28.01.1953
Efri deild: 57. fundur, 72. löggjafarþing.
Sjá dálk 777 í B-deild Alþingistíðinda. (853)

32. mál, ættleiðing

Frsm. (Lárus Jóhannesson):

Herra forseti. Allshn. hefur athugað frv. þetta, og nál. hennar er birt á þskj. 591. Eins og nál. þetta ber með sér, leggur n. til, að frv. verði samþ., en þó þannig, að gerðar verði á því tvær breytingar, þar sem Nd. hafði gert breytingu á upprunalega stjfrv. Önnur breytingin til samræmis við upprunalega stjfrv. er, að felldir verði niður 2. og 3. málsl. 1. málsgr. 1. gr., þar sem bannað er, að eldri mönnum en 65 ára séu veitt leyfi til að ættleiða yngra barn en 16 ára. Þessi takmörkun var ekki í upprunalegu frv. stj., sem var mjög vandað að frágangi, en bætt inn í það í Nd. Þar sem hér er um að ræða heimild til ráðherra til þess að veita leyfi til ættleiðingar og þar sem sjálfsagt verður að ganga út frá því sem gefnu, að það leyfi verði ekki veitt nema að athuguðum öllum aðstæðum og þá þess sérstaklega gætt, að það sé þeim, sem ættleiddur er, til hags, þykir ekki ástæða til þess að setja bann við þessu. Það getur í ýmsum tilfellum leitt til misréttis, og vil ég t.d. leyfa mér að benda á, að ef hjón, þó að eldri séu en 65 ára, vilja t.d. ættleiða barn fóstursonar eða fósturdóttur, sem hefur látizt, þá er engin ástæða til þess að banna það, þó að eðlilegt sé, að aðalreglan sé sú, að gömlu fólki verði ekki leyft að ættleiða ung börn, því að uppeldissjónarmið hefur auðvitað mikið að segja í þessu sambandi. N. leggur því til, að þetta verði fært aftur í sama horf og var, til þess að fyrirbyggja, að til misréttis eða ranglætis geti leitt í einstaka tilfellum.

Þá var í upprunalega frv. 19. gr., þar sem sagt var, að ef kjörforeldri og kjörbarn gengju í hjónaband, þá félli ættleiðing niður. Í Nd. var þessi grein felld burt úr frv., sennilega vegna þess, að þetta tilfelli er ákaflega sjaldgæft, þó að ekkert sé því til fyrirstöðu að lögum, ef skyldleiki eða aðrar tálmanir eru ekki því til fyrirstöðu. Ég þekki t.d. eitt dæmi, þar sem maður gekk að eiga uppeldisdóttur sína, þó að mér sé ekki kunnugt um, hvort hún var ættleidd eða aðeins fósturdóttir. Þetta er því ekki alveg ópraktískt tilfelli, en þá virðist rétt að segja nákvæmlega fyrir um, hvernig fara skuli um þá aðstöðu, sem myndast við ættleiðinguna. Þetta getur haft mikið að segja, sérstaklega í sambandi við erfðaréttindi, og þykir rétt, að það sé tekinn af allur vafi um þetta fyrir fram.

Þetta frv., eins og það liggur fyrir, er í samræmi við lög um ættleiðingu eins og þau eru á Norðurlöndum, eins og flest lög okkar nú á fjölskylduréttarsviðinu. Það hefur verið nákvæmlega undirbúið og athugað, og nú er orðið talsvert algengt, að ættleiðing sé leyfð hér á landi, eða að meðaltali í kringum 50 ættleiðingar á ári undanfarin ár.

Að einu er þó frv. frábrugðið því, sem er í hinum Norðurlandalögunum, og það er í 11. gr., þar sem segir í 2. málsl. 1. málsgr., að framfærsluskyldu kjörbarns og foreldris þess ljúki við ættleiðinguna. Á hinum Norðurlöndunum mun sú framfærsluskylda halda áfram, þó að hún víki fyrir ættleiðingunni á meðan hægt er að uppfylla þær skyldur af hálfu ættleiðanda og hins ættleidda. Þetta er nokkur réttarskerðing hjá þeim ættleidda eftir íslenzkum lögum, miðað við það, sem er í hinum Norðurlandalögunum, en þar sem þetta fyrirkomulag var komið inn í íslenzk lög með 5. og 6. gr. framfærslulaga, nr. 80 frá 1947, um framfærsluskylduna, en um erfðirnar með 18. gr. erfðalaganna, nr. 42 frá 1949, þá þótti ekki rétt að fara að gera breytingar á því.

Ég sé svo ekki ástæðu til að fjölyrða um þetta frv., sem ég efast ekki um að hv. deildarmenn hafa kynnt sér, en vil leyfa mér f. h. nefndarinnar að leggja til, að það verði samþ. með þeim breyt., sem ég hef getið um.