30.10.1952
Efri deild: 18. fundur, 72. löggjafarþing.
Sjá dálk 65 í B-deild Alþingistíðinda. (93)

12. mál, gengisskráning o. fl.

Gísli Jónsson:

Herra forseti. Þó að ég hafi ekki skrifað undir nál. með fyrirvara og sé samþykkur því að leggja til við þessa hv. d., að frv. verði samþ. óbreytt, þá þykir mér þó rétt að gera hér nokkra grein fyrir afstöðu minni til málsins í heild.

Það frv., sem hér liggur fyrir, er raunverulega framlenging á því, sem hefur verið lögfest hér áður og gilt hefur nú síðan 1950, um það, hvernig verðlagsuppbætur skuli greiðast til ársloka 1953. Hér er því ekki um neitt nýtt mál að ræða, það hefur verið margrætt hér í hv. Alþ., m.a. hér í þessari hv. d. Ég hef þar áður lýst afstöðu minni til málsins, og sú afstaða er ekkert breytt. Hv. frsm. meiri hl. n. gat þess og í sinni framsöguræðu, að hann væri ekki ánægður með þetta fyrirkomulag og hann teldi einnig, að ýmsir nm. væru á þeirri skoðun, að það væri ekki heppilegt að viðhalda því, þó að þeir hins vegar féllust á framlenginguna að þessu sinni. Ég tek mjög undir þessi orð hv. frsm. En vegna þess, að það mætti þykja nokkuð einkennilegt, að meiri hl. n. skuli þá leggja til, að þetta kerfi sé framlengt til ársloka næsta árs, þykir mér rétt að fara hér nokkrum orðum um málið.

Þessu kerfi hefur verið haldið, að vísu nokkuð breyttu í einstökum atriðum, en í meginatriðum hefur því verið haldið nú um áratug, og það hefur ekki leitt til þess, að um þetta væri nokkurt samkomulag, hvorki á milli launþega né þeirra, sem greiða laun, ríkisins, bæjanna eða annarra atvinnurekenda. Það er því ekki kerfi, sem þessir aðilar geta komið sér saman um, ekki hefur skapazt sá grundvöllur, sem þeir geta mætzt á, það eitt út af fyrir sig er nægilegt til þess, að það ber brýna nauðsyn til þess að finna annað kerfi og annan grundvöll í sambandi við launakjör og atvinnurekstur í landinu. Þetta er ein meginástæðan fyrir því, að ég er ósamþykkur því, að þessu kerfi sé haldið áfram, nema af brýnni nauðsyn, þar til endanlega verður séð út um það, hvort ekki næst samkomulag milli aðilanna um að skapa sér annað hollara og heilbrigðara kerfi í atvinnumálum þjóðarinnar. Þegar litið er á þátt launþegans í þessu máli, þá þarf ekki að lita langt til baka til þess að sjá, að launþeginn hefur aldrei verið ánægður. Það var hugsað í upphafi að taka þetta kerfi upp til þess að fyrirbyggja uppsögn á samningum, fyrirbyggja óeðlilegar hækkanir í launakröfum, sem atvinnuvegirnir gætu ekki staðið undir og röskuðu þannig atvinnumálunum í landinu. Þetta hefur ekki tekizt. Það hafa sí og æ verið átök í sambandi við grunnlaunahækkanirnar í landinu. Ofan á átökin, sem hafa verið um þetta mál, hafa ávallt verið sterk átök um grunnlaunahækkanir í landinu, en einmitt þetta kerfi átti að fyrirbyggja, að slík átök ættu sér stað. En þegar það er vitað, að ekki hafa minnkað átökin að nokkru leyti í sambandi við kröfur um grunnlaunahækkanir annars vegar og neitun atvinnuveitendanna hins vegar að verða við þeim kröfum, sem þeir þó hafa orðið að láta undan í hvert skipti, þá er alveg fallinn burt grundvöllurinn undir því að halda við þessu verðlagsuppbótakerfi eða kaupuppbótakerfi, sem hér hefur verið lögtekið og á að halda áfram til ársloka 1953. Þá er alveg eins gott að taka baráttuna upp fyrir kaupgjaldinu í heild, bæði grunnlaunum og uppbótum, eins og að vera í sífelldri baráttu um grunnlaunahækkanir fyrir utan þingsalina og síðan um verðlagsuppbæturnar í þingsölunum. Þetta er eina ástæðan fyrir því, að ég er mótfallinn þessu fyrirkomulagi.

Jafnvel þótt tekizt hafi samningar milli verkalýðsfélaganna annars vegar og vinnuveitenda hins vegar um kaupgjald einhvern ákveðinn tíma, þá er vitað, að margar af þeim stéttum, sem hafa fellt sig við þá samninga og undirritað þá, hafa strax beitt ýmsum brögðum til þess að fá hærri bætur eða fá laun sin bætt eftir öðrum leiðum, og alveg sérstaklega í þeim atvinnugreinum, sem vitað er að hafa getað þolað á vissum tímum þær kaupkröfur. Þarf ekki annað, en að benda á þær kröfur, sem hafa verið gerðar meðal annars í iðnaðarstéttinni, segjum t.d. hjá múrurunum, þar sem þeir hafa raunverulega tekið stórar fjárfúlgur fram yfir það, sem samið hefur verið um, og fallið hefur ákaflega athyglisverður dómur um þetta í hæstarétti; að óleyfilegt hafi verið að taka, — ég skal skýra hæstv. ráðh. frá því, ef hann vill, — og ef ætti að framfylgja þeim málum, þá mundu þeir skulda nú ýmsum atvinnuveitendum stórkostlegar fjárfúlgur í sambandi við sín verk og sín laun, sem þeir hafa tekið þannig fram yfir samningsbundnar greiðslur. En í því felst dómurinn, að viðkomandi aðilar höfðu samið við verktaka að vinna ákveðið verk samkv. samningi í tímavinnu, sem hann lauk og fékk fullgreitt fyrir og kvittaði fyrir, en hans samtök kúguðu hann til þess að fara í mál út af því og fá greiðslu síðar eftir uppmælingu samkv. ákvæðisvinnutaxta, sem þeir sjálfir höfðu samið. Það skakkaði um hér um bil helming upphæðarinnar, sem um var deilt, og dómurinn féll þannig, að verktakinn tapaði málinu. Og þá var því einnig slegið föstu, að allar slíkar fjártökur, sem hefðu verið þannig teknar óleyfilega, væru ólöglega teknar. Það nákvæmlega sama má segja um t.d. vörubilstjóra, sem vitað er að hafa ekki viljað beygja sig undir þá samninga, sem gerðir hafa verið af þeirra félagssamtökum, og neitað að vinna eftir þeim, en hins vegar viljað vinna ákvæðisvinnu, sem þeir hafa sjálfir ákveðið, og hafa þannig tekið miklu meiri laun, heldur en ákveðið hefur verið með þeirra samningum. Og svona má lengi telja. Ef leitað er í embættismannastéttinni, þar sem laun embættismannanna eru ákveðin með lögum og með lögum er einnig ákveðið, hvað mikið skuli greiða í verðlagsuppbætur á hverjum tíma, þá þarf ekki að leita lengi til þess að sjá, hversu þar hefur verið farið langt út fyrir þau lagafyrirmæli á ýmsum sviðum, og ég veit, — hv. 1. landsk. er nú ekki hér inni, — en ég veit, að hann eða hans flokkur getur fengið um það ýmisleg gögn í fjvn., hvernig þeim málum er komið. Það er ekki einasta, að menn fái þar launauppbætur með því að vinna oft og tíðum fram yfir sinn vinnutíma, sem er ekkert við að segja, heldur fá þeir þær í ýmsum og margvíslegum myndum, m.a. í risnu, til þess að ekki þurfi að telja það fram til skatts, og jafnvel í áhættuþóknun í sínu starfi, sem venjulegir menn geta ekki skilið, að nokkur áhætta sé að vera í. En þetta segi ég aðeins til þess að sýna fram á, hversu það er fjarri því, að nokkur af þessum aðilum vilji lúta fyrirmælum um launauppbætur samkv. þeim reglum, sem lögteknar hafa verið á Alþ., síðan farið var inn á þetta kerfi.

Það er því alveg sýnilegt, að það eru hvorki verkamenn, embættismenn né aðrir launþegar í landinu, sem vilja lúta því að vinna fyrir sín samningsbundnu eða lögbundnu laun að viðbættu því, sem ákveðið er hér í l. um uppbætur vegna dýrtíðar, og er því fullkomlega kominn tími til þess að afnema þetta kerfi að fullu og öllu.

Þá vildi ég benda á hina hliðina, sem hæstv. fjmrh. kom mjög mikið inn á, sem er raunverulega kjarni málsins, og það er, hvort atvinnuvegirnir í landinu raunverulega þola nú þessar hækkanir. Hvort heldur þær koma fram í beinum grunnlaunahækkunum eða í hækkandi verðlagsvísitölu eða á hvaða hátt sem þær koma fram, þá er það raunverulega kjarni málsins: Þola atvinnuvegirnir í landinu þær? Ég skal ekki fara langt út í þetta mál, en ég skal aðeins benda á, að vegna þess, hversu margir staðir á Íslandi nú hafa átt í erfiðleikum í sambandi við atvinnumálin, m.a. vegna þess, að atvinnuvegirnir þar, hafa ekki getað borið útgjöldin, hvorki launin né önnur útgjöld, eins og hefur þurft að greiða það, þá hafa þessir staðir komizt í atvinnuþrot. Þeir hafa síðan leitað til ríkissjóðs um margvíslega hjálp, eins og hv. Alþ. er kunnugt. Þangað hefur verið dreift togurum, sem taldir hafa verið einhver hin beztu atvinnutæki hér á landi, þeim hefur verið dreift út um lands- byggðina með hvorki meira né minna en 90% ábyrgð frá ríkissjóði, og það hafa verið byggð frystihús, fiskimjölsverksmiðjur og ýmislegt fleira í sambandi við atvinnumálin, beinlínis til þess að geta haldið atvinnunni uppi í landinu á þessum stöðum, vegna þess að einstaklingarnir hafa horfið frá því að halda atvinnuvegunum þar uppi, vegna þess að þeir hafa ekki getað borið sig. Það er skammt að minnast þess, að Siglufjörður hefur fengið tvo af nýsköpunartogurunum, og síðari togarann fékk Siglufjörður í fyrra með mikilli aðstoð frá ríkissjóði. Nú liggur fyrir frá Siglufirði beiðni um það til Alþ. eða hæstv. ríkisstjórnar að losa sig undan því að þurfa að greiða aðkallandi gjöld, eins og vexti og afborganir af lánum, svo að þeir missi ekki þessi fyrirtæki, — og upplýsingar um það, að á s.l. ári hafi þessi fyrirtæki hvort fyrir sig, þ.e. hvor togari, tapað um 11/2 millj. kr. á sínum rekstri, einni og hálfri millj. króna. Nú sé það fjarri mér að halda því fram, að það hefði verið hægt að jafna allt þetta tap með því að ganga á laun þeirra manna, sem við fyrirtækin vinna bæði á sjó og landi, en enginn vafi er á því, að þetta er sönnun fyrir því, að þessi atvinnurekstur þolir ekki undir neinum kringumstæðum það kaupgjald, sem greitt er í landinu. Hitt er svo allt annað mál, hvernig á að fara að því að jafna þessi met, en þau verði náttúrlega sízt af öllu jöfnuð með því að gera kaupgjaldið enn hærra.

Það, sem mestum erfiðleikum hefur valdið í atvinnumálum á Íslandi undanfarið, síðan þetta kerfi var tekið upp, er ekki einasta kauphækkunin út af fyrir sig, heldur og hið óvenjulega öryggisleysi í sambandi við kaupgjaldsmálin. Það hefur enginn atvinnurekandi, ríkissjóður eða nein önnur stofnun eða bæjarfélögin, ekki einu sinni hinar almennu tryggingar, haft nokkurt öryggi fyrir því 1. jan., hvað raunverulega þarf að greiða það ár, sem þá er að byrja, í sambandi við laun eða þær upphæðir, sem eru háðar verðlagsvísitölunni, og þetta er einn stórkostlegasti ókosturinn við kerfið. Menn eru sí og æ í óvissu um það, hvað þarf að reikna í sambandi við kaupgjald, og það kippir bókstaflega grundvellinum að fullu og öllu undan öllum atvinnurekstri þjóðarinnar, svo lengi sem því kerfi er haldið áfram. Við höfum orðið varir við það hér í þessum bæ, að það hafi orðið m.a. að leggja á aukaútsvar til þess að geta náð inn nægilegu fé til þess að mæta þeim útgjöldum, sem þessu hafa orðið samfara og skollið hafa á, eftir að var búið að semja allar fjárhagsáætlanir. Þetta er ein ástæðan fyrir því, hversu ég er andvígur þessi kerfi yfirleitt. Auk þess er alveg vitað, að kerfið sjálft hefur borið í sér þá veilu, sem nú er í fjárhagskerfi þjóðarinnar. Það hefur raunverulega smitað allt fjárhagskerfi þjóðarinnar þannig, og það vita allir, að eins og það er nú, þá er það sjúkt og getur ekki staðið þannig lengi, nema því aðeins að eitthvert annað fyrirkomulag verði tekið upp.

Hæstv. ráðh. benti hér mjög skýrt á, hvernig kaupmátturinn væri ekki til hagsbóta fyrir neina þá aðila, sem gera kröfur um hækkandi kaup, í hvaða formi sem það er, nema fyrir þá eina, sem teknir eru út úr hópnum til þess að gera það á kostnað annarra. En ég vil hér, áður en ég lýk máli mínu, leyfa mér að fara nokkrum orðum um það, hvaða atvinnuvegur það nú er í landinu, sem getur þolað hækkandi vísitölu og hækkandi kaupgjald og hækkandi grunnlaun. — Er það sjávarútvegurinn? Ég hef lýst því nokkuð, hvernig hefur gengið með útveginn á Siglufirði, og það er ekkert einsdæmi. Þessar sömu kröfur liggja nú í sambandi við tvo togara, sem gerðir eru út af bæjarstjórn Vestmannaeyja og upplýst er, að hafi tapað milljónum undanfarin ár. Sömu kröfurnar liggja einnig hér fyrir frá togurum, sem gerðir eru út á Norðfirði. Sömu kröfurnar liggja fyrir um togara, sem gerðir eru út frá Akranesi, og sömu kröfurnar liggja fyrir um þó nokkuð marga mótorbáta, sem gerðir hafa verið út á Vesturlandi. Þetta, samfara þeirri vitneskju, sem við vitum um og þekkjum í sambandi við greiðslur, sem greiddar hafa verið svo milljónum skiptir til þess að halda útgerðinni við liði, að ógleymdum alveg þeim stóru fúlgum, sem liggja í því, að útgerðin fær fríðindi í sambandi við bátagjaldeyrinn, sýnir, að þessi útvegur, að þessi atvinnugrein, sem er þó aðalatvinnugrein landsmanna, getur ekki undir neinum kringumstæðum staðið undir þessu, nema einhvers staðar komi frá tillag, styrkur frá einhverjum aðila, og hann hefur verið sóttur undanfarin ár beint í ríkissjóðinn, svo að ekki þyrfti að stöðva þessi atvinnumál. Ríkissjóðurinn eða ríkisvaldið hefur svo aftur orðið að leggja þetta á þjóðina til þess að taka það af henni aftur í sköttum. Þar er komin, eins og við vitum, önnur hringrás, sem ekki er æskilegt, að þróist lengur, en nú er orðið, nema síður sé. — Þá skulum við líta á landbúnaðinn. Eru þeir menn, sem nú ræða alltaf um það, að landbúnaðarafurðirnar mættu ekki hækka, svo kunnugir afkomu bænda yfirleitt, að þeir treysti sér til þess að fullyrða það með rökum, að þessi atvinnuvegur þoli annaðhvort hærri laun eða, sem kemur í sama stað niður, minna verð fyrir sínar afurðir? Mér skildist það m.a. á hv. 4. þm. Reykv., að hann teldi, að allt meinið lægi í því, að ekki væri hægt að stöðva verðið á landbúnaðarafurðunum og þá náttúrulega að leggja byrðina á þá aðila. Ég held, að þeir menn, sem kynna sér út af fyrir sig afkomu bænda almennt, lífskjör þeirra, húsakynni og lífsþægindi, og bera það saman almennt við lífskjör, húsakynni og þægindi annarra manna í þessu landi og það einnig m.a. hér í Reykjavík, komist fljótt að þeirri niðurstöðu, að þessir menn hafi ekki farið með stærri skerf úr at- vinnuvegunum heldur, en aðrir þegnar þjóðfé- lagsins, nema siður sé. Og ein sönnun fyrir því og raunverulega viðurkenning fyrir því, að þetta sé rétt, er einmitt sá fjárhagslegi styrkur, sem veittur hefur verið hér á Alþ. til þess að halda þessum atvinnuvegi áfram, m.a. líka vegna þess, að það er talið, að þjóðin geti ekki án þeirra manna verið í þeim atvinnuvegi, en vitað hins vegar, hversu ásóknin er að leita í burtu frá honum í bæina.

Hv. 4. þm. Reykv. spurði m.a. í sambandi við þetta mál áðan, hvort það væri þá nokkur hagur fyrir bændurna að vera að hækka afurðirnar nú um 12%, eða rúml. 12%, úr því að hæstv. ráðh. hefði haldið því fram, að það væri enginn hagur fyrir verkamennina að hækka sín laun. Ég vil í sambandi við þetta mál leyfa mér að benda á, að það getur vel farið svo og er þegar ef til vill komið á það stig, að það sé enginn hagur, og þessi hv. ágæti sami þm. minntist einmitt á þetta í annarri ræðu á öðrum fundi í þessari hv. d., að það væri komið svo núna, að kaupgjald þessara bænda, þ.e.a.s. gjaldmiðill þessara bænda, sem er þeirra afurðir, þær seldust ekki lengur, hann væri ekki lengur gildur, hann væri falinn í verði, það lægju hér ostar og smjör og aðrar ágætar afurðir í stóru magni, mjög stóru magni, sem alþýðan hefði ekki aðstæður til þess að kaupa. Það er síður en svo, að það sé útilokað, að það mætti ræða um þann möguleika, að landbúnaðarafurðirnar jafnvel hættu að hækka í verði, jafnvel þótt kaupgjald verkamannsins hækkaði hlutfallslega á einhverju tímabili. Það gæti vel komið til mála frá mínu sjónarmiði, að þeir menn sæju, að það væri hagur fyrir þá að hafa ekki hækkað landbúnaða- afurðirnar, t.d. í ár, og geta þannig selt sínar afurðir til þeirra manna, sem þurfa að kaupa og verða að kaupa þær, og þeirra heildartekjur gætu því orðið hærri, ef það væri farið út á þá leið. En þá gildir og nákvæmlega það sama um verkamanninn. Það kynni að vera svo, að hann kæmist, og hann er þegar kominn á það stig, að það er ekki spurningin um, hvað hægt er að hafa margar krónur um klukkutímann, heldur hvað er hægt að hafa margar krónur í árslaun, hvað marga tíma sem svo þarf að láta fyrir þær, og gildir þar það sama fyrir báðar stéttirnar eins og raunverulega allar aðrar stéttir í landinu.

Þá skulum við taka iðnaðinn. Mér hefur nú heyrzt það, að þessir hv. þm., sem hér ræða nú mest um það að breyta þannig l., að það valdi stórkostlegri verðbólgu enn í landinu og stórkostlegum launahækkunum, eins og t.d. hv. 1. landsk., hafi haldið því fram hér, að það hafi ekki verið nein blómaöld núna hjá iðnaðinum þessi s.l. ár. Það hefur verið talað um stórkostlega afturför í iðnaðinum, það hafi orðið að segja tugum og hundruðum og þúsundum manna upp. En þá af hverju? Fyrst og fremst af því, að kaupmáttur þjóðarinnar hefur ekki getað keypt af þeim það magn, sem þeir hafa getað framleitt, fyrir það verð, sem hefur kostað að framleiða það; það er það einasta. — Þá er eftir einn atvinnuvegurinn enn þá, þ.e. verzlunin. Ja, hv. 4. þm. Reykv. kom nú inn á það og minntist á það, að þeir væru víst ekki alveg sammála um það, heildsalarnir, að 10% eða 20% hækkun á verzlunarálagningu væri ekki þeim hagur. En það er alveg nákvæmlega sama um þá atvinnugrein eins og allar aðrar í landinu, það er því aðeins hagur, að hægt sé að fá einhverja aðila til þess að kaupa vörurnar með þeirri álagningu, og ef kaupmáttur þjóðarinnar almennt er orðinn slíkur, að hún getur ekki keypt vörur, sem lagt er á, hvort sem er 10% eða 110%, þá verður sú álagning að lækka af sjálfu sér. — Og þá er ekkert orðið eftir hér annað, en embættismannalaunin, en það er náttúrlega stórkostlegur hagur fyrir embættismannastéttina, og það er sannarlega barizt ötullega fyrir því af hv. 4. þm. Reykv. og hans flokksmönnum hér í þinginu, að þetta sé ekki skert, og ég veit nú ekki, hvort hv. 1. landsk. hefur gert sér ljóst, ef hans tillaga er samþykkt, hversu gífurleg launahækkun verður hjá embættismannastéttinni í landinu. Ég veit ekki, hvort hann hefur gert sér það ljóst, hvaða áhrif það hefur, ef hans tillaga hér á þskj. 153 er samþ. Ég veit ekki, hvort hann hefur gert sér það ljóst, að hann er þar sannarlega ekki að vinna fyrir verkamannastéttina eina, — sannarlega ekki. Þá er nú fyrst og fremst það, að það er kippt í burtu þeirri viðmiðun, sem nú er, þ.e. að greiða ekki fulla uppbót á þau laun, sem eru yfir 1.830 kr. á mánuði. Þeim takmörkunum er kippt í burtu með tillögunni. Þetta mundi hækka stórkostlega verðlagsvísitöluna. Það mundi ekki eingöngu ganga út yfir verkamanninn, það mundi einnig hafa áhrif á launin, sem á að greiða til embættismanna. Nú get ég upplýst hv. þm. um það, og hann getur fengið það upplýst hjá sínum flokksmönnum, að það eru ekki allfáir embættismenn í þessu landi, sem eru með yfir 100 þús. kr. árstekjur. Og ég verð að segja það, að þó að ekkert annað væri því til fyrirstöðu heldur en það að hækka enn laun þeirra, þá vildi ég ekki vera með því, þótt það jafnframt bætti laun verkamanna; það fengi enginn mig til þess að samþykkja það, þegar sá böggull fylgdi því skammrifi að vera einnig að hækka allverulega laun til þeirra manna, sem hafa slík laun og ég hef hér bent á.

Í sambandi við atvinnumálin í landinu er það einnig ljóst, að allmörg sveitarfélög — og miklu fleiri sveitarfélög, en ég hefði getað gert mér hugmynd um — hafa orðið að leita til ríkissjóðs til þess að greiða vexti og afborganir af þeim lánum, sem ríkissjóður er í ábyrgð fyrir í sambandi við atvinnureksturinn í landinu. Og þessi upphæð nemur nú 1. okt. hvorki meira né minna en rúml. 30 millj. kr. og fer síhækkandi, og þetta er beinlínis vegna þess, að atvinnuháttunum er þannig komið í þessum stöðum, að sveitarsjóðirnir standa ekki undir tapi atvinnuveganna og verða að flýja til ríkissjóðs til þess að fá aðstoð. Hækkandi kaupgjald í landinu mundi ekki undir neinum kringumstæðum geta bætt þetta, nema siður sé. Ríkisstj. á hins vegar engin önnur ráð en leggja þessar 30 millj. kr. aftur á þegn- ana. Og í stað þess að geta notað þessar 30 millj. kr. til þess að byggja upp aðkallandi heilsustofnanir í landinu, svo sem sjúkrahús og ýmsar aðrar aðkallandi þarfir, þá verður hún að setja þessar þarfir til hliðar til þess að mæta þessum kröfum hér.

Þannig er nú ástandið orðið í þjóðfélaginu. Í fyrstu var álitið, að atvinnuvegirnir gætu þolað þessar kröfur allar. Því var haldið mjög fast fram, m.a. af þeim tveim þingfl. hér, sem nú vilja breyta þessari till., að þetta væri annað- hvort af skipulagsleysi eða af nízku einstaklinganna, sem ráku þessi fyrirtæki. Þess vegna væri það bót allra meina að taka nú þessi tæki eða koma því þannig fyrir, að þau skyldu nú ekki rekin af þeim lengur, heldur af því opinbera. Og meiri hl. Alþ. hafði einmitt sett um það löggjöf að hjálpa með miklu meiri peningafúlgum þeim aðilum, sem margir menn stóðu á bak við, til þess að reka þessi fyrirtæki, þótt þeir hefðu miklu minni ábyrgðartilfinningu og minni möguleika og miklu minni hæfni og miklu minni þekkingu á málinu til þess að reka þessi fyrirtæki, heldur en hinum, sem höfðu kannske margra ára reynslu og sterkan vilja til þess að halda áfram. Og það var fyrir þá stefnu og þann áróður, sem hafinn var gegn þessu, að þessum málum er komið eins og komið er. Nú hafa þessir sömu menn fengið fullkomna vissu fyrir því, að ekki heldur hinir stóru hópar, hvorki bæjarfélög né önnur mannmörg félög, hafa treyst sér til þess að halda þessum atvinnuvegum þannig áfram, að þeir geti gert hvort tveggja í senn, mætt öflugum kröfum einstaklinganna, sem gerðar voru á einkaframtakið, og greitt allan kostnað, sem því er samfara, án þess að hafa til þess verulegan styrk frá því opinbera, heldur er nú svo komið, að það er ekki einungis búið að ausa upp þær auðlindir, sem þeir höfðu sjálfir heima fyrir, eins og t.d. sveitarsjóðina, heldur er nú einnig sótt í ríkissjóðinn.

Þetta er ástæðan, sem ég hér gef fyrir því, að ég er því andvígur, að þessu kerfi sé haldið áfram. En þá má spyrja: Hvers vegna læt ég þá mitt atkv. með því, að þessu sé haldið áfram til ársloka 1953? Skal ég gera hér grein fyrir því. Það er beinlínis vegna þess, að ég álít, að það verði ekki bætt úr þessu vandamáli nema með fullkomnu samkomulagi atvinnurekandans, ríkissjóðs, bæjarsjóðs eða sveitarsjóðs, annars vegar og vinnuþiggjanda hins vegar. Það er mín bjargföst skoðun, að það sé nauðsynlegast í þessu máli að fá um það samkomulag hjá þessum aðilum, og það er í því fulla trausti, að á þessum tíma, sem gefinn er frestur hér, þ.e. rúmt ár enn, þá verði unnið að því í alvöru að fá báða þessa aðila til þess að skilja þetta mál og til þess að setja sig niður til þess að semja um það, — ekki til þess að einn hópur eða einn aðili hafi gott af því, heldur til þess að þjóðfélagið í heild hafi gott af því og það sé hægt að snúa af þeirri braut, sem við erum inn á í þessum málum. Það er eina ástæðan fyrir því, að ég enn legg til, að þetta frv. verði samþ. Mér er það alveg fullkomlega ljóst, að takist það ekki, þá verða þeir menn, sem bera ábyrgð á þessum málum, hverjir sem það verða, að beita þeim tökum til þess að bjarga þjóðinni, sem ekki þarf að beita, ef sýndur verður fullur vilji og fullur skilningur á málinu. Og það mundi hafa meira böl í för með sér fyrir þjóðina að þurfa að beita þeim tökum til þess að bjarga henni, heldur en ef um það tækist samkomulag hjá þeim aðilum, sem ég hef hér minnzt á.

Ég hef þá fullkomlega gert grein fyrir mínu atkv. í sambandi við þetta mál. En ég vil að síðustu mega taka undir það, sem hv. frsm. meiri hl. minntist hér á um að steypa þessum tveim frv. saman, og vildi í því sambandi benda hæstv. forseta á, hvort hann vildi nú ekki eða þætti það ekki þinglegt að taka út af dagskránni 4. málið og láta ekki fara fram um það 1. umr. hér í þessari hv. d. Mér sýnist það ákaflega auðvelt, að á milli 2. og 3. umr. um 3. mál, sem nú er hér til umr., megi setja inn, að 2. gr. þess frv. skuli hljóða svo sem 1. gr. segir í 4. máli. Það mál hefur fengið fullkomna þinglega meðferð í hv. Nd., það ákvæði hefur verið samþ. þar við þrjár umr., auk þess sem þar er um staðfestingu á brbl. að ræða, og sé ég ekki, að það tefji á nokkurn hátt málið og þurfi neitt við það síðar að gera annað, en að senda það til einnar umr. í hv. Nd. síðar, og að þá séu bæði málin afgreidd. Ég vildi aðeins beina þessu til hæstv. forseta, mér finnst það eðlilegasta meðferðin á því máli.