13.11.1952
Efri deild: 25. fundur, 72. löggjafarþing.
Sjá dálk 935 í B-deild Alþingistíðinda. (982)

42. mál, verðlag

Páll Zóphóníasson:

Herra forseti. Ég skal ekki blanda mér mikið í þessar umr., en vildi þó, áður en kemur til atkvgr., gera dálitla grein fyrir minni afstöðu.

Ég vil leyfa mér að benda hæstv. viðskmrh. á það, að þegar ég greiði atkv. um frumvörp og orðalag hér í frv. og orðalag í einstökum frvgr., þá er það ekki að neinu leyti með tilliti til þeirra ráðh., sem þá stund sitja í ráðherrastóli. Ég er þá að greiða atkv. um lög, sem ætlað er að gilda eitthvað fram í framtíðina, og þó að ráðherrastólarnir séu nú góð sæti, þá eru þau ekki svo örugg eða viss, að það sé víst, að sá ráðh. sitji í sama sætinu meðan viðkomandi lög eru í gildi. Þegar ég þess vegna er með í því að setja „skylt“ í staðinn fyrir „heimilt“ í þessum l., þá er það af því, að ég treysti ekki sérstaklega vel neinum ráðh., sem í viðskiptamálaráðherrasætinu situr á meðan þessi lög — ef samþykkt verða — kunna að vera í gildi, til að nota heimildina, ef það er heimild, ég vil láta það vera „skyldu“. Það er ekkert vantraust á þennan ráðh. frekar en aðra, sem koma eftir hann. Ef ég greiði atkv. um vantraust, þá er það viðvíkjandi persónunum, sem í stólunum sitja þá stundina, en þegar ég greiði atkv. um orðalag greina eða lagafrv., þá er það ekki miðað við þá menn, sem það augnablik sitja í þessum stólum, heldur þá menn, sem í framtíðinni — og þeir geta orðið margir — hafa með lögin að gera, og þá vil ég láta það vera „skylt“, en ekki „heimilt“. Þess vegna er það, að ég er með því fyrst og fremst að breyta þessu í frv.

Ég get ekki verið með 50%, af því að það mundi í framkvæmdinni, þrátt fyrir túlkun flm. á því, verða skoðað sem lágmark, sem óhætt er að fara í óátalið og auka þess vegna álagninguna, en álagningin er ærið nóg fyrir, og hún verður að vera mikil, af því að 12% af þjóðinni lifa á því að verzla við hina — og líklega þó meira núna. Það var árið 1940, sem það voru 12% af þjóðinni, sem lifðu á því að verzla við hina. Síðan hefur verzlunarstéttinni fjölgað, og þegar þeir eiga að hafa allar sínar lífsþarfir af að verzla við hina, þessi 12%, þá verða þeir að leggja mikið á. Það er ekki hægt að komast hjá því, að þeir geri það.

Þær voru gróflega aðgengilegar fljótt á að líta, till. hv. þm. Barð. og skriflega till., sem nú á að liggja fyrir. Samt sem áður get ég ekki verið með þeim, og það kemur af því, að þó að ég hafi ekki mikið vit á verzlunarmálum og ekki verið mikið við þau riðinn um dagana, þá man ég eftir tveim tilfellum, sem fyrir mig hafa komið, sem sýna mér, hversu óskaplega asnalega sú till. gæti komið út, ef farið væri að framkvæma hana eftir orðanna hljóðan, og það byggist á því, að hér er alls staðar verið að ræða um álagningu, en ekki verð. Ég minnist þess, að einu sinni, meðan ég hafði það verk með höndum að vera með öðrum mönnum í því að setja verð á vörur í verzlun, fengum við með sama skipinu frá tveim ólíkum innflytjendum haframjöl — venjulega matvörutegund — sem var með svo misjöfnu verði, að ef sama prósenttala hefði verið lögð á það þá, hefði annað þeirra orðið miklu dýrara en hitt, og þó að sá, sem fékk ódýrara haframjölið, hefði lagt á það þá álagningu, sem hefði verið talin óhæfileg og auglýst af ráðh. sem ósæmileg, þá hefði það haframjöl samt orðið ódýrara en hitt. Svo mikill munur var á innkaupsverðinu. Alveg sams konar tilfelli um hveiti man ég eftir frá öðru ári, meðan ég hafði þetta verk með höndum. Það kann að vera, að það hafi ekki verið alveg sambærilegt hvað gæði snertir, svo að ég get ekki eins borið það dæmi saman, en haframjölsdæmið sýndi greinilega, að maðurinn, sem hefði getað selt haframjölið ódýrara en hinn, hefði komið á svarta listann fyrir að leggja á það óhæfilega mikla álagningu og gat þó verið neðar, en hinn með útsöluverðið. Þess vegna er það, að eins og þessu verðlagseftirliti er hagað, þegar bara er tekið tillit til álagningarinnar og reynt að halda henni í skefjum, þá er ekki hægt nema stundum að ná til þeirra, sem selja raunverulega ódýrast. Það er a.m.k. ákaflega oft, sem við náum alls ekki til þeirra, sem eru með lægsta verð á vörunni, af því að þeir sömu menn hafa kannske lent í öðruvísi innkaupum en hinir og sitt á hvað, svo að það er ekki hægt — við náum ekki til þeirra. — Þess vegna get ég hvorki verið með till. hv. þm. Barð. né skriflegu till., því að ég verð að leggja það í dóm ráðh. að dæma um þetta og láta hann vera það æðsta ráð, hver sem hann er, en láta honum vera skylt að birta þá, sem óhæfilega álagningu nota að hans dómi. Það er hans dómur, sem þar er um að ræða, og annað er ekki um að ræða. Hver sem í því sæti situr, þá er það hans að dæma um það og láta birta þau nöfn. Hin þýðir ekki að birta, þau gefa misvísandi upplýsingar. Allt annað mál væri það, ef hægt væri að koma verðlagseftirlitinu fyrir öðruvísi, en með þeim „stikkprufum“ á álagningu, sem nú er gert. Ef hægt væri að koma því þannig fyrir, að menn gætu fengið raunverulegt útsöluverð á vörunum og hægt væri að tilkynna það, þá væri málið komið inn á annan grundvöll, en þannig er það ekki í framkvæmd og er ekki ætlazt til þess í framkvæmd. Það hefur alltaf verið aðeins miðað við álagninguna og reynt að takmarka hana, en ekki hitt, og við því verðum við að gera. Það er það, sem nú er um að ræða.

Þess vegna mun ég verða með þeirri breyt., sem við hv. 8. þm. Reykv. höfum flutt hér, um að færa þetta í skyldu, en láta það að öðru leyti vera undir mati verðgæzlustjórans annars vegar og ráðh., sem með þessi mál fer, hins vegar, þessara tveggja manna, hvenær þeir telja álagninguna óhæfilega og hvenær ekki. Með hinu get ég hvorugu verið og hef þó ákaflega mikla löngun til þess að geta kunngert alþjóð þá menn, sem hafa minnsta álagningu og selja við lægstu verði, hafa bæði góð innkaup og litla álagningu. Þá mundi hv. þm. Barð. undireins fara að verzla við kaupfélög, því að þá mundi hann sannfærast um það, að þau eru miklu ódýrari með allt vöruverð heldur en hinir, en hann lifir nú í trú, en aðgætir ekki staðreyndir.