15.01.1953
Neðri deild: 50. fundur, 72. löggjafarþing.
Sjá dálk 756 í B-deild Alþingistíðinda. (820)
181. mál, ríkisreikningar
Hannibal Valdimarsson:
Herra forseti. Það er ríkisreikningurinn fyrir árið 1950, sem hér er nú til umr. og afgreiðslu, og verður ekki annað sagt en að endurskoðun ríkisreikninga er fullmikið á eftir réttri áætlun. Það hefði verið miklu eðlilegra og æskilegra, að það hefði verið ríkisreikningurinn fyrir árið 1951, sem hefði verið hér til afgreiðslu. Við erum nú í ársbyrjun 1953, og ef þessi mál hefðu verið í fullu lagi, þá hefði það átt að vera þannig. Heldur virðist þetta þó vera að þokast til réttrar áttar, því að fyrir nokkrum árum voru þessi mál enn þá meira á eftir áætlun. Þá var það stundum ekki fyrr en á fjórða ári frá lokum þess reikningsárs, sem verið var að fjalla um, að Alþ. hafði málið til endanlegrar meðferðar. Þessi seina afgreiðsla Alþ. á ríkisreikningum veldur því, að það aðhald, sem ætla mætti að Alþ. gæti veitt í fjárstjórn ríkisins, er í raun og veru ekkert, þegar þetta ber svona að.
Ég tók eftir því, að hv. þm. V-Húnv. lagði yfirleitt ekki mikið upp úr aths. yfirskoðunarmannanna og ræddi aðallega málið á þeim grundvelli, að sumar þær aths., sem yfirskoðunarmennirnir gerðu, væru ekki veigamiklar og ekki mikið tilefni til þeirra, þar sem allt eins mikil ástæða væri í sumum tilfellum til þess að gera harðari aths. við aðrar ríkisstofnanir, heldur en þeir tækju sérstaklega sem dæmi. Þessi orð féllu hjá honum út af aths. yfirskoðunarmannanna í sambandi við ríkisútvarpið. Hann taldi, hv. þm. V- Húnv., að það, sem að væri fundið hjá ríkisútvarpinu, ætti sér stað í enn þá ríkari mæli hjá öðrum ríkisstofnunum. Nú skal ég ekki ræða um það, en mér finnst þessi samanburður ekki snúast um þungamiðju málsins. Það er vitanlega engin afsökun fyrir ríkisútvarpið, ef það virðir ekki fjárlög, þó að aðrar ríkisstofnanir geri það ekki heldur, en væri full ástæða til, ef þetta á sér almennt stað, að víta hvort tveggja. En hins vegar tek ég undir það með hv. þm. V-Húnv., að ef sá, sem minna er sekur, er tekinn sem dæmi, en þagað um þann, sem hefur brotið meira af sér, þá finnst mér það skjóta skökku við hjá endurskoðendunum, og er ég þó ekki að fella neina sök á þá um það, af því að ég hef ekki gengið úr skugga um það sjálfur.
Hv. þm. V-Húnv. upplýsti hér áðan, til staðfestingar á þeirri fyrri staðhæfingu hans, að hann teldi nokkuð mikið útistandandi af tekjum ríkisins, að útistandandi væru 24 millj. kr. Ég verð að segja það, að sé þetta rétt, þá finnst mér þetta furðu há upphæð — 24 millj. kr. útistandandi. Hann tók ýmis dæmi um upphæðir, sem væru útistandandi hjá hinum ýmsu sýslumönnum og bæjarfógetum, og fannst mér líka, að þær upphæðir væru sumar (Gripið fram í: Þm. A-Húnv.) Þetta var þm. A-Húnv. Ég vildi það sagt hafa, því að ég var að beina máli mínu nú til hans. Ef ég hef sagt, að það væri hv. þm. V-Húnv., þá hefur það verið mismæli. — Það var hv. þm. A-Húnv., sem upplýsti, að útistandandi hefðu verið 24 millj. kr. í árslok 1950, skilst mér. Mér þykir ástæða til að spyrja hæstv. fjmrh.: Telur hann þetta vera normalt ástand í innheimtumálunum hjá ríkinu, og hefur fjmrh., hver sem hann nú er, aðstöðu til að veita þarna strangara aðhald, eða telur hann ástæðu til að leita til Alþ. um breytt lagaákvæði, til þess að hægt verði fremur að kippa þessu í lag? Það gerði hæstv. ráðh. t.d., þegar honum þótti mjög úrskeiðis fara um innheimtu söluskattsins. Þá fékk hann breytingu — að mig minnir — á löggjöf til þess að geta innheimt með harðari innheimtuaðferðum þann skatt, sem innheimtist illa, einkanlega sökum þess, hversu óvinsæll hann var og gekk nærri mörgum. Þetta langar mig til þess að vita frá hæstv. ráðh., til þess að geta þá myndað mér skoðun um, hvort líklegt væri, að þessar óinnheimtu upphæðir af ríkistekjum gætu farið lækkandi.
Það var hv. þm. A-Húnv., sem líka sagði það, að það sýndist svo sem forstöðumenn ýmissa ríkisstofnana teldu sér ekki skylt að fara eftir fjárl. Mér þykir þetta anzi í skyggilegar upplýsingar, ef það er svo, að forstöðumenn ríkisstofnananna nokkuð almennt sniðganga fjárlög og ástandið hjá þeim er þannig, að yfirskoðunarmennirnir telja ástæðu til að ætla, að þeir telji sér ekki skylt að virða ákvæði fjárl. og fara eftir þeim, því að þá hljóta, þegar svona nokkuð er sagt af trúnaðarmanni ríkisins, að vera nokkuð mikil brögð að því, að ekki sé farið eftir fjárlagaákvæðum. Og því vil ég aftur spyrja hæstv. fjmrh.: Er hann sömu skoðunar og yfirskoðunarmennirnir um þetta? Telur hann, að þess sjáist víða dæmi, að forstöðumennirnir telji sér ekki skylt að hlýða fjárlagafyrirmælum, og telur hæstv. fjmrh. sér unnt að veita þarna fastara aðhald? Ríkisstofnanirnar ættu í flestum tilfellum að geta farið eftir ákvæðum fjárl., þar sem mér er kunnugt um það, að það eru stjórnendur ríkisfyrirtækjanna, sem á hverjum tíma gera áætlanir um útgjöld viðkomandi fyrirtækja og tekjuþörf, og í langflestum tilfellum er af fjvn. og Alþ. gengið inn á þeirra eigin áætlanir um tekjur og gjöld og í langflestum tilfellum áætlanir þeirra í öllum aðalatriðum teknar upp í fjárl. Það liggur nærri því í augum uppi, að ef þetta er ýkjulaust og rétt, að forstöðumenn ríkisfyrirtækja unnvörpum fari ekki eftir ákvæðum fjárl., þá er næsta tilgangslítið að vera að basla við að semja fjárl., tilgangslítið að vera að eyða 9 manna starfi í setuna í fjvn. og allt það strit, sem í það er lagt að vera að gera athugasemdir við þetta frá ári til árs.
Ég tók eftir því, að hæstv. ráðh. ræddi aðallega um ríkisábyrgðirnar og sagði, að það mundi koma til greiðslna á 7 millj. kr. sem föllnum ríkisábyrgðum. Þetta er nokkuð há upphæð, en ég býst við því, að hæstv. fjmrh. eigi mjög í vök að verjast um þetta og að hann hafi spyrnt við fótum í því efni eins og honum hefur verið unnt, og tel ég nú, að þetta sé kannske ekki eins ískyggilegt og hann vildi vera láta, því að mikið af þessum ríkisábyrgðum, þótt einu sinni komi til greiðslu hjá ríkissjóði, á og hlýtur að greiðast aftur í mörgum tilfellum — og við viljum vænta í flestum tilfellum. Það er t.d. ástæða til að ætla, að það, sem ríkið hefur greitt fyrir virkjun eins og Andakílsárvirkjunina fram til þessa, muni endurgreiðast, þegar það fyrirtæki hefur getað fengið aðstöðu til að byggja út svo sitt kerfi, að raforkusalan standi undir útgjöldum fyrirtækisins, og ef til vill gerir það innan stundar, nokkru betur. Þar með ætti að létta á ríkinu um ábyrgð að því er þetta fyrirtæki snertir og ef til vill innan skamms tíma að endurgreiðast eitthvað verulegt af þeim ríkisábyrgðum, sem ríkið hefur orðið að taka á sig á undanförnum árum fyrir þá virkjun þeirra Borgfirðinga. Á sama hátt fer væntanlega, þegar búið er að byggja að fullu raforkuver þeirra Siglfirðinga, sem ekki hafa enn þá byggt nema eina vélasamstæðu, en eiga eftir að bæta annarri við, og er mér tjáð, að þá breytist gersamlega rekstrargrundvöllur þess fyrirtækis og séu þá líkur til, að það þurfi ekki á ríkisaðstoð að halda, heldur gætu miklu fremur vaknað vonir nm, að það gæti þá endurgreitt það, sem ríkið hefur greitt vegna þeirrar virkjunar.
En ég hygg, að eitthvað sé nú áreiðanlega, sem aflaga fer, þegar hv. yfirskoðunarmenn halda fast á sínu máli og eru óánægðir með, að Alþingi leggi lítið upp úr þeirra athugasemdum frá ári til árs, og skilst mér, að það hljóti eitthvað að búa á bak við, þegar hv. þm. A-Húnv. sem yfirskoðunarmaður og trúnaðarmaður Alþ. og ríkisstj. endar ræðu sína á því, að það þýði raunar ekki að vera að rekja það hér, hvernig með þessi mál sé farið, en það voru orð, sem hann viðhafði hér áðan, og þá líkar honum sýnilega ekki, hvernig með þessi mál sé farið. Það er a.m.k. ekki hægt að segja, að það séu ofstækisfullir stjórnarandstæðingar, sem hér séu að gagnrýna fjármálastjórnina og framkvæmd hennar. Það eru fulltrúar úr stjórnarliðinu, sem hér eru að verki, og veit ég, að þeir hafa þarna ekki verið að gera árásir á ríkisstjórn sína að ófyrirsynju. Þarna er eitthvað vangert og að einhverju leyti ekki nógu fast á málum haldið í fjármálastjórninni, og skal ég þar ekki eingöngu hafa hæstv. fjmrh. fyrir sökum. Það er ef til vill margra sök, og ef til vill má rekja þetta til forstöðumanna ríkisfyrirtækja, sem ekki séu eins ábyrgir í sinni fjármálastjórn og þeir ættu að vera sumir hverjir.