21.11.1952
Neðri deild: 30. fundur, 72. löggjafarþing.
Sjá dálk 947 í B-deild Alþingistíðinda. (998)
42. mál, verðlag
Viðskmrh. (Björn Ólafsson):
Mig furðaði nokkuð á þeirri fullyrðingu, sem hv. þm. hafði um heiðarleik verðgæzlunnar, er hann sagði, að tveir kaupsýslumenn hefðu verið að státa við sig af því, að þeir hefðu gefið málamyndaskýringu, þ.e.a.s. skýringu, sem engin skýring var, og hún hefði strax verið tekin gild. Þetta sýndi meðal annars, hvernig verðgæzlan rækti starf sitt. Ég verð nú að segja það, að ég hef ekki orðið var við, að verðgæzlunni hafi verið nokkurn tíma borið á brýn, hvaða ríkisstjórn sem hér hefur setið, að hún rækti ekki starf sitt eftir beztu getu og samvizkusamlega. En hér er hv. þm. að bera henni þetta beinlínis á brýn og koma með svona slúðursögu inn í þingið. Ég verð að segja það, að ég ber fyllilega brigður á, að hv. þm. hafi talað eftir beztu vitund, þegar hann sagði frá þessu. (Gripið fram í.) Já, það má gjarnan birta þessi nöfn, og ég skora á þm. að gefa upp, hverjir þessir menn eru, svo að hægt sé að ganga úr skugga um það, að þeir hafi haft þessi orð um verðgæzluna.
Ég sé nú ekki, að hv. þm. hafi mikla ástæðu til þess að ráðast að mér með hrópum fyrir það, að ég vil ekki fara að gefa fyrir fram skýringu á því, hvernig ég ætli að framkvæma lög, sem þingið setur. Ég veit ekki til, að það sé venja þingsins að krefja ráðh. um svör við því, hvernig þeir ætli að framkvæma þau lög, sem þingið hefur í smiðum. Hefur nokkur þm. hér inni vitað til, að slíkur háttur hafi nokkurn tíma verið upp tekinn? Að sjálfsögðu verður viðkomandi ráðh. að framkvæma þau l., sem sett eru, eftir laganna hljóðan og eftir beztu samvizku.
Hv. þm. gat um það, að ég hefði skýrt frá því hér við umr. í gær, að komið hefði fram 12% rýrnun á vinnuvíkum iðnaðarins frá árinu 1949 til ársloka 1951. Og hv. þm. kemur með það kynduga dæmi, að þessi 12% starfsrýrnun í iðnaðinum á þessu tímabili þýði 3% atvinnuleysi í öllu landinu. M.ö.o., skýringin hlýtur að liggja í því, að það séu nálægt 40 þús. manns í iðnaði á landinu, verksmiðjuiðnaði og öðrum þess háttar smáiðnaði. Ég er nú hræddur um, að reikningur hv. þm. mundi ekki reynast alveg réttur, ef þetta væri skoðað ofan í kjölinn. Og vafalaust hefur hann kastað þessu fram í ógáti og hefur alls ekki meint það. En eins og ég gat um í gær, þá stafar mikið af þessari vinnurýrnun í iðnaðinum af því, að atvinnan við svartamarkaðinn lagðist að miklu leyti niður, atvinna við svarta markaðinn, sem hv. stjórn Alþfl. varð að horfa upp á í sinni stjórnartíð. (Gripið fram í.) Já, það var til svartur markaður á þessu tímabili, og hann sýndi sig meðal annars í því, að hér þutu upp saumastofur eins og gorkúlur á haug, vegna þess að svo að segja ekki ein einasta alin af innfluttu lérefti og annarri algengri vefnaðarvöru komst nokkurn tíma í búðirnar, heldur á saumaverkstæðin. Og eftirspurn eftir fólki á þessi verkstæði var meiri, en nokkurn tíma hafði þekkzt áður. Þegar svo húsmæðurnar gátu keypt vefnaðarvöru, gátu keypt léreft og flúnel og annað þess háttar og saumað sjálfar föt á börn sín og fjölskyldu, sem þær höfðu áður þurft að kaupa háu verði, þá náttúrlega hrundi þessi svarti markaður. Af þeim sökum stafar talsvert fækkun verkafólks í iðnaðinum á þessu tímabili. Annars virðast ekki þær atvinnuleysisskýrslur, sem hafa verið teknar hér í Reykjavík nýlega, sanna það, að um mikið atvinnuleysi í iðnaðinum sé að ræða, svo að hv. þm. getur ekki notað þetta sem grundvöll fyrir þær árásir, sem hann og flokkur hans hefur haldið uppi á ríkisstj. í sambandi við þetta mál og önnur.