20.01.1953
Efri deild: 52. fundur, 72. löggjafarþing.
Sjá dálk 822 í B-deild Alþingistíðinda. (907)
184. mál, framkvæmdabanki Íslands
Frsm. minni hl. (Brynjólfur Bjarnason):
Herra forseti. Hv. frsm. sagði hér áðan, að þessi banki væri stofnaður vegna þess, að það væri erfitt að fá stofnlán og lán til langs tíma, og þess vegna þyrfti á sérstökum banka að halda til þess. Mér er nú þetta algerlega óskiljanlegt, hvernig það getur orðið auðveldara að fá stofnlán og lán til langs tíma, þó að sé stofnaður sérstakur banki, og hafa engin rök verið færð fyrir því, en ég kem síðar að þessu atriði, vegna þess að þetta eru nokkuð lík rök og hæstv. fjmrh. hélt fram í sinni frumræðu við 1. umr. málsins hér í þessari hv. d. Þá vildi hv. þm. ekki viðurkenna, að það væri rétt hjá mér, að þessum banka væri falið eins konar alræðisvald í fjármálum þjóðarinnar. Nú, ég held því fram, að þessum banka sé falið geysilega mikið vald, sem megi heita drottnunarvald í efnahagslífi þjóðarinnar. En hv. þm. færði þau rök fyrir sínu máli, að Alþ. gæti hvenær sem væri afnumið þessi lög. Þetta eru nú með einkennilegri rökum, sem ég hef heyrt færð fram fyrir frv., — þau rök, að það væri hægt að afnema lögin aftur. Rökin fyrir því að setja löggjöfina eru því þau, að Alþ. geti afnumið lögin aftur.
Um afskipti Bandaríkjanna sagði hv. þm., að um slíkt væri ekki að ræða, heldur væri hér aðeins að ræða um ráðleggingar erlendra manna. Við skulum nú athuga, hvað í grg.. frv. stendur. Þar stendur svo: „Frv. er í meginatriðum í samræmi við till., sem samdar voru af erlendum sérfræðingi og n. hafði til hliðsjónar í starfi sínu,“ þ.e.a.s. gjaldkera Alþjóðabankans. M.ö.o., þessi gjaldkeri Alþjóðabankans hefur samið frv. Síðan er það eitthvað fært í stílinn og komið í íslenzkan búning. Það er þetta, sem hér er um að ræða. Og hvaða rök færir svo þessi erlendi sérfræðingur fyrir því, að það sé nauðsynlegt að setja þessi lög? Jú, þau, að Alþjóðabankinn kýs heldur „að lána slíkt fé fyrir milligöngu stofnunar, sem getur rækt það hlutverk, sem Alþjóðabankinn annars telur sig eiga að rækja gagnvart lántakanda.“ Ekkert annað. M.ö.o., þessar erlendu ráðleggingar eru ekki studdar við nein íslenzk rök. Það eru bara erlendar „ráðleggingar“, og vegna þess að það eru erlendar ráðleggingar, þá er þeim tekið. M.ö.o., rökin eru aðeins vilji þessarar erlendu stofnunar og ekkert annað. Og þegar um slíkar „ráðleggingar“ er að ræða, þá leyfi ég mér að kalla það fyrirmæli.
Um það, sem hv. þm. sagði um mótvirðissjóðinn, ræði ég nokkuð síðar.
Hæstv. fjmrh. sagði í gær ýmislegt til þess að andmæla ræðu minni. Ég sagði í ræðu minni í gær, að Landsbankinn hefði gert athugasemdir við nokkur veigamestu atriði frv. og mótmælt þeim. Hæstv. fjmrh. vildi ekki viðurkenna, að þetta væri rétt með farið, en ég nefndi þau atriði, sem bankinn er ósammála og lýsti sig andvígan, og það eru ákvæðin um verzlun bankans með hlutabréf og heimildin til lántöku erlendis án samþykkis Alþ. Ég tel þetta mjög veigamikil atriði. Hér fer því ekkert á milli mála. Hæstv. ráðh. sjálfur taldi, að lántökur erlendis væru einmitt það atriði, sem fyrst og fremst gerði nauðsynlegt, að þessi banki yrði stofnaður. Sjálfur taldi hann einmitt þetta atriði slíkt höfuðatriði.
Þá sagði hæstv. ráðh. varðandi áburðarverksmiðjuna, að það væri ekki heimilt að selja hlutabréf hennar, heldur væri það bannað. Vitaskuld er það alrangt hjá hæstv. ráðh., heldur er hér aðeins um það að ræða, að til þess að selja hlutabréfin þarf samþykki Alþ. Og það Alþ., sem afhendir bankanum hlutabréfin í þeim eina yfirlýsta tilgangi að selja þau síðar, er líklegt til að láta ekki á sér standa að veita slíkt samþykki, þegar um er beðið. Ef ekki er tilgangurinn að selja hlutabréfin, hver er þá tilgangurinn með afhendingu þeirra til bankans? Eins og á var bent hér í gær af hv. 4. þm. Reykv., þá er alveg tilgangslaust fyrir peningastofnun að liggja með hlutabréf, sem hún má ekki ráðstafa. Formaður n. þeirrar, sem frv. samdi, lýsti yfir, að tilgangurinn með ákvæðinu væri að selja hlutabréfin síðar. Nærri má nú geta, hvort hann, formaður n., hefur ekki rætt málið við hæstv. ríkisstj., áður en frv. var lagt fram af hennar hálfu fyrir Alþ., enda engin önnur rök borin fram fyrir þessu ákvæði — alls engin.
Þá sagði hæstv. fjmrh., að æðsta valdið væri í höndum bankaráðs, en ekki bankastjóra. Nú, í „praksís“ veit maður, hvernig þetta er. Í raun og veru er það bankastjórinn, sem ræður, og þannig held ég að reynslan hafi orðið í öðrum bönkum. Hitt mun yfirleitt vera alveg undantekning, að bankaráð taki fram fyrir hendur bankastjóra. Auk þess benti ég á, að bankaráðið er þannig skipað, að það getur um langan tíma verið í algeru ósamræmi við vilja Alþ. Alþ. kýs 3 menn af 5 í bankaráðið, og þar sem um hlutfallskosningu er að ræða, þá má gera ráð fyrir, að að minnsta kosti einn maður sé jafnan fulltrúi minni hlutans. Auk þess er ráðið kosið til 6 ára, en ekki til 4 ára eins og Alþ.
Hæstv. fjmrh. undraðist það mjög, að ég skyldi viðurkenna, að góð og gild rök gætu komið frá Jóni Árnasyni. Góð rök eru jafngóð, hvaðan sem þau koma, og ég mundi telja þau jafngild, jafnvel þó að þau kæmu frá hæstv. fjmrh., enda þótt ég vænti þeirra yfirleitt ekki úr þeirri átt.
Hæstv. fjmrh. sagði, að Jón Árnason hefði ekki talið upp öll verkefni bankans í sínu áliti, en aðalverkefni hans væru, sagði hæstv. ráðh., í fyrsta lagi að útvega fé innanlands, í öðru lagi að semja um lántökur erlendis og í þriðja lagi að vera stjórninni til ráðuneytis í fjárfestingarmálum. Jón Árnason taldi upp öll þessi verkefni, og hann sýndi fram á með skýrum rökum, sem engin rök hafa komið á móti, að öll þessi verkefni gætu þær stofnanir, sem fyrir eru í landinu, bankar og fjárhagsráð, eins vel annazt. Hvaða rök hefur hæstv. fjmrh. fært fyrir því, að Landsbankinn og fjárhagsráð væru nú allt í einu orðin ófær til þess að annast þessi verkefni? Bókstaflega engin.
Þá sagði hæstv. fjmrh., að mótvirðissjóðurinn og erlend afskipti af honum væru ekkert vandamál, því að ef við létum mótvirðissjóðinn liggja þar sem hann er, eins og hann komst að orði, án þess að nota hann, þá kæmu engin slík afskipti til greina. Ja, mikið var. En er þá nokkur furða, þótt mönnum verði á að spyrja, hvort þá sé ekki alveg eins gott að endurgreiða hann eins og að láta hann liggja óhreyfðan, a.m.k. ef hægt væri að komast að samkomulagi um endurgreiðslu hans með þeim hætti, að okkur væri það kleift af gjaldeyrisástæðum, t.d. þannig, að við fengjum að láta afgangsvörur, sem við höfum enga markaði fyrir, sem endurgreiðslu fyrir sambærilegar vörur, sem við höfum fengið frá Bandaríkjunum og hafa orðið til þess, að mótvirðissjóðurinn hefur myndazt? Það virðist sanngjarnt.
En það, sem um er að ræða, er að nota sjóðinn, — ekki að láta hann liggja, heldur að nota hann. Það er það, sem er til umræðu. Og einmitt í því tilfelli koma afskipti Bandaríkjamanna til greina. En það, sem er aðalatriðið í þessum ummælum hæstv. fjmrh., er viðurkenning hans á því, að Bandaríkin geri einnig framvegis kröfu til afskipta af þessum sjóði, eftir að búið er að ráðstafa öllu mótvirði hins óafturkræfa framlags þeirra, því að þessu framlagi, hinu óafturkræfa framlagi, hefur þegar að mestu verið ráðstafað. Ummæli fjmrh. verða því ekki skilin á annan veg en þann, — ég átti ómögulegt með að skilja þau á annan veg en þann, að afskiptin eigi að halda áfram, einnig að því er tekur til þess fjár, sem myndast við endurgreiðslu lána úr sjóðnum. Þetta er í fullu samræmi við það, sem beinlínis er gengið út frá í öllum hugleiðingum Jóns Árnasonar, enda þótt hann segi, að um þetta liggi ekki fyrir nein bein opinber fyrirmæli frá Bandaríkjastjórn. En ég held, að það megi ganga að því vísu, að Jón Árnason gengur ekki út frá öðrum forsendum í þessu efni en þeim, sem hann veit að ekki eru staðlausir stafir, ekki öðrum forsendum en þeim, sem hann veit að eru réttar.
Hæstv. fjmrh. segir, að það skipti engu máli, hvort komið sé upp stofnun, sem eingöngu fer með ráðstöfun mótvirðissjóðs, eða farin sé sú leið, sem frv. gerir ráð fyrir. Þegar nú frv. er athugað, þá sjáum við, að þetta getur ekki staðizt. Í Framkvæmdabankanum er mótvirðissjóði og öðru fé til stofnlána algerlega blandað saman. Og það er sýnilegt, að Bandaríkin gera kröfu til afskipta af allri þessari starfsemi, bæði í krafti þess réttar, sem þau telja sig hafa yfir mótvirðissjóðnum, og einnig með tilstyrk Alþjóðabankans. Til þessa hafa þau engan samningsbundinn rétt haft yfir neinni fjárhæð, sem notuð er til framkvæmda innanlands, nema þeim röskum 300 millj., sem safnazt hafa í mótvirðissjóð vegna hinna óafturkræfu framlaga, en nú sýnist mér, að bæði hæstv. fjmrh. og grg. frv. viðurkenni rétt þeirra til miklu viðtækari afskipta, jafnvel til afskipta af hvers konar meiri háttar framkvæmdum í landinu.
Nú vita allir, að opinber afskipti Bandaríkjanna af íslenzku efnahagslífi hafa einnig til þessa verið miklu víðtækari, en að því er tekur til mótvirðissjóðs, því að samkv. l. um Marshallaðstoðina áskilja þau sér rétt til afskipta af skráningu gjaldeyris, af afgreiðslu fjárlaga og af verzlun okkar við önnur lönd, þ.e. af öllum grundvallaratriðum íslenzks efnahagslífs. En hin óopinberu afskipti eru þó óefað miklu víðtækari, og þar hljóta hinir óinnvígðu að byggja meira eða minna á getgátum. En víst er um það, að í þessu efni munu fáir vera öllum hnútum kunnugri, en einmitt Jón Árnason bankastjóri. Og það fer ekki milli mála, að hann er sannfærður um, eða réttara sagt, hann veit það vel, að stofnun Framkvæmdabankans hefur einmitt það hlutverk að gera þessi afskipti gildandi á þann hátt, sem Bandaríkjamenn kjósa helzt. Um það ber allt álit hans glöggt vitni.
Hæstv. ráðh. hefur verið að stritast við að finna íslenzk rök fyrir stofnun þessa banka, en það hefur gengið erfiðlega. Í gær sagði hann, að æskilegt væri að stofna banka, í fyrsta lagi til þess að greiða fyrir útvegun erlends lánsfjár og í öðru lagi til þess að hafa forustu um fjárfestingu innanlands. Hann var spurður, hvaða rök lægju til þess, að greiðara yrði um útvegun erlends lánsfjár fyrir milligöngu hins nýja banka, heldur en Landsbankans. Hann gat engu svarað. Og hvers á nú fjárhagsráð allt í einu að gjalda, þegar það er ekki lengur talið hæft til þess að hafa forustuna um fjárfestinguna í landinu? Ef hæstv. ríkisstj. þarf á nýjum ráðunaut í fjárfestingarmálum að halda, þá er ekki nauðsynlegt að stofna til þess heilan banka, eins og Jón Árnason hefur bent á.
Í framsöguræðunni við 1. umr. drap hæstv. ráðh. á rök, sem eru svo gersamlega haldlaus og utangarna, að hann virtist nú vera búinn að gleyma þeim. En í þeirri ræðu hélt hæstv. ráðh. því fram, að ástæðan fyrir stofnun bankans væri sú, að ekki væri hyggilegt að hafa rekstrarlán eða lán til skamms tíma í sömu stofnun og lán til langs tíma. Þess vegna þurfum við á tveimur landsbönkum að halda, öðrum til þess að lána til skamms tíma, hinum, sem lánar til langs tíma, alveg eins og við þurfum tvö fjárhagsráð, annað sem sér um fjárfestinguna í stórum atriðum og hitt í smáatriðum. Já, það er ekkert smáræðis bákn, sem þarf til þess að stjórna þessu litla landi. En það, sem er merkilegast, er, að jafnglöggur fjármálamaður eins og hæstv. ráðh. skuli ekki hafa uppgötvað þetta, fyrr en nú. Það er ekki von, að vel gengi, meðan við höfðum aðeins einn landsbanka og eitt fjárhagsráð, og raunar ekki langt síðan við höfðum ekkert fjárhagsráð. Mér skilst, að ef sama stofnunin ætti að lána til skamms og langs tíma, þá hafi hæstv. fjmrh. haldið því fram, að hætt væri við, að stigið yrði út af þeim vegi, sem ber að fara, og lánað til langs tíma það, sem ætlað er til skamms tíma, M.ö.o., of miklar fjárfestingarframkvæmdir í landinu. Hér kemur fram sama vantraustið á Landsbankanum sem feist í grg. frv. Aðeins er verið að stritast við að finna íslenzk rök, sem engin eru til, í stað þess að í grg. er gengið hreint til verks og aðeins færð fram rök hins erlenda fjármálamanns, eða réttara sagt, rökin eru vilji hans.
Margt hefur stjórn Landsbankans verið fært til foráttu og það með réttu, en það ósanngjarnasta, sem ég hef nokkurn tíma heyrt bankanum borið á brýn, er, að hann sé ekki nógu íhaldssamur í lánveitingum til íslenzkra atvinnuframkvæmda. En auðvitað eru þetta ekkert annað en tylliástæður. Hin rétta ástæða er tekin fram í grg. Hér er um að ræða frv., sem í megindráttum er samið af gjaldkera Alþjóðabankans og tekið við því af hæstv. ríkisstj. Alþjóðabankinn vill, að komið verði upp nýrri stofnun, sem hann treystir til að vera umboðsstofnun sín á Íslandi.