28.01.1953
Efri deild: 57. fundur, 72. löggjafarþing.
Sjá dálk 743 í B-deild Alþingistíðinda. (805)
198. mál, gengisskráning
Frsm. minni hl. (Gísli Jónsson):
Herra forseti. Hv. 4. þm. Reykv. hrakti nú ekkert af því, sem ég hafði sagt í sambandi við launahækkanirnar. Hann aðeins útskýrði það, að embættismennirnir hefðu ekki fengið prósentvís eins mikla hækkun á launum eins og hinir lægst launuðu. Hitt stendur óhaggað, sem ég hef sagt og vitað er, að hver fastlaunaður maður, hvort það er heldur hjá ríkinu eða ríkisstofnunum, hefur fengið við samningana 1.000 kr. hækkun á ári. Þetta stendur alveg óhaggað. Það er það, sem ég hef haldið fram, og ekki neitt annað, og ég tel, að það sé óeðlilegt, að slík hækkun hjá mönnum, sem vinna undir föstum, ákveðnum launalögum, sé gerð með verkalýðssamningum.
Hv. þm. sagði einnig, að það væri óeðlilegt og ranglátt, að kennari mætti ekki vinna við sömu stofnun aukavinnu við kennslu, ef hann mætti t.d. fara frá þeirri stofnun til þess að vinna sams konar tíma hjá verzlunarskólanum eða einhverri annarri stofnun, sem ekki væri rekin undir stjórn ríkisins. Það er ekki það, sem deilt er um hér. Það er hitt, sem deilt er um og sannað, að áliti fræðslumálastjóra og þeirra manna, sem þessum málum ráða, að ef kennari tekur að sér að kenna meira en 27–30 klst. á viku, hvar sem hann kennir þær, þá sé hann að svíkja nemendurna. Það er kjarni þess máls, og það hefur verið gengið svo langt í því atriði, að kennararnir hafa kennt ekki 27 stundir á viku, heldur yfir 50 stundir á viku, með þeim árangri, að þeir hafa verið að svíkja sitt starf, elns og yfirlýsing fræðslumálastjóra staðfesti. Það er kjarni málsins, en ekki hitt, hvort þeir geta flutt sig á milli frá menntaskólanum í verzlunarskólann. Það þykir náttúrlega ekkert athugavert, að embættismaður getur verið prófessor við háskóla með 51–52 þús. kr. laun og hann getur þess utan verið kennari í menntaskólanum með allt að 20 þús. kr. laun. Hann getur þess utan verið einhver allra fremsti og bezti starfsmaður í Alþingi og rækt það starf miklu betur en nokkur annar, með þeim litlu launum, sem þar eru. Þetta þykir kannske ekkert athugavert. En ég segi bara: Þá er prófessorsembættið of hátt launað, vegna þess að þar kemur ekki það starf á móti, sem þyrfti að koma, — og það er þetta, sem ég er að finna að. Svona má telja ákaflega víða, einmitt í embættismannakerfinu. Hinu furðar mig ekkert á, þó að hv. 4. þm. Reykv. standi hér upp og verji embættismennina. Það er eins og ég spáði áður en ég lauk mínu máli áðan, að þeir munu allir standa saman hér á Alþ., embættismennirnir í þessum flokki, eins og annars staðar, því að það er það, sem þeir gera.