. áherzlu á það, að frv. verði samþ. óbreytt.