29.01.1953
Neðri deild: 59. fundur, 72. löggjafarþing.
Sjá dálk 886 í B-deild Alþingistíðinda. (927)

184. mál, framkvæmdabanki Íslands

Ásmundur Sigurðason:

Herra forseti. Mér sýnist, að þetta frv., sem hér liggur fyrir um fimmta bankann, sem á að stofna á Íslandi, sé í raun og veru það framhald, sem maður hefði getað búizt við af þeirri ráðstöfun, sem gerð var 3. apríl 1948, þegar Ísland gerðist aðili að hinni svo kölluðu Marshalláætlun, þeirri stórkostlegu „hjálparstarfsemi“, sem sett var á stofn til þess að hjálpa stríðshrjáðri Evrópu til að byggja upp sitt atvinnulíf og náttúrlega var talið þá, a.m.k. átti að telja okkur trú um, að væri eingöngu byggð á tómri göfugmennsku auðvaldsins í Bandaríkjunum. Sá samningur var undirritaður án þess, að Alþingi væri spurt að. Hann var undirritaður af utanrrh., og alþm. fengu þessa frétt í blöðum og útvarpi heim til sin, þar sem þing var ekki starfandi.

Það vantaði ekki, að miklu væri lofað í sambandi við þennan samning. Því var lofað í stórum dráttum, að nú skyldi hefjast veruleg uppbygging í íslenzku atvinnulífi, og í sambandi við það var birt á næsta þingi á eftir ein geysilega mikil risaáætlun um allar þær framkvæmdir, sem þá átti að vinna. Sú upphæð, sem þar var um rætt, nam um það bil hálfu sjötta hundraði milljóna króna, sem átti að veita inn í íslenzkt atvinnulíf til þess að reisa það við, eins og kallað var. Þá var ekki verið að minnast á það, að þá stóð í raun og veru yfir — hafði staðið yfir þá undanfarin ár — það mesta viðreisnartímabil, sem hefur skeð í íslenzku atvinnulífi síðan Ísland byggðist.

En það fylgdu ýmis skilyrði þessari miklu „aðstoð“ eða „hjálp“, sem þjóðinni var lofað. Eitt skilyrðið var t.d. það, að það skyldi koma strangt eftirlitskerfi með hagnýtingu auðlinda Íslands, og það eftirlitskerfi átti náttúrlega að vera byggt upp og framkvæmt af þeirri þjóð, sem hjálpaði Íslendingum til þess að byggja upp sitt atvinnulíf eftir þessu kerfi. Annað skilyrði var t.d. það, að mótvirði þess fjár, sem Íslendingar fengju sem gjafir í þessari stórkostlegu efnahagssamvinnu, skyldi verða lagt inn á sérstakan reikning í Landsbanka Íslands, og þessu fé mátti síðan ekki ráðstafa nema með leyfi Bandaríkjastjórnar. Þá var ekki verið að láta í það skina, að það leyfi þyrfti, nema þegar þessu fé yrði ráðstafað í fyrsta sinn. Nú eru hins vegar að koma fram fullar sannanir fyrir því, að þetta leyfi á að þurfa, þegar þessu fé er ráðstafað aftur og aftur. Sem sagt, það á um ófyrirsjáanlega framtið að þurfa leyfi Bandaríkjastjórnar til þess að ákveða um fjárfestingar á Íslandi. Kem betur að því síðar.

Það var einnig skilyrði í þessum samningi, að Bandaríkin skyldu hafa forkaupsrétt að efnivörum, sem auðvelt væri að framleiða á Íslandi og þau þyrftu á að halda, og fleiri voru þau skilyrði, sem ég mun ekki minnast á í sambandi við þetta.

En þrátt fyrir allan þann geysilega áróður, sem látinn var dynja á íslenzku þjóðinni og öðrum þjóðum Evrópu, sem boðin var þessi aðstoð, þá var nú samt sem áður einhver uggur í fjöldamörgum aðilum. Fyrst þegar þetta kom til orða, þá t.d. tók dagblaðið Tíminn, blað Framsfl., afstöðu á móti þessu. Sömuleiðis komst utanrrh. í þingræðu þannig að orði, að það væri óskandi, að við Íslendingar gætum horið gæfu til að haga svo fjármálalífi okkar, að við þyrftum ekki á þessari hjálp að halda. Það sýndi þá, að við fyrstu athugun hafði einhver uggur gripið þessa aðila, en þá voru þeir ekki heldur orðnir eins tengdir Bandaríkjunum eins og þeir eru orðnir nú.

En þrátt fyrir allan áróðurinn um ágæti þessarar hjálparáætlunar, sem dundi á þjóðum Evrópu, þá kvað við nokkuð annan tón á öðrum vettvangi. Það kvað nefnilega við nokkuð annan tón á vettvangi ameríska auðvaldsins heima fyrir.

Í blöðum ameríska auðvaldsins heima var ekki reynt að dylja það, hver væri hinn raunverulegi tilgangur þessarar áætlunar. Ég skal minnast hér á örfá blaðaummæli, sem birt voru vestanhafs, en þau voru auðvitað ekki birt í íslenzku borgarablöðunum hér heima. T.d. sagði eitt aðalblað Bandaríkjanna, blaðið United States News World Report, þetta 27. febr. 1948:

„Framkvæmdastjóri áætlunarinnar verður raunverulegur forstjóri heimsviðskiptanna. Hann fær aðstöðu til að segja t.d. Frakklandi, hvort það eigi að endurbyggja járnbrautirnar þar í landi eða t.d. bæta þjóðvegina. Hann getur ákveðið, hvort auka skuli vélanotkun landbúnaðarins. Hann mun ákveða, hvort Ruhr eða Bretland gangi fyrir að fá kolanámuvélar. Hann mun stöðva dollarastrauminn alveg, ef einhver lönd halda ekki skilyrði hans.“

Þarna var skýrt að orði kveðið um það, hver var hinn raunverulegi tilgangur þessarar áætlunar, sem nú er að birtast verulega í íslenzku atvinnulífi. Það er að tryggja sér forstjórn heimsviðskiptanna, geta ákveðið um það, skipað fyrir í Frakklandi, Englandi og á Íslandi, hvort það ætti að vinna við þessar framkvæmdir eða einhverjar aðrar.

Og ameríska tímaritið United States Information segir 6. marz 1948:

„Uppörvun bandarísks einkafjármagns til fjárfestingar í Vestur-Evrópu er í samræmi við grundvallarreglur og markmið bandarísku hjálparáætlunarinnar, það stefnumark Bandaríkjastjórnar að fá bandarískt einkaauðmagn til að koma í stað Bandaríkjastjórnar, ef ekki alveg, þá að nokkru leyti.“

Þarna höfum við það líka: Tilgangurinn var að opna amerísku einkaauðmagni, þ.e. auðmagni bandarísku einokunarhringanna eins og Standard Oil og fleiri, aðgang til fjárfestingar í löndum Vestur-Evrópu og leggja undir sig þeirra atvinnulíf og gegnum þetta geta gert þessar þjóðir að hálfgerðum efnahagslegum nýlenduþjóðum.

Það var ekki heldur farið í launkofa með það á þessum vettvangi, hvaða pólitísk áhrif þetta mundi hafa, og það kom m.a. í ljós í ummælum eins annars aðalblaðs Bandaríkjanna um pólitíska valdið, þar sem 21. febr. 1948 stendur þessi einfalda setning í sambandi við, þegar rætt er um Marshalláætlunina: „Við erum þegar farnir að steypa erlendum ríkisstjórnum og mynda aðrar.“

Sífellt var því neitað hér heima, þegar rætt var um þetta, að við þyrftum að óttast nokkur áhrif, hvorki pólitísk né efnahagsleg, í sambandi við þessa áætlun, en nú virðist mér í sambandi við þetta frv., sem hér er um Framkvæmdabankann, vera komið í ljós, að það er rétt, sem sósíalistar sögðu í sambandi við þetta mál allt frá upphafi, og að hæstv. ráðh. reyni raunverulega alls ekki að mótmæla því.

Hæstv. 2. þm. Reykv. er búinn að ræða hér um frv. sjálft, hinar einstöku greinar þess, og ég skal þess vegna ekki taka það fyrir sérstaklega, vegna þess að þess gerist ekki þörf, en ég ætla að koma sérstaklega inn á annað atriði í sambandi við þetta, sem núna er sérstaklega farið að bera á, og það er áróður íslenzkra stjórnmálamanna og íslenzkra blaða fyrir því að veita erlendu einkaauðmagni inn í íslenzkt atvinnulíf og leigja því verðmætustu auðlindir Íslands, í staðinn fyrir það, að Íslendingar eigi sjálfir að reyna að byggja upp sítt atvinnulíf á grundvelli þess, að þær auðlindir séu notaðar. Og í sambandi við það er tæplega hægt annað fyrir meðalgreindan mann, en að skilja samhengið á milli þessara atriða, milli Marshalláætlunarinnar, milli ákvæðanna um mótvirðissjóðinn og þess áróðurs, sem nú er hafinn fyrir því að beina erlendu einkaauðmagni inn í íslenzkt atvinnulíf, þannig að leigja beinlínis dýrmætustu auðlindir Íslendinga til þessa auðmagns.

Í áramótagrein í Tímanum, sem formaður Framsfl. birti um s.l. áramót, segir hann m.a.: „Til þess að veita iðnaðinum ódýrt afl verðum við að nýta þann óhemju auð, sem við eigum í fossaflínu. Við munum ekki geta fengið það mikið lánsfé, sem til þess þarf, enda vafasöm leið að stofna til svo stórfelldra skulda. Hin leiðin, sem Norðmenn hafa farið og þeim hefur reynzt með afbrigðum vel, er að veita einkaleyfi til fyrir fram ákveðins tíma og með kauparétti að vissum tíma liðnum. Á þann hátt hafa Norðmenn eignazt næstum öll þau fyrirtæki, sem stofnað hefur verið til þar í landi með þessu móti. Við getum ekki gert hvort tveggja í senn, að heimta stórbætta velmegun þjóðinni til handa og neita að nota þær auðlindir, sem geta veitt þá velmegun, sem við heimtum.“

Hér er skýrt að orði kveðið, hvert meiningin er að stefna í þessum efnum. Meiningin er beinlínis sú að leigja fossaflið íslenzka, sem hefur alltaf, frá því að vélatækni komst á verulegt stig í heiminum, verið talið eitt af verðmætustu eignum íslenzku þjóðarinnar.

Ástæðan til þess, að nú virðist lagt kapp á að fara inn á þessa braut, virðist eingöngu vera sú, að nú sé búið að undirbúa þann jarðveg, sem þurfti að undirbúa, búið með Marshalláætluninni og ákvæðunum um mótvirðissjóðinn að undirbúa þau tök Bandaríkjastjórnar með bandaríska auðvaldið að bakhjarli á íslenzku efnahagslífi, að nú megi bjóða þjóðinni upp á þetta og segja henni, að nú höfum við ekki annað að gera heldur en að leigja þessum sömu aðilum þessar verðmætustu auðlindir Íslendinga, eins og formaður Framsfl. kemst að orði í þessari áramótagrein.

Í sambandi við þetta vil ég enn fremur minnast á það, sem rætt hefur verið um mótvirðissjóðinn á undanförnum þingum. T.d. hefur alltaf verið reynt að neita því, að afskipti Bandaríkjastjórnar af mótvirðissjóðnum kæmu til oftar, en í fyrsta skipti, sem honum væri ráðstafað. Í sambandi við það vil ég minna á það, að það gerðist lítil saga einmitt um það mál á síðasta þingi, og það var í sambandi við þáltill., sem tveir þm., sinn úr hvorum stjórnarflokkanna, fluttu um ráðstöfun mótvirðissjóðsins, þegar hann kæmi inn í annað sinn. Í þetta skipti varð hæstv. landbrh. það á að verða heldur opinskár um þetta mál. Hann sagði í ræðu um málið hér í hv. Nd. þetta, sem ég vil nú lesa, með leyfi hæstv. forseta:

„Eins og hv. Alþ. er kunnugt, er mótvirðissjóði ráðstafað þannig, að það þurfa að vera tveir aðilar, sem um það fjalla. Það þarf að fá samþykki Marshallstofnunarinnar til þess að ráðstafa fé úr sjóðnum. Er samningar hafa tekizt um ráðstöfun fjárins, þá þarf að setja um það lög. Þessi ályktun, sem hér er gerð, mundi leiða til þess að mínum dómi, að ég mundi krefjast þess, að ríkisstj. leitaði eftir samkomulagi við Marshallstofnunina um að ráðstafa fé á þennan hátt, þar sem fyrir lægi ákveðinn vilji þingsins, þar sem þess er óskað, og síðan verði sett lög í samræmi við það.“

Hér sagði hæstv. landbrh., ég held alveg óviljandi, það, sem raunverulega er oftast reynt að fela, og það er það, að tilætlunin sé sú, að Bandaríkjastjórn megi ráðstafa mótvirðissjóðnum eða eigi skilyrðislausan íhlutunarrétt um ráðstöfun mótvirðissjóðsins um ófyrirsjáanlega framtíð, eða réttara sagt: þess fjármagns í íslenzku atvinnulífi, sem svarar til mótvirðissjóðsins. Og fullnaðarsönnun fyrir þessu kemur raunverulega núna á þessu þingi í álíti Jóns Árnasonar bankastjóra, sem hefur verið til umræðu hér í þessari hv. d., þar sem þessi bankastjóri leggur beinlínis til að reyna að ná samkomulagi við Bandaríkjastjórn um að endurgreiða mótvirðissjóðinn til þess að losna við þá íhlutun, sem hann kallar „meiri og minni íhlutun af íslenzku atvinnu- og fjármálalífi“, sem fylgi mótvirðissjóðnum, ef hann eigi að verða starfandi í íslenzkum peningamálum. Það liggur í augum uppi, að þegar aðalbankastjóri Landsbankans leggur til að endurgreiða mótvirðissjóðinn, þá er það fyrir það, að honum er ljóst, hversu geysilega hættuleg braut það er, sem hér er komið inn á. Og hér er einmitt sýnilega komið inn á þá braut, sem þurfti að komast inn á, til þess að hægt væri að beygja íslenzka stjórnmálamenn til þess að hefja baráttu fyrir því að leigja erlendum auðhringum fossaflið okkar.

Það liggur í augum uppi, að þegar mótvirðissjóðurinn nemur allt að 400 millj. kr., sem útlit er fyrir að hann verði, — nú er hann kominn á fjórða hundrað millj., og það er gert ráð fyrir, að það bætist í hann meira, — þá er hann svo mikill þáttur í því fjármagni, sem fer til íslenzkrar fjárfestingar, að óhætt má fullyrða, að það verður ekki mikið af fjárfestingarframkvæmdum á Íslandi, sem verður unnið án þess, að Bandaríkjastjórn hafi meiri og minni íhlutunarrétt þar um, eins og bankastjórinn kemst að orði. Og það kemur enn þá betur í ljós í áliti bankastjórans, þar sem hann kemur með það sem nokkurs konar varatillögu, að ef ekki náist samkomulag um það við Bandaríkjastjórn að endurgreiða mótvirðissjóðinn til þess að losna við þessi áhrif og þessi völd hennar, þá skuli honum a.m.k. haldið alveg sérstökum og alls ekki ruglað saman við önnur fjármál í landinu.

Það var verið núna fyrir svona um það bil klukkutíma að samþ. hér þáltill. frá nokkrum þm., áskorun til ríkisstj. um að taka mjög til athugunar að gera ráðstafanir, sem gætu orðið til þess að halda jafnvægi í byggð landsins. Það mætti vera, að þeir hv. þm., sem fluttu þessa till., séu undir niðri eitthvað smeykir við þá þróun, sem virðist vera stefnt að núna í sambandi við þessi mál öll, sem Framkvæmdabankinn virðist eiga að vera kóróna á, — smeykir við það, að það muni leiða af sér þá þróun, sem fremur muni skapa það, sem þeim e.t.v. ægir við, jafnvægisleysi í byggð landsins, og ég held, að það sé ekkert fjarri lagi að ætla svo. Ég held, að það sé ekki fjarri lagi að gera ráð fyrir því, að þegar svo er komið, að Framkvæmdabankinn á að taka að láni 80 millj. kr. í erlendum gjaldeyri — um eða yfir 80 millj. kr., sem fjmrh. getur tekið ríkisábyrgð á án þess að spyrja Alþ. um, og því fé verður ráðstafað að verulegu leyti í stórframkvæmdir, sem raunverulega erlendur aðili og erlent auðvald ræður, hvernig eru staðsettar og hvernig eru framkvæmdar, þá sé ekki úr vegi að gera ráð fyrir því, að það muni skapa æði mikla breytingu á hagkerfi landsins alls og á atvinnulífi landsins í hinum einstöku landshlutum og þar með í byggð landsins, eins og þessir hv. þm. kalla það. Það hefur mikið verið um það talað núna undanfarin ár, að það skuli hafa skeð, að einn afskekktasti hreppur landsins skuli algerlega hafa lagzt í eyði og verið lagður niður sem hreppsfélag. En ég er hræddur um, að það geti farið svo, ef á þessari braut verður haldið áfram, að í fyrsta lagi verði erlendum auðfélögum leigðir fossarnir til þess að nýta þá til stóriðju, án þess að Íslendingar hafi nokkuð um að segja, hvernig þær framkvæmdir verði gerðar, og í öðru lagi á Bandaríkjastjórn gegnum það fé, sem hún hefur lagt gegnum Marshallhjálpina, mótvirðissjóðinn, að hafa hönd í bagga með öðrum fjárfestingum á Íslandi líka, þá gæti skeð, að þeir yrðu nokkrir hrepparnir, sem yrðu fallnir algerlega niður úr byggðinni að 10–20 árum liðnum.

Að síðustu vil ég benda á annað atriði, sem einmitt kemur fram í þessari áramótagrein hæstv. landbrh. og sömuleiðis í leiðurum blaðs hans og fjmrh., sem sífellt er að klifa á þessu sama máli. Það er það, að við getum tryggt okkur eignarrétt þessara fyrirtækja að nokkrum tíma liðnum með því að setja það skilyrði, að við höfum kauprétt að einhverjum ákveðnum tíma liðnum á þeim fyrirtækjum, sem byggð eru á íslenzku vatnsafli af erlendu auðmagni á þeim grundvelli, að því verði lagt vatnsaflið til þess.

En hvað er nú það, sem búið er að gera til þess að undirbúa það, að Íslendingar geti þá notað sér þann kauprétt, jafnvel þó að hann væri settur í samninga? Það væru vægast sagt óglæsilegar horfur fyrir íslenzku þjóðina eftir 20–30 ár til að geta keypt slík stórfyrirtæki af því erlenda auðmagni, eftir að Bandaríkjastjórn og það sama erlenda auðmagn er búið að hafa hönd í bagga með fjármálalifi þjóðarinnar á öllum öðrum sviðum með þeim áhrifum, sem það hefur fengið yfir því fjármagni, sem íslenzka þjóðin hefur fengið gegnum Marshalláætlunina. Mér sýnist, að hér sé að verða fullkominn leikurinn, stefnt að því upphaflega með Marshalláætluninni að gera íslenzku þjóðina svo fjárhagslega háða þessu auðvaldi, að hún yrði fegin að leigja því hinar verðmætustu auðlindir sínar, sem það gæti svo nytjað algerlega eftir vild, og tryggja svo þessu sama auðvaldi raunverulega fjárhagsleg yfirráð yfir öðru atvinnulífi þjóðarinnar á sama tíma, svo að vitað sé þó fyrir fram, að hún geti ekki einu sinni notað annað atvinnulíf til þess að reyna að rétta sig úr kútnum.