15.01.1953
Neðri deild: 50. fundur, 72. löggjafarþing.
Sjá dálk 767 í B-deild Alþingistíðinda. (826)
181. mál, ríkisreikningar
Gylfi Þ. Gíslason:
Herra forseti. Með orðum mínum um bryggjutjónið á Bíldudal átti ég auðvitað ekki við það, að ekki hafi verið nauðsynlegt að gera þegar í stað ráðstafanir til endurbóta á því bryggjutjóni, sem varð. Það var auðvitað sjálfsagt. Hitt var annað mál, hvort það var hin eðlilegasta leið að greiða kostnaðinn við þetta beint úr ríkissjóði eins og á stóð. Ég bygg, að ekki verði talið ástæðulaust, þó að á það sé bent, að þetta sé óvenjulegt og að þetta kunni að skapa fordæmi, sem geti orðið ríkissjóði dýrt. Það var þetta, sem ég átti við, og sömu skoðunar virðast hinir þrír ágætu endurskoðunarmenn landsreikninga hafa verið og vera, þar eð þeir benda á það í till. sínum í tilefni af svörum ráðh., og segja þar eftirfarandi, með leyfi hæstv. forseta: „En engu er svarað til um þá erfiðleika, sem þessi greiðsla hefur valdið Skipaútgerðinni, og heldur ekki um það, hvort það opinbera hafi fyrirskipað áður slíkar greiðslur, áður en dómur um slík mál fellur.“ Og þess vegna er athugasemdin talin til athugunar framvegis. — Það var þetta, hið óvenjulega í meðferð málsins, sem ég var að gagnrýna, en að sjálfsögðu alls ekki þær framkvæmdir, sem þarna voru gerðar og voru sjálfsagðar og bráðnauðsynlegar.
Hæstv. fjmrh. sagði áðan í sinni ræðu, að það væri hégómaskraf að nefna það, að það væri e.t.v. ekki til svo mjög mikils að vera að ræða um einstakar athugasemdir við reikning, sem væri orðinn tveggja ára gamall. Ég minnist þess, að á fyrsta þingi, sem ég sat hér, hélt hv. þm. V-Húnv. mjög skelegga ræðu um ríkisreikninginn, sem þá var til umr. Það var kjarninn í hinni mjög svo skeleggu ræðu hans, að það væri óverjandi að hafa tveggja og þriggja ára gamla ríkisreikninga til umræðu, því að það væri í raun og veru alveg þýðingarlaust að vera að ræða einstakar aths. um svo gamla ríkisreikninga. Þá heyrðist það ekki frá hæstv. núverandi fjmrh., að slíkar aths. væru hégómaskraf. Og raunar var ekki jafnmikill skörungsskapur í aðfinnslum hv. þm. V-Húnv. yfir aldri ríkisreikningsins nú og þá var, og munu allir fara nærri um ástæðurnar fyrir því. En hitt er annað mál, að bæði hann og hæstv. fjmrh. hafa játað, að það er óverjandi, að tveggja ára gamall ríkisreikningur skuli vera hér til umræðu, hann ætti ekki að vera eldri, en rúmlega eins árs, og um það er ég þeim algerlega sammála.