19.01.1953
Efri deild: 51. fundur, 72. löggjafarþing.
Sjá dálk 797 í B-deild Alþingistíðinda. (898)
184. mál, framkvæmdabanki Íslands
Frsm. minni hl. (Brynjólfur Bjarnason):
Herra forseti. Eins og hv. frsm. meiri hl., hv. 1. þm. Eyf., sagði í sinni ræðu, hefur fjhn. klofnað um mál þetta. Meiri hl. vill láta samþ. frv., en ég legg til, að frv. verði vísað frá með rökstuddri dagskrá.
Við fyrstu sýn virðist frv. þetta næsta furðulegt plagg. Það á að stofna nýjan banka með mjög viðtækum verkefnum við hliðina á þeim fjórum bönkum, sem fyrir eru í landinu. Auk þess á þessi banki að taka að sér það hlutverk, sem fjárhagsráð var á sínum tíma, sællar minningar, stofnað til þess að rækja. Ýmsum mun virðast, að þenslan í opinberum rekstri sé nú orðin ærin, þó að ekki sé bætt við nýju, umfangsmiklu bákni eins og þessum nýja banka. Það mun ýmsum finnast, að ríkisbáknið sé orðið nægilega kostnaðarsamur baggi á þjóðinni, þó að allt þetta bætist ekki ofan á.
En þegar frv. er athugað nánar, þá koma þó enn þá undarlegri hlutir í ljós. Stofnfé bankans skal vera, samkv. 3. gr. frv., skuldabréf fyrir lánum úr mótvirðissjóði og hlutabréf ríkisins í þremur fyrirtækjum, áburðarverksmiðjunni, raftækjaverksmiðjunni og Eimskipafélagi Íslands. Sá hluti af fé mótvirðissjóðs, sem ekki er notaður til Sogs- og Laxárvirkjunarinnar og áburðarverksmiðjunnar, skal svo afhentur bankanum til umráða á 25 árum auk vaxta af þessu fé. Allt handbært fé bankans skal geymt í Landsbankanum, og hann skal annast öll afgreiðslustörf fyrir hinn væntanlega Framkvæmdabanka. M.ö.o., hlutverk bankans er ráðstöfun á fé, sem nú er í vörzlu annarra banka og verður geymt þar áfram, fé, sem sérstaklega er ætlað til stofnlána og til fjárfestingar yfirleitt. Spurningin er þá: Hvað verður um aðra sjóði, sem ætlaðir eru til stofnlána, svo sem fiskveiðasjóðinn og ræktunarsjóðinn? Samkv. 21. gr. frv. á Framkvæmdabankinn að hafa nána samvinnu við þá opinbera aðila, sem hafa fjárfestingarmál með höndum. Það er þess vegna auðséð, að honum er líka ætlað að ráðskast með fé þessara sjóða, enda er það í samræmi við aðalhlutverk bankans samkv. frv., að hafa yfirstjórn yfir allri fjárfestingu í landinu. Það er því ekki neitt smáræðis vald, sem þessum þanka er fengið í hendur. Hann á að drottna yfir sameiginlegum fjármunum þjóðarinnar og er þar með fengið algert drottnunarvald í efnahagsmálum Íslands.
Hvers konar stofnun er svo þessi banki, sem fær þetta mikla vald í hendur? Þegar frv. er athugað, þá sést, að stofnunin er í rauninni einn maður, bankastjórinn, og utan um hann er svo 5 manna bankaráð. En enda þótt allt þetta mikla vald eigi að afhendast einum manni, þá er engin hætta á því, að ekki hlaðist fljótlega utan á hann gífurlegt skrifstofubákn. Það getur maður ímyndað sér, þegar athuguð eru verkefni hins undarlega banka, eins og þau eru ákveðin í 7. gr. Bankinn á ekki aðeins að veita lán til langs tíma og vera ríkisstj. til ráðuneytis í fjárfestingarmálum, eins og það er orðað í frv., heldur og að verzla með verðbréf og hlutabréf, sem gæti með tímanum orðið allumfangsmikið brask. Hann á að afla lánsfjár erlendis. Hann á að vasast í framkvæmdum einkaaðila. Hann á að annast rannsókn varðandi fjárfestingarþörf atvinnuveganna, og hann á að greiða fyrir nýjungum í atvinnurekstri, svo að það er ekkert smáræði, sem á að gera í þessari stofnun. Yfirleitt er bankanum ætlað að taka að sér öll meginverkefni fjárhagsráðs. En það er hins vegar aldeilis ekki meiningin að leggja fjárhagsráð niður. Til þess að forðast allan misskilning er það skýrt tekið fram í grg. frv. Þar er svo skemmtilega komizt að orði, að fjárhagsráði sé ætlað að stjórna fjárfestingunni í smáatriðum. Það er væntanlega smáatriði að leggja höft á framkvæmdir einstaklinga, sem verið hefur nú eitt af tímafrekustu störfum fjárhagsráðs til þessa. Ekki veit ég, hvernig þjóðin hefur komizt af, á meðan hún hafði hvorki fjárhagsráð né Framkvæmdabanka. Nú dugir hvorki meira né minna en tvær miklar stofnanir í þessu litla, fátæka landi til þess að stjórna fjárfestingunni, aðra í smáatriðum, hina í stórum atriðum, og einhverjir fá þá væntanlega atvinnu víð bréfaskipti milli þessara voldugu stofnana. Nú er ekki verið að horfa í kostnaðinn af opinberum rekstri, og ekki þykja álögurnar á almenning enn of miklar.
Þá er spurningin: Hver er tilgangurinn með þessu öllu saman? Um það gefur grg. raunar nokkurn veginn fullnægjandi upplýsingar, þótt í stuttu máli sé. Efni frv. er samið af gjaldkera Alþjóðabankans og svo þýtt og fært í íslenzkan búning af bankamálanefnd, enda þótti mikils við þurfa að gefa bankanum fínt nafn á ensku, því máli, sem Bandaríkjamenn skilja. Frv. er sem sagt komið frá Alþjóðabankanum, stofnun, sem er undir bandarískum yfirráðum. Hér er því um bein erlend tilmæli — eða kannske réttara sagt erlend fyrirmæli að ræða. Rökin, sem hinir erlendu fjármálamenn færa fyrir þessum fyrirmælum sínum, eru einnig tekin fram í grg. Þar segir svo, með leyfi hæstv. forseta:
„Þess má geta, að á síðustu árum hafa í náinni samvinnu við Alþjóðabankann risið upp bankar svipaðs eðlis í öðrum löndum. Ástæða þessarar samvinnu er m.a. sú, að óhægt er fyrir stofnun eins og Alþjóðabankann að lána fé í framkvæmdir, sem á hans mælikvarða eru smávaxnar, eins og t.d. flestar framkvæmdir í landbúnaði. Kýs hann því heldur að lána slíkt fé fyrir milligöngu stofnunar, sem getur rækt það hlutverk, sem Alþjóðabankinn annars telur sig eiga að rækja gagnvart lántakanda.“
Hér er ekkert um að villast. Alþjóðabankinn treystir ekki þeim stofnunum, sem fyrir eru í landinu, til þess að rækja það hlutverk, sem hann „annars telur sig eiga að rækja gagnvart lántakanda“, eins og stendur orðrétt í grg. Þess vegna á að fela allt þetta mikla vald í rauninni einum manni, sem hinir erlendu fjármálamenn telja sig geta treyst sem fullkomnu verkfæri. Engum mundi koma það á óvart, þótt fyrir valinu yrði dr. Benjamín Eiríksson, aðalhöfundur gengislækkunarlaganna og nú um skeið helzti milligöngumaður milli íslenzkra stjórnarvalda og erlends fjármálavalds. Það er auðséð, að hinu erlenda fjármálavaldi þykja yfirráð sín yfir íslenzku efnahagslífi ekki nógu bein og milliliðalaus. Þess vegna vill það koma á fót fyrirkomulagi, sem tryggir því betur nær óskorað drottnunarvald, óháð breytingum, sem kunna að verða t.d. á stjórn landsins. Þessi stjórn, sem nú situr, er náttúrlega ágæt frá þeirra sjónarmiði, en hver veit, hvað við tekur? Að þetta er sú hugsun, sem fyrir höfundum frv. vakir, er m.a. auðséð á ákvæðunum um bankaráð, sem þannig er skipað, að það gæti um langt skeið verið í algeru ósamræmi við stefnu ríkisstjórnar landsins.
Við athugun n. á frv. kom ýmislegt athyglisvert í ljós. Það, sem mér þótti þó einna athyglisverðast, voru upplýsingar dr. Benjamíns Eiríkssonar, sem hann gaf n. á einum fundi hennar, þar sem hann var mættur samkv. hennar ósk. Dr. Benjamín var um það spurður, hvaða tilgang það hefði að afhenda bankanum sem stofnfé hlutabréf ríkisins í þeim fyrirtækjum, sem talin eru í 3. gr. frv., þ.e.a.s. áburðarverksmiðjunni, raftækjaverksmiðjunni og Eimskipafélagi Íslands. Benjamín svaraði, að hann hugsaði sér, að þessi hlutabréf yrðu seld síðar, og þá fer nú að verða ljósara en áður, sýnist mér, hvert var verið að fara, þegar áburðarverksmiðjunni var breytt í hlutafélag á sínum tíma. Eins og nú er, er hlutafé þess fyrirtækis, eins og kunnugt er, 10 millj. kr. Þar af eru 6 millj. ríkiseign og 4 millj. einkaeign. Uppkomin er gert ráð fyrir að verksmiðjan kosti á annað hundrað millj. kr., og það fé leggur ríkið til, að undanskildum 4 millj. kr., sem er hlutafé einkaaðila. Útkoman af þessu verður því sú, að þegar lánin til verksmiðjunnar eru að fullu greidd, þá hafa þessir einkaaðilar eignazt verðmæti, sem nema yfir 40 millj. kr., fyrir einar 4 millj. Og nú höfum við fengið upplýsingar um, hvað á að verða um hlut ríkisins samkv. þeirri hugsun, sem dr. Benjamín skýrði n. frá, að fyrir höfundunum vekti. Á fundi n. lét dr. Benjamín svo um mælt, að hugsunin væri sú, að bankinn losaði sig við þau hlutabréf, sem hann eignast, eins fljótt og unnt er. Nú er það eitt verkefni bankans að verzla með hlutabréf og önnur verðbréf samkv. 7. gr. Dr. Benjamín var um það spurður, hver ætti að vera tilgangurinn með slíkri verzlun. Hann svaraði, að tilgangurinn væri alls ekki að verzla með hlutabréf í hagnaðarskyni, heldur hitt, að hjálpa einkafyrirtækjum til þess að komast á legg. Ég geri ráð fyrir, að sama sjónarmiðið ríki, að því er tekur til áburðarverksmiðjunnar. Útkoman yrði þá sú, að fyrirtæki, sem mun kosta á annað hundrað millj. kr., yrði afhent einstaklingum og einkaaðilum til eignar fyrir 10 millj., enda mundi það að vonum þykja ósanngjarnt, að þeir fulltrúar einkafjármagnsins, sem síðar eiga að eignast 3/5 hluta eignarinnar, verði ekki látnir sitja við sama borð og sæta sömu kjörum og hinir, sem þegar hafa eignazt 2/5 hluta hennar fyrir 4 millj. Þetta getur maður nú kallað að hagnýta sér ríkisvaldið vel í þágu einkaauðmagnsins, og ég get hugsað mér, að það sé vel að skapi hinna bandarísku fjármálamanna.
Nefndin sendi frv. öllum bönkunum til umsagnar og sömuleiðis fjárhagsráði, eins og hv. frsm. meiri hl. skýrði frá í sinni ræðu. En meiri hl. n. ákvað að gefa þessum aðilum aðeins eins dags frest til þess að semja álit sitt. Það var á laugardegi, sem þeim var sent frv. til umsagnar, og þess óskað, að þeir skiluðu áliti sínu á mánudag. Þetta þótti mér nú furðuleg og ærið óvenjuleg ákvörðun, enda varð árangurinn alveg eins og vænta mátti. Enginn þessara aðila treysti sér til þess að semja neina álitsgerð á svo stuttum tíma. Efnisleg umsögn kom því aðeins frá Landsbankanum, en honum hafði verið gefinn kostur á að sjá frv. og athuga það áður en það var lagt fyrir Alþ. Ég hygg, að enginn bankanna sé samþykkur þessu frv., heldur sé þessu öfugt farið. Í svari Búnaðarbankans sérstaklega kom það í ljós (BSt: Það kom ekkert bréf frá Búnaðarbankanum.) Jæja, það komu skilaboð. Og í þessum skilaboðum Búnaðarbankans kom það í ljós, að stjórn bankans furðaði sig á því, að ekki skyldi vera haft samráð við alla bankana, áður en farið var á flot með slíka gerbreytingu á bankastarfsemi landsins.
Landsbankinn hefur farið þá leið að ræða lítið um frv. í heild sinni í sinni álitsgerð, sem hann hafði sent hæstv. viðskmrh. og sendi siðan n. afrit af, heldur ræðir hann um einstök atriði þess. Bankinn gagnrýnir mjög ýmis veigamestu atriði frv., svo sem ákvæðið um hlutabréfakaup og heimildina til erlendrar lántöku án samþykkis Alþ., og áður en frv. var lagt fram, hefur verið tekið tillit til aðeins eins atriðis, sem máli skiptir í gagnrýni bankans og raunar er ekki aðalatriði. En Jón Árnason bankastjóri og Baldvin Jónsson bankaráðsmaður höfðu báðir sent sérálit, sem einnig var sent afrit af til n. Álit Jóns Árnasonar er sérstaklega athyglisvert. Þar kemur nefnilega í ljós, að Jón Árnason er algerlega andvígur frv. Álit Jóns Árnasonar er prentað í nál. minni hl., og það er vel þess vert, að allir hv. alþm. kynni sér það vel og vandlega. Við skulum líta á nokkur aðalatriði þess.
Jón Árnason bendir fyrst á það, að til séu þrír bankar í landinu, — þeir eru nú raunar orðnir fjórir samkv. lögum, — og þá vaknar sú spurning, hvort þörf sé á að stofna nýjan banka. Síðan ræðir hann hlutverk hins nýja banka samkv. frv. lið fyrir lið. Hið almenna hlutverk bankans á að vera að efla atvinnulíf og velmegun þjóðarinnar og stuðla að auknum afköstum í framleiðslu og dreifingu. Þetta á að vera hlutverk allra íslenzkra banka, segir bankastjórinn, og því ekki þörf að stofna nýjan banka í því skyni, þ.e.a.s. ef nokkur meining felst í þessum orðum, bætir bankastjórinn við. — Þá ræðir hann nánar hin sundurliðuðu hlutverk bankans samkv. 7. gr. frv. Hann á í fyrsta lagi að vera ríkisstj. til ráðuneytis í fjárfestingarmálum. Nú, bankastjórinn bendir á, að ekki sé þörf nýs banka til þess að stjórnin geti öðlazt ráðunaut í fjárfestingarmálum; meðan fjárhagsráð starfar, á það einmitt að inna þetta hlutverk af hendi. Um verzlunina með hlutabréf og öflun lánsfjár erlendis segir bankastjórinn, að honum þyki mjög undarlegt, ef Alþingi vill fá ríkisbanka fullt og óskorað umboð til þess að kaupa á ábyrgð bankans hlutabréf í hvaða fyrirtæki sem bankastjórinn ákveður, og hann segir, að sér finnist það beinlínis með ólíkindum, að Alþingi vilji afsala sér rétti sínum til þess að taka ákvörðun um lántökur erlendís hverju sinni. Þetta er nú aðeins undirstrikun á þeirri gagnrýni, sem sett er fram í áliti Landsbankans. Í 8., 9. og 10. lið 7. gr. segir svo, að bankinn eigi að hafa samvinnu við einkaaðila, sem ráðast í framkvæmdir, og veita þeim stuðning; að hann eigi að annast rannsóknir í sambandi við fjárfestingu atvinnuveganna; að hann eigi að greiða fyrir nýjungum í framkvæmdum og atvinnurekstri. — Til þess að annast þessi verkefni, segir bankastjórinn, þarf heilan hóp sérfræðinga í þjónustu bankans, og hann kveðst ekki fá skilið, hvar alla þá sérfræðinga sé að finna, sem ekki eru bundnir við önnur störf, enda yrði kostnaðurinn ærinn. — Samkv. 20. gr. er Landsbankanum ætlað að annast dagleg afgreiðslustörf bankans. Bankastjórinn bendir á, að ekki þurfi að stofna nýjan banka til þess að annast verkefni, sem Landsbankanum er ætlað að hafa á hendi eftir sem áður. Sama athugasemd er raunar gerð í umsögn Landsbankans sjálfs og bent á, að einmitt þetta ákvæði geri verkefni Framkvæmdabankans, sem upp eru talin í frv., næsta þýðingarlítil. Niðurstaða bankastjórans verður því sú, að ekki verði séð, að þörf sé á að stofna nýjan banka til þess að taka að sér neitt af þeim verkefnum, sem upp eru talin. Ýmist eru þau öll framkvæmd af öðrum bönkum og verða svo einnig framvegis eða af fjárhagsráði eða þá að þau eru þess eðlis, að sízt verður að teljast heppilegt eða æskilegt að fela nokkrum banka slík verkefni. Það, sem bankastjórinn telur, að þá verði helzt eftir af raunverulegu starfssviði bankans, er að ákveða um útlán af þeim helmingi mótvirðissjóðs, sem ekki fer til landbúnaðarframkvæmda, og nú er komið að því, sem er mergurinn málsins, en það eru ummæli bankastjórans varðandi mótvirðissjóð og tillögur hans um, hvernig snúast skuli við þeim vanda, sem mótvirðissjóður og afskipti Bandaríkjanna eru orðin fyrir íslenzkt efnahagslíf.
Í áliti bankastjórans segir orðrétt um mótvirðissjóð, með leyfi hæstv. forseta:
„Ekki má veita fé úr sjóðnum, hvorki sem lán né til neins annars, án samþykkis Bandaríkjastjórnar, og virðist það í rauninni eðlilegt. En af því leiðir, að slíkar leyfisveitingar um meðferð mótvirðissjóðs hljóta að hafa í för með sér meiri eða minni afskipti af fjármálalífi landsins í heild.“
Síðan segir hann, og nú koma tillögur hans um meðferð mótvirðissjóðsins:
„En ef afskipti Bandaríkjastjórnar halda áfram, eftir að Framkvæmdabankanum hefur verið afhentur mótvirðissjóðurinn, álít ég, að ekki sé um nema tvær leiðir að ræða:
1. Að leita samninga við stjórn Bandaríkjanna um endurgreiðslu mótvirðissjóðsins. — Þessa leið álit ég æskilega og sjálfsagða, hvort sem um nokkur utanaðkomandi afskipti af fjárreiðum Framkvæmdabankans verður að ræða eða ekki, enda takist að ná samningum um það langan greiðslutíma, að þjóðinni verði ekki um megn að inna greiðsluna af hendi.
2. (Það er eiginlega varatillaga.) Ef þessi leið reynist ekki fær, að þá verði sett á laggirnar stofnun, sem eingöngu hafi með höndum vörzlu mótvirðissjóðsins og ráðstöfun á honum í samræmi við þau skilyrði, sem Bandaríkjastjórn kann að setja um meðferð hans.“
Síðan heldur hann áfram:
„Slík stofnun þyrfti ekki að vera kostnaðarsöm, og með því væri þá fullkomlega skilið á milli mótvirðissjóðsins og annarra fjármála á Íslandi, og það álít ég alveg óhjákvæmilegt.“
Þetta eru allt saman mjög skýrar tillögur, og hvað er það, sem lesa má út úr þeim? Ég held, að það fari ekki heldur milli mála. Bankastjórinn getur ekki fundið nein íslenzk rök fyrir þessari bankastofnun. Það er augljóst, að eini tilgangurinn, sem hann finnur, er sá að koma upp stofnun, sem hefur með höndum vörzlu og ráðstöfun þess fjármagns, sem um er að ræða, í samræmi við þau skilyrði, „sem Bandaríkjastjórn kann að setja um meðferð þess,“ svo að notuð séu orð Jóns Árnasonar sjálfs. Þess vegna er það tillaga hans í fyrsta lagi, að mótvirðissjóðurinn verði endurgreiddur til þess að losa landið við slík erlend afskipti. Hann telur æskilegt að fara þessa leið undir öllum kringumstæðum, að endurgreiða sjóðinn, ef þjóðinni er það ekki um megn, og hann telur það nauðsynlegt, ef Bandaríkin gera kröfur til áframhaldandi afskipta. En ef það nú skyldi koma í ljós, að Bandaríkin neita að taka við endurgreiðslu til þess að tryggja betur tök sín á fjármálalífi landsins, þá er það varatillaga hans, að sett verði á laggirnar stofnun, sem eingöngu hefur með höndum vörzlu mótvirðissjóðsins, til þess, eins og hann orðar það, „að skilja algerlega á milli mótvirðissjóðsins og annarra fjármála á Íslandi“, þ.e. taka upp þann hátt, sem takmarkar afskipti Bandaríkjanna svo sem frekast er unnt. Verði aftur sá háttur hafður á, sem gert er ráð fyrir í frv., þá hljóta þau afskipti, sem fram fara fyrir milligöngu Framkvæmdabankans, að varða meginatriði í öllu fjármálalífi landsins.
Ef við nú ættum enga aðra kosti en þá, sem Jón Árnason er þarna að gera ráð fyrir, þá væri ég vissulega sammála honum, en við eigum þriðja kostinn, og hann er sá að afþakka kurteislega öll erlend afskipti, og til þess er engin brýn nauðsyn að endurgreiða mótvirðissjóðinn, því að Alþingi hefur að minnsta kosti ekki undirgengizt neinar kvaðir aðrar en þær, sem snerta afskipti Bandaríkjamanna af ráðstöfun þess fjár, sem geymt er í íslenzkum bönkum sem mótvirði hins óafturkræfa framlags, mótvirðissjóðs í þrengri skilningi. Á fé því, sem inn kemur sem endurgreiðsla á lánum úr mótvirðissjóði, hvílir engin slík samningsbundin kvöð. Þess vegna er heldur engin ástæða til þess að verða við erlendum tilmælum eða fyrirmælum um stofnun þessa banka, og fyrir stofnun hans eru, að því er mér virðist, engin íslenzk rök, og þess vegna er ég andvígur frv.
Brtt. hv. meiri hl. fjhn. skipta engu raunverulegu máli. Það er gott, það sem það nær, að fella niður fyrirmælin um að afhenda Framkvæmdabankanum hlutabréf í Eimskipafélaginu og raftækjaverksmiðjunni, en það, sem fyrst og fremst skiptir máli, er áburðarverksmiðjan, og hlutabréf ríkisins í henni á bankinn að eignast samkvæmt till. meiri hl. Það er bitamunur en ekki fjár, hvort heimild bankans til þess að taka ríkistryggð lán erlendis án samþykkis Alþingis er takmörkuð við 80 millj. eða 100 millj. Aðalatriðið er, að Alþingi afsalar sér rétti, sem það undir engum kringumstæðum á að afsala sér. — Aðrar brtt. sýnast mér skipta harla litlu máli.