30.10.1952
Efri deild: 18. fundur, 72. löggjafarþing.
Sjá dálk 54 í B-deild Alþingistíðinda. (86)

12. mál, gengisskráning o. fl.

Páll Zóphóníasson:

Herra forseti. Ég vil fyrst og fremst láta í ljós þakklæti mitt til frsm. n. fyrir það að ætla nú að reyna að sameina þessi tvö frv., sem hér liggja fyrir um breyt. á sömu l., í eitt. Mönnum er ekki of létt að finna og fylgjast með öllum þeim breyt., sem gerðar eru á l. hér á landi, þó að við þurfum ekki í sömu stjórnartíðindunum að leita að fleiri breyt. en einni á einhverjum ákveðnum l. Ég hef áður á a.m.k. tveimur þingum deilt á þetta, þegar verið er að breyta sömu l. á sama þinginu með fleiri frv. um lagabreytingar, og mér þykir ákaflega vænt um, að n. ætlar að reyna að taka þær til athugunar og láta þetta ekki henda nú í þetta sinn.

Út af einu atriði, sem frsm. sagði, langar mig svo til að bæta nokkru við. Hann sagði, að það væri sýnilegt, að sá víxlgangur, sem ætti sér stað milli afurðaverðs og kaupgjalds hér á landi, gæti ekki haldið áfram endalaust, — hann yrði að stoppa. Hins vegar taldi hann, að n. sæi ekki neina leið til þess að stoppa hann nú. Nú er það öllum vitanlegt, að á hverju hausti um mánaðamótin september og október kemst á jafnvægi á milli kaupgjaldsins og verðs þeirra afurða, sem framleiddar eru í landinu og með l. er ákveðið verð á, og þess vegna stöndum við einmitt núna á því stigi, að það er nýbúið að samræma landbúnaðarafurðaverðið við kaupgjaldið, eins og það var s.l. ár, — við stöndum á því stigi núna. Við stöndum á því stigi núna, að það er nýtt kapphlaup að byrja eða þá byrjað, með því að kaupgjald hækki, sem svo aftur leiðir til hækkaðs afurðaverðs um mánaðamótin september–október næsta haust. Þess vegna vil ég beina því mjög ákveðið til n., hvort hún ekki sér sér fært að stoppa þetta kapphlaup. Það lítur út fyrir, eftir því sem sagt er, að sá aðilinn, sem nú á leikinn til að hækka það og getur haldið áfram að hækka það allt næsta ár, eða fram í septemberlok, sé nú 1. desember að segja upp kaupsamningum og langi í kapphlaupið áfram. Hann veit, að hann á næsta ári ber dá- lítið úr býtum. Það hækka ekki t.d. neinar landbúnaðarvörur, þangað til í sept. n.k., nema eitthvað kannske fyrir frystikostnaði, ef það þá verður leyft, annað ekki, — hann veit það, og þess vegna sér hann, að hann á árinu getur kannske unnið eitthvað á hvað þetta snertir, en fær það svo allt saman yfir sig aftur næsta haust. Þá verður það allt saman umreiknað og kemur aftur fram í hærra afurðaverði. Þess vegna vil ég mjög ákveðið biðja n. að athuga það, hvort hún getur ekki stöðvað þetta með því að ákveða í frv., að næsta ár skuli hvorki verða kaupgjalds- né afurðaverðshækkun í landinu. Það yrði þá óbreytt, og stöðvaðist þá kapphlaupið milli kaupgjalds og afurðaverðs, sem hefur verið og hefur skrúfað þetta alltaf á víxl upp sitt á hvað. Ég vil biðja n. að athuga það. Ég mun fylgja því alveg ákveðið, ef það kemur hér fram, — alveg ákveðið.