15.01.1953
Neðri deild: 50. fundur, 72. löggjafarþing.
Sjá dálk 765 í B-deild Alþingistíðinda. (825)

181. mál, ríkisreikningar

Pétur Ottesen:

Tilefnið til þess, að mig langaði að segja hér fáein orð, eru þær aðfinnslur, sem hv. 3. landsk. (GÞG) gerði að því er snertir 11. aths. við landsreikninginn 1950, um greiðslu til þess að endurbyggja hafnarmannvirki á Bíldudal. Hv. 3. landsk. vék orðum að því, að hér mundi hafa að einhverju leyti verið hafður óeðlilegur háttur á um greiðslu á fé úr ríkissjóði, og lét orð að því falla, að fjvn. mundi þarna e.t.v. eiga hlut að máli, þannig að nefndin hefði lagt til við ríkisstj. að ráðstafa fé í þessu skyni, sem ekki lægi fyrir fullkomið samþykki til frá Alþingi. Þessi athugasemd á sýnilega rót sína að rekja til þess, að það óhapp vildi til, að olíuskipið Þyrill rakst á og braut bryggjuna á Bíldudal, þannig að bryggjan varð gersamlega ónothæf. Af þessu leiddi það, að þeim mönnum, sem byggja Bíldudal og hafa aðalatvinnu sína af sjósókn og sjávarafla, var gersamlega fyrirmunað, við það að missa afnot bryggjunnar, að stunda þennan lífsbjargaratvinnuveg kauptúnsbúa. Hér varð þess vegna að grípa til ráða, svo framarlega sem ekki átti að draga til algers öngþveitis um lífsafkomu fólksins á þessum stað. Nú var eðlilegt, að gerð væri krafa til þess, að þeir, sem stóðu að olíuskipinu Þyrli, sem er ríkissjóður, en skipið er gert út á vegum Skipaútgerðarinnar, — að krafa væri borin fram um það til þess aðila, að hann bætti þetta tjón, og voru fengnir til þess dómkvaddir menn að meta, hve þessi skaði væri mikill eða hvað það mundi kosta að koma bryggjunni í það ástand, sem hún áður var, svo að hún gæti veitt þá þjónustu að vera liður í bjargræðisútvegum þessa kauptúns. Nú vildi sá aðili ekki ganga inn á þá skaðabótakröfu, sem gerð var, þ.e. Skipaútgerðin fyrir hönd ríkissjóðs, og var þess vegna þetta mál látið ganga þá eðlilegu leið að fá um það dómsúrskurð, að hve miklu leyti þessi aðili væri skaðabótaskyldur vegna þessa óhapps eða þessa verks. En þess var enginn kostur að biða með aðgerðir á bryggjunni á Bíldudal eftir því, að úr þessu yrði skorið með dómi. Þess vegna var farin sú leið — og sú eina leið, sem fær var í þessu efni, — að ríkissjóður hlypi þarna undir bagga til þess að greiða fram úr þeim vandræðum og gersamlegu atvinnuniðurfellingu á staðnum, sem leiddi af því að bryggjan eyðilagðist. Í bréfi fjvn., sem skýrir frá samþykkt, sem gerð var í fjvn., er ríkisstj. bent á nauðsyn þess að greiða úr þessu máli og leggja fram fé til þess, að gert yrði við bryggjuna, þangað til dómsúrskurður félli um þetta, enda yrði þetta framlag ríkissjóðs endurgreitt af því fé, sem dómur kvæði á um að Skipaútgerðin ætti að greiða, en að því leyti sem það hrykki ekki til, ef dómurinn félli á þá lund, þá yrði til viðbótar veitt nokkurt fé úr hafnarbótasjóði, svo að verkinu yrði lokið. Þess vegna var fjvn. ekki með þessu að leggja til, að farið yrði fram hjá Alþingi um fjárgreiðslur í þessu efni, því að það er vitað, að fjárgreiðslur úr hafnarbótasjóði hafa ekki komið til kasta Alþingis, heldur er það viðkomandi rn., sem á hverjum tíma veitir nokkurt fé úr hafnarbótasjóði til hafnarmannvirkja til viðbótar því fé, sem ákveðið er í þessu skyni í hvers árs fjárlögum.

Ég vildi aðeins láta þetta koma fram, af því að það mátti skilja ummæli hv. 3. landsk. á þann veg, að með þessari samþykkt hefði fjvn. eitthvað farið út fyrir það svið gagnvart Alþingi, sem henni nú að sjálfsögðu er markað. Nú veit ég ekki um það, hvernig dómur hefur fallið um þetta eða hvort það mál er til lykta leitt. En það fé, sem Skipaútgerðin eða ríkissjóður verður dæmdur til að greiða, gengur að sjálfsögðu til endurgreiðslu á þeirri upphæð, sem þarna var lögð fram, eftir því sem hrekkur til. — Þetta vildi ég láta koma hér fram fyrir hönd fjvn. eða þeirra manna, sem að þessu stóðu, en hitt held ég að allir hljóti að vera sammála um, að það varð að bæta úr svo fljótt sem mögulegt var því ástandi, sem skapaðist á Bíldudal fyrir það, að þessi eina hafnaraðstaða eða lendingaraðstaða, sem til er í kauptúninu, gereyðilagðist og lokaði öllum leiðum fyrir kauptúnsbúum til þess að hagnýta sinn aðalatvinnuveg, sjávarútveginn.

Ég skal svo aðeins bæta því við, að mér virtust falla nokkur kaldyrði hjá hæstv. fjmrh., sem þá sérstaklega var vist beint til fjvn., — hann nefndi hana nú ekki beinlínis, heldur einstaka menn hér á Alþ., sem hefðu verið með einhverja óeðlilega sýtingssemi eða smásálarhátt gagnvart ríkisútvarpinu og þeirri fjármeðferð, sem þar hefur átt sér stað. Mér er alls ekki kunnugt um, að ríkisútvarpið hafi neitt verið tekið út úr hvað þetta snertir. Fjvn. hefur ávallt sýnt viðleitni til þess að skapa stofnunum ríkisins nokkurt aðhald um fjárgreiðslur. Það er vitað, að þetta hefur stundum náð skammt, eins og t.d. hjá ríkisútvarpinu, að þrátt fyrir það þó að Alþingi hafi markað því bás um fjárgreiðslur eða fjármeðferð yfirleitt, þá hefur það oft og iðulega gripið til þess ráðs að fara þar allmikið fram úr og hafa að engu þá hámarksupphæð, sem Alþingi hafði ákveðið, að það mætti nota. Og þetta eru ekki einstakir þingmenn innan fjvn., sem að þessu hafa staðið, og ekki heldur fjvn. ein, því að tillögur um aðhald að ríkisútvarpinu og öðrum stofnunum hafa yfirleitt, eins og aðrar tillögur n., verið samþ. með samhljóða atkvæðum hér á Alþingi. Þess vegna eru þau ummæli, sem hæstv. ráðh. virtist vera að bera hér fram gagnvart einstökum mönnum, eins og hann orðaði það, borin fram gagnvart Alþingi í heild, sem hefur samþ. þessar till. — Ég vildi aðeins láta þetta koma hér fram, að viðleitni í þessa átt hefur ekki beinzt gagnvart ríkisútvarpinu, frekar en öðrum stofnunum ríkisins, sem reynt hefur verið að skapa aðhald í þessu efni. Og ég veit ekki betur en hæstv. fjmrh. hafi yfirleitt viðurkennt þessa stefnu og viðleitni fjvn. alveg eðlilega og verið henni samþykkur í öllum atriðum og meira að segja lokið nokkru lofsorði á n. fyrir viðleitni hennar í þessa átt.