30.10.1952
Efri deild: 18. fundur, 72. löggjafarþing.
Sjá dálk 61 í B-deild Alþingistíðinda. (92)

12. mál, gengisskráning o. fl.

Fjmrh. (Eysteinn Jónsson):

Hv. 1. landsk. þm. (MK) sagði, að það væri mikill misskilningur, sem ég hefði haldið fram, að vísitölukerfið væri verðbólguaukandi. Ég vil benda hv. þm. á, hvernig þetta getur verkað, og ætla, að það verði þá ljósara, hvað ég átti við. Ef sá háttur er á hafður að mæla mönnum, heilum stéttum, — ekki aðeins launastéttunum, heldur líka bændastéttinni, eins og hér er gert, því að verðlag á afurðum bændastéttarinnar er að verulegu leyti miðað við kaupgjaldið, — út tekjur eftir framfærslukostnaði, kostnaðinum við að framfleyta heimilum sínum, mældum eftir vísitölu, þá gefur auga leið, að hækki erlend vara í verði, þá hækkar vísitalan, og þá eiga tekjur þessara stétta í krónutölu að aukast — ég segi í krónutölu. Þannig ætti, eins og hv. landsk. þm. (MK) orðaði það, að koma í veg fyrir, að sú hækkun eða lífskjararýrnun, sem stafar af hækkuðu verði á innfluttum vörum, kæmi niður á þessum stéttum og öllum öðrum, sem fá tekjur sínar mældar eftir vísitölu. Nú skulum við gera okkur það í hugarlund, — sem þó þarf ekki að gera sér í hugarlund, því að það er sú reynsla, sem við höfum haft nú um sinn, — að á sama tíma sem verðlag hækkar mjög á innfluttri erlendri vöru, þá hækki ekki verðlag á okkar útflutnings- vörum að sama skapi. Hvernig halda menn þá, að vísitölukerfið verki í fjárhagskerfinu? Þá verkar það vitanlega verðbólguaukandi, því að þá verkar það þannig, að menn fá hækkaðar tekjur sínar í krónutölu, á sama tíma sem þjóðartekjurnar minnka. Þetta kerfi verkar því þannig, vísitölukerfið, að þó að þjóðartekjurnar fari minnkandi fyrir verðlagsáhrif utanlands frá, eiga tekjur manna innanlands að fara vaxandi, og slíkt veldur verðbólgu. Við höfum reynsluna fyrir okkur, ólygna, í þessu efni frá s.l. tveimur eða þremur árum. Ef við tökum árið 1949 annars vegar og hins vegar árið 1951, þá er niðurstaðan sú, að verzlunarkjör eða viðskiptakjör Íslendinga gagnvart öðrum löndum eru um 30% lakari 1951, en var 1949, m.ö.o., þjóðartekjurnar hafa rýrnað verulega af þessum ástæðum. Ef menn eiga hins vegar að fá útmæld laun sín stórhækkuð að krónutali, þrátt fyrir það að þjóðartekjurnar rýrna stórkostlega vegna áhrifa utanlands frá, þá verkar það vitanlega verðbólguaukandi. Það er alveg sama, hvort verkamenn eða bændur eiga hér hlut að máli.

Þessi mælikvarði, að mæla mönnum kaupgjald eða setja verðlag á afurðir eftir vísitölu, sem miðuð er við framfærslukostnaðinn, er óhafandi með öllu og tryggir auðvitað ekki, að menn hafi eðlilegar tekjur. Það ætti auðvitað fyrst og fremst að ákveða kaupgreiðslur og afurðaverð eftir því, hvað ætla má, að sanngjarnt sé að borga og eðlilegt, miðað við þjóðartekjurnar, miðað við það, hve mikið þjóðin framleiðir og hvað fyrir það fæst. Það er sá eini mælikvarði, sem hægt er að leggja á þetta, sem er réttmætur, fullkomlega réttmætur og öruggur. Vísitöluregla, sem byggð er upp með hinu mótinu, gæti að vísu komið í veg fyrir, að lífskjör manna rýrnuðu, og þyrfti ekki að vera verðbólguaukandi, ef framleiðslan eykst og ef verðlag á framleiðsluvörum og verðlag á útflutningsvörum eykst jafnmikið og verðlag á aðfluttum varningi eða meira. Ef þjóðartekjurnar fara vaxandi, þá mundi þessi regla ekki þurfa að auka verðbólguna, en ef þjóðartekjurnar standa í stað eða fara minnkandi, þá er greiðsluaðferðin verðbólguaukandi og er því óhæf aðferð.

Hv. 1. landsk. þm. sagði, að ég liti þannig á, að kaupgjald hlyti að fara lækkandi á Íslandi. Það er alger misskilningur. Frá mínu sjónarmiði á ekki að nota framfærsluvísitöluna sem mælikvarða, eins og ég gat um áður, vegna þess að hún er óhæfilegur mælikvarði fyrir kaupgjaldið; hún getur bæði orðið til þess, að kaupgjaldið hækki í krónutölu örara, en nokkur grundvöllur er fyrir, og hún gæti undir vissum kringumstæðum, einnig orðið til þess, að það yrðu ekki þær hækkanir á kaupgjaldinu, sem í raun og veru væru réttmætar. Það væri undir þeim kringum- stæðum, að þjóðartekjurnar færu raunverulega vaxandi og viðskiptakjörin færu batnandi, þannig að það væri alveg eðlilegt, að raunveruleg kauphækkun ætti sér stað. Þessi mælikvarði er því með öllu ónothæfur.

Hv. 4. þm. Reykv. fór hér nokkrum orðum um það, sem ég sagði. Hann minntist á það, sem hann kallaði kenningu ráðh. um, að kauphækkanir gætu undir vissum kringumstæður verið tvíeggjaðar. Þetta er ekki mín kenning, þetta er viðurkennd staðreynd. Og ég vitnaði í þessu tilliti til mjög vandaðs nál., sem gert hefur verið innan launþegasamtakanna af þeirra trúnaðarmönnum til afnota fyrir launþegana. Það getur víst enginn haldið því fram, að slík álitsgerð muni vera samin í fjandsamlegum hug í garð launþeganna.

Í þessu nál. ræða höfundar þetta málefni mjög ýtarlega. Þeir taka sem dæmi, að framkvæmd væri í landinu 10% kauphækkun. Þeir benda á, að hækki verðlag innlendrar vöru og þjónustu í hlutfalli við þessa kauphækkun vegna aukins framleiðslukostnaðar, þá mundi vísitalan hækka af þeim ástæðum um 6%. Kjör launþega, segja þeir, hafa þá batnað um 3,8% við 10% kauphækkun. Launþegar fá því ekki kjarabætur, sem neitt nálgast það að nema sömu upphæð og launahækkunin nemur, heldur taka þeir þegar í stað hver af öðrum, vegna þess að launahækkunin er almenn, 2/3 af hinni upphaflegu launahækkun. Kjör þeirra, sem að útflutningsframleiðslunni vinna, atvinnurekenda og annarra, sem halda óbreyttum peningatekjum, mundu hins vegar hafa rýrnað um 5,7%. En svo er meira. Þeir bæta því við, að sé ástandið þannig í landinu, að ekki sé hægt að láta þessa rýrnun skella á atvinnurekstrinum og útflutningsframleiðslunni og gera þurfi ráðstafanir til þess að vega þann halla upp að verulegu eða öllu leyti, þá muni sennilega fara þannig, að enginn nettó- hagnaður verði af kauphækkuninni, — orðrétt er þetta í nál.: „Það er meira að segja ekki ólíklegt, að um kjaraskerðingu yrði að ræða fyrir launþega í stað kjarabóta.“ Það voru því ekki mín orð eða mín kenning, sem ég flutti í minni fyrri ræðu. Þetta eru orð trúnaðarmanna verkalýðsfélaganna. Vitanlega er þetta alveg laukrétt. Ef hins vegar þjóðfélagsástandið væri þannig, að hægt væri t.d. að láta húsaleigu standa í stað, benda þeir á, að einhver örlítill ávinningur gæti orðið af þessum ráðstöfunum. þótt gera þyrfti ráðstafanir vegna útflutningsframleiðslunnar. Hins vegar benda þeir greinilega á, — og það er þýðingarmikið atriði, — að einstakir hópar mundu geta bætt sín kjör, t.d. mundu einstakir hópar innan launþegasamtakanna geta bætt sín kjör á kostnað annarra launþega og annarra landsmanna með því að ýta sínu máli sérstaklega fram og ef ekki væri um almennar kauphækkanir að ræða. En hér er verið að ræða um almennar kauphækkanir í sambandi við brtt. þær, sem hér liggja fyrir. Fram hjá þessu er ómögulegt að komast. Það þýðir ekkert að berja höfðinu við steininn.

Þá vildi ég minnast á það, sem hv. 4. þm. Reykv. sagði, þegar hann spurði: Gildir þessi formúla um hættuna á því að hækka kaupið aðeins fyrir verkamenn? Gildir hún ekki einnig fyrir aðrar þjóðfélagsstéttir? Vitanlega spyr hv.

4. þm. Reykv. ekki af því, að hann viti ekki, hvert svarið er. Þetta gildir vitanlega alveg eins um aðrar þjóðfélagsstéttir. Þetta gildir vitanlega alveg eins um bændastéttina. Við skulum segja t.d., að bændur tækju nú þá stefnu, í stað þess að sætta sig við það, sem er, að heimta afurðir sínar hækkaðar eftir framfærsluvísitölunni, þeir segðu eitthvað á þessa leið: Við sættum okkur ekki við kaupgjaldsvísitöluna, eins og hún er. Við sættum okkur ekki við þær reglur, sem farið er eftir við útreikning vísitölunnar og útreikning kaupsins, vegna þess að okkar vörur eru miðaðar við kaupið, og við teljum, að þetta sé allt of lágt og það sé stórlega af okkur haft með þessu. Við viljum fá kjarabætur með því að krefjast þess, að verðlag á landbúnaðarvörum sé miðað við fulla framfærsluvísitölu, en ekki kaupgjaldsvísitölu, eins og nú er. — En þetta væri hliðstæð afstaða þeirri, sem talsmenn verkalýðsstéttarinnar telja vera henni til hags. Ef bændur tækju upp þá stefnu að knýja þannig fram hækkun á afurðaverðinu umfram þær reglur, sem nú eru í gildi, þá mundu þeir vitanlega vera í alveg nákvæmlega sömu hættunni og verkalýðurinn, þ.e.a.s. þeirri hættu að gera ráðstafanir, sem þeir hefðu ekkert gagn af í reyndinni, en væru til tjóns fyrir þá og heildina. Það stendur alveg nákvæmlega eins á með þá og verkamenn að þessu leyti. Það er nokkurn veginn gefið mál, að af þessu mundi leiða hringrás, sem eins og nú er ástatt í þjóðfélaginu mundi ekki geta fært bændum hinar minnstu kjarabætur. Hins vegar gæti verið þannig ástatt, það gæti verið slíkt góðæri í atvinnurekstri og þannig ástatt að öðru leyti, að nettóverðhækkun af hálfu bændastéttarinnar gæti fært henni einhvern hag, alveg eins og það gæti auðvitað verið þannig ástatt, — og er sem betur fer stundum þannig ástatt, — að hækkað kaup getur fært verkamönnum hagsbætur. En þegar ástandið er eins og nú og eins og hefur verið núna undanfarin 2 ár, þá er ég alveg sannfærður um, að bændur mundu ekki hafa haft nokkurn minnsta hag af stefnu sem þessari. Og það er af sömu ástæðum og þeim, er gilda um kaupgjaldið, eins og svo glöggt og greinilega er dregið fram í nál. trúnaðarmanna verkalýðshreyfingarinnar. Það er einnig getið um það hér í þessu áliti trúnaðarmanna verkalýðshreyfingarinnar, að ef hægt væri að hækka kaupið og festa á sama tíma verðlag á landbúnaðarafurðum og verðlag á þjónustu innanlands, þá væri vitaskuld hagur að því fyrir launastéttirnar að hækka kaupið, þó að útflutningsframleiðslan gæti ekki borið hækkunina. En þá er sú hækkun, þau bættu lífskjör, sem launþegarnir fengju, algerlega fengin á kostnað bændastéttarinnar, iðnaðarstéttanna og þeirra, sem láta í té þjónustuna, sem verðfest væri um leið, en ekki á kostnað útflutningsframleiðslunnar nema að litlu leyti. En nú hygg ég, að það verði að viðurkennast af öllum, að það sé ekki hægt að hugsa sér, að hægt sé að hækka kaupgjald í landinu og binda fast afurðaverð landbúnaðarins um leið og láta þá tekjuaukningu, sem launastéttirnar þannig ætluðu að fá, skella að verulegu leyti á bændastéttinni og iðnaðarstéttunum, það sé því tómt mál um að tala.

Hafi hv. 4. þm. Reykv. þótt ég ekki segja nema hálfan sannleikann áðan, þá vona ég, að hann fallist á, að með þessum orðum hafi verið úr því bætt. Annars finnst mér ekki, að menn ættu að þurfa að vera að skattyrðast um það, hvort sú kenning, sem ég hef haldið fram í þessu máli, sé villukenning eða ekki. Mér þætti t.d. fróðlegt að vita, hvort menn halda, að forráðamenn verkalýðssamtakanna í Bretlandi, svo að við tökum aðeins eitt dæmi, sem nú hafa komizt að þeirri niðurstöðu, að það muni ekki vera hagkvæmt fyrir verkalýðsfélögin í Bretlandi að hækka kaupið, mundu hafa komizt að þeirri niðurstöðu, ef þeir teldu, að brezkur verkalýður hefði sérstakt tækifæri til þess að bæta lífskjör sín með því að hækka kaupið. Þeir hafa bara komizt að þeirri niðurstöðu með því að athuga allar ástæður, að eins og nú standa sakir muni ekki vera hægt að hafa kjarabætur, raunverulegar kjarabætur í aðra hönd með því að knýja fram kauphækkun. Ég er alveg viss um, að hefðu þeir komizt að þeirri niðurstöðu, að hægt væri að fá raunverulegar kjarabætur með því að knýja fram kauphækkun, þá mundu þeir gera það. Þetta dæmi til viðbótar öðru sýnir, að þetta mál er ekki svo einfalt, að það sé ætíð sú sjálfsagða og eina leið að hækka kaupgjaldið, hvernig sem á stendur. Og þetta er atriði, sem trúnaðarmenn verkalýðsfélaganna hér, sem ég hef nokkuð oft vísað til í þessum umr., hafa einmitt tekið til meðferðar og komizt að niðurstöðu um á þann hátt, sem ég hef minnzt á.