22.01.1953
Neðri deild: 55. fundur, 72. löggjafarþing.
Sjá dálk 852 í B-deild Alþingistíðinda. (917)

184. mál, framkvæmdabanki Íslands

Stefán Jóh. Stefánsson:

Herra forseti. Ég taldi rétt að segja nokkur orð í sambandi við þessa 1. umr. málsins, jafnvel þó að mál þetta komi nú til nefndar, þar sem ég á sæti, og mér gefist þá kostur á, bæði í nefndinni og ef svo vill verða eftir á, að ræða málið eitthvað frekar.

Ég skal strax geta þess, að ég hafði eiginlega vart búizt við því, að svona í miðjum kliðum, ef svo má segja, kæmi fram frv. eins og þetta, þegar það er athugað, að fyrir nokkuð löngu var skipuð milliþn. til þess að endurskoða yfirleitt bankalöggjöf landsins. Ég fyrir mitt leyti taldi það tímabært og eðlilegt, að svo yrði gert, og hef lengi verið þeirrar skoðunar, að það þyrfti að gera þar á nokkra breytingu. Það er alkunnugt, að við höfum í Alþfl. lýst þeirri skoðun okkar, að við teldum heppilegt, að hér væri til í landinu sérstakur seðla- eða centralbanki, sem ekki væri blandað saman við verzlunar- og viðskiptabanka, eins og nú á sér stað hvað varðar Landsbankann. Ég hefði þess vegna getað búizt við því, að einmitt þar sem nokkrir þm. eiga sæti í þessari mþn., mundi það ekki vera tekið út úr, þetta um Framkvæmdabanka Íslands, áður en væri komin niðurstaða í n. sjálfri um, hvaða heildarskipulag væri eðlilegast og bezt varðandi sjálfa bankalöggjöf landsins. En það hefur nú svo orðið, og þess vegna er að taka afstöðu til þessa frv., sem hér liggur fyrir, þó að ég endurtaki hitt enn á ný, að ég hefði talið réttasta starfsaðferð í þessu máli, að það hefðu komið fram einhverjar allsherjar hugmyndir um skipulag á bankamálum landsins. Og þeim mun erfiðara er eiginlega að taka út úr svona atriði eins og með Framkvæmdabanka Íslands, sem mér er ekki kunnugt um það, að bankamálanefndin hafi enn þá komizt kannske að endanlegri niðurstöðu varðandi bankakerfið allt. Nú er það einnig svo, að mér finnst, eða þannig blasir málið við frá mínum bæjardyrum séð, að það hefði verið unnt að stjórna jafnvirðissjóðnum með svipuðum hætti og gert hefur verið undanfarið án þess að stofna sérstakan banka í því skyni. Jafnvirðissjóðurinn er eðlilega og hefur verið, frá því að hann hefur verið að smámyndast, undir æðstu stjórn ríkisstj. og þá sérstaklega fjmrn., en að öðru leyti bókhald hans og í sambandi við hann yfirleitt haft í Landsbankanum eða seðlabankanum. En hvað sem um það má segja, þá er, eins og ég áðan sagði, ástæða til að taka fyrir með örfáum orðum það frv., sem nú er til 1. umr. hér í þessari hv. d.

Jafnvel þó að mér þyki það nokkuð — ef ég má nota orðið „flott“ í þessu sambandi að stofna nú einn banka á hverju þingi, þá hefði vel getað komið til athugunar, að málið hefði legið þannig fyrir, að það hefði verið rétt að stofna einhverja aðra peningastofnun, þó að Iðnaðarbankinn hefði verið stofnaður á seinasta þingi eða nú nýverið. Ég vil þess vegna ekki segja almennt, að ég álíti það alveg fjarstæðu að stofna til nýrrar administrasjónar, ef svo má segja, á jafnvirðissjóðnum, og hvort það væri gert undir formi nýs banka eða á annan veg, er kannske aukaatriði. En mér virðist, að hér sé um nokkuð meira og annað að ræða heldur en að það sé stofnað til nýrrar stjórnar á jafnvirðissjóðnum, heldur er verið að færa út kvíarnar nokkuð með sérstöku hlutverki þessa banka, sem gert er ráð fyrir að stofna samkv. frv. Ég sé ekki ástæðu til þess að taka afstöðu gegn þeirri meginreglu, sem er í sjálfu frv., og óttast það ekki á sama hátt eins og hv. 2. þm. Reykv., að hér sé um að ræða sérstakt herbragð frá Bandaríkja hálfu til þess að ná yfirráðum yfir atvinnurekstri í landinu. Það óttast ég ekki svo mjög með þessu frv., sem hér liggur fyrir. Þar fyrir kann að vera ýmislegt vafasamt í sjálfu frv., og ég skal leyfa mér að benda á nokkur atriði, þó að það hafi að sumu leyti verið gert af öðrum.

Ég skal alveg játa það, að ég varð dálítið undrandi yfir því og hef ekki komizt á aðra skoðun enn, hvers vegna það hefur verið talið rétt, að ríkissjóður leggi Framkvæmdabankanum til m.a. hlutabréf sín í áburðarverksmiðju ríkisins, að upphæð 6 millj. kr. Nú er það að vísu svo, eins og fram er tekið í sömu lagagr., að það má ekki selja eða veðsetja þessi bréf án leyfis Alþ. En til hvers er þá verið að koma þessum hlutabréfum í þessa nýju stofnun? Ég fæ eiginlega ógerla skilið það, nema það væri þá það, að nú eru það aðrir aðilar, sem fara með hluthafavaldið, við skulum segja á aðalfundi í áburðarverksmiðjunni, heldur en verið hefur hingað til, þar sem fjmrh. mundi að sjálfsögðu, eða hans fulltrúi, mæta á hverjum aðalfundi með hluthafafjáreign bankans þar og greiða atkvæði í samræmi við þá hlutafjáreign. Hvaða ástæða er til þess að afhenda þetta vald frá fjmrh. sjálfum yfir á hendur nýrrar stofnunar, sem að verulegu leyti er nokkuð einráð, eða „autonom“, og þannig búið um form hennar t.d., að það getur verið bankaráð, sem þar sitji að störfum og kannske væri ekki í samræmi við þær höfuðskoðanir, sem uppi væru hjá meiri hluta Alþ. og jafnvel í ríkisstjórn á þeim tíma, þegar bankaráðið væri enn starfandi. Og mér finnst það dálítið óeðlilegt, að þessu valdi sé kippt úr höndum fjmrn., því að fjmrh. á hverjum tíma hefur á bak við sig —eða reiknað er með því, og á svo að vera —meiri hluta Alþ. En þarna getur farið aðili með bréfin á aðalfundi áburðarverksmiðjunnar, sem mundi kannske ekki kæra sig um eða telja rétt að hlíta fyrirmælum fjmrh. og kannske þá ekki meiri hluta Alþ. við atkvgr. á hlutafélagsfundi.

Ef það er ekki meiningin að selja eða veðsetja þessi hlutabréf, hvers vegna eiga þau þá að fara til bankans? Ég verð satt að segja að taka nokkurn þátt í þeim ótta, sem hér hefur komið fram, að það sé verið að opna leið til þess að selja þessa hlutafjáreign í áburðarverksmiðju ríkisins, ef svo ber undir, — að það sé verið að opna götuna, þó að enn þá séu settar þær torfærur á veginn, að Alþ. verði að samþ. veðsetningu eða sölu á bréfunum. En ég skal játa það, að ég skil bara ekki röksemdirnar fyrir því, að hlutafjáreign íslenzka ríkisins í áburðarverksmiðjunni eigi að vera afhent úr völdum eða yfirráðum þeirrar ríkisstj., sem situr á hverjum tíma og þá væntanlega styðst við meiri hluta Alþingis. Þetta vildi ég segja um það atriði. Ég fyrir mitt leyti teldi það líka kannske ekki tímabært í dag að setja nákvæmlega þau ákvæði, sem er að finna í 8. gr. frv., um það, hvernig verja eigi mótvirðissjóði, og teldi, að það væri nánara athugunarefni fyrir Alþ., þó að sjálfsögðu geti það breytt þeim lögum, sem hafa verið sett, ef þá heimild laganna hefur ekki verið notuð eða bundin með framkvæmdum, sem gera það að verkum, að það væri örðugt um vík að snúa til baka. Sömuleiðis verð ég að taka einnig undir þá gagnrýni, sem komið hefur fram, að mér finnst dálítið hæpið með þeim stjórnarháttum, sem eru fyrirhugaðir þarna í þessu nýja bankafyrirtæki, að leyfa að taka það úr höndum Alþ. að þurfa að ákvarða, hvort skuli veita ríkisábyrgð eða ekki fyrir allt að 80 millj. kr. láni, er bankinn kynni að óska eftir að taka.

Hæstv. fjmrh. minntist á það í sambandi við frv. um staðfestingu á ríkisreikningnum, að það væri orðið mjög athyglisvert, hvað ábyrgðir ríkisins væru orðnar miklar og hvað væri mikið í húfi, meðan þar væri ekki stungið við fótum og gætt vel að sér í þeim efnum. Ég hygg, að það muni nú koma í ljós, hvort sem hæstv. fjmrh. tekst að hindra það eða ekki, að nú verði fluttar í sambandi við 3. umr. fjárl. meiri og stærri heimildir um ríkisábyrgð heldur en jafnvel nokkru sinni fyrr. Og þegar á að setja líka í lög, að það skuli veitt ótiltekið nýrri stofnun, án þess að þurfi að leita til Alþingis, heimild til þess að taka lán með ríkisábyrgð, allt að 80 millj. kr., þá finnst mér, að það sé ekki fullt samræmi milli kenninganna um, hvað ríkisábyrgðin geti oft verið varhugaverð, og þeirra tillagna, sem nú streyma inn á Alþ., bæði í þessu frv. og munu líklegast koma í ljós við 3. umr. fjárlaganna.

Ég vildi aðeins við þessa 1. umr. málsins drepa á þessi atriði, en sé ekki ástæðu til þess að tala um þau langt mál. Í fyrsta lagi hef ég ekki séð, að það hafi rekið neinn nauður til að taka út úr þennan þátt íslenzkra bankamála, sem varðaði Framkvæmdabanka Íslands, áður en væri búið að koma sér niður á almenna heildarlöggjöf um allt bankamálakerfi þjóðarinnar, og það hefði verið hægt að sjá svo um vörzlu mótvirðissjóðsins og annað í sambandi við það, sem ræðir í þessu frv., að ekki hefði átt að vera nein sérstök hætta á ferðum í því tilliti. Og svo finnst mér, að einstök ákvæði frv. séu þess eðlis, að það verði vel að athuga, áður en þau eru samþ. hér á Alþ. Ég sé ekki ástæðu til þess að taka andstöðu gegn frv. út af fyrir sig og er í vafa um það, hvort ég muni greiða atkv. gegn því, en hins vegar mun ég gera bæði þessar almennu athugasemdir og þá flytja fram einhverjar brtt. í sambandi við frv., og færi það þá ef til vill eftir því, hvernig afdrif þeirra brtt. yrðu, hver yrði lokaafstaða mín til málsins hér í hv. deild.