13.11.1952
Efri deild: 25. fundur, 72. löggjafarþing.
Sjá dálk 915 í B-deild Alþingistíðinda. (972)

42. mál, verðlag

Guðmundur Í. Guðmundsson:

Herra forseti. Í tilefni brtt. þeirrar, er ég bar fram við frv. þetta við 2. umr., hefur allshn. tekið málið til athugunar á ný, eins og hv. frsm. n. tók réttilega fram. Hins vegar vil ég, til að forðast allan misskilning, vekja athygli á því, að þegar n. hafði þetta mál til meðferðar á milli 1. og 2. umr. og gaf út nál. sitt, þá áskildi ég mér í nál. rétt til að bera fram brtt. við frv. Er það því ekki alls kostar nákvæmt, sem fram kom í ræðu hv. frsm. n., að samþ. hefði verið að mæla með frv. óbreyttu af nefndarmönnum öllum.

Við athugun í allshn. nú hefur n. ekki orðið á eitt sátt um afgreiðslu málsins, og eru uppi ýmsar tillögur um, hvernig með skuli fara. Eitt eru þó a.m.k. fjórir, ef ekki allir nm. á einu máli um, að ekki sé hægt að afgreiða frv. án þess, að hæstv. viðskmrh. fái eitthvert aðhald um birtingu nafna þeirra aðila, er gerzt hafa sekir um óhóflega álagningu. Felst í þeirri afstöðu n. að sjálfsögðu yfirlýsing um, að hæstv. viðskmrh. hafi haldið svo slælega á þessum málum, að honum sé ekki treystandi til að fara með þau, nema því aðeins að Alþ. veiti honum meira aðhald en felst í brbl. hæstv. ríkisstjórnar. Er það vel, að slíkur skilningur kemur nú fram hér á Alþ., þó að það hefði verið miklu æskilegra, að hæstv. ríkisstj. hefði sjálf gert sér þetta ljóst, er brbl. voru sett, og ekki hefði til þess þurft að koma, að hæstv. Alþ. hefði þurft að benda ríkisstj. á þetta.

Okkur allsherjarnefndarmenn greinir nokkuð á um, hversu skipað skuli aðhaldi því, er hæstv. viðskmrh. skuli veitt um birtingu nafna verzlunarokraranna. Tveir nm. leggja til, að ráðh. skuli skylt að birta nöfn þeirra, sem sekir gerast um óhóflega álagningu, án þess að nánar sé tilgreint, við hvað sé átt með ákvæðinu um óhóflega álagningu. Hið sama felst í till. hv. þm. Barð. Ég fyrir mitt leyti hef ekki getað fallizt á svo óákveðið orðalag á lögunum, enda þótt ég telji þessa breyt. á frv. til bóta, þar eð í henni felst nokkurt aðhald. Almenningur hefur hins vegar þegar öðlazt sára reynslu af því, hvað hæstv. viðskmrh. telur hóflegt, þegar rætt er um álagningu. Þessi reynsla hefur orðið þjóðinni dýr, og tel ég enga von til, að sá hæstv. ráðh., sem á að framkvæma þessi lög, muni frekar hér eftir en hingað til gera sér viðunandi grein fyrir því, hvað er hóflegt og hvað er óhóflegt í álagningu. Þess vegna tel ég óhjákvæmilegt, að hæstv. ráðh. fái fastara aðhald um birtingu nafna en honum er veitt með till. meðnm. minna og till. hv. þm. Barð. Slíkt aðhald sé ég ekki að hægt sé að gefa ráðh. með öðru móti en því að taka nokkuð greinilega fram um það í l. sjálfum, hvað sé óhóflegt. Ég skal þó fúslega játa, að það hefði verið nokkur bót í máli, ef með till. þeirri, sem tveir meðnm. mínir bera hér fram, hefðu fylgt nokkur ummæli um, hvað þeir telja hóflegt og hvað þeir telja óhóflegt í álagningu. Ef frá þeim hefði fylgt eitthvert álit um þetta, þá hefði það þó verið nokkur vísbending til hæstv. ráðh., sem ég tel hann mjög þurfandi fyrir. En því fer mjög fjarri, að nokkuð slíkt komi fram, og vil ég því leyfa mér að spyrja hv. meðnm. mína, þá er þessa till. flytja, hvaða hugmyndir þeir geri sér um það, hvað sé hóflegt og hvað sé óhóflegt í sambandi við álagningu. Tel ég það alveg nauðsynlegt, að þeir viti a.m.k. sjálfir og skýri frá því, áður en till. þeirra verður afgreidd, hvaða hugmyndir þeir hafa í þessum efnum.

Svo sem fram kom við 2. umr. málsins, þá hef ég lagt til, að ráðh. sé skylt að birta nöfn þeirra, sem hækka álagningu um yfir 50% frá því, sem hún var á dögum fjárhagsráðs og viðskiptanefndar. Þessa till. tel ég nauðsynlegt að samþ., vegna þess að ég er sannfærður um, að hæstv. ráðh. telur álagningu hóflega, þó að langt fari fram úr þessu, og hann muni ekki birta nöfn, þó að álagning fari langt fram úr þessu, nema því aðeins að honum sé beinlínis fyrirskipað slíkt með l. Reynslan talar hér svo skýru máli, að ekki verður um deilt, og er ég þess fullviss, að framtiðin muni staðfesta þetta, verði till. mín ekki samþykkt.

Því hefur verið haldið fram, að mark það, sem ég set í mína till., muni verða skoðað sem vísbending um, að öllum sé heimilt að hækka álagningu sína um 50%, án þess að nokkuð sé við það að athuga. Þetta er alger rangtúlkun á till. Ég hef margtekið fram, að markið er eingöngu sett til þess að reyna að fá samkomulag um einhver takmörk, sem ekki geta talizt bein fjarstæða, án þess að í því felist yfirlýsing um, að 50% hækkun á álagningu frá því, sem áður var, sé hófleg. Till. tekur berum orðum fram, að álag geti verið óhóflegt, þó að það hafi verið hækkað um minna en 50% frá því, sem áður var, og er ráðh. þá heimilt að birta nöfn. Skylda ráðh. verður fyrst til, þegar komið er yfir 50%. Ber því till. svo greinilega með sér sem frekast má verða, að í 50% markinu felst síður en svo viðurkenning þess, að hækkun á álagningu upp að 50% sé hófleg og ekki ámælisverð. Og því vil ég sérstaklega skjóta til þeirra hv. þdm. tveggja, sem bera fram till. á þskj. 216, að mín till. hefur þá yfirburði yfir þeirra till., að í henni felst vísbending um það, hvað ég tel svo óhóflegt, að ekki verði komizt hjá því að birta nöfn þeirra, sem gerast sekir um of háa álagningu.

Það hefur komið fram hjá hæstv. ráðh. og fleirum, að allir muni hækka álagningu sína um 50% frá því, sem áður var, ef till. mín verður samþykkt. Þeim, sem þessu halda fram, vil ég benda á, að hæstv. ráðh. hefur í hendi sér að ráða við þetta, ef hann vill, með því að nota heimildarákvæðið í till. minni, ef samþykkt verður. Og hæstv. ráðh. vil ég alveg sérstaklega spyrja, hví hans mikla trú um, að hin frjálsa samkeppni haldi álagningunni í skefjum og geri allt verðlagseftirlit óþarft, rýkur allt í einu gersamlega út í veður og vind, þegar talað er um að binda birtingarskyldu hans við ákveðið mark. Hin margumtalaða frjálsa samkeppni átti þó einu sinni að vera þess megnug að halda allri álagningu í skefjum, og þurfti ekkert verðlagseftirlit að koma til. En nú, þegar rætt er um að binda birtingarskylduna við ákveðið mark, þá er hin frjálsa samkeppni og hennar áhrif gersamlega horfið og það svo, að hún á ekkert að verka á þetta bil, frá þeirri álagningu, sem ríkti áður, og upp að 50% markinu, sem ég vil halda mér við í minni till. sem skyldu til birtingar.

Ég skal taka það fram, að við 2. umr. málsins bar ég mína till. fram sem sjálfstæða till. Nú, þegar tveir meðnm. mínir hafa komið með till., sem ég tel að sé til nokkurra bóta, en þó takmarkaðra, þá hef ég borið mína till. fram á ný sem brtt. við þeirra till., vegna þess að ég legg á það áherzlu að fá mína till. borna upp á undan þeirra, til þess að ég geti verið með þeirra till. að minni till. felldri, þar eð ég tel nokkra bót í þeirra till.

Um till. hv. þm. Barð. sé ég ekki ástæðu til að ræða sérstaklega. Að svo miklu leyti sem ummæli mín um till. minna tveggja meðnm. eiga ekki við um hans till., þá get ég alveg tekið undir það, sem hv. 8. þm. Reykv. sagði um till. hv. þm. Barð.